Dagblaðið - 06.01.1979, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 06.01.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1979. Steinunn Bjarnadóttir kom á ritstjóm DB. Var hún afar óánægð með þá þjónustu sem Radíóstofan á Þórsgötu 14 hafði veitt henni. Steinunn átti gamalt sjónvarpstæki sem hún að eigin sögn lét innsigla í sumar og fór siðan með til Radióstofunnar og bað um að tækið væri selt. Þá var nýbúið að gera við það og var það að sögn Steinunnar í fullkomnu lagi. Þótti henni því það alls ekki mega seljast fyrir minna en 37 þúsund krónur. Siðan leið og beið og ekki seldist tækið. Nú í desember er Steinunn hugðist sækja það frétti hún að búið væri að selja það og hefðu fengizt 27 þúsund krónur fyrir. Einnig frétti hún þá að við tækið hefði verið gert fyrir 15 þúsund krónur sem drægjust frá þeirri upphæð sem hún fengi sjálf fyrir tækið. Seinna var henni þó boðið af eiganda Radíóstofunnar að sá reikn- ingur yrði látinn falla niður. En Steinunn vildi ekki sætta sig við málalok. Þótti henni sem starfsmenn Radíóstofunnar hefðu ekki heimild til að selja tæki hennar fyrir lægri upp- hæð en þá sem hún hafði sett sem lág- mark. Þótti henni einnig furðulegt að hún skildi ekki geta fengið einhverja viðurkenningu á því í miðstöðinni að tækið hefði verið selt með þeim skil- málum sem greint var frá. Þóttist Steinunn því hlunnfarin í viðskiptum. Vitjaði aidrei um tækið Sveinn Jónsson, eigandi Radíómið- stöðvarinnar, sagði um málið að sala á gömlum sjónvarpstækjum hefði valdið eilífum vandræðum og væri fyrirtækið hætt henni núna. Fyrirtækið hefði sett sér að selja engum tæki nema það væri í fullkomnu lagi og hefðu þvi öll sjón- varpstæki sem í búðina komu verið at- huguð. Þannig stæði á þeim 15 þúsund króna viðgerðarreikningi sem Steinunn væri að tala um. Tæki Steinunnar hefði staðið í búð- inni í allt sumar og framundir jól og hefði enginn sýnt neinn áhuga á að kaupa það, því bæði þótti það of stórt og of dýrt. Aldrei á öllum þeim tima segir Sveinn að Steinunn hafi hringt eða komið til að vitja um tækið. Þegar inn í búðina kom maður fyrir jól og bauð í það 27 þúsund krónur urðu menn þar guðs lifandi fegnir að losna við það og var það selt á staðnum, án þess að haft væri samband við Stein- unni. Þegar Steinunn svo kom nokkrum dögum seinna í búðina var henni sagt Fór með gamla sjónvarpið í umboðssölu Selt fyrir minna en lágmark án samráðs vegna misskilnings á hvað tækið hefði verið selt og að hún ætti að greiða við- gerðarreikning. Sveinn haföi hins vegar ætlað að fella reikninginn niður og hefði þá Steinunn komið út með ósköp svipaða upphæð fyrir tækið og ef hún hefði sjálf þurft að Rreiða reikn- inginn og tiu þúsundum meira hefði fengizt fyrir tækið. Um ástæðuna fyrir því að Steinunn gat ekki fengið viðurkenningu á við- skiptunum sagði Sveinn að hún hefði komið I búðina daginn fyrir gamlárs- dag og þá hefði allt uppgjör verzlunar- innar verið I molum og hennar ekki fundizt. En hún gæti vissulega fengið viðurkenningu hvenær sem væri. Að lokum sagði Sveinn að hinn 15 þúsund króna viðgerðarreikningur sem Steinunn var svo hissa á hefði v'erið á tækinu i allt sumar og vetur ; hefði aldrei verið neitt leyndarmál. Ef hún hefði komið í búöina hefði hún. séð hann. Svo virðist sem bæöi Sveinn og Steinunn hafi nokkuð til sins máls og væri ef til vill heppilegt fýrír þau að fara að dæmi fólks- ins á myndinni. Um drykkjulæti Islendinga á Kanaríeyjaf lugvelli: Húrra fyrir flugstjóranum Vanur ferðamaður hringdi: „Þrátt fyrir slæma frétt af hegðun íslendinga um borð í Flugleiðaþotu á Kanarieyjaflugvelli fyrir skömmu og birtist á forsíðu DB, álit ég hana á sinn hátt gleðifrétt. Ég er vanur ferðalögum víða um heim og þrátt fyrir að ég sé stoltur af því að vera lslendingur, verð ég þvi miður að segja að hvergi í heiminum hef ég séð aðra eins vansæmdarfram- komu flugfarþega og tslendinga. í þvi sambandi er mér minnisstætt er ég var eitt sinn í innanlandsflugi í Bandarikjunum. Varð ég þá var viö nokkra háreysti og drykkjulæti nokk- urra manna aftast í vélinni. Þegar ég átti svo leið aftur í vélina á salerni, skildi ég skvaldur mannanna, það var á íslenzku. Hér með skora ég á islenzkar flugáhafnir að taka slík mál fastari tökum í framtiðinni og vil að lokum segja: Húrra fyrir framkomu flugstjórans á Kanaríeyjum.” Meina verður drukknum um flugfar — Oróaseggirnir iðruðust er þeir áttuðu sig á greiða f lugstjórans við þá og óþægindunum fyrir saklaustfólk Farþegi, sem var i Kanarieyjafluginu sem tafðist um tvo tima vegna drykkju- láta um borð, hringdi: Ég vil í framhaldi fréttar DB um drykkjulætin í Flugleiðaþotunni á Kanaríeyjum sl. föstudag, með þeim afleiðingum að flugstjórinn frestaði flugtaki um tvær klukkustundir, eða þar til að viðunandi ró var komin á óróaseggina, benda Flugleiðum á að taka framvegis mun strangar á að menn gangi ekki drukknir um borð í flugvélamar. Það verður að taka þetta leiðinda- mál mun fastari tökum. Þótt ég og kona min höfum liðið saklaus fyrir óspektir hóps farjæganna, m.a. vegna hita í vélinni á meðan hún beið, styðjum við ákvörðun flugstjórans. Jafnframt álítum við flugstjórann hafa gert óróaseggjunum mikinn greiða með að gefa þeim þetta tæki- færi I stað þess að varpa þeim út I hendur lögreglu, enda iðruðust þeir eftir því sem á heimleiðina leið. Efast ég um aö þeir muni i framtíðinni sýna af sér aðra eins framkomu, en girða verður fyrir að aðrir geri það. Tveir menn sem voru f flugvél með drukknum Islendingum frá Kanarieyjum hafa haft samband við blaöfð og lýst mikilli ánægju með frammistöðu flugstjóra Flugleiða. / Sóley Baldursdóttir, 12 ánu Já, ég sa hann og mér fannst hann mjög skemmtilegur. Ég ætla að fylgjast með honum áfram. Spurning dagsins Sástu sjónvarpsþáttinn Rætur á miðvikudags- kvðld? Erna Reynaldsdóttir,-13 ára: Já. Eg sá hann. Mér fannst mest spennandi þegar hvitu mennimir voru að koma og taka svertingjana. Gfsli Kari Karisson afgreiðslumaðun Nei, og ég hef ekkert heyrt á þennan þátt minnzt. Ég horfi svo litið á sjónvarp, enda þykir mér það yfirhöfuð mjög lélegt. Fjalar Vfðfsson, atvinnulaus sem stendun Já. Ég sá þáttinn og mér fannst hann gefa von um mjög góðan fram- haldsþátt. Ég mun fylgjast með fram- haldinu svo framarlega sem ég hef tækifæri til. Jóhann Ragnarsson sjómaðun Já. Ég sá þáttinn og þótti hann góður. Ég vildi gjama horfa á framhaldið en veit ekki hvort ég get það þar sem ég reikna með að verða á sjónum. Árný Guðmundsdóttir hósmóðir: Já. Ég sá hann og mér finnst hann lofa mjög góðu. Það er lika óvenjulegt að sjá blökkumenn leika aðalhlutverkin. Ég ætla alveg endilega að sjá framhaldið og sleppa öllum miðvikudagsklúbbum, svo að ég geti það.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.