Dagblaðið - 06.01.1979, Side 13

Dagblaðið - 06.01.1979, Side 13
DAGBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1979. NYJASTA ÆÐIKANANS —zsssssssz*'--"'* Þegar Bandarikjamenn fá einhverja dellu, þá fá þeir hana svo að um mun- ar. Eitt það nýjasta sem þeir hafa tekið sér fyrir hendur er að breyta sendiferðabilum. Þá kaupa þeir sér venjulegan sendiferðabil sem upphaf- lega var ætlaður til útkeyrslu á vörum og varningi. Stinga þeir bilnum inn i skúr og breyta þeir honum þannig að hann verður nánast óþekkjanlegur. Útliti bílsins er breytt, með aukaglugg-. um eða -hurðum. Toppurinn er oft lækkaður og síðan er billinn málaður í allskonar litum. Myndir eru málaðar utan á vagninn og eru margir þeirra hrein listaverk. Vélamar fá sinn skerf af breyting- um. Settar eru flækjur á þær og fjögra hólfa blöndungar. Einnig heitir kambásar og forþjöppur. En mestar breytingar eru þó gerðar á vögnunum að innan. Eru þeir fóðraðir með dýrindis efnum og skinnum. Vatnsrúmi og sófum er komið fyrir í þeim. Ýmis önnur þægindi eru í vögnunum og má þar nefna litasjónvörp, plötuspilara, segul- bandstæki, ísskápa, vinskápa, vaska, baðker og jafnvel salerni. Eins og búast má við er það ekki ætlun eigenda farartækianna að nota þau til flutnings á kartöflum eða brotajárni. Þegar kvölda tekur streyma vagnarnir út á göturnar, á rúntinn þar sem vinsælasta iþróttin er stunduð, „að skoða sætar stelpur” (girl watching) eða á innkeyrslu veitinga- staöanna þar sem gengilbeinurnar þeytast milli bílanna á hjólaskautum með hamborgara, pizzur og mjólkur- hristinga. Líkur sækir likan heim segir máltækiö og á þaö vel viö þessa sendi- bílamenn. Halda þeir oft stórar úti- samkomur, svokallaðar Van Inn, og safnast þá saman svo hundruðum skiptir. Skemmta þeir sér viö að sýna vagnana sina og sjá aðra. Frægar rokkhljómsveitir eru látnar sjá um hljómlistina og græjurnar i bilunum hvildar. Keppt er í ýmsum iþróttum og farið i leiki. Farið er í kvartmílukeppnir. Þá eru vagnarnir bundnir saman tveir og tveir og látnir draga hvor annan. Keppt er um það hver sé fljótastur að skipta um kerti í bílnum sínum eða dekk. Körfubolti og blak njóta vinsælda svo og sund, einkum ef góður leðjupollur er nálægt ánni eða vatninusem synteri. Sendiferðabílarnir eru meira en far- artæki. Þeir eru áhald sem eigendurnir nota sér til skemmtunar og ánægju i fritíma sinum. aðskeraþennan I sundur I miðjunni,fjar Heimsins stytzti sendi.erðabill. Búið er

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.