Dagblaðið - 09.04.1979, Blaðsíða 25

Dagblaðið - 09.04.1979, Blaðsíða 25
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1979. Jill Clayburg dregur upp áhrifaríka mynd af hinni vestrænu konu i myndinni An Unmarried Woman. völd höfðu gert sér ljóst að hann átti alls ekki að sálast strax. Ástæðan fyrir jarðarförinni er sú að kappinn þarf að keppa í fótboltakeppni ársins, Rose Bowl. Þetta efni er að sjálfsögðu hug- leikið Könum og þarf því engan að undra þótt tugir milljóna þeirra hafi séð myndina. Því verður heldur ekki neitað að þótt efnið sé hvorki fugl né fiskur er myndin prýðilega gerð enda fékk hún níu tilnefningar dl óskars- verðlauna og Beatty sjálfur er fyrstí maðurinn til að fá fjórfalda tilnefningu síðan Orson Wells hlaut slíka fyrir myndina Citizen Kane 1941. Undanfarin ár hefur mátt segja það óskarsverðlaunaakademíunni tíl hróss að myndir sem ekki hafa hlotið viður- kenningu hjá fjöldanum hafa verið út- nefndar tíl verðlauna. Nú virðist mörgum dæmið hafa snúizt við og að Heaven Can Wait muni hreppa titiiinn bezta kvikmyndin, en sú mynd sem ætti að hljóta sigurinn, The Deer Hunter, vekur heldur óþægilegar endurminningar hjá Könum um Víet- namstríðið og verður því að öllum líkindum sniðgengin. Ef litið er á aðrar greinar þá ber út- nefning bezta leikarans og beztu leik- konunnar einna hæst. Warren Beatty er líklegastur til að hljóta útnefninguna beztí leikarinn fyrir leik sinn í Heaven Can Wait og skiptir það ekki litlu máli að hann samdi einnig handrit myndar- innar, framleiddi hana og leikstýrði. Skæðastí keppinautur hans er Jon Voight sem leikur hinn lamaða her- mann í Coming Home af meiri innlifun en sézt hefur á hvíta tjaldinu í mörg ár. Hvað varðar útnefningu beztu leik- konunnar þá þykir Ingrid Bergman lík- legust til að hljóta titilinn fyrir frá- bæran leik sinn í kvikmynd Ingmars Bergman Autumn Sonata. Leikkonan hefur þegar hlotíð þrjá óskara og sigri hún nú verður hún vissulega sú leik- kona sem mest hefur verið heiðruð frá því að verðlaunaveitingar þessar hófust fyrir fimmtíu og einu ári. En Ingrid Bergman á i haröri samkeppni við bestu leikkonur Banda- rjíkjanna. Jane Fonda er þar fremst i flokki fyrir leik sinn í Coming Home og finnst mörgum að hún sé jafnvel betur að. verðlaununum komin en Bergman, ekki síður vegna þess að síðastliðið ár var það samdóma álit allra gagnrýnenda að hún ætti að hljóta þau fyrir kvikmyndina Júlía. Hún hrepptí þau ekki og þykir núsjálfsagtað verðlauna þessa konu sem sýnir stór- kostlegan leik í hverri myndinni á fætur annarri. Þriðja leikkonan sem kemur sterk- lega til greina er Jill Clayburgh fyrir leik sinn í An Unmarried Woman. Hún túlkar með afbrigðum vel áhyggjur og óöryggi konunnar sem skyndilega verður að standa á eigin fótum eftir að eiginmaðurinn yfirgefur hana. Persóna sú sem Clayburgh skapar í þessari kvikmynd er líklega ein sannasta mynd sem við höfum séð af hinni dæmigerðu vestrænu konu á hvíta tjaldinu fyrr og síðar. Þær tvær leikkonur aðrar sem til- nefndar eru, Ellen Burstyn, fyrir Same Time Next Year og Geraldine Page fyrir Interiors eru ekki eins sigur- stranglegar. Báðar túlkuðu hlutverk sin prýðilega en þó ekki með þeirri næmni sem hinar þrjár fýrrnefndu gerðu. — Margir muna eflaust eftir Ellen Burstyn fyrir leik hennar í myndinni Alice Doesn’t Live Here Anymore, sem sýnd var hér fyrir nokkrum vikum — mörgum árum of seint. Þegar tími óskarsverðlaunaúthlut- unarinnar nálgast eykst spennan í Hollywood og framleiðendur og lista- menn búa sig undir hið sársaukafulla andartak þegar sigurvegararnir eru lesnir upp. í jafnhverfulum iðnaði sem kvikmyndaiðnaðurinn er ræðst framtíð fólks gjarnan á þessum degi, degi óskarsverðlaunanna. — Hið dapurlega við þessi verðlaun er því miður það að þau eru á margan hátt skrum — En skrum er nú einu sinni eitt helzta ein- kenni bandarísks kvikmyndaiðnaðar til að byrja með og sú staðreynd að milljónir dala eru í veði þegar umslögin með úrslitunum eru opnuð veldur það að dálítinn hroll setur að manni — jafnvel kuldahroll. Jane Fon- da vann hvern leik- sigurinn á fætur öðr- um á ár- inu. SNORR/y SÍIVI1135 Fermingarföt meðeðaán vestís. LUT56 r. 39.500. •.«• RANK RANK - RANK RANK RANK - RANK - RANK Við bjóðum ekkiaðeins læqsta verðið á litsjónvarpstækjum... 4raára ábyrgð Merkið tryggir gæðin heldur einnig: * z < RANK • INNLINE - MYNDLAMPA • SNERTIRÁSASKIPTINGU • SPENNUSKYNJARA • KALT KERFI • FRÁBÆRA MYND • MIKIL TÓNGÆÐI • SPÓNLAGÐAN VIÐARKASSA • LÆGSTA VERÐIÐ Á MARKAÐINUM Með fjarstýringu 22" kr. 429.000.- 26" kr. 498.000.- Rósaviður, hnota eðahvít. & Radio Hverfisyötu 82 — Sími 23611 RANK - RANK - RANK RANK RANK - RANK RANK — RANK - RANK - RANK - RANK - RANK - RANK - RANK - RANK - RANK

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.