Dagblaðið - 03.02.1979, Blaðsíða 10
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1979.
Krossgáta
Þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir
af Skákþingi Reykjavfkur hefur Ómar
Jónsson forustuna i A-flokki, hefur
hlotið 6 1/2 vinning af 8 mögulegum.
Næstu menn eru þó ekki ýkja langt
undan, en sökum fjölda biðskáka er
staða þeirra mjög óljós. Þeir Björn
Þorsteinsson, Elvar Guðmundsson,
Sævar Bjarnason og Ásgeir Þ. Árna-
son eru þó allir liklegir til aö blanda
sér i toppbaráttuna.
Ómar hefur átt ákaflega auðvelt
með að knésetja andstaeðinga sína til
þessa og hefur Caro-Kann vörnin
verið hans beittasta vopn. Bæði Björn
Þorsteinsson og Guðmundur Ágústs-
son lágu í valnum í minna en 30 leikj-
um og höfðu þá tapað ógrynni liðs.
Hins vegar hefur Caro-Kann vörnin
sínarskuggahliðar.cins og við fáum að
sjásíðarí þættinum.
1 B-flokki er Þorsteinn Þorsteinsson
efstur með 6 1/2 vinning og biðskák
en siðan koma töframennirnir Jóhann
Þórir Jónsson og Gylfi Magnússon
með 6 1/2 vinning. Hinn ungi og efni-
legi Karl Þorsteinsson fylgir síðan i
humáttinaáeftir með5 1/2 v.
Um efsta sætið í C-flokki berjast
þeir Haukur Arason og Róbert Harð-
arson. Haukur hefur hlotið 6 v. en
Róbert 5 1/2. Þeir verða þó að hafa
nánari gætur á Jóhanni Pétri Sveins-
syni, sem hefur 4 1/2 v. og biðskák að
auki.
t D-flokki taka tvær konur þátt, þær
Ólöf Þráinsdóttir og Áslaug Kristins-
dóttir. Ólöf er nú efst í flokknum, með
6 1/2 vinning, en þá kemur Páll Þór-
hallsson með 6 v.
Gylfi Gylfason hefur tekið forust-
una í E-flokki með 7 v. af 8 möguleg-
um. Þarer Monrad-kerfið enn við lýði.
en í hinum flokkunum tefla allir við
alla.
9. umferð á mótinu var tefld i gær-
kvöldi, en 10. og næstsíðasta umferð
fer fram á sunnudag og hefst kl. 14 i
Skákheimilinu viðGrensásveg.
En þá er það Caro-Kann vörnin.
Hinn ungi ogefnilegi Jóhann Hjartar-
son tekur hér hraustlega á móti Caro-
Kann vörn Jónasar P. Erlingssonar.
Afraksturinn er peð, og síðan gerir
Jóhann út um skákina á skemmtilegan
hátt.
Hvitt: Jóhann Hjartarson
Svart: Jónas P. Erlingsson
Caro-Kann vörn
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4
Rd7 5. Bc4
Nú i seinni tíð hefur framhaldið 5.
Rf3 Rgf6 6. Rxf6 + Rxf6 7. Re5 verið
.mjög vinsælt en þannig teflir heims-
méistarinn Karpov m.a.
Á skákþinginu tefldi Björn
Þorsteinsson þannig gegn Óm-
ari Jónssyni. sem varð þó ekki
skotaskuld úr því að jafna taflið. Ómar
lék 7,—Rd7 8. Bf4 Rxe5 9. Bxe5 Dd5.
5. — Rgf6 b. Rg5 e6 7. De2 Rb6 8. Bd3
h6 9. R5f3 c5 10. Bf4
Nýjasta nýtt i fræðunum. Aðrir
möguleikareru 10. Be3,eða 10. dxc5.
10.— Rbd5 11. Be5 a6
Jónas hefur greinilega ekki fylgst
með nýjustu byrjanarannsóknum.
Svartur kemst af án þessa leiks og því
hefði verið betra að leika 11. —cxd4
12. 0-0-0 Da5 og svartur hefur vissa
möguleika á að jafna taflið.
12.0-0-0 Da5 13. Kbl b5?!
Djarflega leikið. Svartur skeytir engu
að koma mönnum sínum i gagnið og
blæs strax til sóknar á drottningar-
vængnum. Þessi sókn er þó dæmd til
að mistakast, eins og sést af framhald-
inu.
14. dxc5 Bxc5 15. Rd4 Db6 16. Rh3
b4?
16. — Bd7 verður að teljast væn-
legra til árangurs. Hins vegar ekki 16.
—Bxd4 17. Bxd4 Dxd4?? vegna .18.
—Bxb5+ ogdrottningin fellur.
17. f4 Bd7 18. Bc4 a5 19. f5! 0-0
Kóngur svarts reynir að leita skjóls
á kóngsvængnum. en það kostar peð.
20. fxe6 Bxe6 21. Bxf6 Rxf6 22. Rxe6
Hfe8 23. Rhf4 fxe6 24. Bxe6+ Kh8
25. Hhel Bf2
Leiðir til skjótra loka, en svörtu
stöðunni varð vart bjargað.
SPAÐAKÓNGUR-
INN VAR FYRIR
Í dag verður sýndur einn snilldar- leikurinn enn hjá Garozzo. Það er ekki hægt annað en að koma annað slagið með spil sem þessi snillingur spilar. í fyrra spilinu er hann i vörn ásamt sin- um stórkostlega meðspilara, Forquet. Svona varspilið:
Nordur
+ D10764 3? 9 0 Á86 + ÁG82
Vestur Austur
+ 852 + KG
V D73 1065
O 10954 O G732
+ D109 * K543
SUDUR
+ Á93 V ÁKG842
0 KD + 76
Sagmr gengu:
Norður Suður
1 spaði 2 hjörtu
2 spaðar 4 lauf
4 spaðar 4 grönd
5 hjörtu pass 6 spaðar
Fjögur lauf voru fyrirstöðuspurning
og fjórir spaðar gáfu upp laufás.
Garozzo var fljótur að finna veikleik ann og spilaði út laufaþristi. Sagnhafi drap á laufaás spilaði tígli og tók hjónin.síðan hjartaás.trompaði hjarta og tók tigulásinn og lét lauf i hann frá
blindum. Spilaði laufi og trompaði. þá
kom hjartakóngur og lauf frá
hendinni.
Nú á sagnhafi ekkert nema hjarta
og spaða i blindum. svo hann spilaði
hjarta og trompaði með tiunni, sem
Garozzo yfirtrompaði með spaða-
kóng?? Staðan er orðin þessi:
Nordur + D76 Vekkert 0 enginn
Vl.STl lt G Austur
+ 852 & G
^ekkert ekkert
OI0 o G
+ekkert Su'OUR K 5 ♦ Á9
G8 enginn
+ ekkert
Garozzo spilaði laufakóng eftir að
hafa trompað með spaðakóng og sagn-
hafi áleit vonlaust að trompa með
spaðaniu, svo hann trompaði með
spaðaás og spilaði út spaðaníu og
Garozzo fékk á gosann. Ef Garozzo
trompar með spaðagosa og spilar siðan
laufakóng, þá trompar sagnhafi með
spaðaníu og tekur siðan spaðaás og þá
kemur kóngurinn í og spilið er unnið.
Skemmtilegt spil kom fyrir hjá
Bridgefélagi Reykjavikur sl. miðviku-
dagskvöld. Svona var spilið:
Nordur
A9
V 954
OÁDG82
+ KG75
Au.-ti'r
A10753
^ÁDG
ó Ekkert
+ 1098432
Sudur
+ ÁD
^ K1086
9' 7654
* ÁD6
A öðru borðinu voru spiluð þrjú
grönd og eftir spaða út unnust fjögur.
En á hinu borðinu fóru norður og
suður i fimm tígla eftir fjórum spöðum
hjá austri og vestri, þeir voru doblaðir
og urðu tvo niður. Það sem er
skemmtilegt við þetta spil er að þrjú
grönd standa alltaf í norður-suður og
fjórir spaðar i austur og vestur vinnast
i flestum tilfellum nema með trompi
út.
Reykjavíkurmót
undankeppni
Þegar lokið er sex umferðum af
nitján i undankeppni Reykjavíkur-
mótsins i sveitakeppni er staðan þessi:
Sveit stig
1. Þorgeirs Eyjólfssonar 100
2. Sigurjóns Tryggvasonar 92
3. Hjalta Eliassonar 91
4. Sævars Þorbjörnssonar 91
5. Þórarins Sigþórssonar 71
6. Óðals 70
1 undankeppni þessari taka þátt 20
sveitir og næsta umferð verður spiluð
þriðjudaginn 6. febrúar i Hreyfilshús-
inu viðGrensásveg.
Vestur
+ KG8642
V 732
9 K1093
+ ekkert