Dagblaðið - 09.04.1979, Qupperneq 8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1979.
UGANDA:
AMIN HELDUR
ENNÞÁ VELLI
HEFUR KALLAÐ TIL SÍN ÚRVALS-
SVEITIR BONDO-HÉRAÐS
Gífurlegt vopnaglamur og fall-
byssuskothríð berst nú frá Kampala,
höfuðborg Uganda, en þar hafa her-
sveitir, hliðhollar Amin forseta,
haldið kyrru fyrir og sýnt óvæntan
mótþróa gegn innrásarliði Tansaníu-
manna og byltingarmanna frá
Uganda.
Bardagar hafa staðið í borginni
yfir alla helgina, en einn erlendur
sendimaður lýsti átökunum sem
fyrsta raunverulega votti þess, að
styrjöld ríkti í landinu.
Talið er að Amin forseti hafi nú
kallað til liðs við sig Bondo-herdeild-
ina sem skipuð er Nubiönum frá
heimahéruðum Amins sjálfs vestan
Nílar og fyrirskipaö þeim að verja
landsvæði sunnan Kampala, eftir að
rúmlega eitt þúsund liðsmenn frá
Líbiu voru fluttir heim flugleiðis sl.
laugardag.
Bardagar hafa verið hvað mestir
við Lubowakaffiekruna í um fimm
mílna fjarlægð suður af Kampala, á
veginum til borgarinnar og alþjóða-
flugvallarins við Entebbe, en hann
hafa byltingarmenn á valdi sínu.
Hermenn Amins hafa ennfremur
orðið fyrir sprengjuárásum í her-
Erlendar
fréttir
búðum sinum, skammt frá Makerere-
háskólanum í Kampala. Segja ibúar,
að þeir hafi séö hermenn koma
hlaupandi út úr byggingum sem
stóðu í björtu báli og hafi það verið í
fyrsta sinn, sem styrjöldin hafi í raun
náð svona langt inn í borgina.
Erlendir sendimenn segja, að
ákvörðun Amins um að kalla til sín
Bondo-herdeildina sýni að hann
hyggist berjast til síðasta manns i
Kampala í stað einhverra stöðva í
norðurhluta landsins, eins og búizt
hafði verið við. Sömu heimildir segja
að byltingar- og innrásarlið hafi nú
allan vesturhluta Uganda á valdi
sínu, eftir að það náði Fort Portal,
skammt frá landamærum Zaire.
Segir í fréttum frá Uganda, að
ráðamenn í Alsír hafi trúlega átt sinn
þátt i að fá Líbíumenn til þess að
kveðja heim herlið sitt frá Uganda,
en Tansaníumenn voru meðal þeirra,
sem viðurkennt hafa stjórn Polisario-
manna í Spænsku Sahara.
Þó Frelsishreyfing Uganda segist
hafa umkringt Kampala er talið
líklegt af síðustu fréttum að bardag-
inn um borgina kunni að taka mun
lengri tíma, en áætlað var.
1
REUTER
8
Idi Amin Ugandaforseti er augljós-
lega ekld eins vinafár og menn héldu.
A.m.k. hefur honum bætzt liðsauki
frá Bondohéraði og hyggst hann nú
verjast til síðasta manns i Kampala.
AFGANISTAN:
SJÖ HERMENN
FELLDIR
ÍÁRÁS
PAKISTANA
Utvarpsstöðin í Kabul i Afganistan
sagði í tilkynningu 1 nótt að 7 hermenn
hefðu láuð lífið í bardögum við innrás-
arlið frá Pakistan, sem ráöizt hefði yfir
landamærin á fjórum stöðum.
Sagði í tilkynningunni, að herlið
Pakistan hefði verið hrakið yfir landa-
mærin á ný eftir að hafa misst fjölda
hermanna.
„Afganistan beinir þeim eindregnu
tilmælum til ríkisstjórnar Pakistan aö
halda sig frá landamærum ríkjanna og
forðast átök til þess að vernda friðinn,
sem ríkt hefur milli ríkjanna,” sagði í
tilkynningunni.
Ekki var sagt, hvar innrásirnar
hefðu átt sér stað.
Sagði að innrásarhermennirnir
hefðu verið klæddir i búninga
Afganistan. „Hermenn Afganistan
réðust gegn innrásarliðinu og ollu því
miklu manntjóni áður en það var rekið
til baka. Sjö hermenn Afganistan létu
lífið,” sagði í tilkynningunni.
Ekki var tilgreint, hversu fjölmennt
lið Pakistana hefði verið.
Ríkisstjóm Mohammad Tarakki
hefur margsinnis sakaö yfirvöld í íran
um að reyna að valda vandræðum með
því að senda hermenn sína yfir landa-
mærin í Herat-héraði, en þar eru taldir
fara fram miklir bardagar milli
skæruliða, sem berjast gegn stjórn
Tarakkis ogstjómarhermanna.
^JMtakaHoveydasætirhai^^
BÚIZT VIÐ
FREKARI
ÁTÖKUM
Stjómvöld byltingarmanna í Iran
hafa látið hneykslun og mótmæli alls
staðar að úr heiminum sem vind um
eyru þjóta, en aftaka Amir Abbas
Hoveyda, fyrrum forsætisráðherra í
íran, sem tekinn var af lífí eftir leyni-
leg réttarhöld á laugardag, hefur
mælzt ákaflega illa fyrir.
Sem svar við mótmælum ráða-
manna víða um heim sagði Amir
Entazam aðstoöarforsætisráðherra:
„Þessir menn þurftu ekki að búa við
ofriki ríkisstjórnar Hoveyda. Hann
þjónaöi þeim og þess vegna era þeir
reiðir nú.”
Fimm islamskir öryggisverðir létu
lífið og þrír særöust alvarlega er þeir
reyndu að gera óvirka sprengju, sem
fannst í Mohsemi moskunni i
Teheran á laugardagskvöldið, er til-
kynnt hafði veriö um aftöku
Hoveyda.
í nótt var búizt við frekari aftökum
víða um landiö. Fimm liðsmenn
öryggissveita keisarans voru teknir af
lífi úti á landsbyggðinni í gær og hafa
þá alls 64 fyrrum liðsmenn sveitanna
verið teknir af lífi síðan byltingar-
dómstólar tóku til starfa.
Blöð í Teheran birtu ljósmyndir af
Hoveyda, sem varð 61 árs, þar sem
hann lá ber að ofan í fangelsisgarði
Qasr-fangelsisins. Sáust greinilega
skotsár á hálsi og höfði hins látna.
Kvöldblaðið Etela’at segir í frá-
sögn af aftökunni, að böðullinn hafi
aðeins verið einn, skotið á Hoveyda
með vélbyssu eftir að hafa sagt: „Þú,
herra Amir Abbas Hoveyda, sem
úrhrak jarðar samkvæmt niðurstöðu
dómstólsins, hefur verið dæmdur til
dauða.”
Entezam aöstoðarforsætisráðherra
sagði á blaðamannafundi, að ríkis-
stjórnin heföi ekki vitað um réttar-
höldin yfir Hoveyda, en gaf til kynna
að niðurstaöa dómsins hefði verið
mönnum að skapi og að Hoveyda
hefði verið svikari.
Annríki
Dymbilvikan, hin mikla annavika
páfa, hófst i gær með pálmasunnu-
dagsgöngu og útimessu kaþólskra að
viðstöddu fjölmenni á St. Péturstorg-
inu í Vatikaninu. Fagurt vorveður og
sól var á Ítalíu í gær.
Jóhannes Páll páfi blessaði pálma-
og ólífugreinar sem haidið var á loft
af meira-en 70 þúsund manns, en það
er gert til minningar um göngu Jesús
frá Nasaret inn í Jerúsalem, þegar
múgurinn lagði pálmagreinar fyrir
fætur honum, rétt áður en hann var
handtekinn og tekinn af lífi.
Páfinn sjálfur, skrýddur rauðum
hökkli, hélt á olífugrein í hendi sér er
hann blessaði fjöldann, eftir að hafa
farið fyrir göngu umhverfis torgið.
í blessunarorðum sínum nefndi
páfi „bræður okkar og systur, sem
haldið er föngnum og líða þjáningar í
fangelsum og fangabúðum viða um
heim”. Þá aðvaraði hann „fólk, sem
hlotnast tímabundin veraldleg völd
að misnota þau ekki”.
Annríki verður mikið hjá páfa í
vikunni, og eru messur og bæna-
gjörðir upp á hvern dag. Hefur fjölda
kaþólskra manna drifið til Rómar
síðustu daga til þess að njóta bæna-
stunda með hinum nýja páfa, en í
fyrra fór lítið fyrir hátíðarhöldum,
þar eð Páll VI lá þá mjög veikur og
kom lítið sem ekkert fram opinber-
lega.