Dagblaðið - 21.03.1979, Qupperneq 1
5. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1979 — 68. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11,—ADALSÍMI27022.
Reykjanes í morgun:
SKÚRAKLAKKARNIR
SÝNDUST ELDGOS
—hillingar og veðrabrigði villtu mönn- umsýn
Snemma í morgun virtist nokkrum
Suðurnesjabúum sem neðansjávareld-
gos væri byrjað svo sem fimm til tíu
mílur út af Stafnesi. Þannig sá Jón
Borgarsson á Jaðri í Höfnum sérkenni-
legt fyrirbrigði á sjónum, án þess að
vilja þó slá föstu um að þar væri gos á
ferðinni. Sagði hann í viðtali við DB í
morgun að svo virtist sem einn til tveir
strókar stæðu upp úr sjónum, en fjar-
lægð og veðrabrigði kynnu að villa sér
sýn. Miklar hillingar voru í morgun.
Þá náði blaðið tali af Kristjáni
Sveinssyni, skipstjóra á björgunarskip-
inu Goðanum, er lónaði á Kirkjuvogi í
morgun. Ekki hafði hann orðið var við
neitt er hann taldi eldgos. Hins vegar
sagði hann mjög háa skúraklakka með
eldingum þarna á ferðinni. Af og til
hafði verið mjög gott skyggni hjá
honum í morgun og hafði hann m.a.
séð Eldey í 14 mílna fjarlægð.
Klukkan 10 í morgun hafði flugvél
Landhelgisgæzlunnar flogið yfir svæð-
ið út af Kirkjuvogi þvers og kruss og
einskis orðið vör.
Sagði Þröstur Sigtryggsson í stjórn-
stöð Gæzlunnar að þarna á svæðinu
væru nokkur skip og ekkert þeirra
hefði orðið vart við nokkuð óeðlilegt.
Hins vegar væru þarna éljabólstrar og
sólskin á milli og kynni það að skýra á
einhvern hátt það sem fólk teldi sig sjá
úr landi.
Skömmu síðar var það að frétta frá
Almannavömum, að athuganir þeirra í
morgun hefðu ekki leitt neitt í ljós, er
benti til eldgoss. Ekki er þó óeðlilegt að
fólki hafi virzt svo úr landi, því veður-
skilyrði voru mjög óvenjuleg í morgun.
Dagblaðið flaug yfir svæðið í
morgun en sá ekki merki um neitt gos.
Hins vegar voru þarna él sem úr fjar-
lægð litu út eins og reykur, og kann
það að hafa verið skýringin á „gos-
inu”. GS/ASt./GAJ.
Þetta er frægt svæði
fyrirgos oghræringar
— sagði Sigurður Þórarinsson í morgun
,,Ég hef ekki haft spurnir af
neðansjávargosi þarna síðan 1926, en
þá varð sjómaður var við ólgu og
dauða fiska á þessum slóöum,” sagði
Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur
og eldgosasérfræðingur í morgun.
„Hins vegar er þetta mikið gos-
svæði og í sögum er fyrst getið um
gos þarna 1211 og þá fundust
Eldeyjar. Eftir það gekk þarna mikil
goshrina og sögur eru um gos
veturinn 1226/1227, árið 1231 og
1238. Siðan kemur hlétil 1422. Aftur
gýs á þessum hafsbotni um 1580 og á
korti Guðbrands biskups frá 1590 eru
merktar Gígeyjar á þessum slóðum.
Mikið gos varð þarna Skaftárelda-
árið 1783 og þá myndaðist eyja sem
skirð var Nýey. Til stóð að setja á
hana stein með mónógrafi kóngsins
en þegar til átti að taka var eyjan
horfin og hefur ekki sézt síðan.
1830 er líka getið þarna um gos og
átti það þátt 1 endanlegri útrýmingu
geirfuglsins og síðustu heimildir um
gos þarna eru frá árinu 1879, ef
sleppt er sögu sjómannsins um ólgu
og dauða fiska sem áður er getið,”
sagði Sigurður Þórarinsson.
Sigurður sagði að ef gos kæmi
upp fyrir yfirborö sjávar þá væri
nokkuð mikið búið að ganga á áður.
T.d. væri talið að Surtseyjargosið
hefði veriö búiö að standa í að
minnsta kosti viku áður en nokkur
varð þess var. Neðansjávargos verða
að byggja sig verulega upp úr áður en
þeirra gætir á haffletinum.
,,Ég er þakklátur blaðamönnum
fyrir það hve þeir eru snöggir af stað
ef fréttist af eldgosum,” sagði Sig-
urður Þórarinsson jarðfræðingur.
,,Ég vil heldur vera plataður 50 sinn-
um en verða of seinn einu sinni,”
bætti jarðfræðingurinn við.
-ASt.
Óhagstæð olíukaup Flugleiða?:
„TÓMUR RANGSNÚNINGUR”
— segja Flugleiðamenn
„Við riftum þessum kaupum alls
ekki. Skiptanefnd sem sett var til yfir-
stjórnar í olíuhreinsunarstöðinni þegar
hún var tekin til skiptameðferðar, neit-
aði að afhenda eldsneytið í nóvember,”
sagði Guðmundur Vilhjálmsson, inn-
kaupastjóri Flugleiða í viðtali við Dag-
blaðið, en Þjóðviljinn birtir frétt í dag
þess efnis, að Flugleiðir hafi tapað
hálfum milljarði á óhagstæðum
kaupum á eldsneyti af olíuhreinsunar-
stöð á Bahamaeyjum. Hafi þeir rift
Lagfærðir
menningardagar
— bls.8
samningi við hreinsunarstöðina og nú
orðið að kaupa olíuna á mun hærra
verði.
„Þetta eru tómir rangsnúningar og
við munum senda frá okkur yfirlýsingu
um málið,” sagði Guðmundur enn-
fremur. „Þá er látið að því liggja, að
við.séum ábyrgir fyrir því, að olían,
6600 tonn sé fiutt hingað til lands með
gríðarstóru skipi, eða 34 þús. tonna, en
það er heldur ekki rétt, seljendur selja
oliuna á cif-verði, eða afhenta á losun-
arstað.”
„Þetta eru í hæsta máta eðlileg kaup
á olíu á því verði sem hún er nú,” sagði
önundur Ásgeirsson forstjóri OLÍS í
viðtali við DB. „Ég veit ekki betur en
Flugleiðir hafi sloppið ákaflega vel út
úr þeirri oliukreppu sem verið hefur.
Það, að þeir fengu ekki þessa olíu frá
hreinsunarstöðinni, enda fór hún á
hausinn, er eina áfallið sem þeir hafa
orðið fyrir og víst er að flutningana
hingað til lands borga seljendur.”
-HP.
Boölegurskúlptúr
í kvæði Tómasar urðu gamlir
símastaurar aftur grænir, en
símastaurum fækkar nú ört og
arftakar þeirra meðal straura eru
Ijósastaurar úr málni. Þeir geta
tekið á sig ýmsar myndir, rétt eins
og bræður þeirra simastaurarnir.
Þessi ágæti ljósastaur var mjög
skreyttur á Húsavík á dögunum
og þætti víst boölegur skúlptúr á
hvaða listsýningu sem væri.
DB-mynd Einar Ólason Húsavík.
^^^^mmmmmmmmm>m^m*
Ósiðsamlegur
minnis-
peningurnú
fáanlegurá50
þúsund krónur
- bls. 8
Álagning
smásöluverzl-
unaraldrei
lægri en nú
— segirviðskipta-
ráðherra
— sjá bls. 5
Eykon tók
áskoruninni
^ — bls.8
Seyðisfjörður:
PéturJónsson
náðistáflot
^^--sjábaksíði^