Dagblaðið - 03.04.1979, Side 24
Formaður Sjómannasambandsins um tillögur um helmings samdrátt loðnuveiðanna:
„Margir munu pakka
saman og hætta alveg”
reiðarslag þvf kolmunna- og spærlingsverð er of lágt til að bæta upp loðnutapið
„Þetta er reiðarslag fyrir bæði
sjómenn og útgerðarmenn, hvað þá
ef tillit er tekið til að slðasta sumar-
og vetrarvertíð þóttu góðar en samt
sem áður aflaði ekki nema um
helmingur skipanna fyrir
kauptryggingu áhafnanna,” sagði
Óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambands íslands í viðtali við
DB i morgun. Svaraði hann þessu er
hann var spurður álits á tillögum
norskra, íslenzkra og færeyskra
fiskifræðinga í þá veru að minnka
loðnuveiðarnar úr islenzka
stofninum úr 1200 þús. tonnum á
síðustu sumar- og vetarvertíðum
niður i 600 þús. tonn á næstu tveim
vertíðum.
Þetta eru bráðabirgðatölur
fiskifræðinganna byggðar á
seiðarrannsóknum og verða endur-
skoðaðar í kjölfar frekari rannsókna.
Óskar taldi að ef þessi tala vaeri
marktæk, mætti með íullri bjartsýni
ekki búast við að talan yrði hækkuð
nema um svo sem200 þús., tonn, sem
enn væri alvarlegt áfall.
Þá hefur verið rætt um að
loðnuskipin snúi sér að kolmunna-
veiðum fram til næstu sumarloðnu-
vertíðar, sem hefst um miðjan ágúst
og einnig að þau fari á spærlings-
veiðar. En aðeins um 10 loðnuskip
hafa vélarorku til kolmunnaveiða og
verð á spærlingi og kolmunna nú er
svo lágt að hvorki sjómenn né út-
gerðarmenn telja sér fært að fara á
þær, það tækist hreinlega ekki að
manna bátana.
Sá Oskar ekki fram á annað en að
margir útgerðarmenn mundu nú
„pakka saman” og hætta, ef þeir
gætu, með vaxandi atvinnuleysi
sjómanna í kjölfarið.
Síðast veiddu Norðmenn og Fær-
eyingar um 157 þús. tonn af loðnu úr
íslandsstofninum utan 200 mílna lög-
sögu okkar og áfram verður
óvissuþáttur hversu stór hluti
stofnsins syndir út fyrir og nýtist
öðrum þar.
-GS.
Srfálst, úháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979.
Hafís i Patreksfirði ígær
k útleið
í morgun
,,JÚ, það var dálítill íshroði hér i
gærdag en hann hefur hrakið aðeins
norður aftur í nótt,” sagði Sigríður
Guðbjartsdóttir á bænum Lága-Núpi í
Kollsvík vestast í Patreksfirði.
„Það eru þó nokkuð mörg ár síðan
við höfum séð hafis hérna á firðinum
og þá voru aðeins stakir jakar. Hafís er
mjög sjaldgæfur héma. Núna sjást
stakir jakar hérna út með firðinum og
einstaka jakar á fjörum en þetta hefur
minnkað síðan í gær í sunnan andvar-
anum,” sagði Sigríður. -DS.
Hafísinn:
ÁSTANDIÐ
VERSNAR
VIÐ N0RÐ-
VESTURLAND
„Við flugum í gær yfir norður og
vestur strandirnar en sáum ekkert fyrir
austan vegna þoku. Ástandið fyrir
norðvestan er núna mun alvarlegra en
það hefur verið,” sagði Guðmundur
Kjærnested skipherra "hjá Landhelgis-
gæzlunni.
„Við sáum ís syðst í Breiðafirði. Þar
voru þó aðeins stakir jakar. Síðan var
ís með öllum Vestfjörðum og stórar
spangir inni á ísafjarðardjúpi. Allar
vikur við Horn em fullar af landföstum
ís, svo og Strandir. Vel er þó fært
þarna fyrir en það kostar dálítinn tíma
og þolinmæði.
Við sáum fyrir Norðurlandi að
sólbráð er mikil á Grímseyjarsundi og
þar sem sjórinn er dýpri. ísinn er ekki
meiri en það að í góðri átt verður hann
fljótur burt aftur,” sagði Guðmundur.
—DS.
Margeirféll
átíma
í 6. umferð skákmótsins í Lone Pine
tapaði Margeir á tíma fyrir Bandaríkja-
manninum Tarjan. Hafði Margeir
gjörunna stöðu er hann féll á tíma.
Helgi gerði jafntefli við Benkö og
Guðmundur gerði jafntefli við
Federovic. Það vakti mesta athygli í
þessari umferð að Kortsnoj tapaði
fyrir góðkunningja okkar íslendinga,
séra Lombardy. Hefur Kortsnoj nú
tapað tveimur skákum í röð.
Júgóslavinn Shamkovic er nú einn í
efsta sæti á mótinu með 5 vinninga.
Guðmundur og Helgi hafa 3,5 vinninga
og Margeir 3. -GAJ-
Eðvarð og Kjartan verða á móti
Efnahagsfrumvarpið:
Annarri umræöu um efnahagsfrum-
varp Óláfs Jóhannessonar lauk í efri
deild klukkan hálfátta í gærkvöld.
Þriðja umræða fór þó ekki fram um
kvöldið en var frestað þar til í dag, eftir
fund í Sameinuöu þingi. Frumvarpið
kemur því ekki fyrir ri'ðri deild fyrr en
á morgun.
Flestar greinar t>umvarpsins og
breytingartillögur me'rihluia fjárhags-
og viðskiptanefndar ciri deildar voru,
samþykktar án mótatkvæða, en sjálf-
stæðismenn sátu hjá. Sjálfstæðismenn
greiddu þó atkvæði gegn nokkrum
greinum, svo sem um verðlagsmál,
aflatryggingarsjóð og skyldu atvinnu-
rekenda til að senda skýrslur um fækk-
un starfsfólks. Þá greiddu sjálfstæðis-
menn atkvæði gegn því, að málinu yrði
vísað til þriðju umræðu til að sýna and-
stöðu sínavið þaðíheild.
DB hafði áður greint frá, að Eðvarð
Sigurðsson (AB) hygðist greiða at-
kvæði gegn verðbótakaflanum í frum-
varpi Ólafs. Kjartan Ólafsson (AB)
mun einnig greiða atkvæði gegn
þessum kafla. Þeim félögum þykir of
langt gengið í kjaraskerðingu.
Að öðru leyti er nú mikil samstaða
stjómarliða og „logn” eins og einn
þingmaður þeirra sagði í morgun.
-HH.
Bílvelta í Keflavík
Um kl. 19.15 í gærkvöldi varð það
umferðaróhapp í Keflavík á mótum
Skólavegar og Lyngholts að bílstjóri á
jeppabifreið missti stjórn á bifreið
sinni með þeim afleiðingum að hún valt
og stöðvaðist á toppnum. Talið er að
hálkan hafi valdið óhappinu. Öku-
maðurinn var einn í bílnum og slapp
hann ómeiddur en nokkrar skemmdir
urðuábilnum. -GAJ-
Það er skokkið sem bllfur. Fii maður sér œfingagalla og góða skó er allt komið og þi
er bara að drífa sig út og hlaupa. Þœr fitna ekki i meðan þessar hressu stöllur, sem
stunda hlaup kringum Tjörnina Í Reykjavik. Það er heldur ekki amalegt að stunda úti- \
veruna þessa daga. Sól skln I heiði og þótt nokkuð andkalt sé, er um að gera að
hlaupa það úr sér.
DB-mynd Magnús Hjörleifsson.
Þingsályktunartillaga heillar þingnef ndar:
Laxalónsmálið verði athugað
— mat verði lagt á helztu þætti þess
Allsherjarnefnd neðri deildar,
menn úr öllum flokkum, hafa nú nær
fullfrágengna þingsályktunartillögu
um sérstaka athugun á Laxalónsmál-
inu.
Það er næsta einsdæmi, að þing-
nefnd flytji þingsályktunartillögu. í
Laxalónsmálinu hefur allsherjar-
nefnd gert sína eigin rannsókn, að
sögn nefndarmanna og kvatt á sinn
fund sjö manns til viðræðna um
málið.
Allsherjarnefnd vill, að neðri deild
skipi á sínum vegum fimm manna
nefnd til að athuga ýmsa þætti Laxa-
lónsmálsins. Meðal annars skuli
metið það tjón sem aðilar hafi orðið
fyrir og framtíðin í þessu fiskeldi, og
er einkum átt við ræktun regnboga-
silungs. Metin skal þýðing brauðryðj-
andastarfs Skúla Pálssonar. Enn-
fremur skal lagt mat á verðmæti
stöðvarinnar við Laxalón.
Út úr þessu gæti hugsanlega komið
svar við spurningunni um skaða-
bætur til Skúla Pálssonar.
Vegna mikils stuðnings við málið
innan nefndarinnar og i öllum flokk-
um, er gert ráð fyrir, að það fari
greiðlega gegnum þingið.
-HH
65 ára maður f éll í slorþró
„Ætlaði aldrei að komast upp úr”
„Þetta gerðist í stórri slorþró sem
'ar orðin full og snigillinn vildi ekki
aka slorið upp. Það var búið að
eggja planka yfir brúna. Ég tók kúst-
ikaft og fór út á plankann og þegar
:g kom að sniglinum þá missti ég
afnvægið og datt ofan í,” sagði
Einar Hannesson 65 ára gamall Vest-
mannaeyingur sem lenti ofan í slor-
þró i Vestmannaevjum í gær en tókst
af eigin rammleik að komast upp úr,
og þykir mönnum það hið mesta
þrekvirki af svona fullorðnum
manni.
„Ég fór með vinstri löppma inn i
snigilinn og hann dró mig upp. Við
misstum einu sinni bretti ofan 1 svona
snigil og það hvarf. Stígvél-
ið hjá mér var farið í sundur en ég
gat lyft aðeins fætinum og dregið mig
útúr en þá fór ég alveg á bólakaf og
ætlaði aldrei að komast upp úr. Ég
kallaði á hjálp en enginn heyrði í
mér. En mér tókst að krafla mig á
eins konar hundasundi að barminum
og gat velt mér yfir. Ég hef sloppið
alveg furðanlega vel og er aðeins
marinn á hælnum og ökklanum,”
sagði Einar að lokum, en hann liggur
nú á Sjúkrahúsinu i Vestmannaeyj-
um.
-GAJ-