Dagblaðið - 31.01.1979, Side 24

Dagblaðið - 31.01.1979, Side 24
f ....... 111 . . . .. Tilmæli dómsmálaráðuneyf isins til lögreglunnar: ENGAR YFIRHEYRSLUR — menn kunna þvíað þurfa að dúsa lengur í gæzluvarðhaldi en ella Rannsóknarlögreglumenn eru nú nokkuð á milli steins og sleggju með störf sín þar sem dómsmálaráðuneytið hvatti til þess fyrir jól að ekki yrði unninn lengri vinnutími en dagvinnu- timi. Ef nauðsyn rekur til yfirvinnu, er mælzt til að hún verði alls ekki meiri en 40 stundir á mánuði. Fari hún framyfir það áskilur ráðuneytið sér rétt til að skoða sérstaklega þá tíma sem framyfir fara. Að undanförnu hefur talsvert verið deilt á beitingu gæzluvarðhalds og þá gjarnan lengd þess. Víst má telja að þessi tilmæli ráðuneytisins muni ekki' hvetja rannsóknarlögreglumenn til að Ijúka yfirheyrslum yfir gæzluvarð- haldsföngum með miklu vinnuálagi, með þeim afleiðingum að viðkomandi verður ef til vill að sitja lengur í varð- haldi en skyldi. Umræður urðu um þetta mál fyrir jól og telja a.m.k. sumir rannsóknar- lögreglumenn þessi tilmæli ráðuneytis- ins ekki samræmast gæzluvarðhalds- úrskurðum fyrir stórhátiðir. Ekki er þó svo að rannsóknarlög- reglumenn séu öðrum gráðugri í auka- vinnu, heldur líta þeir almennt svo á að flýta beri sem mest þeim málum sem menn hafa verið úrskurðaðir í gæzluvarðhald vegna. Tilmælum ráðuneytisins er beint til allrar lögreglu í landinu, en viðkvæm- ust eru þau í framkvæmd hjá Rann- sóknarlögreglunni. -G.S. Annar laumufarþeganna: „VORUM BARA VONDIR OG FÚLIR” — en sjáum núna eftir öllu saman „Við vorum bara vondir og fúlir þennan dag og þess vegna datt okkur í hug að fara með skipinu til Bandarikj- anna,” sagði Karl Jóhann Normann, annar piltanna, sem laumuðust með Bakkafossi til Bandaríkjanna. Karl Jóhann á ömmu og skyldfólk i Bandaríkjunum og höfðu þeir strákarnir hug á að ganga á vit þeirra, er þangað kæmi, en að öðru leyti höfðu þeir ómót- aðar hugmyndir um það hvað við tæki er til Bandaríkjanna kæmi. „Við hugsuðum ekkert út í það hvernig fólkinu heima yrði við þegar við fyndumst ekki og við vorum ekkert byrj- aðir að sjá eftir þessu þegar við fund- umst. Og okkur fannst það þara óheppni þegar bátsmaðurinn fann okkur. En eftir á, þegar við fórum að hugsa um þetta, sáum við eftir þessu öllu. Við vorum sjóveikir fyrst og gátum ekki náð okkur i mat. En við vorum búnir að hugsa okkur hvernig við gætum farið frá borði þegar við kæmum til Portsmouth. Við ætluðum að fara fram á stefnið og fara þaðan eftir köðl- unum niður á bryggju. Ingvi Sævar þekkir sig vel i Portsmouth svo við héldum að við gætum þetta, en við vorum lítið farnir að hugsa unt hvað við ætluðum aðgera þar. Eftir að við fundumst var áhöfnin mjög góð við okkur, sérstaklega skip- stjórinn. Við viljum koma þakklæti okk- ar til hans og skipverjanna. Við vorum látnir vinna svolítið, t.d. hreinsa matar- geymsluna. Þegar við komum til Ports- mouth fengum við ekki að fara í land og varðmaður var hafður yfir okkur, en við fengum að fara um skipið, meðan það var þar. Á heimleiðinni var frekar vont veður og við urðum sjóveikir. Ég held að við höfum lært af reynslunni og gerum þetta ekki aftur. Og ég komst að því að ég er ekki sjóhraustur þannig að ég hugsa að ég leggi sjómennskuna ekki fyrir mig sem ævistarf. Ég er þvi feginn að vera kominn heim aftur.” Karl Jóhann tók það fram að ekki væri rétt að þeir hefðu ætlað sér að gerast bændur í Texas eins og fram kom í fréttum í gær. JH. Karl Jóhann Normann 15 ára. „Við hugsuðum ekkert út i það hvernig fólkinu heima yrði við.” DB-mynd Hörður. „EKKIMEININGIN AÐ „BLÖFFA” LAUNÞEGA” — með f restun á opinberum hækkunum, segir f orsætisráðherra — ágreiningur st jórnarf lokkanna harönar „Nei, það er ekki meiningin að „blöffa” launþega með því að fresta opinberum hækkunum fram yfir út- reikning verðbóta 1. marz,” sagði Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra í morgun. „Satt er, að það frestast kannski fram í miðjan febrúar að taka ákvörðun um hækkanirnar. Stundum hefur vísitala ekki legið fyrir fyrr en um hinn 20. mánaðarins á undan. Ef hækkanir verða samþykktar, munu þær koma inn í visitöluna fyrir I. marz. Augljóst er að launþegar verða ekki hlunnfamir, ef hækkanir drag- ast.” Forsætisráðherra sagði að gjald skrámefnd væri enn að skoða hækk- Dnarbeiðnir opinberra aðila. Hann sagðist hafa nokkra von um sam- komulag í vísitölunefnd um lag- færingu á vísitölu, svo sem að verka- lýðshreyftngin féllist á viðskiptakjara- visitölu. „Hugmyndabanki til vinnslu" „Þetta er eins konar hugmynda- banki sem fer til vinnslu í ríkisstjórn- inni,” sagði Ólafur Ragnar Grímsson alþingismaður (AB) í morgun um til- lógusmíð stjómarflokkanna. Sumar tillögur væru sameiginlegar flokkun- um, að öðrum stæðu tveir þeirra og svo væru flokkarnir með sínar ein- stöku tillögur. Árni Gunnarsson al- þingismaður (A) sagði i morgun að það gæti orðið mjög alvarlegt mál, ef drægist fram undir 1. marz að ganga frá efnahagsmálunum. Þá kæminýtt erfiðleikatímabil og siglt yrði inn i mjög krappa báru. Auk þess hefðu launþegar í þann mund lausa samn- inga. Ríkisinnflutningur á kaff i, sykri og hveiti? Ágreiningur hefur harðnað I stjórn- arflokkunum. Deilt er um vísitölu- málið, vaxtamál og um tillögur Al- þýðubandalgsins um, að rikið taki í miklum mæli að sér innflutning helztu nauðsynjavara, svo sem kaffis, sykurs og hveitis. Hagstofan hefur gert lauslega áætlun um, hver verði hækkun verð- bótavísitölu 1. marz og fengið út að 5,5% sé líkleg tala, ef opinberar hækk- anir koma ekki til. Hækkunin yrði 7,8%, ef allar þær hækkanir á opin- berri þjónustu, sem á dagskrá eru, kæmu til. Athuga verður að Hagstof- an hefur ekki reiknað þetta dæmi nema lauslega enn sem komið er og mun dragast fram yfir mánaðamót að fá nákvæmari tölur. HH. Srfálst, úháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 31. JAN. 1979. Nýja Cargolux Jumboþotan væntanleg hingaðífyrramálið: Kemur í Tgóðum holdum’ — með 70tonnaf amerísku nautakjöti Hin nýja Boeing 747 breiðþota Cargolux, eða Jumbo, eins og slíkar þotur eru gjarnan nefndar, er væntanleg til Keflavíkurflugvallar snemma í fyrra- málið á leið sinni frá Seattle i Banda- rikjunum til Luxemborgar. Kemur þotan hingað með fullfermi af nautakjöti, eða 70 tonn, sem fara eiga til Luxemborgar. Ragnar Kvaran verður flugstjóri í þessari fyrstu ferð þotunnar. 1 farþegarými fyrir aftan flugstjórnar- klefann verða 16 þoðsgestir, þ.á m. Einar Ólafsson, forstjóri Cargolux, Gunnar Björgvinsson, yfirflugvirki, Sigurður Jónsson flugrekstrarstjóri og hópur á vegum Boeing verksmiðjanna. Þotan mun hafa tveggja tíma viðdvöl hér og munu m.a. nokkrir forráðamenn Flugleiða skoða hana, en sem kunnugt er, eiga Flugleiðir hlut i Cargolux. -G.S. DB-mynd Hörður. Verk- fallið heldur áfram Flugmenn Flugfélags íslands fljúga ekki til Vestmannaeyja, Hafnar í Horna- firði, Glasgow og Kaupmannahafnar i dag vegna verkfalls. En i dag verður flotið til allra staða annarra innanlands, sem eru á áætlun, þar sem veðurútlit er fremur gott. Samninga- fundur í deilu flugmanna og Flugleiða hefur ekki verið boðaður, en talið er að fundur verði siðar í vikunni. -JH. ^Kaupio ,5 TÖLVUR í I* OGTÖLVl BANKASTRÆTI8

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.