Dagblaðið - 03.04.1979, Page 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979.
9
\
Margir vilja sigla með Gunnari Gunnarssyni sem varð
í 2. sæti í sjórallinu í fyrra:
„Gæti þess vegna
siglt með tíu
manna áhöfn”
—verið að smíða og sérstyrkja 23 f eta bát fyrir keppnina
,,Ég stefni að þvi með öllum til-
tækum ráðum að taka þátt í næsta
sjóralli og það má mikið ganga á til
að ég hætti við það,” sagði Gunnar
Gunnarsson auglýsingateiknari í við-
tali við DB í gær. Gunnar stjórnaði
bátnum Signýju sem varð í öðru sæti
í sjórallinu í fyrra og hafði sér til að-
stoðar Björn Árnason.
„Það hafa margir boðizt til að vera
aðstoðarmenn mínir ef ég keppi aftur
og þess vegna gæti ég mannað bátinn
svo sem 10 manna áhöfn,” sagði
Gunnar, „en helzt vildi ég hafa
Bödda með aftur, hann kippir sér
ekki upp á hverju sem gengur.”
Mótun hf. í Hafnarfirði, nýr inn-
lendur aðili í skemmtibátafram-
leiðslu, er nú að smíða 23 feta bát
handa Gunnari fyrir keppnina og
SJÓ
RALL
79,
BLADID-SNARFARI
Björn Árnason og Gunnar Gunnarsson slappa af i Vestmannaeyjahöfn i
keppninni í fyrra eftir mikla hrakninga nóttina áöur við að komast til hafnar.
DB-mynd Jónas Sigurðsson
verður hann styrktur langt umfram
kröfur flokkunarfélaganna Norsk
Veritas og Lloyds.
Annar búnaður bátsins er enn
„hernaðarleyndarmáP’, nema hvað
Gunnar er ákveðinn í að búa hann
mun betur siglingatækjum en Signýju
í fyrra.
Takist ekki að koma þessum báti á
flot a.m.k. mánuði fyrir keppnina til
reynslusiglinga hyggst Gunnar freista
þess að verða sér úti um annan bát.
Nú eru rétt tæpir þrír mánuðir til
stefnu þar sem Sjórall '79 hefst 1.
júlí, eins og áður hefur verið kynnt.
Lengsti siglingatími Gunnars í fyrra í
einum áfanga var 27 klukkustundir í
stöðugu illviðri, með tveim örstuttum
viðkomum á Siglufirði og ísafirði til
eldsncytistöku. GS
„Ástandid í Suður-Afríku aldrei verra”
—f ulltrúi þjóðf relsisf ylkingar beiðist stuðnings íslendinga
„Það finnst öllum voðalegt hvernig
farið var með gyðinga í Hitlers-Þýzka-
landi. Þar var gerð skipulögð tilraun til
að útrýma þeim vegna kynþáttar
þeirra. Það sama er nú verið að reyna í
Suður-Afríku gegn negrum. Núna sitja
að ég held 10 þúsund negrar í suður-
afrískum fangelsum og þúsund eru
handteknir á dag til viðbótar. Flestir
eru líflátnir,” sagði Count Pieterson
frá Suður-Afríku í viðtali við DB.
Pieterson er staddur hér á landi til að
vinna þjóðfrelsishreyfingu Suður-
Afríku, sem hann kallar reyndar
Azaniu, fylgi.
Pieterson gat þess, þegar hann kom á
ritstjórn DB, að öll Norðurlöndin
nema ísland hefðu stutt hreyfinguna
beint undanfarin ár. Nú væri hann
einnig búinn að fá góð orð utanríkis-
ráðuneytisins hér um stuðning og ASÍ
Count Pleterson frá Suður-Afríku.
DB-mynd Bjarnleifur
Hellissandur:
„Allt alla að
drepa í fiski”
—f ólk sof naði á f yrstu mínútum
bíómyndarinnar
„Hér er allt alla að drepa í fiski og
stanzlaus törn hefur staðið hér i sex
vikur með vinnu til 11 á kvöldin upp á
hvern dag og eru þá sunnudagar með-
taldir,” sagði Hafsteinn Jónsson,
fréttaritari DB á Hellissandi, í viðtali
við DB í gær.
Hafsteinn sér um rekstur félagsheim-
ilisins Rastar og var þar kvikmyndasýn-
ing í fyrrakvöld. Hópur fólks kom en
að sögn Hafsteins sofnuðu sumir strax
á fyrstu mínútum myndarinnar, fegnir
hvíldarstundinni.
Á laugardagskvöldið höfðu 3.675
tonn af fiski borizt á land i Rifi frá ára-
mótum á móti 1.990 tonnum á sama
tíma í fyrra svo álagið er nú mjög mikið
á allar vinnandi hendur. Hefur skóla-
fólk hlaupið undir bagga líka.
Efsti netabáturinn frá áramótum er
Hamar SH með 748 tonn, þá Saxhamar
SH með 600 og Tjaldur SH með 572
tonn.
Nýju reglurnar fyrir loðnubátana,
sem fá að fara á netaveiðar að lokinni
loðnuvertíð, þess efnis að þeir megi
ekki koma að landi án þess að hafa
áður dregið öll net úr sjó, verka öfugt í
tilvikum eins og á Rifi, að því er Haf-
steinn hefur eftir heimamönnum.
Loðnubáturinn Skarðsvík SH er nú á
netum og er ekki nema 20 mínútur á
miðin. 1 stað þess að geta skotizt til
löndunar eftir hentugleikum verður
hann að taka upp öll sin net fyrir lönd-
un, er þvi lengur í veiðiferðinni og
kemur með lakara hráefni af þeim sök-
um.
-HJ/GS
_ .1 ff- A—-_
rOStnOn lJuo 008 SKf HsiOflð ISMpuS
Hafnaretrati 5, slmi 13468.
hefði þegar gefið 300 þúsund krónur til
kaupa á mat handa flóttafólki frá
Suður-Afríku sem hefst að mestu við í
Tansaníu. Stjórnmálaflokkarnir munu
einnig að hans sögn hafa lofað stuðn-
ingi sinum.
Pieterson var spurður að því hvort
þörf væri á stuðningi við bióðfrelsis-
hreyfinguna þar sem Sameinuðu þjóð-
irnar hafa tekið afstöðu með svörtu
fólki í Suður-Afríku og þróun mála þar
á að vera til aukins jafnréttis. Hann
sagði: „Síðan lætin urðu í Soveto fyrir
tveim árum hefur verið mjög hert að
svörtu fólki í landinu þó það fáist ekki
viðurkennt. Ég til dæmis neyddist til að
flýja eftir þau læti og hef ekki komið
heim síðan. Við kærum okkur ekkert
um þau litlu lýðveldi svartra sem
stjórnin í Suður-Afríku er að koma á
fót. Við viljum eitt stórt ríki áfram, ríki
þar sem svartir og hvítir geta búið
saman í friði.”
- DS
--- 2^2$ ----
'WMT
Hef ur þú séö
JOHN ANTHONY
★★★★★★
★★★★★★
r 4] Efekki;
y UJ LÁTTU ÞAÐ EFTIR
ÞÉR AÐ SKREPPA
í ÓÐAL í KVÖLD.
2-3==l Hann er;
SYNGJANDI SÆLLOG GLAÐUR
★★★★★★★★★★★★★★★★★
Láttu sjá þig!