Dagblaðið - 06.01.1979, Síða 5
DAGBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1979.
„Starf sem kirkj-
an er lengi búin
að biðja um”
—segir sr. Bernharður Guðmundsson, nýráðinn
blaðaf ulltrúi þjóðkirkjunnar
„Þetta er nýtt starf sem kirkjan er
lengi búin að biðja um. Það er því i
mótun, en að sjálfsögðu er þetta fyrst
og fremst almenn upplýsingamiðlun til
kirkjunnar og frá,” sagði sr. Bern-
harður Guðmundsson nýráðinn blaða-
fulltrúi þjóðkirkjunnar í samtali við
DB.
„Ég er núna fyrst og fremst að
kanna, hvað starfsmenn kirkjunnar
telja mest um vert að hafi forgang. Ég
held að á okkar tið sé upplýsingamiðl-
un mjög mikilvæg og ekki sízt innan
kirkjunnar,” sagði sr. Bernharður.
Sr. Bernharður Guðmundsson lauk
guðfræðiprófi frá Háskóla íslands
1962. Hann var siðan prestur í Súða-
vík í Ögurþingum í N-ísafjarðarsýslu
um hrið og síðan í Stóra-Núpspresta-
kalli i Árnessýslu til 1970. Þá var hann
ráðinn æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunn-
ar og gegndi hann því starfí þar til
hann var ráðinn til útvarpsstöðvar lút- •
herska heimssambandsins í Addis
Abeba 1973. Þar starfaði hann þar til
hin marxísku stjómvöld þjóðnýttu
stöðinaárið 1977.
Sr. Bernharður sagði að þessi stöð
hefði verið nokkuð óvenjuleg þar sem
að þrátt fyrir að hún væri rekin af
lútherska heimssambandinu, þá hefði
70% af efni hennar verið fræðslu- og
skemmtiefni en aðeins 30% trúarlegt
efni. „En við sögðum að efnið væri
100% kristið í þeim skilningi að krist-
inn boðskapur talar til mannsins sem
heildar. Stöð þessi útvarpaði á nær 20
tungumálum um alla Afriku, til
Indlands og austurlanda nær.”
Síðan fékk sr. Bernharður styrk frá
lútherska heimssambandinu og lauk
hann meistaraprófi i fjölmiðlafræðum
frá Illinois-háskóla I Bandarikjunum
nú í haust. Sr. Bernharður er kvæntur
Rannveigu Sigurbjömsdóttur biskups
Einarssonar.
-GAJ
Séra Beraharður Guðmundsson: Upplýsingamiðhn innan kirkjunnar mjög mikil-
væg. DB-mynd HV
Óraunhæft
aðætlaað
kveða niður
verðbólg-
una íeinni
svipan
— segir stjórn Lands-
sambands ísienzkra
verzlunarmanna
„Með nýlega settum lögum um tíma-
bundnar ráðstafanir til viðnáms gegn
verðbólgu, er í fjórða sinn á árinu 1978
gripið til þess óheillaráðs að breyta
kjarasamningum með lagaboði,” segir I
samþykkt stjórnar Landssambands ís-
lenzkra verzlunarmanna frá i fyrradag.
„Á sl. vetri mótmælti Landssamband
íslenzkra verzlunarmanna lagasetningu
þáverandi rikisstjómar um sama efni og
lagði áherzlu á mikilvægi þess að virða
kjarasamninga, rétt sem aðrar fjárskuld-
bindingar.
Landssamband ísl. verzlunarmanna
lagði og áherzlu á að óraunhæft sé að
ætla að kveða niður verðbólguna i einni
svipan, og að til þess þurfi að nást sam-
staða allra meginafla þjóðfélagsins. Því
megi ekki gripa til neinna þeirra aðgerða
I stundarárangursskyni, sem eyði trausti
og samstarfsmöguleikum.
Nauðsynlegt er að árétta þessi atriði
nú, því að enn er ráðizt að laununum
einum, þrátt fyrir yfirlýsingar um kjara-
sáttmála og samráð.
Landssamb. ísl. verzlunarmanna mót-
mælir lagasetningunni 1. des. sl„ sem
ljóst er að litlu veldur um hömlun gegn
verðbólgunni, og krefst raunhæfra að-
gerða til varanlegrar lausnar i samráði
við verkalýðshreyfinguna.”
Benedikt
boðinn tii
Svíþjóðar
Benedikt Gröndal utanríkisráðherra
fer í opinbera heimsókn til Svíþjóðar
15.-17. þessa mánaðar í boði Hans
Blix, utanrikisráðherra Svía. í för með
Benedikt verður Hörður Helgason, skrif-
stofustjóri utanríkisráðuneytisins.
í Dreifingarklúbbi Dagblaðsins
og Vikunnarskorar þú
mörk
og vinnur til verðlauna.
Seljir þú Dagblaðið eða Vikuna á höfuðborgarsvæð-
inu, eða berir þú blaðið áskrifendum þar, þá ertu þar
með félagi í Dreifingarklúbbi Dagblaðsins og Vikunn-
Meðal verðlaunagripa má nefna: íþróttaáhöld og
búninga, þ.á.m. skíði og skíðabúnað, hljómtæki, seg-
ulbandstæki, útvarpstæki og hljómplötur.
Að sjálfsögðu færð þú full laun fyrir vinnu þína eftir
sem áður.
Góður árangur í starfinu viðurkennist þannig að þú
„skorar mark" í nýrri dreifingarkeppni.
Þú skorar t.d. 1 mark seljir þú 20 blöð á einum degi, en
4 mörk seljir þú 50 blöð. 20 mörk skorar þú berist
engin kvörtun úr þínu útburðarhverfi í einn mánuð.
Síöan skiptir þú á mörkum þínum og verðlaunagripum
úr sýningarskápum í afgreiðslu blaðanna að Þverholti
11. Allar nánari upplýsingar færð þú í afgreiðslunni.
MMBIAÐIÐ
Afgreiðslan Þverholti 11 sími 27022
wjíi/v