Dagblaðið - 30.12.1978, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 30.12.1978, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1978. mBIAÐtt Útgefandi: Dagbiaðifl hf. Framkvæmdastjóri: Svoinn R. Eyjóffsson. Rrtstjórí: Jónas Kristjánsson. Fróttastjórí: Jón Birgir Pátursson. RrtstjómarfuUtrúi: Haukur Helgason. Skrífstofustjóri ritstjóman Jó- hannes Reykdal. iþróttir Halkir Símonarson. Aðstoflarfróttastjórar Atli Steinarsson og Ómar Valdh marsson. Menningarmál: Aflalsteinn Ingólfsson. Handrit Ásgrímur Pálsson. Blaflamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurflsson, Dóra Stefánsdóttír, EKn Afeerts- dóttír, Gissur Sigurflsson, Gunnlaugur A. Jónsson, HaHur HaNsson, Helgi Pétursson, Jónas Haraldsson, Ólafur Geirsson, Ólafur Jónsson. Hönnun: Gufljón H. Pálsson. Ljósmyndir Ari Kristínsson, Ámi Páll Jóhannsson, Bjamleifur Bjamieifsson, Hörflur Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurflsson, Sveinn Pormóflsson. Skrifstofustjóri: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorieifsson. Sölusljóri: Ingvar Sveinsson. Dre'rfing- arstjóri: Már E.M. Halldórsson. Ritstjóm Siflumúla 12. Afgreiflsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverhottí 11. Aflalsimi blaflsins er 27022 (10 linuri. Áskrift 2500 kr. á mánufli innanlands. i lausasöiu 125 kr. eintakífl. Setning og umbrot Dagblaflið hf. Síflumúla 12. Mynda- og plötugerfl: Hilmir hf. Siðumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skorfunni 10. Friörík er maðurinn Friðrik Ólafsson, forseti Alþjóða skák- sambandsins, var næstum einróma kjör- inn „maður ársins” á ritstjórn Dag- blaðsins að þessu sinni. Það var í ár, að hann náði glæsilegri kosningu í embætti sitt eftir mjög tvísýna stöðu í forvali. Sem maður ársins fylgir Friðrik í kjölfar Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur og Vilmundar Gylfasonar, sem rit- stjórn Dagblaðsins valdi árin 1975 og 1976. í fyrra náði enginn íslendingur tilskilinni útkomu í atkvæðagreiðslu ritstjórnar, svo að þá var ekki útnefndur neinn maður ársins. Friðrik er vel að nafnbótinni kominn. Hann hefur verið í sviðsljósinu í þrjá áratugi og er vel kunnur miklum fjölda íslendinga. Á þessum tíma hefur hann aflað sér almennra vinsælda, ekki aðeins sem stórmeist- ari í skák, heldur einnig vegna ljúfmennsku sinnar og annarra mannkosta. Sama orð fer af honum erlendis. Hvar sem Friðrik hefur teflt á alþjóðlegum mótum, hefur hann vakið athygli keppinautanna, ekki aðeins fyrir frábæra tafl- mennsku, heldur einnig og ekki síður vegna persónu sinnar. Það er fyrst og fremst vegna þessa, að hann er nú orðinn forseti Alþjóða skáksambandsins. í þessu öfluga sambandi hafa magnazt margvíslegar og erfiðar deilur á undanförnum árum. Hinn aldur- hnigni, fyrrverandi heimsmeistari í skák, dr. Euwe frá Hollandi, hefur átt erfitt með að hemja þessar deilur. Litríkir stórmeistarar á borð við Fischer og Kortsnoj hafa valdið deilum. Þar við hefur bætzt spennan milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna og spennan milli Sovét- ríkjanna og sovézkra flóttamanna. Til viðbótar þessu hefur svo magnazt spenna milli Evrópu og þriðja heimsins. Skák er að vísu ekki mikið tefld í þriðja heiminum, en skáksamböndin þar eru svo mörg, að þau ráða úrslitum í alþjóðasambandinu. Þe tta olli því, að ráðamenn í skáklífi Evrópu fóru að svipast um eftir manni, sem vildi halda stjórnmálum frá alþjóðlegum skáksamskiptum, væri hvorki hallur undir Sovétríkin né Bandaríkin og vildi halda evrópskum hlut- leysishefðum. Þeir fundu Friðrik. Hann var maðurinn, sem gat sam- einað skákhefðina annars vegar og hin nýkomnu vanda- mál hins vegar. Gligoric frá Júgóslavíu var einnig talinn koma til greina, enda nýtur hann vinsælda og virðingar á borð við Friðrik. Útkoman var sú, að Gligoric féll úr leik og Friðrik hafði síðan sigur með sameinuðum atkvæðum Vestur- og Austur-Evrópu og töluverðum atkvæðafjölda úr þriðja heiminum. Friðrik á gífurlega erfitt hlutverk fyrir höndum. Hann þarf að leysa vandamál, sem upp komu í heimsmeistara- einvígi Karpovs og Kortsnojs. Hann þarf að kanna, hvort Fischer er horfinn skáklistinni. Hann þarf að auð- velda þriðja heiminum að komast að í alþjóðlegri hring- iðu skákarinnar. Þetta eru nokkur dæmi um verkefnin. Friðrik gerir sér ljósa grein fyrir þeim og hefur sett sér verkefnaskrá, sem nýtur mikils hljómgrunns í skákheiminum. í þessari hljómkviðu eru aðeins tveir falskir tónar, sem fram hafa komið í greinum forseta og varaforseta íslenzka skáksambandsins. Skoðanir þeirra eru sér á parti og hafa ekki hinn minnsta hljómgrunn. Mikilvægt er, að allir íslenzkir skákmenn og þjóðin öll sameinist um að auðvelda Friðrik verkefni hans og gera íslenzka tímabilið að mikilli uppgangsöld skáklífs í heim- inum. Guyana land kyn- þáttahatursins —landið þarsem nærri þúsund manns framdi sjálfsmorð sjálfviljugteóa tilneytt Kynþáttahatur, spilling og kosningasvik hafa verið meginþáttur fréttnæmra atburða frá Suður- Ameríkuríkinu. Landið komst aftur á móti óvenjulega hressilega í heims- fréttirnar í lok nóvember síðastliðsins. Trúarleiðtoginn Jim Jones og félagar í flokki hans sáu fyrir því, eftir að hafa drepið bandarískan þingmann sem kom til búða þeirra í frumskógum Guyana til rannsóknar, ásamt þrem fylgdarmönnum sínum. Einn blaða- maður komst naumlega undan en særður. Hefur hann nú skrifað bók um málið, sem er gott dæmi um það að vestra eru hendur látnar standa fram úr ermum ef fréttnæmir atburðir eru annars vegar. Svo ekki sé talað um ef jafnhliða er fjárvon. Ef litið er á innanlandsmál í Guyana, þá er þess fyrst að geta að núverandi forseti landsins, Forbes Burnham að nafni, hefur verið við völd frá því árið 1966. Flokkur hans nýtur fylgis svartra ibúa landsins, en þeir eru í meirihluta. Áður var landið brezk nýlenda. Kallar herra Burnham land sitt því athyglisverða nafni — Samvinnulýðveldið Guyana —. Landið er um það bil tvö hundruð þúsund ferkilómetrar og íbúar landsins eru rúmlega átta hundruð þúsund. Stundum er Guyana kallað V r AÐ ELTA GÆS Keisarinn í Kína hvað kunna skil á kverinu sínu. Keisarinn í íran kann Jeili á mörgu en getur ekki allt, frekar :n aðrir dauðlegir menn. Hann ku hafa leitt þjóð sína til auglitis við vest- ræna tæknimenningu, en ekki hugað að sálarró þegna sinna meðan þeir gleyptu svo stóran bita sem hinn vest- ræni tækniheimur er. í fyrstu sporð- renndu íbúarnir öllu misjöfnu sem keypt var fyrir olíuaurinn, en þar kom að mörgum þótti nóg af svo hrárri soðningu. Upphófust mótmæli og læti mikil. í stað þess að tilbiðja og þakka keisaranum fyrir alla ísskápana og bíl- ana lögðu menn fæð sina á trúarleið- toga sinn. Allir þekkja af fregnum undanfarna mánuði hversu á gengur í keisarans ríki. 1 lesbók Morgunblaðsins 2. desem- ber lýsir Gísli Sigurðsson á sannfær- andi hátt hvernig fer þegar einn maður ætlar að færa þjóð sinni fyrir- heitna landið á silfurfati. Greinin er skrifuð með augum gestsins en glöggt er gestsaugað. Er ekki laust við að margur lesandinn hafi brosað í kamp- inn við lestur greinarinnar. Fundið sjálfan sig i svipuðtf umróti dagsins i dag. Umbreytingamar i tran geta verið ivið broslegar á stundum í augum framandi manna. En er sannleikurinn ekki sá, að sams konar breytingar hafa átt sér stað víða um veröld undan- farna áratugi og gerast enn í dag með meiri hraða en áður. Allt frá því Ameríkanar komu með Caterpillar jarðýtuna í Hvalfjörðinn, hafði lífið þróast hér á landi án verulegrar tækni eins og um getur I annálum allt fram á upphaf tuttugustu aldar. Milljónir loðna dóu í gær Þróunin frá hestunum yfir í véla- hestöflin hefur verið snögg og komið róti á hugi fólks. Um hægfara þróun er tæpast lengur að tala, slíkur er hrað- inná tækniöldinni. Útgerðarmaður sem sendi bát sinn eftir 500 tonnum af loðnu I gær, á von á 1500 tonna skipi á morgun til að geta skilað enn meiri afla að landi. Kjarabót sem gefur skipstjóranum milljónir í auknum aflahlut og lands- mönnum þaðan af meir. Kauphækkun sem fæstir tala um, en allir vilja enn meira og undirbúa sig undir stærri stökk. Hver og einn þegn lýðveldisins, hvort hann vill eður ei, er meðtekinn af flóðbylgju tækninnar, verður að fljóta með vilji hann ekki skolast niður. Eða verða væntanlegur styrk- þegi almannatryggingakerfisins. öðrum, sem geta unnið, þykir gott að komast á spena. Um leið og þeir glotta til lífsgæðakapphlaupsmanna, eins og þeir vildu segja, að það sé mátulegt á þá að draga sig upp á öldutoppa vel- megunarinnar. Enn aðrir fara til ráðherra og biðja um frían síma eins og þingmenn hafa þegar og fá um hæl. Alls eru þeir góðs verðugir ef þeir gera þá ekki Póst og síma að útibúi almannatrygginga. Raunar eru stjórnmálamenn I stöðugu snatti fyrir hina og þessa hópa. Oft á tíðum til að ná kjölfestu fyrir þá sem minna mega sín í kapphlaupinu. Þess á milli sem þeir stinga út stefnuna i landsmálunum eftir meira og minna misvísum kompás. Viðleitnin við að fleyta rjómanum frá þeim stæðari yfir til hinna sem minna eru megnugir er góðra gjalda verö. Kompásskekkja er hinsvegar öllu verri og raunverulegur vilji almennings torskildari og vand- fundnari en margan grunar. Trúa keisarar átröll? Keisarar kunna að trúa á tröll og mannvirki. Vilja þegnum sinum vel með þvi að færa þeim glysvarning í stað olíuauðæfa. Samt sem áður ólgar og sýður undir niðri. Aldagömul hefð og trú varð að lúta i lægra haldi fyrir skyndilegu peningaflóði frá Vestur- löndum. Oliugróðinn umturnaði öllu hefðbundnu lífsgæðamati og ruglaði fólk í riminu. Sama saga hefur verið að

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.