Dagblaðið - 03.04.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979. 5
/ ' 1
Uppgjör síðasta árs: B a
NÆRRISJO MILUARDA
HALU HJÁ RÍKISSJÓÐI
Næstum sjö milljarða greiðsluhalli
varð hjá ríkissjóði á síðasta ári sam-
kvæmt skýrslu sem fjármálaráðherra
lagði fram á Alþingi í gær.
Gjöldin voru rúmum fimm millj-
örðum framyfir tekjumar. Við bætt-
ust neikvæðar lánahreyfingar og halli
á viðskiptareikningum. Á fjárlögum
fyrir árið hafði verið gert ráð fyrir að
greiðsluafgangur yrði en ekki halli,
afgangurinn yrði 353 milljónir.
Fjármálaráðherra segir að almennt
hafi það valdið frávikum að forsend-
ur fjárlaga um þróun verðlags og
launa hafi ekki staðizt, jafnvel þótt
fjárlögin hafi verið byggð á áætlun
um þróun verðlags- og verðbótavísi-
tölu árið 1978. Vísitalan reyndist
hærri en spáð var og stjómvöld gerðu
breytingar á verðbótum. Þá veldur
miklu um hallann að í september
gerði nýja ríkisstjórnin margs konar
dýrar aðgerðir, svo sem um aukningu
niðurgreiðslna, verðjöfnunargjald til
bænda. Þá varð gengisfelling í febrú-
ar í fyrra og aftur i september. Að-
gerðirnar í september leiddu til
þriggja milljarða aukinna útgjalda
vegna niðurgreiðslna og um 1,3 millj-
arð vegna verðjöfnunargjalds til
bænda.
Fjármálaráðherra setur í skýrslu
sinni upp dæmi um hver greiðsluaf-
koma ríkissjóðs yrði ef dregnar eru
frá hallanum afborganir i Seðla-
banka, sem vom um 3,4 milljarðar.
Eftir verður þá um 3,4 milljarða
halli.
Rannsókn á Aðalverktökum:
Samrýmist ekki
stjórnarskránni
— segja sjálfstædis- og framsóknarmenn
„Minnihluti nefndarinnar bendir á
að samkvæmt 39. grein stjórnarskrár
lýðveldisins sé kveðið skýrt á um
rannsóknarnefndir Alþingis. Ljóst sé
að tillaga þessi uppfylli ekki þau
skilyrði sem þar eru talin,” segir í
áliti minnihluta utanríkismála-
nefndar Alþingis sem leggur til að til-
lögu Vilmundar Gylfasonar (A) og
Árna Gunnarssonar (A) um rann-
sókn á Aðalverktökum verði vísað
frá.
í minnihlutanum em Einar Ágústs-
son, formaður nefndarinnar (F),
Ragnhildur Helgadóttir (S) og Frið-
jón Þórðarson (S).
Minnihlutinn segist einnig andvig-
ur því að utanríkismálanefnd gerist
rannsóknaraðili að þessu leyti.
Hann leggur til að málið verði af-
greitt með svofelldri rökstuddri dag-
skrá: „Með því að utanríkisráðuneyt-
ið hefur þegar stofnað til athugunar
og endurskoðunar á fyrirkomulagi
framkvæmda á vegum varnarliðsins
og í trausti þess, að greinargerð ráðu-
neytisins um slíka athugun verði lögð
fyrir utanríkismálanefnd, tekur Al-
þingi fyrir næsta mál á dagskrá.”
Meirihluti nefndarinnar mælir með
samþykkt tillögu þeirra Vilmundar
og Árna, eins og DB hefur skýrt frá. í
meirihluta sameinuðust þessu sinni
alþýðubandalags- og alþýðuflokks-
menn.
- HH
/
Fasteignaskjöl og
Hann blés hressilega I gær I Reykjavik. Hún þarf greinilega að taka á til þess að komast gegn vindinum, stúlkan. En hún er
vel búin með ullartrefil enda veitir ekki af. Vonandi verður apríl eitthvað mildari en forveri hans, marz, sem var hinn
kaldasti, sem malzt hefur frá því seint á 19. öld. DB-mynd Hörður.
veðbókarvottorð
á flandri
í gærmorgun hvarf skjalataska úr bil
og er tjón eigandans mikið en uppskera
þess sem töskuna tók eða fann að sama
skapi engin. Skjölin í töskunni voru
flest tengd fasteignaviðskiptum, m.a.
veðbókarvottorð o.fl. sem seinlegt er
að afla en kemur engum að gagni nema
eigandaskjalanna.
Ein sparisjóðsbók var þó í töskunni
ásamt skjölunum en peningaupphæðin
í henni litil.
Þá er taskan, sem var einföld með
rennilás og svört að lit, hvarf úr bílnum
var hann í Tryggvagötu skammt frá
Gjaldheimtunni eða, og þó síður, við
Kaffivagninn á Grandagarði.
Þeir sem töskunnar hafa orðið varir
eða kunna að finna hana eru beðnir að
hafa samband við DB sem getur komið
henni til eiganda sem yrði afar feginn
þó hann fengi ekkert nema skjölin.
- ASt.
Sumaráætlun breytir verkfallinu
Ekki flug f 10 daga
Verkfall flugmanna hjá Flugfélagi
íslands er heldur víðtækara en gert var
ráð fyrir í Dagblaðinu í gær. Þegar rætt
var við Svein Sæmundsson í gærmorg-
un var gengið út frá vetraráætlun en nú
er hins vegar komin í gildi sumaráætlun
og breytir það stöðunni ögn. Verkfallið
verður sem hér segir:
í dag verður ekki flogið til Egils-
staða, Norðfjarðar og Kaupmanna-
hafnar. Hins vegar verður flogið til
London. Á morgun verður ekki flogið
til Vestfjarða og Hafnar í Hornafirði.
Hins vegar verður fiogið til Oslóar og
Kaupmannahafnar. Á fimmtudag
verður ekki flogið til Norðfjarðar,
Vestfjarða og Egilsstaða né heldur til
London. Þá verður hins vegar flogið til
Kaupmannahafnar. Á föstudaginn
verður ekki flogið á Norðurlandi, það
er ekki til Akureyrar, Húsavíkur og
Sauðárkróks. En flogið verður milli
landa til Oslóar og Stokkhólms annars
vegar og Glasgow og Kaupmannahafn-
ar hins vegar.
Klukkan 19 á föstudagskvöld skellur
svo á allsherjarverkfall sem nær til
klukkan átta á mánudagsmorgun. Þá
tekur strax við annað allsherjarverkfall
fram á þriðjudag eftir páska.
- DS
Olíustyrkur:
Fimmþúsundkall
Olíustyrkur hefur nú verið hækk- meira en heimilað var með fjárlögum
aður í 5 þúsund krónur á hvern ein- og 2300 krónum hærra en olíustyrkur-
stakling. Er sú upphæð fyrir fyrsta inn var síðasta ársfjórðunginn í fyrra.
fjórðung ársins. Er þetta 1300krónum Munar 85% á olíustyrknum þá og nú.
Ný bankaþjónusta
i miobæjarutibui
Öryggishólf
öryggishótf er traustur geymslu-
staður
Búnaðarbanki íslands Miðbæjarúti-
bú býður föstum viðskiptavinum sín-
um til afnota ný öryggishólf.
Næturhólf
Með næturhólfinu getjð þér notið
bankaþjónustu eftir venjulegan af-
greiðslutíma. Þér látið í þar til gerða
tösku ávísanir, gíróseðla eða pen-
inga. Töskuna látið þér í hólfið hve
nær sem er sólarhringsins, þar sem
þér hafið lykil að hólfinu. Næsta af-
greiðsludag er innihald töskunnar
bókfært inná reikning yðar.
BÚNAÐARBANKIÍSLANDS
MIÐBÆJARÚTIBÚ Laugavegi3 sími 28800