Dagblaðið - 03.04.1979, Síða 12
"■" ■; ..-C: ■■: -■•■ '
12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979.
Iþróttir
má
Tíu réttir gáfu
170 þúsund kr.
t 32. lelkviku komu fram 5 raðir með 10
Htum og var vinningur á faverja röð kr.
169.000.- en með 9 rélta voru 66 raöir og
vinningur á faverja kr. 5.400.-
Vegna erfiðleikanna, sem snjóþyngslin
hafa bakað ensku knattspymunni, varð að
notast við 9 leiki úr 2. deild á siðasta seðli, en
aðeins 3 leikir i 1. deiid lágu fyrir, er seðiilinn
var prentaður. Þar sem bikarkeppnin er nú
kominn á siðasta stig, truflar hún ekki meira
á laugardögum, það sem eftir er vetrar og
verða þvi framvegis 11 leikir úr 1. deild á
seðllnum. Felid er niður umferðin i páska-
vikunni vegna samgöngutafa og lokunartima
i verzlunum og afgreiðslustöðum.
West Ham fékk
skell í Sheff ield
Lundúnaliðið kunna, West Ham, fékk
slæman skell i 2. deild i Sheffield i gaer. Lék
þá við Sheff. Utd., sem litlu gengi hefur átt
að fagna i vetur, og tapaði 3—0. Leikur
liðanna átti að fara fram 3. febrúar sl., en
var þá frestað. Það var fyrrum Chelsea-leik-
maðurinn Steve Finniestori, sem kom
Sheffleld-liðinu á bragðið. Skoraði fyrsta
mark leiksins og mörkin urðu siðan þrjú. í 3.
deild hélt lið Watford niður með Thames-
ánni frá Norður-Lundúnum og lék í
Snuthend on Sea, borginni fallegu við
árós na. Southend sigraði 1—0 og hefur
nálgast turustuliðin i deildinni mjög síðustu
vikurnar. Hefur hins vegar leikið það marga
lciki að möguleikar á að komast i 2. deild eru
sáralitlir. Hins vegar var tapið áfall fyrir lið
Elton John. Það er enn efst i 3. deild, en
spennan er þar orðin mlkil.
Úrslit i leikjunum á Englandi i gær urðu
þessi:
2. deild
Sheff. Utd.-West Ham 3—0
Wrexham-Cbarlton 1—1
3. deild
Cokhester-Cariisle 2—1
Southend-Watford 1—0
Meiðsli hjá
Manch. United
— og Dickenson, Portsmouth,
alvarlega veikur
Tveir af leikmönnum Manch. Utd. — þeir
Brían Greenhoff, sem skoraöi síðara mark
United gegn Liverpool i undanúrsitum ensku
bikarkeppninnar og Mike Thomas eiga við
meiðsli að striða, sem þeir hlutu i leik
liðanna á laugardag, og ekki vist að þeir geti
leikið með liði sínu gegn Liverpool á morgun
á Goodison Park i Liverpool.
Það verður þó ekki ákveðiö fyrr en rétt
fyrir leikinn hvort þeir leika — en fari svo,
að þeir verði ekki með koma þeir Lou
Macari og Andy Ritchie í þeirra stað. Macari
hefur átt við meiðsli að striöa og hefur ekki
leikið með United í sjö vikur. Allir leikmenn
Liverpoll eru heilir og líklegt að þar verði
sama lið og áður — eða í áttunda íeiknum í
röð.
Einn af kunnustu knattspyrnumönnum
Englands á árunum eftir síðari heims-
styrjöldína, Jimmy Dickenson, Portsmouth,
liggur nú mikið veikur á sjúkrahúsi i
Barnsley. Hann er framkvaemdastjórí Ports-
mouth og fylgdist með lelk liðs síns í
Bamsley á föstudag i 4. deild. Leið þá út af
úrsæti sínu. Dickenson iék 48 landsleiki fyrir
England og var í sigurliði Portsmouth, sem
varð enskur meistarí í knattspyrnu tvö ár í
röð, 1949 og 1950. Hann hefur verið hjá
Portsmouth i 35 ár — síðustu árin sem fram-
kvæmdastjóri en stjarna þessa áður fræga
félags hefur hrapað mjög siðustu áratugina.
HENRYR0N0VARÐ
AÐ HÆTTA KEPPNI
Belgiski hlauparinn l.eon Schots sigraði á
miklu víðavangshlaupi á italfu á sunnudag.
Hlaupnar voru fimm mílur og tími Belgans
var 30:15.5 mfn. Annar varð Pólverjinn
frægi, Bronislaw Malinowski, á 30:17.8 min.
og þriðji Cragl Virgin, USA, á 30:19.8 min.
Þeir voru f nokkrum sérflokki og loka-
spretturínn geysiharður.
Heimsmethafinn Henry Rono frá Kenýa
bætti f miðju hlaupi — en hann átti f vand-
ræðum eftir að hafa ient i samstuði við
Robertson, Nýja-Sjálandi. Steve Ovett, bezti
hlaupari Englendinga, varð f sjötta sæti á
30:50.1 mfn. og Rúmenlnn kunni, llie
Floriou, varð sjöundi i, 30:50.8 mín.Gerard
Barrett, Astrallu, fjórði á 30:43.0 mín. og
Mike McLcod, Bretlandi, fimmti á 30:49.2
mfn.
13
Eþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Einar Asbjörn og Rúnar Georgsson komnir frá Belgíu:
Æfðu með la Louviere
og léku með varaliðinu
— íslenzku knattspy mumennimir góðir f ulltrúar íslands í Belgíu
„Dvölin f æfingabúðum La
Louviere, liði Þorsteins Bjamasonar og
Karls Þórðarsonar, var bæði lærdóms-
rik og ánægjuleg,” sagði Einar'
Ásbjörn Ólafsson, ÍBK, sem dvalið
hefur undarfamar þrjár vikur þar ytra
ásamt félaga sfnum, Rúnari Georgs-
syni,” aðstæður og aöbúnaður var eins
og best varð á kosið. Við bjuggum í
góðu yfirlæti hjá hjónum, sem eru
miklir stuðningsmenn La Louviere, en
æfðum með aðalliðinu en spiluðumm
með varaliðinu.”
„Undir stjóm hins nýja þýzka
þjálfara, Horzt Witzler, æfðum við
tvisvar á dag, fjómm sinnum í viku,”
sagði Rúnar ,,en hann var mjög
strangur og ákveðinn, enda veitti ekki
af. Sá fyrri sló slöku við við og sagt var
í gamni að aldrei væri hægt að koma of
seint á æfingar hjá honum, enda var
áhugi leikmanna og árangur liðsins
eftir því. Æft var á ágætum velli, við
hliðina á aðalleikvanginum, sem þrátt
fyrir slæma tíð fyrr í vetur var orðinn
mjög góður, en veðrið hefur skánað
þar ytra að undanfömu og var gott
allan tímann sem við dvöldum þar,
oftast logn og lítil úrkoma. ”
Þess má geta að Horzt Witzler var
þjálfari þýzka liðsins Swartch-Weiss,
sem kom til Keflavíkur árið 1968.
„Hann sýndi myndir og minntist á vin
sinn Hafstein Guðmundsson,” sagði
Einar ,,og kvað ferðina til fslands hafa
verið mjög skemmtilega. Witzler er
mjög ákveðinn þjálfari, enda hefur La
Louvierc tekið miklum framförum
undir hans handleiðslu, fengið 3 stig út
úr tveimur leikjum, enda er ætlunin að
halda sæti i I-deild.
Mjög mikill áhugi er fyrir knatt-
spyrnu I Belgíu og sögðu þeir félagarnir
það minna helzt á Bretlandseyjar.
Lúðrasveitir blása á leikjunum, menn
eru með flautur og önnur hávaðatól og
lifa sig inn í leikinn með hvatningar-
hrópum, þegar lið þeirra er í sókn.
Aðdáendur fylgja liðunum á úti-
leikina. T.d. fóru þrjár rútur á seinasta
leik La Louviere við Antwerpen og létu
menn sannarlega vel í sér heyra, þegar
Iiðinu tókst að rétta úr kútnum í seinni
hálfleik og sigra 3—2, eftir að hafa
verið undir í þeim fyrri 0—2.
„Vegna misskilnings sáum við ekki
leikinn,” sagði Ásbjörn, „héldum að
okkur væri ofaukið í bílnum með aðal-
liðinu, en Witzler þjálfari var mjög
leiður, þegar hann sá að við komum
ekki. Hann ætlaði svo sannarlega að
taka okkur með. Þorsteinn og Karl áttu
ekki hvað sízt sinn stóra þátt t sigrinum
en þeir eru báðir í mjög góðri æfingu.
Allir eru íslendingarnir, sem dvelja
þarna ytra bæði í Belgiu og Hollandi
orðnir þekktir á meðal almennings og
landi sínu til sóma.”
Bæði Þorsteinn og Karl létu mjög vel
af dvölinni. Eru báðir komnir í íbúðir.
Karl býr þarna ásamt konu sinni og
barni, en Þorsteinn með unnustu sinni,
sem hyggurá frönskunám.
Einar Ásbjörn Ólafsson og Rúnar Georgsson á æfingu hjá ÍBK i gærkvöld. Strax haldið á æfingu eftir að þeir komu frá
Belgiu í gær. DB- mynd emm.
Haukar—ÍR
íkvöld
— íþýðingarmiklum
leik í 1. deild
Einn leikur verður í 1. deild karla i
íslandsmótinu i handknattleik i kvöld.
Þá leika Haukar og ÍR i iþróttahúsinu f
Hafnarfirði — siðasti leikur beggja liða
í deildinni á þessu leiktimabili.
Leikurinn hefur talsverða þýðingu
fyrir bæði lið. Með sigri ná Haukar
þriðja sæti í mótinu — komast upp
fyrir FH á stigatöflunni. En leikurinn
er þó mun þýðingarmeiri fyrir ÍR-inga.
Þeir þurfa að hljóta stig f leiknum, því
ef þeir tapa þýðir það að þeir eru jafnir
HK í næst neðsta sæti i mótinu. HK og
ÍR verða þá að leika aukaleik — og það
liðið, sem sigrar hlýtur sjötta sætið í
mótinu og setu i 1. deild næsta keppnis-
tímabilið — en tapliðið verður aö leika
við Þór, Vestmannaeyjum, um sæti i 1.
deild í haust. Það er því um mikið að
keppa hjá ÍR-ingum í kvöld — og með
stigi i leiknum kveðja þeir fallbarátt-
una.
Útilokun
Taiwan úr
lAAFógild
Útilokun Taiwan úr alþjóðafrjáls-
íþróttasambandinu, IAAF, í október
sl. var dæmd ógild í brezkum rétti, í
gær. Taiwan höfðaði mál gegn IAAF
og það var rekið fyrir brezkum dóm-
stóli vegna þess að aðalstöðvar IAAF
eru f Lundúnum.
Niðurstöður dómsins voru. „Bæði
Kína og Taiwan geta verið meðlimir í
IAAF, og hvorugt landið getur krafizt
að vera eini fuiltrúi Kína í 1AAF.”
Taiwan vann þarna sama sigur og fyrir
18 mánuðum, þegar brezkur hæsti-
réttur úrskurðaði að útilokun Taiwan
úr alþjóðabadmintonsambandinu
stæðist ekki.
tslenzka unglingalandsliðið. Fremri röð frá vinstri Guðjón Þórðarson, Haukum, Pálmar Sigurðsson, Hauk um, Axel Nikulásson, IBK, Jón Kr. Gislason, IBK, og Valdimar Guðlaugsson, Ármanni. Aftari röð: Gunnar
Gunnarsson, þjálfari, Willum Þórsson, KR, Hálfdán Markússon, Haukum, Sigurður Sigurðsson, ÍBK, Valur Ingimundarson, UMFN, Viðar Vignisson, iBK, Sverrir Hjörleifsson, Haukum og Ingvar S. Jónsson
þjálfari.
íslenzka unglingalandsliðið í körf u-
knattleik á Evrópumót í V-Þýzkalandi
— Hélt utan í morgun—Uppistaða liðsins úr Haukum og Keflavík—íannað sinn
sem ísland tekur þátt f slíku Evrópumóti
I morgun hélt unglingalandslið
Körfuknattleikssambands íslands utan
til keppni á fimmta Evrópumeistara-
móti unglinga i körfuknattleik en
mótið er háð í Vestur-Þýzkalandi.
Þetta er i annað sinn, sem fslenzkir
Armenningar
stóðu í KR!
KR sigraðí Ármann 2—1 í Reykja-
víkurmótinu á Meiavelli f gærkvöldi.
KR hafði undirtökin i leiknum en tókst
ekki að finna leiðina að marki
Ármanns fyrr en á 70. mín. er Sigurður
32. leikvika — leikir 31. marz 1979.
Vinningsröð: 1XX - XXI - 02X - 11X
1. vinningur: 10 réttir — kr. 169.000.-
8268 36497 + 40502(4/9) 42467(2/10,6/9)
2. vinningur: 9 réttir — kr. 5.400.-
302 4467
432 4646
621 5531
1355 6191
2058 30303
2231 30525
3742 30892+
3762 31037
31090
31340(3/9)
31798
32846
32860 +
32863 +
32961
32977
33591 34300
33705 34543+
33791 34936
34052 35635
34065 35869 +
34083 35887 +
34090 35914
40137
40398
40482(2/9)
40503
40629
40823
41318
41912 +
41932+
42056 +
57547
34104 36281(2/9) 41908 +
Kærufrestur er til 23. apríl kl. 12 á hádegi. Kærur skulu
vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og
aðalskrifstofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur
verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvisa stofni
eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilis-
fang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR—Íþróttamiðstöðinni—REYKJAVÍK
Afmælismót KR f Skálafelli
Stefánsmótið á skiðum, sem jafn-
framt var afmælismót skiðadeildar KR
í tilefni af 80 ára afmæli félagsins, var
haldið á sldðasvæði KR i Skálafelli
tvær siðustu helgarnar i marz. Þátttak-
endur voru frá Reykjavík, Akureyri
og Húsavík.
Helztu úrslit mótsins urðu þessi:
STÚLKUR:
lOára ogyngri:
Kristin Ólafsdóttir, KR, sigurvegari i yngsta flokknum.
1. Kristín Ólafsdóttir KR
2. Arna ívarsdóttir AK
3. Gréta Ðjörnsdóttir AK
11—12ára:
1. Helga Stefánsdóttir ÍR
2. Bryndis Ýr Viggósdóttir KR
3. Tinna Traustadóttir Á
13 —15 ára:
1. Þórunn Egilsdóttir Á
2. Bryndís Pétursdóttir Á
3. Marta Óskarsdóttir Á.
DRENGIR:
lOára ogyngri:
1. Guðmundur Pálmason Á
2. Sveinn Rúnarsson KR
3. Aðalsteinn Árnason AK
11 — 12ára:
1. Ámi Grétar /\mason HÚ
2. Guðmundur Sigurjónsson AK
3. Ragnar Sigurðsson KR
13 — 14 ára:
1. ömólfur Valdimarsson ÍR
2. Ásmundur Þórðarson KR
3. Ámi Alvar Arason Á
DRENGIR
15 — 16 ára:
1. Einar Úlfsson Á
2. Ríkharö Sigurðsson Á
3. Óskar Kristjánsson KR
KONUR:
1. Steinunn Sæmundsdóttir Á
2. Halldóra Bjömsdóttir Á
KARLAR:
1. Hafþór Júlíusson ÍR
2. Árni Þ. Árnason Á
3. Trausti Sigurðsson Á
66,48
73,36
90,94
76,25
77,45
77,64
81,20
82,10
82,63
59,88
66.72
68,74
62,34
62.72
64,24
75,30
80,54
81,17
68,25
68,27
72,48
71,66
76,40
64,99
67,34
72,86
Indríðason skoraði mjög sérstætt
mark. Bein aukaspyma var dæmd á
Ármann rétt utan vitateigs. Sigurður
tók spyrnuna strax og sendi knöttinn
rakleitt i mannlaust markið.
Ármenningar mótmæltu harölega en á
meðan hvarf knötturinn, og varð að
hefja leikinn með nýjum knetti.
Skömmu fyrir leikslok skoraði Vilhelm
Fredriksen annað mark KR en Brynjar
Torfason minnkaði muninn fyrir
Ármann á síðustu mín. Leikurinn var
frekar daufur en góðum samieiks-
köfkum brá þó fyrir, sérstaklega hjá
KR. -VS.
Tennismót
íKópavogi
Áhugi á tennis er alltaf aö aukast
hér á landi og á sunnudag var háð
tennismót i Kópavogi — innanfélags-
mót hjá Iþróttafélagi Kópavogs, ÍK.
Sigurvegarar urðu þeir Haukur Mar-
geirsson og Ólafur Valur Ólafsson, sem
hlutu báðir þrjá vinninga. í þriðja sæti
var Einar Bragi Indriðason með tvo
vinninga. Tuttugu leikir voru leiknir á
mótinu.
Tveim tennisvöllum hefur veríð
komið upp við Vallargerðisvöll i Kópa-
vogi — og í vor á að bæta öðrum
tveimur við. Þá verða vellirnir i Kópa-
vogi orðnir fjórir og allgóð aðstaða til
að iðka iþróttina. Á myndinni til hliðar
er Ólafur Valur — annar af sigur-
vegurum mótsins á sunnudag.
DB-mynd Bjamleifur.
körfuknattleiksmenn taka þátt i slfku
móti — fyrst i Cadetta á Gríkklandi
1975. Aldurstakmörk f keppninni eru
17 ár eða yngri.
í keppninni í Vestur-Þýzkalandi er
ísland í riðli með gestgjöfum Vestur-
■ •
*:■■••■; ■■■
Þýzkalands, Belgíu, Frakklandi,
Portúgal og Wales. Keppt er í þessum
riðli í Hagen og mótið stendur yfir
dagana4.-9. april.
Undirbúningur fyrir Evrópumótið
hófst sl. sumar og dvöldust drengirnir
þá í æfingabúðum að Laugarvatni.
Reglulegar æfingar hófust svo í
október. Piltarnir sjálfir standa straum
af kostnaði við förina og var þeim
gefinn kostur á nokkrum fjáröflunar-
leiðum. Fararstjóri og jafnframt
dómari á mótinu verður Kristbjörn Al-
bertsson, alþjóðadómari. Þjálfarar
liðsins eru Gunnar Gunnarsson og
Ingvar S. Jónsson.
Urslit í Evrópukeppni
í körfu á fimmtudag
— ítalska liðið Emerson Varese
leikur við Bosna Júgóslavíu
Emerson Varese, bezta körfuknatt-
leikslið Ítalíu, sem leikur á fimmtudag
til úrslita í Evrópukeppni meistaraliða
gegn Bosna Sarajevo frá Júgóslavíu í
Grenoble i Frakklandi, hefur tapað 4
siðustu leikjum sínum i ítölsku 1.
deildinni. Siðasti ósigur Emerson var á
sunnudag, þegar Xerox frá Milanó
sigraði þá 81—74.
Þjálfari Emerson, Edoardo
Rusconi, sagði þá vera með hugann í
Grenoble. Þeirra bezti leikmaður,
Dino Meneghin, lék ekki með vegna
meiösla en reiknaö er með að hann
verði búinn að ná sér fyrir leikinn við
Júgóslavana. Þrátt fyrir þessa tapleiki
eru Emerson enn efstir í ítölsku 1.
deildinni og leika þar í sex liða úrslita-
keppni um meistaratitilinn.
Bosna hafnaði í 4. sæti í baráttunni
um júgóslavneska meistaratitilinn, sem
lauk um helgina. Meistarar urðu
Partizan Belgrad. „Við einbeittum
okkur að Evrópumeistarakeppninni og
yngingu liðsins á þessu keppnistíma-
bili”, sagði þjálfari Bosna, Bodan
Tanjevic. Hann reiknaði t ieð að mæta
Real Madrid í Grenoble en Emerson
tókst að leggja Spánverjana að velli i
undanúrslitum keppninnar.
SKARTGRIPIR
Fermingargjöfin í ár
SIGMAR Ó. MARÍUSSON
Hverfisgötu 16A — Sími 21355.