Dagblaðið - 09.04.1979, Síða 27

Dagblaðið - 09.04.1979, Síða 27
27 \ DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1979. /' _....... Hef nd M jallhvítar Leikfélag Manntaskólans á Akurayri: GRlSIR GJALDA, GÖMUL SVlN VALDA Höfundur: Böðvar Guömundsson Leikstjóri: Kristfn A. Úlafsdóttir Tónlist Sverrir PáN Eriandsson. Sjaldgæft held ég hljóti að vera að einn og sami menntaskóli rúmi innan sinna vébanda bæði leikritahöfund og tónskáld — og það í hópi kennara- liðs en ekki nemendanna sjálfra. En svona er nú ástatt á Akureyri. Og af þeim kringumstæðum helgast nýi skóialeikur menntaskólans sem verið er að leika í félagsheimilinu í Kópa- vogi þessa dagana. Það má vel skilja ef skólaleikarar á Akureyri þykja öfundsverðir af þessum starfskröft- um: áreiðanlega er á marga lund þakklátara og skemmtilegra að fást við heimafengið viðfangsefni af þessu tagi heldur en nokkurra ára gömul verkefni atvinnu-Ieikhúsanna sem í vetur hafa verið tíðust viðfangs- efni á skólaleikjum. Sýning Mennta- skólans á Akureyri I Kópavogsbíó um helgina var líka prýðilega skemmti- leg, og haföi auk hins nýstárlega efnis til að bera í ríkum mæli venjulega kosti skólaleikja, fjör og glaðværð og gáska í meðförum leiks. Eins og fyrri leikir Böðvars Guðmundssonar, handa Alþýðuleik- húsinu, er Grisir gjalda. . . gagngert saminn handa tilteknum leikhóp, og ræðst sjálfsagt bæði efnisval og meðferð þess af þörfum hins fjöl- skipaða skólaleiks. Hvorugt er reyndar ýkja nýstárlegt: Böðvar er sem áður alveg eindreginn móralisti þegar hann yrkir fyrir leiksvið, og eins og áður er fyndni og hnyttni og leikandi hagmælska aðalprýði leiktextans. Leikritið er að sögn helgað börnum á barnaári og yrkis- efnið uppeldi og uppeldismál, heimur barnsins eins og hann birtist í sögum og ævintýrum á bók eða bíó eða í sjónvarpi, og í veruleikanum i fjöl- skyldu og skóla og sveitinni. Hér er hrært í sætan graut heimi Mjall- hvítar, Tarsans og villta vestursins með indianum og kúrekum, og ýmis- legum neyslu-, ítroðslu og uppeldis- hugmyndum, siðum og venjum sam- tíðar. Það er nú aldeilis ekki nýtt að vandlætast út af uppeldismálum í leikhúsi — nýleg leikrit af svipuðu tagi, hvort með sínu mótinu, eru Vatnsberarnir í Alþýðuleikhúsinu, og skólasýning Þjóðleikhússins, Grænjaxlar, í fyrra. Skemmtilegast þótti mér þetta takast í Grísir gjalda þar sem efnið snerist upp í rakta dellu, skopfærslu og skrumskælingu hins viðtekna barnaefnis eða að sínu leyti jafnviðtekinna uppeldishug- mynda. Dýrðaratriði af þessu tagi í sýningunni voru til dæmis „hefnd Mjallhvítar” og „Tarsan frelsar Jane” úr barnasögunum, eða þá t.d. lýsing rútuferðar og smalamennsku með söng sauða í sveitinni, að ógleymdu moröinu á kennslukon- unni. En móralinn í leiknum má vafalaust leggja út af snertingu hinna tveggja heima, bama og fullorðins sem þar er öðru hverju lýst, og ævinlega felur i sér ofbeldi og yfir- gang, kaup og neyslu í stað mann- legrar snertingar. Hnyttnust og háðu- legust verður þessi tenging í lok leiks- ins, þar sem faðirinn, nýkjörinn á Atriði úr Grisir gjalda. þing, frelsar börn sín ásamt Tarsan, dvergum og indíána úr prisund gegn því að „fá hitt” hjá kvenhetjum barnasagnanna, Jane og Mjallhviti. Hinir tveir heimar eru reyndar bara einn. En ég held sem sé að leikrit Böðvars Guðmundssonar verði þá skemmtilegast þegar efnið er dellu- bornast og þar verður hæðnisádeila hans beinskeyttust. Efnið er frjáls- lega saman sett, atriðin laustengd i eins konar kabarettstíl, en það sem best tekst er býsna leikin skop- færsla og háðfærsla alls konar alkunnugs hugmyndaefnis sem raunar er alveg verulegt. Og það nýtist leikendunum býsna vel í líflegri og ljómandi skemmtilegri sýningu. Það má vel mæla með leikhúsferð í Kópavog í kvöld — þá sýna Akur- eyringar skólaleik sinn í þriðja- og síðasta sinn hér syðra. Tónlist Hljóðfærið hans Jóns Mozart af myndum með hárkollu, en Beethoven átti liklega aldrei slikan grip. Það leiöir aftur hugann að hvort það hafi ekki verið ægivald tískunnar sem réð mestu um stíl tónverka Mozarts. Sumir telja líklegt að e-moll messan hafi verið tilbúin frá hans hefldi í barokstíl, en hann hafi hreinlega ekki komist upp með að skila henni frá sér I stil sem kom- inn var úr tísku. Mozart þurfti að vinna fyrir salti i grautinn eins og annað fólk og því telja margir að hann, af sinni alkunnu snilld, hafi endursamiö stóra hluta hennar á Hver fyrir sig... Ólöf söng Kyrie en Elísabet Laudamus te. Báðar hafa þær stöllur feikn góðar, miklar og vel skólaðar raddir. Ólöf naut sín vel I Kyrie. Laudamus er svo af allt öðru tagi, gæti allt eins verið ein af óperuaríum Mozarts og mann langaði svo sannar- iega til að fara í óperuna ( hvaða óperu?) við að heyra í Elísabetu. Þær stöllur hefðu að skaðlausu mátt draga örlítið meira af í Quoniam, þegar Garðar bættist í hópinn. Garðar hefur ekki raddstyrk á við þær stöllur og galt þess í samsöngn- um. Þetta kom einnig áberandi fram í Benedictus í lokin. Garðar hefur laglega rödd og góöan textaframburð og bætir það honum upp styrkleysið að töluverðu leyti. HaUdór kom vel frá sínu hlutverki. Það er ekki bein- síðustu stundu og af því stafi hin mikla sundurgerð messunnar. Hljóðfærifl hans Jóns Jón Stefánsson og liðsmenn hans hafa hér með bætt enn einni skraut- fjöður i hattinn. Jón hefur smiöað sér gott hljóðfæri þar sem kórinn hans er og kann líka aö leika á þaö. Þaðgætiverið nógugaman.að fáað heyra þau glfma við verk eins og Sköpunina. Verk sem hljómar fegurst I meðförum litils en góðs kórs. Kór Langhohsklrkju; Tónlekar í Háteigskirkju. Viflfangsofni: C-moll messa W. A. Mozarts, K-427 Einsöngvarar: ólöf K. Haröardóttir, EUsabet ErHngsdóttJr, Garflar Cortes og Halldór VHhelmsson. Hljóflfœraleikarar úr Sinfónfcihljómsveit (slands. Stjómandi: Jón Stefánsson. Á síðasta áratug og á þessum sem nú er aö líða varð mikil endumýjun og viðbót I organistastéttinni. Einn af þessum nýju mönnum er Jón Stefáns- son. Jón hefur ekki látið sér nægja að flytja hinn einfalda sálmasöng mess- unnar okkar, heldur ótrauður lagt á brattann og glímt við önnur og erfiðari viðfangsefni. Uppskera erfiðisins Er það vel, því að Jóni hefur tekist að koma upp úrvalsgóðum kór. Það hefur líklega kostað hæfilegan skammt af þrjósku, bjartsýni, dugnaði, frekju og sjálfstrausti, að ekki sé minnst á óbilandi trú á mál- staðinn. Uppskeran er líka eftir þvi,. Það þola ekki allir kórar af þessari stærö, innan við 50 manns, að tvískipta röddum. Til þess hefur hingað til þurft mun stærri kóra hér á landi. Kór Langholtskirkju stendur svo sannarlega fyrir sínu. línis á söng Halldórs að heyra að söngnám hans hafi farið fram í hjá- verkum að öllu leyti. Hann stendur fyllilega jafnfætis mörgum forfröm- uðum söngvumm. Einsöngvararnir stóðu sig vel en samt finnst mér eins og þeir hefðu mátt samæfa kvartett- inn í Benedictus betur. Þeir sungu hann um of hver I sínu lagi. Hljómsveit við hæfi Hljómsveitin skilaði sínu verki með prýði. í svona litilli hljómsveit reynir mjög á strengina en þeir náðu vel saman, enda valinn maður í hverju rúmi. Blásaraliðiö hljómaði vel saman og það hafði á sér gott taumhald og yfirgnæföi ekki. Að vinna fyrir saltinu í grautinn Hljómsveitarbúningur verksins er að sjálfsögðu töluvert annar en í upp- hafi. Til dæmis er ömggt aö homa- raddirnar eru að stómm hluta básúnuraddir að uppmna, en básún- ur gegndu gjarnan því hlutverki að styrkja fámennar karlaraddir. Þannig hafa framfarir I hljóðfæra- smíði breytt til muna heildarblæ verka. Einnig tók tlska hrööum breytingum, i tónlist ekki síður en I klæðaburði og öðru. Viö þekkjum

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.