Dagblaðið - 30.12.1978, Blaðsíða 21

Dagblaðið - 30.12.1978, Blaðsíða 21
föðurhúsum og er nú orðinn rúmlega eins og hálfs árs gamall. Flugræningi einn gafst upp i Banda ríkjunum og reyndist þá vera með dag- blöð og sælgæti i töskunni, sem hann hafði sagt vera fulla af handsprengjum. Suður Mólúkkar tóku sjötíu manns í gislingu í Hollandi en voru yfirbugaðir eftir rúmlega sólarhrings umsátur. Einn maður féll er Mólúkkarnir hentu honum út um glugga eftir að hafa skotið hann. Ránið á Moro og leitin bar engan árangur Aldo Moro fyrrum forsætisráðherra Ítalíu var rænt á götu í Rórn hinn 16. marz. Gífurleg leit var gerð aö honum og völd lögreglunnaraukin. Ekki tókst þó að finna Moro. Mörg bréf bárust frá honum þar sem hann grátbað stjórnvöld um að ganga að kröfum ræningjanna. Við því var ekki orðið þrátt fyrir óskir ættingja hans og nokkurra ' stjórnmálamanna. Loks fannst lik hans i byrjun mai i farangurs- geymslu bifreiðar i Róm. Hafði hann verið skotinn til bana. Hægri- og miðflokkarnir unnu mikinn sigur í síðari umferð frönsku kosninganna. Flokkur Valery Giscard d’ Estaing forseta var talinn helzti sigur- vegarinn en fylgistap vinstri flokkanna sagt mikið. Risaolíuskip strandaði undan ströndum Bretagne á Frakklandi, mikil olía lak úr skipinu og mengaði umhverf- ið, drap fugla og eyddi lífi. Að lokum liðaðist flakið i sundur en hafði að nokkru verið sprengt i sundur áður. Marzmánuði lýkur á frétlinni af sleðakappanum, sem reyndar var af veikara kyninu. Hún tók þátt i sleða keppni i Kanada en Ijóst varð að hún væri hætt þátttöku þegar i Ijós kom að sleðahundarnir höfðu ráðizt á hana og drepið. Engin skýring fannst á slysinu en hundarnir voru drepnir á staðnum. Apríl Hundruð grískra ínnfly tjenda i Ástralíu eru viðriðin tryggingarsvik sem talin eru nema jafnvirði tíu mill- jarða islenzkra króna. Diane Keaton og Richard Dreyfuss fengu Óskarsverðlaunin frægu fyrir beztan leik í kvikmyndum. Woody Allen var valinn bezti leikstjórinn. Athygli vakti að Richard Burton fékk ekki verð- launin en hann hefur verið útnefndur sjö sinnum til titilsins. í ljós kom að sjónvarpsefni fyrir börn i Bandarikjunum hafði þrisvar sinnum meira ofbeldi að innihaldi en efni fyrir fullorðna. Lcikarinn frægi John Wayne var hinn hressasti eftir hjartauppskurð en þó þykir kappinn heldur vera farinn að láta á sjá, enda kominn á áttræðisaldurinn. Hafréttarráðstefnan fór í strand enn einu sinni. Nú var deilt um hver ætti að sitja i forsetastóli. Yfirvöld í Thailandi hrósuðu sigri enda höfðu að sögn kunnugra þar i landi verið drepnar tuttugu milljónir rotta. Ekki bárust neinar fregnir af hvernig talningu á likunum var háttað en rottur hafa oft á tiðum valdið miklu tjóni á hrisgrjónauppskeru landsmanna. Sjötíu daga hrakningar um Atlantshafið Tveir ltalir urðu að hrekjast um Atlantshafið á björgunarbáti i sjötíu og þrjá daga. Hafði skúta þeirra rekizt á hval ogsokkið. Ekki eiga öll ný dagblöð velgengni að fagna eins og vort ágæta Dagblað. Eftir þriggja mánaða baráttu lagði The Trib i New York upp laupana eftir að útgef- endur höfðu tapað jafnvirði cins oy hálfs milljarös islenzkra króna á ævintýrinu. /Eðsti yfirmaður sovézku seiídinefnd- arinnar hjá Samcinuðuþjóðunum lcitaði hælis i Bandarikjunum. sem pólitiskur flóttamaður. Seinna á árinu komst hann aftur í sviðsljósið og þá fyrir tilverknað konu einnar, sem endilega vildi segja frá liferni hans i sambúð þeirra. Kóreuþotan í villum yfir Sovét Suður-kóreönsk farþegaþota villtist sextán hundruð kílómetra af leið og lauk villunni þannig að hún var neydd til að lenda af sovézkum herþotum enda var hún þá komin langt inn fyrir lofthelgi stórveldisins. Engan sakaði og farþcgar fengu að fara sína leið og áhöfnin skömmusiðar. Fimmtíu og einn fórst er vinnupallar hrundu utan af kæliturni sem var í byggingu i Vestur-Virginiu í Banda- rikjunum. Upplýst var að fimmtán af hundraði Bandarikjamanna þarfnast einhvern tíma hjálpar geðlæknis á lifsleiðinni. Einnig kemur fram að fikniefnaneyzla er vaxandi vandi i her landsins. Aprilþætti erlends annáls lýkur með tilvitnun i gagnmerka erlenda grein í DB þar sem athygli Islendinga er vakin á sælurikinu Saudi-Arabíu, þar sem bensínlítrinn kostar aðeins brot af verði vatnsins. Ekki hefur frétzt af neinuni þjáðum bileiganda sem þangað hefur brugðið sér. Maí Lundúnahöfn er illa stödd fjárhags- lega og kenna menn þar um hve lcndunarbúnaður er þar orðinn úreltur og höfnin dýrseld og óörugg vegna verk- falla starfsmanna. Freddy Laker flugmálafrömuðurinn var enn á ferð og bauð nú upp á ferð milli London og Los Angelcs fyrir fjðrutíu þúsund krónur hólli mörgurn það ótrúlega góð kjör en Laker stendur sig enn og hefur vist aldrei verið hress- ari. Morðinginn bandariski sem kallaöur hefur verið Sonur Sánts játaði á sig meira en tvö þúsund ikveikjur auk hinna sex morða, sem hann er talinn hafa framið. Donny Osmond söngvarinn l'rægi gekk í hjónaband og þótti margri ung- meynni mikill sjónarsviptir að honum. Hótelverkfall varð á Costa del Sol á Spáni og-þurftu gestir að búa um rúm sin sjálfir og borða kaldar brauðsneiðar. Ekki er vitað um neinn sem varð meint af. Þrettán ára gamalt draugamál upplýstist i Vestur-Þýzkalandi. Af- greiðslumaður, sem talinn hafði verið búa yfir miðilshæfileikum, upplýsti að hann hefði fært sér nýjustu tækni i nyt við starfsemina. Raddirnar að handan hafi komið af segulbandi sem geymt var í kjallaranuni. Mexfkanarnir drýgðu tekjurn- ar með kaffi- smygli Mcxikanskir opiribcrir starfsmenn. fjórir að tölu, drýgðu tekjur sínar með kaffismygli til Bandarikjanna. Bresnef forseti Sovétríkjanna b: ; sér i heimsókn til Vestur-Þýzkaland' pruu fyrir allt heilsuleysið sem sagt c. þjá hann. Að sögn voru viðræður hans við Schmidt kanslara hreinskilnar og ánægjulegar. Helzt þótti það tiðindum sæta að hjólbarði sprakk á bifreið forset- ans og héldu öryggisverðir, sem að sjálf sögðu voru eins og mý á mykjuskán, að þar væru hryðjuverkamenn á ferð. Reyndist þó aðeins um venjulega „punkteringu" að ræða. Fiskimenn frá Borgundarhólmi lokuðu tuttugu höfnum i Danmörku i mótmælaskyni við aðgerðarleysi dönsku stjórnarinnar i að semja um veiðikvóta fyrir þá í Eystrasalti. Glæpamenn brutist inn í peninga- geymslu á Heathrow flugvelli i London en fundu ekki það sem þeir lcituðu að og hurfu á braut við svo búið. Einn ræingjanna hafði á brott með sér nestis- -bita eins varðanna, sem lá keflaður á gólfinu. Innrás var gerð í Katanga hérað i Zaire og margir hvítir starfsmenn við koparnámurnar þar drcpnir. Innrásar- mennirnir komu frá Angóla en voru hraktir til baka af frönskum hcr mönnum, sem komu á vettvang lil að bjargastjórn Mobuto forseta landsins. Júní Elísabet önnur drottning Bretaveldis hélt upp á tuttugu og fimm ára krýning- arafmæli sitt í byrjun júni. Margir sam fögnuðu henni en drottningin dró heldur úr viðhöfninni vegna þcss að í fyrra var haldið upp á aldarfjórðungs rikis- stjórnarafmæli hennar. Hópur brezkra vcrzlunarmanna hóf baráttu fyrir þvi að halda i fetið og tommuna og aðrar gamlar mælieining- ar. Vilja þcir. hvorki heyra né sjá metrann. Svo við höldum okkur áfrant við Bretaveldi þá bárust fregnir af þvi að vegfarandi hafi kastað flösku i rúðu á bifreið Charles krónprins. Hann sakaði ckki. En kastarinn var dæmdur i sex mánaða fangelsi. Nina hin sovézka fékk loks leyfi cftir fjögurra ára baráttu til að giftast banda riskunt unnusta sinuni. Þau kynntust fyrst i Moskvuárið 1974 og fljótlega upp úr því hófust erfiðleikarnir sem þó voru sigraðir aö lokunt. Hótelbruni í Sví- þjóð — tuttugu fórust Tuttugu manns fórust er eldur kom upp i gistihúsi i Borás í Sviþjóð. Margir sluppu naumlega úr logunum. Þetta var göntul bygging og vcrið var að cndur nýjaeldvarnirnar. Fimm milljónir litra af oliu fóru i sjóinn við Japan er olíutankar sprungu i jarðskjálfta. Hús hrundu og tuttugu og einn maður fórst. Burt með berbrjósta konur! Samtök siðlátra Svissara börðust hat rantmri baráttu gegn þeini ósóma, að konur fengju að ganga berbrjósta við sundstaði i Bern. Ekki hefur frétzt af úr slitum málsins. Tuttugu og tveggja ára gamall Banda rikjamaður vakti rnikla athygli þcgar hann lagði frant fjögur hundruð blaðsiðna skýrslu urn hvernig gcra mætti kjarnorkubombu á auðveldan hátt. Hann benti þeim sem töldu hér vera um hernaðarleyndarmál að ræða á að upplýsingarnar lægju öllum til reiðu á bókasafni öldungadeildar þingsins i Washington. í ljós kom að fulltrúi Idi Arnins leiðtoga Uganda á Norðurlöndum var fjöldamorðingi. Hafði hann staðið fyrir alls kyns óþverraverknaði I sínu heima- landi. Hvarf hann þangað aftur cftir að uppvist var orðið um fyrri störf hans. Bretar berjast harðri fiskverndar- og landhelgisbaráttu við aðrar þjóðir Efrta hagsbandalagsins. Þykir mörgunt hér skipt sköpum siðan i ölhim þorska striðum Bretanna við íslendinga. Bcita þeir nú rnjög sömu röksemdafærslum i slagnum og íslendingar á sinum tima. Svo lengi lærir sent lifir,-sagði einhver. Leiðarahöfundur Dagblaðs al þýðunnar i Peking var ábyrgur að vanda og hvatti landsmenn til að neyta einfaldra rétta gjarnan tilbúinna úr dósum. Þyrftu þá konur landsins ekki að tefja sig frá framleiðslustörfunum við viðamikinn matartilbúning. JúK Jafnvirði nærri eitt hundrað ntilljóna islenzkra króna var stolið úr bankaútibúi einu í Alsgaarde i Danmörku. Þjófarnir sprengdu upp peningaskáp sem notaður var sem næturhólf. Gerðist þetta snentma á mánudagsmorgni og komust þeir af vettvangi áður en vart varð við þá. Mun þetta vera Danmerkurmet i bankaráni. Karólina prinsessa í Mónakó gekk i það heilaga og eiginmaðurinn er — hinn umdeildi kvennamaður og franskættaði kaupsýslumaður Junot — eins og sagði i myndatexta í DB. Fregnir bárust af þvi að foreldrar brúðarinnar hafi ekki verið ýkja hrifnir af væntanlegum tengdasyrti. En sú litla gaf sig ekki og brúðkaupið var haldið. Ofsasprenging á sólarströndum Spánar Eitt hundrað og áttatíu ntanns fórust er bil'reið hlaðin gaskútum fór út af vcginunt við sólarströnd á Miðjarðar hafsströnd Spánar. Lenti bifreiðin þar inn i miðjum tjaldbúðum og hjólahýsa- hverfi og voru gestir nær allir sofandi. Mikil sprenging varð og liktu sjónarvott- ar henni við kjarnorkusprengingu. Mörg lórnardýranna þeyttust á haf út og stiknuðu i eldslogunum. Tólf hús eyðilögðust i sprengingunni og eitt nær- liggjandi diskótek. Ekki tókst að þekkja nærri öll líkin aftur. Orsök slyssins mun hafa verið sú að framdekk sprakk á flutningabifreiðinni ogökumaðurinn við það ntisst stjórn á henni. ! Ijós kom að bifrciðinni var ckið eftir hliðarvegi framhjá sólarströndinni til að losna við greiðslu eitt þúsund peseta vegaskatts. Er þaðjafngildi unt þaðbil fimm þúsund islenzkra króna. Fregnir af gassprengingunni á Spáni voru ekki hljóðnaðar þegar sams konar atburður varö í Mexikó. Þar sprakk gas flutningabifreið á hraðbraut. Margar bifreiðar óku á flakið og munu i það minnsta fimmtán hafa látið lífið og hátt á annað hundrað hafa særzL Algjör kaos f Ródesíu Hópi evrópskra hjólreiðamanna sem hugðbt Itjóla frá París til Moskvu var neitað um hcintild til aðfara um sovézka vegi. Urðu peir því að láta af áætlun sinni. Ródesíumenn, það er að segja hvítir.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.