Dagblaðið - 31.01.1979, Page 9

Dagblaðið - 31.01.1979, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1979. 9 „TEUUM AÐ FLEIRA BLANDIST í MÁLIÐ EN BROT Á OKURLÖGUM” „Ef rikissaksóknari telur þaö rétta málsmeöferð aö aöhafast ekki frekar í Pundsmálinu vegna fyrningar, þá ræður hann þvi,” sagði Hallvarður Einvarðs- son rannsóknarlögreglustjóri ríkisins. „En við teljum að fleira hafi blandazt inn í þetta mál en brot á okurlögunum.” Rannsókn hjá Rannsóknarlögreglu rikisins beindist að því að sjá hvort brotiö hefði verið gegn hegningarlögum og því sagði rannsóknarlögreglustjóri ríkisins að yrði að vísa til hegningarlaga en þar segir m.a.: Tii þess að reka banka eða sparisjóð þarf sérstakt leyfi stjórn- valda. Stjórnun slíks reksturs fellur trú- lega undir það sem kallað er leyfisbundið starf eða sýslan. Brot I slíku starfi kann að vera þess eðlis, að það sé metið til meiri refsingar en sektargreiðslu, eða einsárs varðhalds. Slik sök fyrnist ýmist á 5 árum eða 10 árum, ef hún fyrnist þá yfirleitt. Samkvæmt hegningarlögum fyrnist sök á tveimur árum, ef refsing sú, sem til var unnið, fer ekki fram úr sektum eða eins árs varðhaldi. Á 5 árum fyrnist sök, þegar refsing hefði orðið varðhald um lengri tíma en eitt ár eða fangelsi í 8 mánuði eða skemmri tíma. Á 10 árum fymist sök, ef refsing hefði orðið þyngri en að ofan greinir, og þyngsta refsing, sem við broti liggur, fer ekki fram úr 6 ára fangelsi. -JH — segir rannsóknar- lögreglustjóri ríkisins í viðtali viðDB „ÓEÐLILEGT AÐ MÁLIÐ FALU — segir f ulltriíi Reykja - víkur í stjórn Pundsins aryfirvöldum um að hann geri eitthvað í málinu.' „En það er min persónulega skoðun, að óeðlilegt sé að málið falli niður og rétt sé að halda þvi áfram ef hægt er. Ég mun hugleiða málið og tala við borgar- stjórnarmenn og kanna hvaða leiðir eru færar,” sagði Guðmundur. „Málið hefur ekki verið tekið fyrir i stjórn Sparisjóðsins, en í stjórn er nú að mestu annað fólk en var árið 1975, er málið kom upp.” -JH. NIÐUR” Guðmundur Þorláksson er fulltrúi Reykjavíkurborgar i stjórn Sparisjóðsins Pundið. Dagblaðið hafði samband við hann og spurði hann hvort hann myndi krefjast rannsóknar á málalokum Pundsmálsins fyrir hönd Reykjavíkur- borgar til þess að fá stöðu málsins á hreint. Guðmundur sagðist tiltölulega ný- kominn I stjórn sparisjóðsins og því hefði hann ekki hugsað málið. Enn hefur ekki borizt beiðni til hans frá borg- Kærandinn í Pundsmálinu: r „Akveðinn að höfða einkamál” „Það er ákveðið að ég höfða einkamál og læt reyna á það, hvort ég næ fram rétti mínum,” sagði sá maður sem í nóvember 1975 kærði Sparisjóðinn Pundið fyrir ólögmæta viðskiptahætti. „Mér finnst lögfræðingur minn hafa sofnað nokkuð á verðinum, en ég hef haft samband við hann núna og hann mun hraða málunum sem mest má verða. Ég hef rekið mjög á eftir málinu að undanförnu, án þess þó að hafa gert mér grein fyrir því að málið gæti verið fymt meðan rannsókn stæði enn yfir. Þá held ég að það hafi verið óþarfi hjá saksóknara að afgreiða málið svona. Það hefði mátt láta reyna á málið fyrir dómi. En saksóknari ákvað að hafa þetta á þennan veg og óneitanlega kemur manni í hug að kippt hafi verið í spotta einhvers staðar. Málið fór af stað með miklum gassa, en síðan dalaði málið og ég sé ekki betúir en það hafi verið tafið. Ekkert var unnið í málinu í nær tvö ár, en síðan var rann- sókn hafin að einhverju gagni á nýjan leik. Rannsóknarlögreglumaður sá er fór með málið var ávallt settur í eitthvað annað, þegar Pundsmálið kom inn á borðhjá honum. Mín krafa er sú að fá greidda til baka okurvextina, sem ég var látinn greiða I Pundinu. Og ég þykist vita, að ég var ekki stærsti aðilinn, sem þurfti að greiða okurvexti þar á þeim tíma. Þeir voru fleiri.” -JH UM HVAD SNERIST PUNDSMÁUÐ? Fróðlegt er að rifja upp um hvað hið svonefnda Pundsmál snýst, nú þegar það er í sviðsljósinu á nýjan leik. Hinn 27. nóv. 1975 voru tveir menn handteknir vegna kæru viðskipta- manns Sparisjóðsins Pundsins vegna meintra ólöglegra viðskiptahátta þess- arar bankastofnunar. Annar maðurinn var forstöðumaður spari- sjóðsins. Taldi kærandinn, að hann hefði- orðið að greiða gifurlega háa og ólög- mæta vexti til þess að njóta víxilkaupa hjá sparisjóðnum. Taldi hann, að sér hefði verið gert að greiða óbærilegar fjárhæðir, meðal annars til milligöngu- manns, sem átti innistæður i Pundinu. Hann taldi að þessar greiðslur hefðu numið um 42% á ári af keyptum vixl- um og að þessi viðskiptakjör hefðu þegar til lengdar lét orðið sér óviðráð- anleg. Maðurinn kvað þessi viðskiptakjör hafa verið ófrávikjanleg og skilyrði fyrir víxlakaupum sparisjóðsins og að engra breytinga hefði verið kostur, þrátt fyrir ítrekaðar umleitanir. Eftir að lánþeginn bar fram kæruna var harðneitað að framlengja vixla hans í Pundinu. Hafnar voru harka- legar innheimtuaðgerðir gegn honum, en hann hafði orðið að setja veð gegn skuldunum. Með því að selja húseign tókst manninum að greiða skuld sína við sparisjóðinn. -JH. SPAMSJOBt PUND UNGLINGA* VIDEO SVIPMYNDIR AF FRUMSÝNINGU Á GREASE OG AF BALLINU SEM HALDIÐ VAR Á EFTIR. SVIPMYNDIR UR: SATURDAY NIGHT FEVER ALICE COOPER KYNNIR MEÐAL ANNARA KOMA FRAM: ANDYGIBB OG BEE GEES VlÐTÖL VIÐ. TRAVOLTA OLIVIU NEWTON JOHN O.FL GLEYMD BORN '79„ þakka FACO innilega fyrir veitta fjárhagsaðstoó Mickie Gee ER ENN STALSLEGINN ! OG HELDUR UPPI FJÖRINU ÞRÁTT FYRIR 204 KL.ST. AN HVILDAR.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.