Dagblaðið - 21.03.1979, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 21.03.1979, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1979. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. MARZ 1979. róttir , ‘y- - ■: iþróttir iþróttir Iþróttir fþróttir Iþróttir iþróttir Iþróttir i Alan Simonsen Spánska tiflifl fræga, Barcelona, bauð Borussia Mönchengladbach 570 milljónir íslenzkra króna i danska landsliðsmanninn Alan Simonsen — og Dan- anum 100 milljónir króna i kaup á ári. Alan Simon- sen hcfur samþykkt afl ræða við Barcelona fyrst allra félaga, en hvort af samningi verður er ekki gott að segja á þessu stigi málsins. Rcal Madrid hefur einnig mikinn áhuga á Alan Simonsen og þar er Gunther Netzer, framkvæmda- stjóri Hamburger SV, milligöngumaöur. Hann lék áður með Real Madrid. Liverpool-liflifl Everton hefur einnig mikinn áhuga á Alan Simonsen og hefur boðið Borussia 800 þúsund sterlíngspund eða rúmlcga 500 milljónir íslenzkra króna. Það tilboð hefur einnig verið rætt hjá Borussia án þess að nokkur ákvörðun hafi veriö tekin. Simonsen, sem var knattspyrnumaður Evrópu 1977 og er eínn minnsti leikmaður, sem um getur — innan við 1.70 metra — sagflist hafa áhuga á tilboði Everton. Þaö væri létt fyrir hann afl fara lil Englands og leika þar. Enskukunnátta sin værí ágæt. Það er greinilegt að stórliflin keppast um litla Danann og Borussia getur nú ekki haldifl honum öllu lengur. Ármann féll á Akureyri Úrslitaloikur 3. deildar á morgun Þór, Akureyri, sló Ármann út í bikarkeppni HSÍ á Akureyri í gærkvöld 24—23 — og það var mark- vörflur Þórs, Tryggvi Gunnarsson, sem skoraöi sigurmarkið sekúndu fyrir leikslok. Hafði rétt áður varið skot Ármanns og sendi svo knöttinn yfir allan völlinn i markifl. Leikurinn var jafn mestallan timann — Ármenningar þó oftast yfir. Sigurður Sigurðsson 7 og Sigtryggur Guðlaugsson 6/3, skoruðu flest mörk Þórs — Pétur Ingólfsson 9/5 og Friðrik Jóhannsson 9 flest mörk Ármenninga. Leik Týs og ÍA, sem vera átti í Vestmannaeyjum í gær í 3. deild var frestað. Akurncsíngar komust ekki til Eyja. Afturelding sigrafli Gróttu 20—18 í dcildinni nýlega og er efst mcð 20 stig eftir 12 leiki. Týr hefur 19 stig eftir 10 leiki og þessi lið eiga að leika 1 Vestmannaeyjum á morgun, fimmtudag. Þá er fyrirhugað að Þór og Ármann leiki þar i 2. deild á föstudag. Dinamo Kiev slegið ut Sovézku meistararnir í knattspymu — og hand- hafar sovézka bikarsins — Dynamo Kiev var slegið út í sovézku bikarkeppninni i gær. Tapaði þá fyrir liði hersins í átta liða úrslitum. Hermennirnir skor- uðu eitt mark í leiknum og það nægfli. Moskva Dynamo, Dynamo Tbilisi og Karpaty Ivov komusl einnig i undanúrslit bikarkeppninnar. Úrslit: Moskva Dynamo—Moskva Spartak 3—0 Tbilisi Dynamo—Vængirnir 2—0 Karpaty Ivov—Pamir Dushanbe 3—1 Partizan vann í Korac-bikarnum Partizan Belgrad, Júgóslavíu, hélt Evróputitli sínum i körfuknattleik, þegar liðið sigraði Sebastian Arrigoni Rieti 108—98 í úrslitum Korac-bikarsins i Belgrad i gær. Staðan í hálfleik var 54—54. Partízan var sterkara Uflið nær allan leikinn og júgóslavneski landsliðsmaðurinn Dragan Kicanovic átti hreint frá- bæran leik. Skoraði 41 stig fyrir lið sitt. Hjá ítalska liðinu bar mest á bandarísku ieik- mönnunum Meely og Sojuner, en þeim tókst þó ekki að hamla gegn slórleik júgóslavneska liðsins. Mcely var stigahæstur með 30 stig en Sojuner skoraði 29 stig. Íþróttuhöllin í Belgrad var þéttskipuð — sex þúsund áhnrfendur. Staðan í 1. deild Slaflan í 1. deildinni er nú þannig eftir sigur Vals- mannu i gærkvöld. Valur 11 10 1 0 206- Vikingur 11 FH 12 Fram 12 Haukar 11 ÍR 12 HK 12 Fylkir 11 Markhæstu leikmenn: Geir Hallsteinsson, FH, 83/29 HörðurHarðarson, Haukum, 71/25 Stefán Halldórsson, HK, 63/17 Gústaf Bjömsson, Fram, 63/30 * Atli Hilmarsson, Fram, 62/8 Næsti lcikur er á laugardag kl. 14.00 að Varmá. Þá leika HK og FH. ■ Víkingur-Haukar leikar á sunnudag ki. 19.00 i Laugardalshöll — Valur-ÍR á mánudagkl. 21. 164 21 9 1 1 269—215 19 6 1 5 255-245 13 5 1 6 241—270 11 4 2 5 226—233 10 3 1 8 214—236 7 2 2 8 187—211 6 1 3 7 194—217 5 Þafl var mikil keppni i ýmsum flokkum i Víðavangshlaupi Islands á Miklatúni á sunnudag. Hér eru strákar að leggja af stað — og áhuginn geislar af andlitum þeirra. DB-mynd Bjaraleifur. Leikmenn Vals tóku litla bróðurinn í kennslustund —Valur vann auðveldan sigur á Haukum í Hafnarfirði í gærkvöld, 27-18 Sterkur varnarleikur — frábær markvarzla, einkum Ólafs Benedikts- sonar í siðari hálfleik — og mikil markaskorun Jóns Péturs og Jóns Karlssonar lögðu grunn að stórsigri Vals gegn Haukum í 1. deild íslands- mótsins í handknattleik i Hafnarfirði í gær. Lokatölur 27—18 fyrir Val og eins og Valsmenn léku i síðari hálfleiknum verður erfitt að ná íslandsmeistara- titlinum af þeim. Þeir tóku litla bróður í kennslustund í íþróttahúsinu i Hafnarfirði — þar var ekkert sameigin- legt með félögunum nema það að þau eru bæði stofnuð út frá KFUM — félög með ránfuglanöfnum. Og Valur rændi senunni i gær. Þó svo Valsmenn skoruðu tvö fyrstu mörkin i leiknum voru þeir þó heldur lengi að hita sig upp í haminn, sem átti eftir að koma. Haukar jöfnuðu og komust yfir, 3—2, síðan 6—4, og þar var aðeins stórgóð markvarzla Brynjars Kvaran í marki Vals, sem kom í veg fyrir að forusta Hauka yrði meiri. Hörður Harðarson var Valsmönnum erfiður — skoraði fjögur af sex fyrstu mörkum Hauka. En Valsmenn sáu fljótt við þeim leka — Bjarni Guðmundsson tók Hörð úr umferð, það svo, að Hörður kom lítið við sögu það sem eftir lifði leiksins. Valur jafnaði i 7—7 og síðan sáust allar jafn- teflistölur upp í 12—12 í fyrri hálf- leiknum. Brynjar dalaði talsvert í markvörzlu sinni, þegar leið á hálf- leikinn. í síðari hálfleiknum kom Óli Ben í mark Vals — og lokaði marki sínu. Valsmenn skoruðu þrjú fyrstu mörk hálfleiksins, og þó varði Ólafur Guðjónsson, bezti maður Hauka í leiknum, viti frá Jóni Karlssyni. Hauk- ar brotnuðu algjörlega — leikur þeirra var ákaflega slakur. Sendu jafnvel knöttinn oftar beint til mótherja eða útaf en til samherja. Það kann ekki góðri lukku að stýra gegn jafn sterku liði og Valur hefur á að skipa. Mörkin hlóðust líka upp — Valsmenn höfðu gífurlega yfirburði. Fyrstu 22 mín. hálfleiksins þurfti Óli Ben. aðeins að hirða knöttinn tvívegis úr marki sínu, eftir víti Harðar og línuskot Árna Sverrissonar. Valsmenn skoruðu og skoruðu. Komust úr 12—12 í 20—14, síðan 23— 15. Lokakaflinn var mjög kæruleysis- lega leikinn af báðum liðum. Valsmenn slökuðu á — skemmtu sér — og skoruðu fjögur mörk gegn þremur mörkum Hauka Iokakaflann. Haukar misnotuðu þrjú víti í hálfleiknum. Þegar á heildina er litið voru Vals- menn mjög sterkir í þessum leik. Mark- vörzlu Óla bar hæst og vömin var þétt fyrir—enda erfitt að komast í gegnum hálft tonn! — Fyrsta stundarfjórðung leiksins var þó ekki meistarabragur á leik Vals en það breyttist mjög til hins betra, þegar Jón H. Karlsson kom inn. Þá fór spilið að fljóta. Jón skoraði líka grimmt — ekki nein hörkuskot en ná- kvæm, og hann var jafnvígur á báðar hendur. Um leik Hauka að þessu sinni er bezt að hafa sem fæst orð — jafnvel ÓliJó varekkisjálfumsérlíkur. Mörk Vals í leiknum skoruðu Jón Pétur8/1. Jón Karlsson 7/1, Þorbjörn Guðm. 5, Bjarni 3, Steindór Gunnars- son 2, Stefán Gunnarsson og Brynjar Harðarson eitt hvor. Mörk Hauka. Hörður 6/2, Árni 3, Andrés Kristjáns- son 2, Júlíus Pálsson 2, Jón Hauksson 2/1, Þórir Gislason, Ingimar Haralds- son og Ólafur Jóhannesson eitt hver. Dómarar Björn Kristjánsson og Karl Jóhannsson. Haukar fengu sex víti — misnotuðu þrjú — Valu.r þrjú víti, eitt misnotað. Einn leikmaður Hauka, Ingimar Haraldsson, rekinn af velli. Þrír Valsmenn, Þorbjörn, Jenss., Þor- björn Guðm. og svo Stefán Gunnars- son tvívegis. -hsím. Enn styrkir liverpool stöðu sína í 1. deild! —Sigraöi Úlf ana 2-0 á Anfield í gærkvöld Liverpool styrkti enn stöðu sina á toppi 1. deildarinnar ensku, þegar liðið vann auðveldan sigur á Úlfunum, 2—0, á Anfield i gærkvöld. Það var sjötti tapleikur Úlfanna i röð á útivelli. Terry MacDermott skoraði fyrra mark Liverpool á 36. min. og eftir fallegt upphlaup skoraði David Johnson síðara mark Liverpool á 49. minútu. Margir leikir voru háðir í ensku knattspyrnunni í gærkvöld. Úrslit urðu þessi: l.deild Aston Villa-QPR 3—1 Coventry-Manc., Utd. 4—3 Liverpool-Wolves 2—0 2. deild Bristol Rov.-Brighton 1—2 Cambridge-Millwall 2—1 Orient-Charlton 2—1 Preston-Oldham 1 — 1 3. deild Blackpool-Shrewsbury 5—0 Bury-Oxford 1 — 1 Carlisle-Peterbro 4—1 Swansea-Watford 3—2 Swindon-Colchester 1—2 Walsall-Gillingham 0—1 4. deild Aldershot-Bournemouth 1—0 Keppendur 82 frá sjö félögum á unglingameistaramoti TBR Helgina 17.—18. marz var meistara- mót TBR i unglingaflokkum haldið i TBR húsinu við Gnoflarvog. Mótið er eitt stærsta unglingamótið á árinu og voru keppendur 82 frá 7 félögum: 41 frá Tennis- og badmintonfélagið Rvk., 5 frá badmintondeild KR. 1 frá bad- mintondeild Vals, 21 frá Tennis- og badmintonfél. Akraness, 5 frá Tennis- og badmintonfél. Vestm., 8 frá Stjörn- unni og 1 frá Tennis- og badmintonfél. Hafnarfjarflar. Á laugardeginum var spilaö fram í úrslit i öUum greinum, en úrslitalcikirnir voru svo leiknir á sunnu- dag. Voru margir lcikjanna mjög spennandi, og var mikið um oddaleiki. En úrslit fóru sem hér segir; Hnokkar, einliöa.: Árni Þór HaJlgrímsson ÍA sigraði Ingólf Helgason ÍA 11—7,8—11 og 11—4. Tátureinlíða!.: Guðrún Ýr Gunnarsdóttir ÍA sigraði Guörúnu Júliusdóttur TBR 4—11, 11—7, 12—11. Hnokkar tviliðal.: Árni Þór Hallgrímsson og Valdimar Sigurðsson, ÍA, sigruðu Snorra Ingvason og Pétur Lentz TBR 15—2, 18—5. Tátur, tvUiðal.: Guðrún Júliusdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir TBR sigruðu Ástu Sigurðardóttur og Maríu Finnboga- dótturÍA, 15—7, 15—6. Hnokkar—tátur tvenndarl.: Arni Þór Hallgrímsson og Ásta’ Sigurðardóttir ÍA sigruðu Ingólf Helgason og Maríu Finnbogadóttur ÍA 18-15,7-15, 15—12. Sveinar einliðal.: Indriði Björnsson TBR sigraöi Pétur Hjálmtýsson TBR 11—5,5—11 og 12—10. Meyjareinliðal.: Inga Kjartansdóttir TBR sigraði Þórdísi Edwald TBR 12—10, 11—6. SveinartvUiðal.: Indriði Biörnsson og Fritz Bcrndsen TBR sigruöu Pétur Hjámtýsson og Kára Kárason TBR 15—9, 15—5. MeyjartvUiðal.: Þórdís Edwald og Inga Kjartansdóttir TBR sigruðu Elísabetu Þórðardóttur og Elínu Helenu Bjamadótt- urTBR 17—14, 15—8. Sveinar—meyjar tvenndarl.: Pétur Hjálmtýsson og Inga Kjartansdóttir TBR sigr- uðu Indríða Bjömsson og Þórdisi Edwald TBR 13— 18, 15—6, 15—7. Drengir einliðal.: Þorgeir Jóhannsson TBR sigraði Þorstein Pál Hængsson TBR 11—5, 11—4. Telpur einliðal.: Bryndis Hilmarsdóttir TBR sigraði Þórunni Óskars- dóttur KR 11—2,11—3. Drengir tvUiðai.: Þorgeir Jóhannsson og Þorsteinn Páll Hængsson TBR sigruðu Gunnar Björnsson og Hauk Birgisson TBR 15-2, 15-9. TelpurtvUiðal.: Hafdis Georgsdóttir og Ágústa Kristjánsdóttir TBV sigmðu Jóhönnu Gunnlaugsdóttur og ósk Friðriks- dóttur TBV 15—2, 15—10. Drengir—telpur tvenndarl.: Þorgeir Jóhannsson og Bryndís Hilmarsdóttir TBR sigruðu Þorstein Pál Hængsson TBR og Þórunni Óskarsdóttur KR 15—1, 15—7. Piltareinliðal.: Guðmundur Adolfsson TBR sigraði Óskar Bragason KR 15—2, 15—7. Stúlkureinliðal.: Kristín Magnúsdóttir TBR sigraði Sif Friðleifsdóttur KR 11—1, 11—2. Viltar tvíliðal.: Skarphéðinn Garðarsson TBR og Guðmundur Adolfsson TBR sigmðu óskar Bragason og Friðrik HalldórssonKR 15—9, 15—4. StúlkurtvUiðal.: Kristin Magnúsdóttir og Bryndis Hilmarsdóttir TBR sigmðu Sif Friðleifsdóttur og örnu Steinsen KR 9— 15, 15—4, 15—9. Piltar—stúlkur: Guðmundur Adolfsson og Kristín Magnúsdóttir TBR sigruðu Óskar Bragason og Sif Friðleifsdóttur KR 15—2, \é—10. Doncaster-Reading 2—2 Scunthorpe-Northampton 0—3 Wimbledon-Grimsby 0—1 York-Newport 1—2 Liverpool hefur nú fjögurra stiga forustu í 1. deild. Hefur hlotið 46 stig úr 29 leikjum. Everton er í næsta sæti með 42 stig úr 31 leik. Eina liðið, sem virðist geta ógnað sigri Liverpool er WBA, sem aðeins hefur tapað tveimur stigum meir en Liverpool. Hefur 38 stig úr 26 leikjum. Aston Villa færðist upp í sjöunda sæti eftir sigurinn á QPR í gær — hefur 31 stig úr 27 leikjum og hefur aðeins tapað einu stigi meira en Arsenal og Leeds, sem eru í 4.-5. sæti með 38 stig úr 30 leikjum. Spenna er nú mikil á botninum. Þar er staðan: Derby 29 8 Bolton 27 7 QPR 31 5 Wolves 29 8 Chelsea 30 4 Birmingham 29 4 Coventry vann sinn fyrsta heima- sigur á árinu — vann Man. Utd. Barry Powell skoraði strax á 1. mínútunni og Garry Thompson kom Coventry í 2—0 eftir 8. mínútur. Steve Coppell minnkaði muninn í 2—1 en Tommy Hutchison og Bobby MacDonald komu Coventry í 4—1 með mörkum rétt fyrir og eftir hálfleikinn. Coppell skoraði aftur og Sammy Mcllroy þriðja mark United beint úr aukaspyrnu. Brighton jók forustu sína í þrjú stig í 2. deild — og hefur nú hlotið sjö stig úr síðustu fjórum útileikjum sínum. Peter Ward skoraði bæði mörk liðsins í Bristol. Efstu liðin í 3. deild töpuðu bæði. Swansea vann Watford og þar var miðvörður Watford, Steve Sims, rekinn af velli. Shrewsbury steinlá í Blackpool. 6 15 30—52 22 7 13 34—49 21 10 16 30—49 20 4 17 26—51 20 7 19 30—61 15 5 20 25—43 13 Loks tókst Borussia Mönchen- gladbach að sigra enskt lið! — Borussia sló Man. City út í UEFA-keppninni íknattspymu ígær Borussia Mönchengladbach, Vestur-Þýzkalandi, tryggði sér í gær rétt í undanúrslit UEFA-keppninnar eftir auðveldan sigur, 3—1, á Manch. City í Mönchengladbach i síöari leik liðanna. Samanlagt þvi 4—2 því fyrri leik liðanna á Maine Road lauk með jafntefli 1—1. Það merkilega er að þetta er í fyrsta skipti, sem hið kunna þýzka lið slær enskt lið út í Evrópukeppni — ensk lið: hafa ávallt sigrað það áður m.a. Liverpool, sem sigraði Borussia í úr- slitum Evrópubikarsins — keppni meistaraliða fyrir tveimur árum — og sló Borussia út í undanúrslitum þeirrar keppni í fyrra. Borussia sigraði í UEFA-keppninni 1975. Það var aldrei vafi á því hvort liðið var sterkara í gær í Mönchengladbach. Þýzka liðið komst í 3—0 áður en Pólverjinn Deyna skoraði eina mark Man. City. Rétt fyrir hálfleik skoraði Christian Kulik fyrsta mark leiksins — og Hans-Giinter Bruns kom Borussia í 2—0 í byrjun síðari hálfleiks. Á 70. mín. hurfu allar vonir enska liðsins um björgun. Karl DeFHaye skoraði þá þriðja markið. EUefu mínútum fyrir leikslok skoraði Deyna eina mark City en hann hafði komið inn sem vara- maður. Þeir Colin Bell og Brian Kidd voru ekki valdir í lið Manch. City — sátu á varamannabekkjum, en tveir kornungir leikmenn voru í City-liðinu. Sóknarmenn Borussia léku varnar- menn City oft grátt í leiknum og 35 þúsund áhorfendur voru heldur betur með á nótunum. Þetta var eini leikurinn í Evrópumótúnum í gær en í kvöld verða margir leikir í þeim. Þá leika Rangers og Köln í Glasgow, Grasshoppers og Nottingham Forest i Zurich, og Malmö FF og Wisla Krakow, Póllandi, i Malmö í Evrópubikarnum, keppni meistaraliða. 12. tbl. 41. árg. 22. mars 1979 Verðkr.700 L0G L0I ER BAI EFTR DEYJA B/aöamaður Daytop Vi/lage í New York, en þaðan snúa um 90% ehuriyfja- sjúkiinga aftur tH heilbrígðs fífs

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.