Dagblaðið - 21.03.1979, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1979.
„Flýtum okkur hægt í
minnkun flotans
—segir Alexander Stef ánsson (F)
„Það er skoðun flutningsmanns að
við eigum að flýta okkur hægt í að
minnka fiskiskipaflota okkar,” segir
Alexander Stefánsson (F) um þings-
ályktunartillögu um úttekt á fiskiskipa-
flota landsmanna.
Alexander segir að með tilliti til
alvarlegs ástands fiskstofna við landið
hafi umræður gengið inn á það svið að
fiskiskipaflotinn sé of stór og óhag-
kvæmur. Háværar raddir heyrist um
að tafarlaust verði að minnka flotann
um 20—30 þúsund lestir, sumir telji um
helming. Þvi sé nauðsynlegt að gera sér
grein fyrir hvernig flotinn er samsettur í
dag. Slíkar upplýsingar hljóti að vera
grundvallaratriði þegar rætt sé um tak-
mörkun veiða. Fram eigi að koma
stærð og gerð skipa, aldur og afkasta-
geta fyrir hvers konar veiðar, úthaids-
dagar á ári og á hvaða landssvæðum
skip eru skráð.
2—5 milljónir
á mann
Mestur hluti útflutningsframleiðsl-
unnar fer fram í hinum mörgu sjávar-
þorpum og bæjum víðs vegar um
landið. Víða er framleiðslan svo mikil
að hægt er að nefna útflutningsverð-
mæti upp á 2—5 milljónir á hvern íbúa
staðarins. Því er ekki ofmælt að tilvera
og framtíð þessara byggðarlaga stendur
og fellur með fiskveiðunum og er um
leið undirstaða efnahags þjóðarinnar,
segir Alexander
-HH
Fundur i Prestafélagi
Suðurlands:
Rætt um
aðskilnað
ríkis
og kirkju
Á fundi í Prestafélagi Suðurlands,
sem haldinn var á Hrafnistu í Hafnar-
firði í síðustu viku, ræddu prestar um
sambúð ríkis og kirkju. Frummæl-
endur voru sr. Kristján Róbertsson, frí-
kirkjuprestur í Reykjavík, og sr. Árni
Pálsson í Kópavogi. Kom fram í ítar-
legu erindi sr. Kristjáns að hann er
fylgjandi aðskilnaði ríkis og kirkju.
Fjallaði hann um þau atriði sem virtust
mæla gegn aðskilnaði og sýndi síðan
hvernig sér virtust þessi atriði ekki
þurfa að standa í veginum. Sagði hann
að samband ríkis og kirkju væri mis-
fellulaust á yfirborðinu en sá friður
væri of dýru verði keyptur. Sr. Árni
fjallaði um sambúð ríkis og kirkju án
þses að fjalla um aðskilnað sérstaklega.
Hjá flestum fundarmanna kom fram
að ýmislegt væri að sambúð ríkis og
kirkju og kirkjan þyrfti meira sjálf-
stæði gagnvart ríkinu en fæstir voru á
því að aðskilnaður væri tímabær.
Fundurinn var vel sóttur og urðu
miklar umræður.
-GAJ-
DB-mynd Bjarnleifur.
„Lagfærð-
ir” menn-
ingar-
dagar
Herstöðvaandstæðingar halda
þessa dagana menningardaga að
Kjarvalsstöðum í Reykjavik. Að
sögn þeirra hafa dagarnir verið
vel sóttir af áköfum stuðnings-
mönnum. En eins og greinilega
sést á þessari mynd er stuðningur-
inn ekki alger. Einhverjir náungar
sáu ekki ástæðu til þess að
hcrstöðvaandstæðingum væri
leyft að auglýsa á almannafæri.
Þeir gripu því til málningardollu
og pensils og lagfærðu það sem
þeim þótti betur mcga fara.
-DS.
WM&i * -vi' | V 1
ifi B
Hefurðu heyrt það nýjasta??? Hann Siggi kyssti hana Binu í frímínútunum áðan. Hi, hi, hi.
DB-mynd Hörður.
„ÓSIÐSAMLEGUR” MINNIS-
PENINGUR NÚ FÁANLEGUR
Á 50 ÞÚSUND KRÓNUR
Minnispeningur gullsleginn, sem
gerður i tilefni af 25 ára afmæli
Flugfélags íslands 1962 en var eyði-
lagður vegna þess hve „ósiðsamur”
hann þótti, fæst nú í minnispeninga-
verzlun í Reykjavík og er verð hans 50
þúsund krónur.
Peningurinn er gullfallegur á forhlið-
inni. Þar er áletrun með upphleyptum
stöfum, Icelandair með stórum stöfum
en Flugfélag íslands með minna letri.
Þar er og faxamerki Flugfélagsins og
ártölin 1937 og 1967 en þau marka
stofndag og 25 ára tímamótin.
Bakhlið peningsins er nokkuð vafa-
samari en þar er kattarrass og uppspert
kattarrófa. Þar eru og áletranirnar
„O.K.-YOU PAY” annars vegar og
hins vegar „ÞÚ BORGAR”. Peningur-
inn er þannig að honum verður
auðveldlega snúið á borðplötu eins og
skopparakringlu og kattarrófan á þá
að skera úr um veðmál sem undir er
lagt fyrir snúning peningsins.
Einn af fyrrverandi starfsmönnum
Fí hefur tjáð DB að peningur þessi hafi
verið gerður sem gjafapeningur og hafi
aldreiátt að koma til sölu.
Kvað hann danskan listamann hafa
átt hugmyndina að bakhlið peningsins
en það var hún sem ekki hlaut sam-
þykki ráðamanna Flugfélagsins eftir að
gjafapeningurinn hafði verið sleginn og
upplagið var komið til íslands. Tóku
ráðamennimir þá afstöðu að peningn-
um skyldi eytt og var svo gert — nema
hvað nokkur eintök komust undan.
Eitt af því sáum við i minjapeninga-
verzlun í Reykjavík með verðmiðanum
50þúsund krónur.
Ástæðan fyrir eyðileggingu penings-
ins var sú, að sögn áðurnefnds fyrrver-
andi starfsmanns FÍ, að bakhliðin væri
svo „ósiðsamleg” að ekki hæfði Flug-
félaginu að gefa slíkan minnispening.
Þeir sem nú eiga eintak ættu þvi að geta
fengið vel fyrir peninginn ef þeir vilja
selja.
-ASt.
Deildakeppni Skáksamband íslands:
TR MEÐ ÖRUGGA FORYSTU
Fimmta deildakeppni Skáksam-
bands íslands hefur staðið yfir að
undanförnu. Meðal síðustu úrslita
má nefna að TR vann Austfirði með
8—0 Mjölnir vann Hreyfil með 7—1,
TR vann Hafnarfjörð með 6,5—1,5
Mjölnir vann Kópavog með 5,5—2,5
og Akureyri vann Kópavog meö
5,5—2,5 og Keflavík með 5—3.
Staðan er nú sú að TR er efst með
36,5 vinninga, Mjölnir hefur 29,5.
Akureyri 27, Kópavogur 22,
Hafnarfjörður 19, Keflavík 18,
Hreyfill 8,5 og Austfirðir 7,5.
í 2. deild hefur Seltjarnarnes
örugga forystu með 27,5 vinning . B-
lið TR er í 2. sæti með 21 vinning og
Vestfirðingar í 3. sæti með 17.5
vinning .
-GAJ-
tók
áskor-
uninni
— þóttseintsé
Eyjólfur Konráð Jónsson (S)
hefur tekið áskorun Erlends
Einarssonar forstjóra SÍS sem
sagði fyrir allmörgum árum:
„Hér verður því að breyta
lögunum og ég veit að Eyjólfur
Konráð Jónsson verður mér
hjálplegur, ég vona það, þegar
að því kemur að fá lagabreyt-
ingar um þetta.”
Þetta sagði Erlendur 2. septem-
ber 1972. Eyjólfur hefurnúborið
fram þingsályktunartillögu um að
rikisstjórninni sé falið að láta
hefja undirbúning nýrrar lög-
gjafar um samvinnufélög og sam-
vinnusambönd.
Eyjólfur Konráð segir að eigi
samvinnufélög að dafna sé þörf
verulegra umbóta. Lögin um
samvinnufélög séu að ýmsu
leyti ófullkomin. -HH.
Dýraraað
kveikja Ijósin
Alltaf hækkar orkuverðið og
þá ekki bara á olíunni frá íran.
Iðnaðarráðuneytið hefur auglýst
að frá og með 16. marz hækki
raforkuverð til íslenzkra neytenda
um 4.51%. Er þetta vegna hækk-
unar áverðjöfnunargjaldi úr 13%
í 19% samkvæmt lögum númer 6
frál3.marz. -DS.
Ferða-
félagið
hyggst
reisa ný
sæluhús
Ferðafélagið hyggst næsta
sumar reisa eitt eða tvö sæluhús á
Syðri-Fjallabaksleið og er þá talin
hæfileg gönguleið þar á milli
húsa. Einnig stendur til að stika
alla gönguleiðina inn í Þórsmörk.
Þetta kom m.a. fram á aðal-
fundi félagsins um daginn. Einnig
kom fram að stærsta átakið á
liðnu ári var göngubrú yfir Syðri-
Emstruáen með henni var rutt úr
vegi síðustu hrindruninni á
gönguleiðinni milli Landmanna
lauga og Þórsmerkur. Einnig var í
sumar stikuð leiðin milli Land-
mannalauga Og Hrafntinnuskers.
I stjórn Ferðafélagsins voru
endurkjörnir þeir Davíð Ólafs-
son, Böðvar Pétursson og Grétar
Eiríksson en í stað þeirra Lárusar
Ottesen og Eyþórs Einarssonar,
sem ekki gáfu kost á sér, voru
kosnir Sveinn Jakobsson og
Baldur Sveinsson.
-DS.