Dagblaðið - 03.02.1979, Side 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1979.
7
Eru veitingahúsin að brjóta lög?
Ofaglært fólk f störfum
sem iðnlærðum þjónum
„Veitingahúsin eru að brjóta lögin
með því að hafa ófaglært fólk í
störfum sem faglærðu fólki ber.
Réttur nýútskrifaðs þjóns virðist í
reynd vera mjög lítill gagnvart þessu
fólki. Barþjónarnir sem fyrir eru í
þessum störfum hafa bara fjöldann all-
an af ófaglærðu aðstoðarfólki og því
reynist okkur, sem höfum verið að
mennta okkur i þessu starfi, ómögu-
legt að fá vinnu,” sagði nýútskrifaður
þjónn í samtali við DB. Hann hefur
frá því hann útskrifaðist sem þjónn
gengið á milli veitingahúsanna í Ieit að
vinnu en alls staðar fengið sama
svarið: Enga vinnu að fá.
Hann hefur þá sögu að segja af
skólafélögum sínum að fjöldi þeirra
hafi orðið að hverfa úr landi i leit að
atvinnu eða hreinlega taka vinnu sem
er ekki i tengslum við menntun þeirra.
Sagði hann að i mjög mörgum tilfell-
um væri þetta aðstoðarfólk þjónanna
á þeim aldri að það mætti raunveru-
lega ekki vera á þessum stöðum. Það
kynni ekki að blanda nema einföld-
ustu kokkteila og bæri við tímaskorti
þegar beðið væri um eitthvað þar fyrir
utan.
DB hafði af þessu tilefni samband
við Friðrik Gislason, skólastjóra
Hótel- og veitingaskóla íslands. Hann
sagði að það væri ekki skólinn sem út-
skrifaði þjónana. Þeir útskrifuðust frá
'meisturum sínum og það væri raun-
'verulega þeirra að sjá þeim fyrir at-
vinnu en ekki skólans. Friðrik sagði að
auðveldara væri að komast á samning
sem þjónn heldur en kokkur en hins
vegar væri erfiðara fyrir þjóninn að fá
vinnu að námi loknu. Kokkurinn gæti
þó alltaf fengið vinnu á sjónum.
Friðrik sagði að bezt væri að segja sem
minnst um þessi mál en kannaðist við
að á mörgum stöðum væri ástandið í
þessum málum ekki eins og það ætti
að vera.
í 13. grein samnings milli Félags
framreiðslumanna og Sambands veit-
inga- og gistihúsaeigenda segir að sé
ekki unnt að fá nægilegan fjölda iðn-
lærðra framreiðslumanna til starfa
skulu veitingamenn hafa sótt um og
ber
fengið leyft Félags framreiðslumanna
til þess að ráða ófaglært fólk til starf-
ans.
Hér virðist dæminu því alveg hafa
verið snúið við þegar iðnlærðum
þjónum er haldið frá starfi af ófag-
lærðu fólki. En vandinn liggur ekki
sízt í því að þeir þjónar sem fyrir eru
vilja frekar hafa ófaglært fólk sér til
aðstoðar heldur en að deila markaðn-
um meðstarfsbræðrum sínum.
GAJ
Ný mjólkurbúö, það er frétt!
Þessi búð á að
vera öðrum slíkum
til fyrirmyndar n
„Nei, það er ekki ætlun okkar að setja
upp fleiri slikar búðir hér í bænum. Þessi
búð er miklu frekar hugsuð til að vera
öðrum til fyrirmyndar,” sagði Bent
Bryde, mjólkurfræðingur og nýráðinn
verzlunarstjóri nýrrar verzlunar að
Laugavegi 162 sem opnuð var í gær.
Verzlun þessi á að þjóna fjölbreyttum
tilgangi. 1 fyrsta lagi er um að ræða svo-
kallaða fyrirmyndar mjólkurbúð, í öðru
lagi ostabúð sem mun kappkosta að hafa
á boðstólum allar fáanlegar ostategund-
ir. í þriðja lagi er þar bakarí eða „kondi-
tori” en þar mun verða ýmiss konar
„sérbakstur” til sölu, fyrir utan hinar
hefðbundnu vörutegundir Brauðgerðar
Mjólkursamsölunnar.
Síðast en ekki sízt er framúrskarandi
góð aðstaða til vörukynninga. Er fyrir-
hugað að hafa þær sem fastan þátt í
starfsemi búðarinnar. Emmess ís verður
að sjálfsögðu i fjölbreyttu úrvali en fyrir-
hugað er að setja upp mjög fullkomna ís-
búð í húsnæði gömlu mjólkurbúðarinn-
Stjórn Mjólkursamsölunnar I hinni nýju
og glæsilegu verzlun. Frá vinstri Oddur
Andrésson, bóndi Neðra-Hálsi, Eggert
Ólafsson, Þorvaldseyri, Ágúst Þorvalds-
son, formaður, Brúnastöðum, Vífill
Bogason, Ferstiklu og Guðlaugur Björg-
vinsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar.
Á myndina vantar Gunnar Guðbjarts-
son.
DB-mynd Hörður.
ar við hlið hinnar nýju þannig að öll
þessi starfsemi myndi eina heild.
Verzlunin mun verða opin frá kl. 8.30
til kl. 18.00 alla virka daga en frá kl. 9—
12 laugar- og sunnudaga.
Hönnun nýju búðanna annaðist Guð-
mundur Kr. Guðmundsson arkitekt en
skreytingar og auglýsingar voru i umsjá
Auglýsingastofu Kristinar.
-GAJ-
Sof ið úr sér í
stjórnarráðinu
Stjómarráðið varð 75 ára í fyrradag Fólk þurfti því ekki að mæta fyrr en
og að vonum var haldið upp á þann kl. 13 og hafa þá væntanlega flestir
merka atburð. En valdamenn í stjórn- verið búnir að sofa úr sér. Vænt væri
arráðinu virðast hafa búizt við mikilli ef sem flestir atvinnurekendur væru
gleði þvi ákveðið var að fresta allri svoskilningsrikir.
vinnu í stjórnarráðinu í gærmorgun. -JH.
Næg atvinna á Snæfellsnesi:
Varð aö fá stúlkur
f rá Ástraliu í fiskinn
Vertíðin hefur byrjað mjög vel á fleiri stúlkum til vinnu en engin gaf sig
Snæfellsnesi, sérstaklega hjá línubát- fram. Var því gripið til þess ráðs að fá
unum. Algengt er að fimm til tíu tonn stúlkur frá Ástralíu og áttu þær að
hafi fengizt á línu. Fiskurinn hefur koma nú um helgina.
verið mjög góður og næg atvinna. HJ/GAJ.
Þannig var t.d. auglýst á Sandi eftir
Dýrlegt framsóknar-
bragð að kjötinu
Gott framsóknarbragð var að kjöt- aðsbúa. Það er afbragð.
inu á þorrablótinu á Eskifirði. Að sögn „Það á að vera framsóknarbragð að
Regínu fréttaritara eru framsóknar- kjötinu,” sagði Regína. „Þeir mega
menn þeir einu sem kunna að salta og njóta sannmælis, framsóknarmennirn-
reykja kjöt. Það kemur enda berlega í ir, i þessu efni,” sagði fréttaritarinn.
ljós er kjötið berst frá Kaupfélagi Hér- -Reglna/JH.
FÁST NÚ
Á EINNI PLÖTU
EINSÖNGUR
• TV/SÖNGUR
ÞR/SÖNGUR
KÓRSÖNGUR
Lögin á plötunni:
Tómasarhagi
Glatt er á hjalla
Minning
Kveðja
Hugleiðing — Bœn
Vögguljóð
•
Þúert
Vor hinsti dagur er hniginn
Dísa
Edda
Eddu-minni
Einsöngvarar:
Friðbjörn G. Jónsson
Garðar Cortes
Guðmundur Jónsson
ívar Helgason
Kristinn
Bergþórsson
Kristinn
Hallsson
Sigurður
Björnsson
13 manna
hljómsveit.
Félagar úr
Sinfóníuhljómsveitinni.
Útsetning og söngstjóri:
Jón Sigurðsson.
Upptaka: Jón Þór Hannesson
Fœst íflestum hljóðfœraverzlunum.
DREIFING: STEINAR
LAUGAVEGI 59 - SÍMI28155