Dagblaðið - 21.03.1979, Side 5

Dagblaðið - 21.03.1979, Side 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1979. f" '' ' Alagning smásöluverzl- unar aldrei lægri en nú — sagði Svavar Gestsson viðskiptaráðherra á fundi með kaupmönnum „Álagning hjá smásöluverzluninni hefur ekki í annan tíma verið lægri en nú,” sagði Svavar Gestsson viðskiptaráðherra í ræðu er hann hélt á aðalfundi Kaupmannasamtakanna í gær. Kvað hann 30% regluna svo- kölluðu hafa gert þetta að verkum. „En álagningartalan ein út af fyrir sig mælir ekki ágóða verzlunarinnar. Magnbreyting hefur orðið veruleg og kemur á móti skertri álagningu. Þannig telur Þjóðhagsstofnun að magnbreytingin milli ára 1977 og 1978 hafi bætt kaupmönnum upp 65% af þeirri álagningarskerðingu sem varð 1977. Ráðherrann sagði að verzlunar- álagning í landinu hafi numið 46 milljörðum króna 1978. Ef 30% reglan hefði ekki verið í gildi hefði sú upphæð orðið 5-4 milljörðum kr. hærri en vegna magnbreytingar milli ára í verzluninni hefðu tekjur kaup- manna ekki skerzt nema um 1.9 milljarða. Enn vitnaði ráðherra í skýrslur og sagði að 6.9% smásöluverzlana hefðu verið reknar með 10% halla eða minna en það árið 1977. Sjö af hundraði smásöluverzlana hefðu hins vegar verið reknar með 14% hagnaði eða meiri. Meðaltölur kvað hann því ekki einhlitar varðandi hag verzlana. í svari við fyrirspurnum kom fram að ráðherrann er andvigur því að verzlunarleyfi verði háð uppáskrift Kaupmannasamtakanna og séu bundin aðild að samtökunum en hann kvað nauðsynlegt betra eftirlit með útgáfu slíkra leyfa en gilt hefði. Svavar kvað það eðlilegt að Kaup- mannasamtökin ættu fulltrúa í verðlagsnefnd og þyrfti þar um að breyta. Hann kvaðst mundu beita sé fyrir því að könnun verðlagsstjóra á álagningu í smásölu á Norðurlöndum yrði flýtt og einnig að hagur dreif- Svavar Gestsson vlðskiptaráðherra. býlisverzlunar, sem oft væri eins konar þjónustumiðstöð í héruðun- um, yrði kannaður með lagfæringu í huga á högum hennar, t.d. með lána- aðstoð. -ASt. „ÚT VIL EK” —þó miður marz sé Folaldið að tarna var ákveðið í því að koma núna í heiminn en láta það ekki bíða betri tíðar. Þó kalt væri úti og mamma gamla á beit lét það ekki aftra sér frá því að skjótast út og líta dagsljósið. Enda sýndi það fljótt að töggur var í þvi og kuldinn virtist ekki hafa nein áhrif á það. Bæring frétta- ritari DB á Grundarfirði skrapp í heimsókn til folaldsins unga og eiganda þess, sem er Hreinn Bjarnason bóndi á Berserkseyri í Eyrarsveit, og fékk að festa á mynd folaldið og móður þess. -DS. „Ekki meira áfengi” — Landssambandið gegn áfengisböli vill frekari rannsóknir Landssambandið gegn áfengisböli álítur að frumvarp Vilmundar Gylfa- sonar og fleiri um breytingar á áfengis- lögum kunni að valda aukinni áfengis- neyzlu. Skorar Landssambandið á Alþingi að rannsaka málið vel þvi reynsla annarra þjóða af tilraunum í þessu máli haft oft verið dýru verði keypt. Stjórn Landssambandsins bendir á í samþykkt sinni frá 12. marz að hvar- vetna í heiminum hafi rýmkun á áfengissölu leitt til aukinnar drykkju og aukningar á því böli sem af henni leiðir. Til þess að svo verði ekki með frumvarp Vilmundar ef að lögum verður, býður sambandið fram aðstoð sína við að mynda starfshóp til að rannsakamálið. -DS. „Ríkisstjórnin víki” — segir í samþykkt SUS „Ríkisstjórn sem misst hefur þing- meirihluta og nær ekki samstöðu um lausn mikilvægustu þjóðmála á að fara frá.” Svo segir í samþykkt stjórnar SUS, Sambands ungra sjálf- stæðismanna. í samþykktinni segir ennfremur: „Það er fráleitt og fordæmanlegt að forsætisráðherra skuli ekki biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt, um leið og formaður stærsta stjórnar- flokksins lýsir því yfir í fjölmiðlum að hann styðji ekki stjórnina. Aðfarir stjórnmálamannsins Ólafs Jóhannes- sonar virðast í þessu efni ekki fara saman við skoðanir fræðimannsins. Samkvæmt íslenzkri stjórnskipan er það Alþingi sem endanlega segir til um gengi ríkisstjórna en ekki formaður Verkamannasambands íslands eða aðrir slíkir.” -JH. Týndi veski með miklum fjármunum Ungur maður frá Keflavík var á ferð í Reykjavík í gær og varð þá fyrir því óhappi að týna seðlaveski sínu með um 180 þúsundum i peningum, ávísana- hefti og skilrikjum. Veskið er svart og áritað og hefur að öllum líkindum týnzt í miðbænum. Tjón unga mannsins er að sjálfsögðu bagalegt og heitir hann fundarlaunum hverjum þeim sem getur fært honum veskið aftur. -JH. Ný lyf jadeild WHO íKaupmannahöfn: Islendingur forstöðumaður — Almar Grímsson deildarstjóri íTryggingaráðuneytinu Almar Grímsson lyfjafræðingur hefur verið ráðinn til þess að veita for- stöðu nýrri lyfjadeild í Kaupmanna- höfn, á vegum Alþjóða heilbrigðis- stofnunarinnar WHÓ. Almar hefur gegnt embætti deildarstjóra lyfjamála- deildar Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytisins og hefur honum verið veitt leyfi frá störfum i ráðuneytinu í tvö ár, frá 1. apríl nk. Alþjóða heilbrigðisstofnunin er ein af sérhæfðum undirstofnunum Sam- einuðu bjóðanna með höfuðstöðvar í Genf. Auk þess eru starfandi sex svæðisskrilsiofur fyrir hina einstöku heimshluta. Svæðisskrifstofa WHO fyrir Evrópu er i Kaupmannahöfn og þar hefur nú verið stofnuð hin nýja lyfjadeild er Almar mun veita forstöðu til tveggja ára. Almar Grímsson er fæddur 16. apríl 1942 og lauk hann kandidatsprófi frá lyfjafræðiháskólanum í Kaupmanna- höfn 1965. -JH. VIÐ FLYTJUM frá Nýbýlavegi 2 að Skemmuvegi 6 Um leið og ég þakka viðskiptavinum mínum samstarflö síöastliöin 15 ár býö ég ykkur áfram- haldandi viöskipti í nýjum og stórglæsilegum húsakynnum aö SKEMMUVEGI6, KÓPAVOGI Viö veitum eftirtalda þjónustu: • Dekkjasala, ný og sóluö dekk • Negling í notuö og ný dekk • Jafnvœgisstilling • Alhliða dekkjaviðgeröir -líSS^teLk £ "1 Hj ólbarða viðgerð ■ Kópavogs, Skemmuvegi 6 ú • Öllþjónusta fer fram innandyra. BREYTT SÍMANÚMER 75135 Hjólbarðaviðgerð Kópavogs Skemmuvegi 6 - Sími 75135, Kóp. Bryngeir Vattnes - (Binni)

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.