Dagblaðið - 31.01.1979, Side 3

Dagblaðið - 31.01.1979, Side 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1979. 3 Lítil saga um ölhellingu: Að drekka tappann og hella vaskinum í flöskuna Hefur þú komiðtil Eyrarbakka? (Spurt i Hagkaupi) Ég tók þá tappann úr annarri flösku og hellti innihaldinu niður í vaskinn, nema einu glasi, sem ég drakk. Ég tók svo tappann úr þriðju flöskunni og hellti brugginu niður í vaskinn, nema einu glasi, sem ég drakk. Ég tók svo tappann úr fjórða vaskinum og hellti flöskunni niður i glasið, sem ég drakk. Ég tók svo flöskuna úr tappa þeirrar næstu og drakk einn vask úr henni og henti afganginum niður í glasið. Ég dró vaskinn upp úr næsta glasi og hellti vaskinum niður i flöskuna. Ég lokaði svo vaskinum með glasinu, hellti brugginu I flöskuna og drakk bununa. Þegar allt var orðið tómt, þá studdi ég húsið með annarri hendinni og taldi flöskurnar, tappana, glösin og vaskana með hinni, sem voru 29. Til að vera viss þá taldi ég þetta aftur og þegar allt dótið var farið framhjá, þá var ég kominn með 74 — og þegar húsið fór fram hjá endurtók ég talninguna — og að lokum var ég búinn .að telja öll húsin, flöskurnar, tappana og vaskana, nema eitt húsið, en það drakk ég. Eiginkonur, sem ætla að losa sig við heimabrugg karla sinna, ættu að fara að öllu með gát. Heppilegast væri að þær helltu því niður sjálfar. Bibi skrifar: Mikið hefur verið skrifað um heimabruggun á þessum síðum undan- farið og hafa skoðanir flestra verið bruggun í hag. Ég læt mér nægja að lýsa hér atviki er henti kunningja minn er eiginkona hans var orðin þreytt á þessu eilifa ölsulli hans. Hans raunasaga var svona: Ég átti tólf flöskur af heimabruggi i kjallaranum og kona mín skipaði mér að hella hverjum einasta dropa i vaskinn, að öðrum kosti skyldi ég hafa verra af. Svo ég sagði henni að ég skyldi gera það. Ég tók tappann úr fyrstu flöskunni og hellti innihaldinu niður i vaskinn, nema einu glasi sem ég drakk. Guðrún Sigurðardóttir húsmóðir: Nei, ég ferðast ekki mikið. Ég er alin upp i sjávarþorpi sjálf og veit alveg hvernig þetta er. Cortínur vinsælar Ingi Marinósson, Eskihlið 14 A hafði samband við blaðið. Aðfaranótt mánudagsins 22. janúar hafði bifreið hans verið stolið af bílastæði fyrir utan heimilið. Bíllinn var blá Ford Cortina árg. 1970, dökkblá. Hún bar skrásetningarstafina R—55686. Bað Ingi lesendur DB að hjálpa sér að finna bílinn og ef þeir gætu veitt einhverjar upplýsingar að hringja í rannsóknarlögreglu eða sig í síma 72434. Ef hann er ekki við er hægt að biðja fyrir skilaboð. Konur, hafið gát á eiginmönnunum þegar þeir hella niður brugginu. DB-mynd Hörður. Reynir Björnsson húsgagnasmiðun Nei, ég held ekki en man þaðekki alveg. Hver getur gefið upplýsingar — um manninn á myndinni? Jón Þ. Eggertsson: Já, ég renndi þar í gegn og fannst það heldur I gamla tím anum. þar sem 11 aðaldansarnir úr kvikmyndinni GREASE verða kenndir. Skírteini afhent sunnudaginn 4. febrúarfrá kl. 16.00 tilkl. 19.00 í Brautarholti 4 og Drafnarfelli 4. Innritun frá kl. 17.00 tilkl. 22.00 í Brautarholti 4, sími 20345, og Drafharfelli 4, sími 74444. Hólmfriður Ingimundardóttir, af- grciðslustúlka i Hagkaupi: Já, mér fannst mjög skemmtilegt að koma þar. Það er alltaf gaman að koma þar sem sjórinn er nálægt. Kennslugjöld fyrir námskeiðið greiðist við afhendingu skírteina. Verið með og lærið topp- dansana ídag. Hjónin Anna Guðmundsdóttir og Kristján Guðmundsson. Ólafur Axelsson hafði samband við DB og bað fyrir birtingu á jxssari mynd í þeirri von að einhver gæti gefið honum upplýsingar um hvar maðurinn á myndinni hér að ofan heldur til nú. Konan á myndinni hét Anna Guðmundsdóttir. Hún fór til Bandaríkjanna árið 1925 með Friðu Eiríksson og Guðmundi Eiríkssyni, sem var fasteignasali í San Fransisco. Anna giftist Kristjáni Guðmunds- syuni kjötiðnaðarmanni og eignuðust þau tvær dætur Jacqueline og Constansa. Anna lézt árið 1941 og rofnaði þá samband fjölskyldunnar heim til íslands. Nú vilja ættingjar önnu heitinnar, þ.á m. Ólafur Axels- son freista þess að komast i samband við dætur Önnu. Hver sá er gæti gefið upplýsingar um Kristján eða dæturnar er vinsamlegast beðinn að hafa samband við Ólaf Axelsson í síma 85716 og 35459. Sigurrós Magnúsdóttir nemi: Nei, ég hef ekki haft tíma til þess. Jónina Sefánsdóttir nemi: Nei, ég veit ekki af hverju en það getur vel verið aó égfari þangaðeinhvern tima. Spurning dagsins

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.