Dagblaðið - 21.03.1979, Side 9

Dagblaðið - 21.03.1979, Side 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1979. 9 „UÚKA VERKINU” Eskif jörður: Megn ógleði af peningalyktinni „Við höfum ákveðið að framlengja söfnunina a.m.k. út þessa viku meðal annars vegna þess að blaðið okkar, Höndin, var svo lengi að berast til lesenda,” sagði Guðmundur Einars- son, framkvæmdastjóri Hjálpar- stofnunar kirkjunnar, í samtali við Dagblaðið. Eins og kunnugt er hóf Hjálpar- stofnunin í byrjun síðustu viku lands- söfnun undir kjörorðinu „Ljúkum verkinu” og var stefnt að því að safna þeirri upphæð sem nægði tíl að ljúka við sundlaugarbyggingu fyrir Iamaða og fatlaða. Þá hefur Lions-hreyfingin einnig staðið fyrir fjáröflun til þessarar framkvæmdar. Guðmundur sagði að þegar hefðu safnazt á milli 10 og 15 milljónir kr. og þar af væru 7,5 milljónir frá Lions-hreyfingunni. „Við höfum verið að láta okkur dreyma um á milli 30 og 40 milljónir,” sagði Guðmundur. ,,Ef það safnast 30 milljónir, þá þýddi það 60 milljónir með framlagi hins opinbera, og það segir sig sjálft, að þá væri auðvelt að hefjast handa. Ef hvert mannsbarn gæfi sem samsvarar 100 krónum þessa viku þá væri björninn unninn,” sagði Guðmunduraðlokum. -GAJ-' Skilið skiltinu Aðfaranótt föstudags brutu þrír piltar niður kafaraskilti á vélsmiðju Andra Heiðbergs og hlupu burtu með skiltið. Lögreglá náði piltunum ekki. Aðstandendur Andra Heiðbergs heitins vilja gjarnan fá skiltið aftur. Piltarnir hafa e.t.v. haldið að verðmætur málmur eins og kopar væri í skiltinu en svo er ekki þvi það er úr smiðjureykurinn um völdin eins og Vilmundur og Ólafur Ragnar á Alþingi. Fólk óskaði þess á sunnudag að gerði NA-átt því reykurinn má heita óþolandi í steikjandi sólskini vegna ýldulyktar. Og fólki varð að ósk sinni því á mánudag voru komin 6—7 vindstíg af norðri. Og nú finnst engin lykt. En lyktin er hér mikið vandamál því hér er oft veðurblíða. Eskfirðingar vonast til að hinn dugmikli Aðalsteinn Jónsson kaupi fljótlega reykeyðingartæki frá Jóni á Reykjalundi eins og þau sem upp bæjarbúa. DB-mvnd JH. voru sett í Hafnarfirði. Þó slík tæki séu dýr er einnig dýrmætt að fólk haldi heilsu. Fjöldi manna er á einu máli um, að eftír að brætt hefur verið lát- laust í 3—5 vikur þá fari hér að bera á máttleysi í fólki samfara beinverkjum, höfuðverk og uppköstum. Fólk getur þá ekki mætt tíl vinnu og slíkt er dýrt fyrir þjóðfélagið ef í miklum mæli er. -Regína/ASt. Mikill fiskafli berst nú tíl Eski- hefur verið unnið á vöktum við fjarðar. Kom Hóbnatíndur á laugardag frystingu loðnuhrogna og er því ekki með 130 tonn, eða fullfermi, og var lokiðenn. góður þorskur uppistaða aflans en Glaðasólskin var á Eskifirði á hlutar hans einnig grálúða og ufsi. Þá sunnudag og rifust sólin og verk- Sundlaugarsöfnunin framlengd: HUNDRAÐ KRÓNUR A MANN TIL AÐ Piltarnir geta komið upplýsingum um skiltið til DB eða aðstandenda Andra heitins. -JH. Svæðismótið íLuzern: Jaf nréttið f raun Jafnréttisbarátta kvenna hefur haft greinileg áhrif hin síðari ár. Það sá ljós- myndari DB Ragnar Th. Sigurðsson gjörla nú í vikunni er konan á mynd- inni snaraði sér út úr bílnum og skipti um dekk. Enginn af hinu „sterka kyni” bauð aðstoð sína og Ragnar forðaði sér eftir að hann „skaut” með myndavél sinni á konuna. Þrír íslenzkir keppendur — Guðmundur, Helgi og Margeir Ákveðið er að svæðismót það sem mjög hefur dregizt að halda fyrir svæði 2 innan Fide hefjist í Luzern í Sviss 17. maí nk. ísland á þar rétt á þremur keppendum, sem verða þeir Guðmundur Sigurjónsson stórmeistari og Helgi Ólafsson og Margeir Péturs- son, alþjóðlegir meistarar. Þátttakendur verða frá 10 löndum: 4 frá V-Þýzkalandi, 3 frá íslandi og fsrael, 2 frá Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Sviss og 1 frá Austurríki og Færeyjum. Teflt verður í 2 riðlum í undanrásum, 10. umferðir, 17. maí—4. júní, og síðan verða loka- úrslit, þar sem fjórir efstu-í hvorum riðli taka þátt ogtefla4 umferðir til við- bótar, en úrslit skákar í undanrásum verða látin gilda áfram. Þrír efstu ménn vinna sér rétt til þátttöku í millisvæðamóti sem fram fer síðar á þessuári. -GAJ- STÚDENTAR STYRKJA ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ Alþýðuleikhúsinu — sunnandeild Með þessu vill nefndin styrkja — barst afar vegleg gjöf frá 1. des. „ágætt framlag leikhússins tíl nefnd stúdenta um síðustu helgi. Á sósíalískrar listar á íslandi” eins og fundi sem nefndin hélt 27. febrúar sl. segir í bréfi nefndarinnar. Peningarnir var samþykkt að veita Alþýðuleik- voru afhentir á frumsýningu á barna- húsinu 700 þús. kr. styrk, sem er ágóði leikritinu Norninni Baba-Jaga. af dansleik 1. des. sl. -JH. Smurbrauðstofan BJORNINN Njólsgötu 49 - Sími 15105 Brotið blað i sögu læknisþjónustu „Ráðizt var í byggingu geðdeildar við Landspítalann af brýnni þörf vegna langvarandi skorts á aðstöðu til þjónustu við geðsjúka. Heilbrigðisyfirvöld unnu mjög vel að áætlun um framkvæmdina. Var byggingin hönnuð fyrir ahliða þjónustu við geðsjúka, menntun heilbrigðisstétta og í samræmi við stærð Landspítalans. Með þessari framkvæmd var brotið blað í þróunarsögu læknisþjónustu á íslandi. Hafa heilbrigðisyfirvöld unnið ötullega að framgangi þessa verkefnis síðan, þrátt fyrir mótbyr.” Þannig segir í yfirlýsingu frá almennum fundi í Geðlæknafélagi íslands sem blaðinu hefur borizt. „Fundurinn lýsir ánægju með þær úrbætur, sem eru á næta leiti á þjónustu við geðsjúka og treystir heilbrigðisyfirvöldum að vinna áfram að nauðsynlegri uppbyggingu þessa þáttar heilbrigðiskerfisins.” -GAJ- FÉLAGASAMTÖK - FYRIRTÆKI Utvegum áprentaða T-boli með felags-eða firmamerkiyðar Getum útvegað með venjulegum fyrirvara T^boli (hálferma skyrtuboli) úr 100% bómull, áprentaða með félags- eða firmamerki yðar. Önnumst jafnframt hönnun á merki eða myndskreytingu til áprentunar eftir yðar hugmyndum. Lágmarkspöntun er 60 stk. Verð frá kr. 1500. Yðar hagur að panta sem fyrst. Símatími: 10-12 & 2-4 alla virka daga. HEILDVERSLUN GEISLAGÖTU 5 SiMI (96)21434 AKUREYRI

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.