Dagblaðið - 06.01.1979, Page 24

Dagblaðið - 06.01.1979, Page 24
Laxalón: VERÐUR AÐ AFÞAKKA PANTANIR FYRIR Á 2. HUNDRAÐ MILUÓNIR —vegna vonlausrar baráttu við embættismannakerfið Á sama tíma og landbúnaðarráð- herra talar um fiskeldi sem leið til efl- ingar landbúnaði fær Skúli Pálsson á Laxalóni enn þvert nei við öllum óskum um stóraukna regnbogasilungs- rækt. Hefur hann m.a. óskað leyfis til ræktunar i sjó en það vill embættis- mannakerfið ekki fallast á. Skúli staðfesti að honum hefðu fyrir áramótin borizt pantanir á regnboga- silungshrognum fyrir á annað hundrað milljónir ísl. kr. og er þá' miðað við útflutningsverðmæti hrogna á sl. ári. Vilja þeir aðilar sem pantað hafa gera kaupsamning við Laxalón fimm ár fram i timann. Danskir og italskir aðilar vilja fá 40— 50 milljónir hrogna í vor en verðmæti þess magns er rúmar 80 milljónir. Sænskir aðilar hafa gert stóra pöntun og nú siðast kom pöntun frá Banda- ríkjunum á hrognum fyrir um 60 millj- ónir isl. króna. Litil von er til þess að Skúli geti sinnt slikum pöntunum því fram- leiðsla hans í fyrra nam að verðmæti um 2 millj. króna. Var slegizt um þá framleiðslu enda er stofn Laxalóns- stöðvarinnar talinn einn af fáum heil- brigðum í heiminum. öllum óskum Skúla um stækkun og framleiðsluaukningu hefur verið synjað. Sagði Skúli að embættismenn- irnir hefðu áður talið að regnbogasil- ungurinn smitaði laxinn. Nú væri dæminu snúið við og kerfið teldi að laxinn smitaði regnbogasilunginn. Skúli fullyrti að vegna tregðu kerfisins hefði þjóðin skaðazt um milljarða í út- flutningi regnbogasilungshrogna. Það var landbúnaðarráðuneytið sem kom í veg fyrir að regnbogasil- ungsstofn Laxalónsstöðvarinnar var felldur, þá er laxastofn stöðvarinnar var dæmdur sýktur og drepinn. Skúla voru áætlaðar bætur fyrir niðurskurð laxastofnsins, alls um 30—40 milljón- ir. Kveðst hann þegar hafa fengið um 40—50% þeirra bóta, en það fé hefði farið til viðhalds stöðvarinnar, sem engan veginn stæði undir sér með þann litla regnbogasilungsstofn sem þar er. Kvaðst Skúli vona að Alþingi gripi í tauma þessa máls og fiskeldi yrði hér á landi hafið til vegs. - ASt Hættulegur sóðaskapur við sláturhúsið íGrímsnesi: Hrafnar bera rotnandi úrgang um alla sveit f ................ — Yf irdýralæknir hyggst þegar í stað beita sér fyrir úrbótum og koma þannig íveg fyrir smithættu Hrafnar í Grímsnesinu hafa heldur betur verið „i feitu” i allt haust þvi þeir hafa haft óhindraðan aðgang að öllum úrgangi frá sláturhúsinu sem er skammt frá bænum Minni Borg. Matkaup hf. I Reykjavík rekur það hús. Til að losna við úrgang og ónýtanlega gripi frá sláturtíðinni í haust var grafinn svo sem 40 til 50 metra langur skurður, nokkurra metra breiður. Ekkert var svo hirt um að hylja rotnandi úrganginn að sláturtíð lokinni, hvað þá að hylja hann í lok hvers vinnudags, svo sem reglugerð kveðuráum. Hrafnar hafa mjög sótt í óþverrann og dreift honum víða, nágrönnum slátur- hússins til ama. Ekki þarf að tiunda hér fnykinn úr gryfjunni þegar hitnar i veðri. Hrafnar hafa þarna kroppað upp siðu kálfs (vinstri myndin). Skammt frá stórgripakjálkanum á hægri myndinni hafa hrafnar höggvið hoiu á ís- inn og hefur rauðleitur vökvi flætt þar upp. í viðtali, sem DB átti í gær við Pál A. Pálsson vegna þessa máls, kom m.a. fram að af slíku getur stafað mikil smit- hætta. Þannig gætu fuglar, sem í gryfj- unni gramsa, t.d. borið gamaveiki á milli, svo eitthvað sé nefnt. Eigendur hússins hafa áður verið áminntir alvarlega vegna slæmrar um- gengni og hugðist Páll þegar beita sér fyrir að eigendur gengju sómasamlega frá gryfjunni hið fyrsta. Sagði hann losun úrgangs vera tals- vert vandamál hjá mörgum sláturhúsum en hægt væri að vinna fóður úr innyfl- unum nýjum, ef sláturhúsin tækju sig saman um byggingu verksmiðju til þess. Slíkar hugmyndir hafa verið uppi hér suð-vestanlands en ekki veriö framkvæmdar nema í Borgamesi. -GS. Snjórinn hylur að vfsu mesta óþverrann á þessum myndum sem teknar voru skömmu fyrir áramót, en neðariega á myndinni má m.a. sjá rotnandi kindar- hræ. Tennurnar nýtt vopn í átökum manna? Þrír menn illa bitnir í átökum Drukkn- aði í Eystra- salti 35 ára Reykvikingur, Sigurður Run- ólfsson, Hjarðarhaga 56, féll útbyrðis af ms. 'Disarfelli á miðvikudaginn var á Eystrasalti i 12 stiga gaddi og ísnálaþoku og þvi nær engu skyggni. Þrátt fyrir mikla leit við erfið skilyrði bar leitin að honum ekki árangur. Hann var 2. stýrimaður á skipinu, ókvæntur. -GS. Meðal mála sem lögreglan í Hafnar- firði hefur nú til rannsóknar eru þrjú árásarmál þar sem annar aðili mál- anna' var illa bitinn af mótaðilanum. Eru slik „bitmál” heldur sjaldgæf og afar óvenjulegt að þrjú slik mál skuli vera í rannsókn samtimis eftir jóla- og nýárshelgi. t einu þessara mála var annar aðila i átökum bitinn á fingrum á báðum höndum. Annar fingurinn var svo illa farinn að hold var bitið í gegn að beini beggja vegna á fingrinum. I öðru máli beit maður, sem tekinn hafði verið haustaki í slagsmálum, mótaðila sinn í brjóst og varð af ljótt sár. t hinum þriðja varð maður fyrir ótal bitsárum í átökum.Blossuöu þau upp er maður einn hugðist heimsækja fyrr- verandi unnustu sina en þar var þá fyrir gestur í heimsókn. Kom til átaka og var fyrrverandi unnustinn svo her- skár að ótal bitsár sáust á gestinum sem fyrir var er hann bar að garði. Lögreglumenn í Hafnarfirði segja að bitin virði:i nýjasta herbragðið í átökum manna. Á tímabili voru það spörk í andlit og höfuð manna sem felldir höfðu verið. Nú virðist ný tizka tekin við í þessum málum. -ASL frjálst, óháð dagblað LAUGARDAGUR6.JAN.1979. Sanitas og Sana samein- ast — um aö svala þorsta landsmanna Sanitas hf. í Reykjavík og Sana hf. á Akureyri hafa sameinazt i eitt fyrirtæki undir nafni Sanitas hf. Framleiðsla verður eftir sem áður bæði á Akureyri og í Reykjavík á sömu drykkjartegund- um og þessi fyrirtæki hafa selt, hvort í sínu lagi. „Við gerum okkur vonir um að þessi sameining stuðli að hagkvæmari rekstri beggja verksmiðjanna,” sögðu forráða- menn þeirra i viðtali við DB. Áætlað er að hefja framleiðslu á Pepsi Cola og 7Up á Akureyri eins fljótt og við verður komið. Þá er ráðgert að flytja Thule lageröl og Thule maltöl frá Akureyri til áfylling- ar í Reykjavik. Verksmiðjan á Akureyri mun áfram halda Sana-nafninu. Framkvæmdastjórar Sanitas hf. í Reykjavík verða Sigurður Waage, eins og verið hefur, og Gunnar Finnbogason verður áfram framkvæmdastjóri Sana- verksmiðjunnar á Akureyri. -BS. Atvinnuleysi í des. mun meira en ílangan tfma: Verstá norðaust- urhorninu Atvinnuleysisdagar á landinu síðasta mánuð ársins 78 urðu nær 14 þúsund, sem er óvenju há tala í einum mánuði miðað við atvinnuástand undanfarinna ára. í því sambandi ber að hafa í huga þorskveiðibannið sem nær langt út fyrir raðir sjómanna. Af kaupstöðum voru flestir atvinnulausir í Reykjavík, eða 191, þá i Keflavík, 117, og á Húsavík, 90. Enginn var atvinnulaus í Bolungar- vík, tsafirði og á Eskifirði. I kauptúnum með a.m.k. þúsund ibúa var atvinnuleysi lítið og voru aðeins fimm skráðir at- vinnulausir í Stykkishólmi sem er hæsta tala í þessum kauptúnum. t smærri kauptúnum er ástandið greinilega mjög alvarlegt, einkum á norðausturhorninu, í smákauptúnum svo sem Raufarhöfn, Þórshöfn, Bakka- firði, Vopnafirði og Bakkagerði. Þar eru samtals 144 skráðir atvinnulausir, eða hátt í tölu atvinnulausra i Reykjavík þótt ibúatala í þessum kauptúnum sé ekki meiri en við stútungsgötu i Reykja- vík. -GS XðljadV ^Kaupro % TÖLVUR OGTÖI BANKASTRÆTI8

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.