Dagblaðið - 06.01.1979, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 06.01.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1979. 9 noröur fimm lauf. Þá var komið að austri með öll þessi spil og hann var fljótur að dobla og ætlaði að setja þá 800 til llOOniður. Vestur spilaði út hjartatíu og suður tók á ás, austur lét kónginn, þá tók suður spaðaás og trompaði spaða. Tigulás og trompaði tígul, enn spaöi trompaður. Tígull trompaður og hjartadrottningin tekin en spaði trompaður og staðan er orðin þessi: Norðuh + Enginn Vekkert 0 105 +A8 Austuk a enginn 54 0 enginn + 106 SUÐUR + enginn ekkert o enginn + KDG9 Norður er inni og spilar út tígultiu, sem austur verður að trompa með laufagosa, og spilar út laufakóng sem norður drepur á ás. Enn kemur tígull og austur er varnarlaus. Suður fær alltaf slag á laufatiu. Það er ekki alltaf nóg að fá punktana, þó þeir séu 22, eða tveggja granda opnun. Frá Bridgefélagi Reykjavíkur Félagið bauð upp á nýárskaffi sl. miðvikudag og var einnig spiluð sveitakeppni um leið. Þetta voru stutt- ir Ieikir, aðeins sex spil og spilaðar fimm umferðir. Sveitakeppnina unnu ungir og efnilegir spilarar eða sveit Karls Logasonar. Úrslit urðu annars þessi: stig 1. sveit Karls Logasonar 76 2. sveit Hjalta Elíassonar 63 3. sveitSigurjónsTryggvasonar 62 4. sveit Óðals 58 Næst verður spiluð sveitakeppni hjá félaginu eftir Monrad og hefst hún næstkomandi miðvikudag kl. 19.30 í Domus Medica. Menn geta látið skrá sig hjá stjórn félagsins. Bridgedeild Breiðfirðinga Eftir 9 umferðir i aðalsveitakeppni félagsins er staðan þessi: stig 1. Sveit Ingibjargar Halldórsdótturl70 2. SveitHansNielsen 144 3. Sveit Elisar R. Helgasonar 137 4. Sveit Sigriðar Pálsdóttur 113 5. Sveit Magnúsar Björnssonar 108 6. Sveit Óskars Þráinssonar 99 7. Sveit Jóns Stefánssonar 98 8. Sveit Erlu Eyjólfsdóttur 80 Næsta umferð verður spiluð nk. fimmtudag 1 Hreyfilshúsinu og hefst spilamennskan kl. 20.00. Frá Tafl- og bridgeklúbbnum Fimmtudaginn 4. janúar hófst aðal- sveitakeppni félagsins með þátttöku 16 sveita. Að venju skipa 10 sveitir meistaraflokk, því aðeins 61. flokk. Þrjár efstu sveitir í I. flokki vinna sér þátttökurétt í meistaraflokki að ári liðnu. Úrslit sl. fimmtudag urðu þessi: Meistaraflokkur Steingrímur Steingrimsson 17 — Ragnar Óskarsson 3 Björn Kristjánsson 15 Þórhallur Þorsteinsson 5. Ingólfur Böðvarsson 14 — Eirikur Helgason 6 Gestur Jónsson 18 —Hannes Ingibergsson 2 Ingvar Hauksson 20 — Rafn Kristjánsson -3 I. flokkur Sigurleifur Guðjónsson 15 — Helgi Halldórsson 5 Anton Valgarðsson 11 — Ólafur Tryggvason 9 Guðrún Bergsdóttir 13 — Sigurður Kristjánsson 7 Næsta umferð verður spiluð nk. fimmtudag í Domus Medica og hefst kl. 19.30. Frá Ásunum í Kópavogi Nk. mánudag hefst eins kvölds ein- menningur hjá félaginu en annan mánudag aðalsveitakeppni félagsins. Allir eru velkomnir. Spilað er í Félags- heimili Kópavogs og byrjað kl. 19.30. Unnið er að mótun iðnþróunarstefnu til langs tima á vegum samstarfsnefndar um iðnþróun, sem iðnaðarráðherra skip- aði síðastliðið haust. Iðnaðarráðuneytið mun siöar leggja fram á Alþingi þings- ályktunartillögu um eflingu iðnþróunar. DB hefur áður skýrt í meginatriðum frá innihaldi þess „iðnaðarpakka”, sem ríkisstjórnin mun nú leggja fram til stuðnings iðnaðinum. Einnig hefur komið fram í DB, að iðnrekendum þykir lítið til þessara ráðstafana koma. Ríkis- stjórnin gerði í gær opinbert sumt af þessu. Hún segist munu láta fara fram „athugun” á forsendum fyrir hækkun jöfnunargjalds á flestar þær vörur, sem falla undir ákvæði aðildarsamnings ís- lands að EFTA og viðskiptasamnings við Efnahagsbandalagið. Verði niður- stöður athugunarinnar jákvæðar, skuli Nýjar upp lýsingar í Grjótjöt- unsmálinu Grjótjötunsmálið bíður nú málflutn- ings fyrir Sakadómi Reykjavíkur. Skömmu fyrir jól bárust nýjar upplýs- ingar frá Noregi um atriði, sem þar voru rannsökuð. „Ég mun kynna málsaðilum hinar nýju upplýsingar einhvern næstu daga til þess að þeir geti 1 málflutningi tekið afstöðu til þeirra,” sagði Haraldur Henrysson, sakadómari, i viðtali við DB. Að öðru leyti kvað hann málið tilbúið til flutnings. Ekki vildi Haraldur tjá sig um efni eða umfang hinna nýju viðbótarupplýsinga. BS. gjaldiö hækkað og tekjum af því varið til sérstakra iðnþróunaraðgerða. Tekjum af „uppbótargjaldinu”, sem leggja skal á innflutt sælgæti, kex og brauðvörur og DB hefur greint frá, skal varið til iðnþróunaraðgerða. Á sama tíma verði horfið frá niðurgreiðslum á undanrennu- og mjólkurdufti til sæl- gætisiðnaðar og innflutningur þessara vara gefinn frjáls. Ríkisstjórnin minnir ennfremur á frumvarp um tollskrá, sem kveður á um, að fresta megi eða afturkalla um tiltek- inn tíma tollalækkanir á innfluttan fatn- að og skóm frá löndum utan EFTA og EBE. 35% innborgunar- skylda Innborgunarskyldan á innflutt hús- gögn á að verða 35% af andvirði þeirra og féð skal bundið í 3 mánuði. Þetta inn- borgunarkerfi á að gilda í 2 ár og verða afnumiðiáföngum. Innborgunarskyldan á hráefni til iðn- aðar, sem verið hefur 10—25%, verður felld niður. Nýlega hafa verið samþykkt lög um framlengingu í eitt ár á iðnaðargjaldi, sem eru tveir af þúsundi af launum í iðn- aði. Tekjur af gjaldinu eru taldar vera 70 milljónir á árinu. . Innkaupum hins opinbera beint að innlendum iðnaði Ríkisstjórnin segist munu beita sér fyrir, að settar verði reglur um innkaup opinberra aðila, sem beini þeim til inn- lendra framleiðenda svo sem fært þyki. Opinber innkaup verði notuð til að stuðla að vöruþróun og nýsköpun í iðn- aði. Stefnt skuli að breytingum á álagning- arheimildum samkeppnisiðnaðar. Mál- efni skipasmíðastöðvanna séu i athugun og verði ekki veitt heimild til lántöku er- lendis fyrir breytingar eða viðgerðir á skipum nema að undangenginni öflun tilboða innanlands. Ríkisstjórnin kveðst munu hefja við- ræður við Seðlabankann og viðskipta- bankana um endurskoðun á reglum um endurkaup afurðalána og setningu ákveðnari reglna um rekstrarlán til iðn- fyrirtækja. Viðræðurnar eigi að miða að því að rýmka lánafyrirgreiðslu banka- kerfisins til samkeppnisiðnaðar. -HH. Jassballettnemendur athugið Kennsla hefst aftur fbstudaginn 12. janúar; 12 vikna námskeiö. Nemendur sem voru fyrir jól hafi samband við skólann. Flokkaröðun eins og varfyrir jól. Endumýjun skírteina í fyrsta tíma. Upplýsingar í síma 83730 frá mánudeginum 8. janúar. Innritun nýrra nemenda á sama tíma (ekki yngri en 13 ára). Jassballettskóli Bárn Stigahlíð 45-47 Vesttk ) skiptir ekki 1 máli

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.