Dagblaðið - 31.01.1979, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1979.
7
Erlendar
fréttir
HvítiríRódesíu
samþykktu
Yfirgnæfandi meirihluti hvítra kjós-
enda í Ródesiu samþykkti nýja stjórnar-
skrá fyrir landið í kosningum i gær. 85%
þeirra, sem kusu sagði já en kosninga-
þátttaka var um 75%. Samkvæmt nýju
stjórnarskránni fá svertingjar meirihluta
á þingi og í stjórn landsins þó hvítir njóti
ennumsinnmikillasérréttinda .
Guatemala:
Sjö hundruð drepn-
ir á hálfu ári
Verkalýðsforingi frá Guatemala i
Mið-Ameriku sagði á blaðamanna-
fundi í London í gær að meira en sjö
hundruð pólitisk morð hefðu verið
framin í landinu á síðustu sex
mánuðum. Sagði hann að sex til sjö lík
fyndust hvern dag á götum borga
landsins. Bæru þau oft merki mis-
þyrminga.
Verkalýðsleiðtoginn, sem er vara-
formaður verkalýðssamtaka Guate-
mala sagði að leynilegur her hægri-
sinnaðra öfgamanna stæði fyrir þess-
um morðum. Hefðu forustumenn hers
þessa gefið út dauðalista með nöfnum
sextíu manns i október siðastliðnum.
Nú væru þrír þeirra sem á listanum
voru dauðir en ráðizt hefði verið á átta
þeirra að auki. Meðal þeirra sem
þannig voru dæmdir til dauða voru að
sögn leiðtogans, verkalýðsforingjar.
prófessorar við háskóla landsins, og
lögmenn.
Erindi varaformanns verkalýðs-
sambands Guatemala i London er að
ræða við brezka verkalýðsleiðtoga og
leggja fram gögn sin um pólitisk morð
og mannréttindabrot í landi sinu.
Daninn varmeð 16
mm net í vörpunni
Skipstjóri á dönskum fiskibáti var
fyrir nokkrum dögum dæmdur til að
greiða þrjátiu þúsund norskar krónur í
sekt fyrir ólögleg veiðarfæri á þeim hluta
Norðursjávar, sem er innan norskrar
lögsögu. Mun norska strandgæzlan lengi
hafa haft grun um að danskir fiskibátar
notuðu slíkan útbúnað en þetta mun i
fyrsta skipti, sem nokkur þeirra er
gripinn glóðvolgur.
Danski báturinn Connie Dan reyndist
hafa innanborðs 3 botnvörpur með
fjórföldu neti i pokanum og möskvarnir
voruallt ni'ðurí 16 millimetra.
Connie Dan mun vera fyrsti báturinn
sem tekinn er með ólögleg veiðarfæri
innan norskrar lögsögu í ár. I fyrra voru
fimm skip staðin að slíku við Noreg.
Voru það tvö sovézk, tvö brezk og eitt
vestur-þýzkt.
Efnahagsbandalagið:
LITLAR UKUR A
FISKVEIÐISAMN-
INGIRÍKJANNA
Engar likur eru taldar til þess að riki
Efnahagsbandalagsins muni ná sam-
komulagi um sameiginlega fiskveiðis-
tefnu og veiöar innan efnahagslögsögu
sinnar á næstu mánuðum. Fyrirhug-
uðum fundi um þessi mál, sem halda
átti um miðjan janúar var frestað þar
sem Ijóst þótti aðenginn árangur yrði.
Höfuðdeilumálið er á milli Breta og
annarra Efnahagsbandalagsríkja.
Vilja Bretar fá einkarétt til að veiða
fyrir innan 50 milna efnahagslögsögu
við Bretland en hinar þjóðirnar ekki
fallast á slík sérréttindi nema að 12
mílunum. Bretar, sem segja að 60% af
þeim fiski, sem aflist i hafinu við ríki
bandalagsins fáist við Bretland. Því sé
ekki neitt réttlætiiþviað þeir fái að-
eins þriðjung al' fyrirhuguðum veiði-
kvóta á þessu hafsvæði.
I lok nóvember virtust brezki for-
sætisráðherrann Callaghan og
Schmidt kanslari Vestur-Þýzkalands
hafa náð samkomulagi um fiskveiði-
málin. Svo reyndist þó ekki og á ráð-
herrafundi Efnahagsbandalagsins rétt
fyrir jólin síðustu féll málið algjörlega
í skuggann fyrir umræðum um sam-
eiginlegan gjaldmiðil bandalagsríkj-
anna.
Rætt hefur verið um að leggja þessa
deilu fyrir Evrópudómstólinn en sér-
fræðingar eru ekki sammál um hvort
það er æskilegt. Hin átta bandalags-
ríki sem eru gegn Bretum i þessu máli
segja kröfur þeirra um sérréttindi
innan 50 mílnanna ekki standast hinn
svokallaða Rómarsáttmála. En á hon-
um byggðist upphafleg stofnun Efna-
hagsbandalags Evrópu.
Það mun stöðugt gilda í klæðatlzkunni að fólki hættir til að klæða sig þvi fáránlcgar
eða þvi minna eftir þvi sem það er minna þekkt. Myndin hér að ofan sem tekin cr á
einu þekktasta diskóteki New York sannar þetta. Til hægri á myndinni er Annie-Frid
Lyngstad úr sænska sönghópnum ABBA i ósköp venjulegum kjól. Til vinstri á mvnd-
inni er aftur á móti einhver furðuklæðnaður á ferðinni en eins og segir cinhvern
staðar: Hverjum þykir sinn fugl fagur.
Skákmótið íHollandi:
Timmanfékk
bameignarfríen
Polugajevski
enn ef stur
Skák þeirra Polugajevski og Sosonko í
tíundu umferð skákmótsins i Hollandi
endaði með jafntefli og þar með heldur
sá fyrrnefndi forustunni með 6,5
vinninga. Jan Timman frá Hollandi náði
samkomulagi við Roman Dzind-
zindashvili frá ísrael um að fresta
skák þeirra í niundu umferðinni. Eigin-
kona Timmans var að eignast dóttur í
Amsterdam og féllst Israelsmaðurinn á
að gefa honum tóm til að heimsækja
mæðgurnar. Skákin verður tefld á
morgun.
Staðan eftir tíundu umferð er þessi:
Polugajevski 6,5, Sosonko og Andersson
6, Húbner 5,5 og einni ólokið, Timman
og Miles 5 og einni ólokið, Hort 5, Ree 4
og einni ólokið, Garcia 4,
Dsindzindashvili 3,5 og tveim ólokið,
Nikolac 3,5 og lestina rekur
Gaprindashvili fyrrum heimsmeistari
kvenna með þrjá vinninga.
1
REUTER
Viðskipti og þjónusta:
BÓKIN SEM VIT ER Í!
Helztu kaflar:
• Aðalskrá (uppl. um fyrirtœki og stofnanir á íslandi)
• Starfsgreinaskrá (f lokkun fyrirtækja eftir starfsgreinum)
• Umboðaskrá (yfir 4000 umboð talsins)
• Kort (Götukort af öKum þáttbýliskjömum landsins)
10 þús.
aðilar
skrúðir
A/3\'ösry.
'700
húsgögn (innfiutningur, heildsala) 200ci
Asbjörn ðlafsson hf. Borgartúni 33 ...................... 24440
Bláskógar hf. Armúla B .................................. 86080
Bústofn Aðalstratl 19 ................................... 29877
Falur hf. Hamraborg 1—3 Kóp.............................. 41430
Geunla Kompaniið Ðíldshöfða 18 ......................... 36500
Goddi sf. Follsmúla 24 .................................. 30801
Havana Goðheimum'9 ...................................... 34023
Húsgagnavinnust. Þorsteins Sigurðss. hf. Grettisg. 13 .. 14099
Magnús Haraldsson Laugavegi 66-68 ................. 16401,25458
íarinó Pétursson hf. Sundaborg 7 .................. 81044,81069
4úmi hf. Smyrlahraunl 40 Hf........•..................... 53044
>kúli ölafs Grettisgötu 56 .............................. 12320
húsgögn (verslanir) 200c2
Bláskógar hf. Armúla 8 .................................. 86080
Blóm og húsgögn Laugavegi 100 ........................... 12517
Borgarhúsgögn Fellsmúla 26 ........................ 86070,85944
Bólstrun Harðar Péturss. Grensásvegi 12 ........... 32035,33358
Bólstrun Ingólfs hf. Austurstræti 3 ..................... 27090
Dúna hf. Siðumúla 23 .............................. 84200,83521
Erlingur Jónsson Skólavörðustlg 22 ...................... 23000
Gamla Kompanllö hf. Blldshöfða 19
Heliaillð Sogavegl 168
36500
37210
'O
ÖD
tadb 1
' v ’ W
■ '
(r. 4.800/-
AGROS Prince F
AHLMANN Sveifluskóflur
AHLMANN Baöker sturtubotnar
AIKO Hljómflutningstœki
AIPHONE Innanhúskallkerfi
AIRCO Rafsuöuvélar
AIRVICK LTD
AIWA Hljómflutningstæki
AJAX Skápahöldur húnar og lamir
AKATHERM
AKZO ZOUT Saltsteinar fyrir búfé
ALABASTINE Fylliefni
ALADIN Lampar og olíuofnar
ALBA
ALBERT GERMAN KG
ALBERT PADBERG Ritvélabönd
ALBIN HAGSTRÖM
ALBIN MOTOR AB Bátavélar
ALBRIGHT & WILSON LTD
Ólafsson hf
SígTTVS'.ur Einarsson & Co
Sighvatur Einarsson & Co
Hallbjörn J Hjartarson hf Skat
Rafeindatæki
Klif hf
Farmasía hf
Hljómver Akureyrl
Transit Trading
Pípulagnir sf
SÍS innflutningsdeild
Ellingsen Hf
Ellingsen hf
Radíóstofa Vilbergs & Þorsteir
E N Lampar hf
Ritvélar og bönd hf
Hljóöfærahús Reykjavíkur
Vélasalan hf
Gunnar Eggertsson hf
ÍTARLEG - AÐGENGILEG - OMISSANDI