Dagblaðið - 06.01.1979, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1979.
I
Utvarp
Sjónvarp
Sjónvarp annað kvöld kl. 20,30:
HAGALÍN ÁTTRÆÐUR
— langt síðan hann stökk út um gluggann í Unuhúsi
Guðmundur G. Hagalin varð átt-
ræður 10. október síðastliðinn og í tilefni
þess fór Helgi Sæmundsson með sjón-
varpsmenn upp í Borgarfjörð og ræddi
við hinn aldna rithöfund. Þátturinn í
kvöld er yfír klukkustundar langur og
fléttað inn í hann viðtölum við ýmsa
vini og samstarfsmenn skáldsins, og
dóttur hans, leikkonuna Sigríði.
í þá tíð sem Guðmundur Hagalín og
Halldór Laxness voru ungir menn var
Erlendur í Unuhúsi mestur stuðnings-
maður skálda í Reykjavík. Eitt sinn var
staddur í Unuhúsi Sigurbjöm Sveinsson
barnabókahöfundur og var að biða eftir
að Erlendur kæmi heim úr vinnunni. Þá
kemur þar ungur maður með glóbjart
hár, kynnir sig sem Halldór frá Laxnesi
— skáld. Ekki hafa þeir talað saman
lengi, þegar Halldór tekur sig á loft og
hleypur út um gluggann. Sem nú Sigur-
björn stendur þarná undrandi á hátta-
lagi gestsins kemur annar ungur maður,
enn bjartari yfirlitum og kynnir sig sem
Guðmund Hagalín — skáld.
Þeir fara að tala um Halldór: Er hann
annars nokkurt skáld? spyr Hagalín.
Já, svarar Sigurbjörn. Hann er svo
mikið skáld að meðan ég var að tala við
hann var hann allt í einu horfinn út um
gluggann.
Við þessi tíðindi setti Guðmund hljóð-
an, en svo tók hann undir sig stökk og
var horfinn út um gluggann sömu leið
og hinn.
Frá þessu segir Halldór í bók sinni 1
túninu heima, en lætur sannleiksgildið
liggja milli hluta.
Meðal kunnustu bóka Guðmundar
Guðmundur G. HagaUn rithöfundur og kona hans, Unnur Aradóttir.
Mynd: Sigurgeir Sigurjónsson.
V.
Hagalins eru sögukornið um þá góðu
konu, Kristrúnu í Hamravík, og leikritið
um hana og himnaföðurinn, skáldsagan
Sturla í Vogum, og ævisögur þeirra Eld-
eyjar-Hjalta og Sæmundar skipstjóra
Sæmundssonar. Ægisaga Sæmundar
heitir Virkir dagar. En auk þess liggur
eftir hann fjöldi annarra verka sem of
langt yrði upp að telja.
IHH.
______________________________/
HUGMYNDASÖGUÞÁTTUR - útvarp kl. 21,00:
Hannes ræðir við Jónas
Haralz
„Ég ræði við Jónas Haralz banka-
stjóra um nýja bók eftir Gylfa Þ. Gísla-
son, Jafnaðarstefnuna,” sagði Hannes
Gissurarson um hugmyndasöguþátt
sinn í útvarpinu annað kvöld kl. 21.00.
„Síðan verður rætt um almenn verk-
efni í stjórnmálum og þá kreppu sem vel-
ferðarþjóðfélagiö er í. Einnig verður
ræddur sá vandi sem íslendingar standa
frammi fyrir í ljósi frjálshyggju og sósíal-
isma,” sagði Hannes.
DS.
Hannes Gissurarson ræðir á þessari mynd við prófessor Ólaf Bjórnsson. t útvarpinu annað kvðld ræðir hann við Jónas Haralz
bankastjóra um annan merkan hagfræðing, dr. Gylfa Þ. Gislason.
23
Útvarp
Laugardagur
6. janúar
Þrettóndinn
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar.
7.10 Leikfimi.
7.20 Bæn.
7.25 Ljósaskipti: Tónlistarþáttur i umsjá Guö-
mundar Jónssonar pianóleikara.
8.00 Fréttir. Tónleikar. 8.15 Veðurfr. For-
ustugr. dagbl. (útdr.). Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög að eigin
vali.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.20 Leikfimi.
9.30 Öskalðg sjúklinga: Kristin Sveinbjöms-
dóttir kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir).
11.00 Barnatimi 1 jólalok. Birna G. Bjamleifs-
dóttir sér um tímann. Sagt frá islenzkum oger-
lendum jólasveinum, lesin bréf til jólasveinsins
frá ýmsum löndum o.fl.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.30 í vikulokin. Blandað efni í samantekt
Áma Johnsens, Eddu Andrésdóttur, Jóns
Björgvinssonar og Ólafs Geirssonar.
15.30 Á grænu Ijósi. óli H. Þóröarson framkv-
stj. umferðarráðs spjallar við hlustendur.
15.40 íslenzkt mál. Jón Aðalsteinn Jónsson flyt-
ur.
16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Vinsælustu popplógin. Vignir Sveinsson
kynnir.
17.00 Merkingar jólanna að fomu og nýju. Séra
Eiríkur J. Eiriksson prófastur á Þingvöllum
flytur jólapredikun. Geir Viðar Vilhjálmsson
talar við hann og einnig Einar Pálsson skóla-
stjóra um jólahald í Ásasiö.
17.40 Söngvar í léttum dúr. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 „Draumur meó lotið stefni og kopar-
skrúfu”, smásaga eftir Jónas Guómundsson.
Höfundur les.
20.00 Hljómplöturabb. Þorsteinn Hannesson
- kynnir sönglög og söngvara.
20.45 Þrettándinn. Samsettur þáttur i umsjá
Þórunnar Gestsdóttur.
21.20 Gleðistund. Umsjónarmenn: Guðni
Einarsson og Sam Daniel Glad.
22.05 Kvöldsagan: „Hin hvitu segl’' eftir Jó-
hannes Helga. Kristinn Reyr les minningar
Andrésar P. Matthiassonar (2).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.45 Danslög. Hljómsveit Birgis Gunnlaugs-
sonar leikur m.a. i hálftfma. (23.50 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
7. janúar
8.00 Fréttir
8.05 Morgunandakt. Séra Sigurður Pálsson
vigslubiskup flytur ritningarorð og bæn.
8.15 Veðurfregnir. Forustugreinar dagbl.
(útdr.)
8.35 Létt morgunlög. a. Hljómsvcit Paddys
Killorans leikur irska þjóðdansa. b. Har-
monikuhljómsveit Karls Grönstedts leikur
nokkurlög.
9.00 Hvaö varó fyrir valinu? Fyrirlestur eftir
Brieti Bjamhéðinsdóttur um hagi og réttindi
kvenna, fluttur fyrir meira en 90 árum. Sig-
riöur Erlendsdóttir les.
9.20 Morguntónleikar. a. „Scapino”, forleikui*
eftir William Walton. Sinfóniuhljómsveit
Lundúna leikur; André Previn stj. b. „Dans-
sinfónia” eftir Aaron Copland. Sinfóníuhljórn-
sveitin í Chicago leikur; Morton Gould stj. c.
„Páfuglinn”, tilbrigði um ungverskt þjóðlag
eftir Zoltán Kodály. Sinfóniuhljómsveit ung-
verska útvarpsins leikur, György Lehel stj.
10.00 Fréttir. Tónleikar. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Ljósaskipti. Tónlistarþáttur i umsjá Guð-
mundar Jónssonar pianóleikara (endurt. frá
morgninum áður).
11.00 Messa i safnaðarheimili Grensáskirkju.
Prestur: Séra Halldór S. Gröndal. Organleik-
ari: Jón G. Þórarinsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttlr. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.20 Átta alda minning Snorra Sturlusonar.
Dr. Gunnar Karlsson sagnfræðingur flytur
fyrsta hádegiserindið i þessum flokki: Stjóm-
málamaöurínn Snorri.
14.00 Miódegistónleikar. a. Forleikur nr. 5 i D-
dúr eftir Thomas Ame. Hljómlistarflokkurinn
Academy of Ancient Music leikur; Christoph-
er Hogwood stj. b. Fiðlukonsert I A-dúr
(K219) eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Pinchas Zukerman og Enska kammersveitin
leika. Stjórnandi: Daniel Barenboim.
15.00 Þáttur af Jóni söðla. Júlía Sveinbjamar-
dóttir tók saman. Flytjendur með henni: Sig-
urður Sigurðarson og Sveinbjöm I. Baldvins-
son.
16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir.
16.25 Franskir duggarar á íslandsmiðum.
Friðrik Páll Jónsson tók saman þáttinn. Vigdís
Finnbogadóttir segir frá samskiptum Frakka
og íslendinga. Lesari: Helga Jónsdóttir. (Áður
útv.áannan dagjóla).
17.15 Miðaftanstónleikar. Jólaóratória eftir
Johann Sebastian Bach. Pólýfónkórinn og
Kammerhljómsveit flytja undir stjórn Ingólfs
Guðbrandssonar. Einsöngvarar: Jón Þor-
steinss., Sigríður Ella Magnúsdóttir, Elísabet
Erlingsdóttir og Michael Rippon frá Bretlandi.
Konsertmeistari: Rut Ingólfsdóttir. Sembal-
leikari: Elín Guðmundsdóttir. Orgelleikari:
Hörður Áskelsson. Fyrri hluti verksins; síðari
hlutinn á dagskrá kl. 22.50 um kvöldiö. Hljóð-
rítun fór fram i Háskólabiói á gamlársdag.
'8.30 Tilkynningar.
8.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.25 Bein Una. Ólafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra svarar spumingum hlustenda. Þætt-
inum stjórna Kári Jónasson og Vilhelm G.
Krístinsson fréttamenn.
’0.30 íslenzk tónUst. a. Ragnar Bjömsson leikur
á orgel Dómkirkjunnar verk eftir Jón Ásgeirs-
son og Jón Nordal. b. Jón Sigurbjömsson
syngur lög eftir Knút R. Magnússon; Ragnar
Bjömsson leikur á pianó. c. Hafliði Hallgrims-
son seUóleikari og Halldór Haraldsson píanó-
leikari leika islenzk þjóðlög i útsetningu
Hafliöa.
21.00 Hugmyndasöguþáttur. Hannes H. Gissur-
arson talar við Jónas H. Haralz bankastjóra
um bók Gylfa Þ. Gislasonar um jafnaðarstefn-
una, einnig um viðhorf og verkefni stjóm-
málamanna.
•21.35 Handknattlcikur I LaugardalshöU: Lands-
leikur Island—Pólland. Hermann Gunnars-
son lýsir síðari hálfleik.
22.10 BaUettsvita op. 130 eftir Max Reger.
Ríkisóperuhljómsveitin í Berlin leikur; Otmar
Suitner stj.
«22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 „Jankó og fiðlan”, smásaga eftir Henryk
Sienldewicz. Friðrik J. Bergmann þýddi.
Hjalti Rögnvaldsson leikari les.
23.05 Kvöldtónleikan Jólaóratórian eftir Bach;
— siðari hluti (sbr. kl. 17.15 sama dag).
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Mánudagur
8. janúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfiml. Valdimar ömólfsson leikfimi-
kennari og Magnús Pétursson planóleikari
(aUa virka daga vikunnar).
7.20 Bæn. Séra Ámi Pálsson flytur (a.v.d.v.)
7.25 Morgunpósturinn. Umsjónarmenn: Páll
Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson (8.00
Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. landsmála-
blaðanna (útdr.). Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög að eigin
vaU. 9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Klemenz Jóns-
son les framhald sögunnar. „í tröUahöndum”
eftir Óskar Kjartansson (2).
9.20 Lcikflmi. 9.30. Tilkynningar. Tónleikar.
9.40 Landbúnaðarmál. Haildór Pálsson
búnaöarmálastjóri flytur erindi um land-
búnaöinn á Iiönu ári.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir ýmis lög: frh.
11.00 Hin gömlu kynni. Valborg Ðentsdóttir sér
um þáttinn.
11.35 Morguntónleikan Claudio Arrau leikur
Pianósónötu i D-dúr op. 10 nr. 3 eftir
Beethoven.
Sjónvarp
Laugardagur
6. janúar
16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson.
18.30 Hvar á Janni að vera? Sænskur mynda
flokkur I fimm þáttum eftir Hans Peterson.
Leikstjóri Hákan Ersgárd. Aðalhlutverk
Patrick Ersgárd, Máns Blegel, Karin Grandin
og Hans Klinga. Fyrsti þáttur. Janni er þrett-
án ára drengur, sem alist hefur upp hjá kjör-
foreldrum sinum. Einn góðan veöurdag kemur
móðir hans á vettvang og vill fá son sinn aftur.
Þýðandi Hallveig Thorlacius. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið).
18.55 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Lifsglaður lausamaður. í klóm rétt-
visinnar. Þýðandi Ellert Sigurbjömsson.
20.55 Það eru komnir gestir.
21.40 Hetjulund á hættustund. (The Hallelujah
Trail). Gamansamur, bandarískur „vestri” frá
árinu 1965. Leikstjóri John Sturges. Aðalhlut-
verk Burt Lancaster, Lee Remick, Jim Hutton
og Pamela Tiffin. Vagnalest með miklar viskf-
birgðir er á leið til borgarinnar Denver og
nýtur herverndar. Ýmsir aðilar fylgjast
spenntir með ferð lestarinnar, þar á meðal
indíánar, gullgrafarar og bindindiskonur. Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
23.55 Dagskrárlok.
Sunnudagur
7. janúar
16.00 Húsið á sléttunni. Elsku Jonni. Þýðandi
óskar Ingimarsson.
17.00 Á óvissum tímum. Fimmti þáttur. Lenin
og leysingjarnir miklu. Þýðandi Gylfi Þ. Gísla
son.
18.00 Stundin okkar. Umsjónarmaður Svava
Sigurjónsdóttir. Stjórn upptöku Andrés Ind
riðason.
Hlé.
!0.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Guðmundur Gfslason Hagalin sóttur
heim. Guðmundur Gíslason Hagalín varð átt-
ræður á siðasta ári, og af því tilefni ræddi
Helgi Sæmundsson við hann á heimili hans á
Mýrum i Borgarfiröi. Ennfremur var leitað til
nokkurra vina hans og samstarfsmanna, sem
segja frá samskiptum sinum við rithöfundinn.
Það eru Hannibal Valdimarsson, Baldvin
Halldórsson, Sigríður Hagalín, Guðrún Helga-
dóttir, Eirikur Hreinn Finnbogason og
Steindór Hjörleifsson. Kvikmyndun Baldur
Hrafnkell Jónsson. Klipping Ragnheiður
Valdimarsdóttir. Stjórn upptöku Tage
Ammendrup.
21.40 Heilbiigd börn — betri heimur. Þess hefur
verið farið á leit við aöildarríki Sameinuöu
þjóðanna, að árið 1979 verði ár barnsins. I
þessari finnsku mynd eru borin saman lifskjör
bama i vestrænum iðnríkjum og i þróunar-
löndum. Þýðandi og þulur Bogi Arnar Finn-
bogason.
22.10 Ég, Kládfus. Niundi þáttur. Maður lifandi
— Seifur. Efni áttunda þáttar: Tíberius og
Sejanus láta myrða eða dæma til útlegðar alla
þá, sem taldir eru líklegastir eftirmenn keis-
arans. Augljóst er að Sejanus ætlar sér að
setjast i keisarastól. Hann vill fá að ganga að
eiga Livillu, systur Kládíusar, en Tíberíus
bannar það. Hins vegar má hann kvænast
Helenu, dóttur Livillu. Drusus, sopur
Agrippínu og Gallusöldungaráðsmaður, vinur
hennar, eru teknir höndum. Lívilla eitrar fyrir
dóttur sina. Antonia fær sönnur þess að
Livilla hafl myrt Kastor og hvatt Sejanus til
að myrða Tiberius. Sejanus er tekinn þöndum
og myrtur i fangaklefa og böm hans eru einnig
tekin af lifí. Antonia lokar Livillu dóttur sina
inni og sveltir hana i hel. Kládíus skilur við
Aelíu, systur Sejanusar. Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir. Þátturinn sýnir grimrnd og
siðleysi þessa tímabils í sinni vcrstu mynd.
23.00 Að kvöldi dags. Séra Jón Auðuns, fyrrum
dómprófastur, flytur hugvekju.
23.10 Dagskrárlok.