Dagblaðið - 18.04.1979, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 18.04.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1979. Ekki flogið vegna veðurs —eða vegna eldsneytisskorts? Reykvísk húsmóðir hringdi: „Ég get ekki orða bundizt yfir dæmalausri framkomu sérleyfishafa við viðskiptavini, sem ég varð vitni og aðili að um helgina. Lög um sér- leyfi hljóta að leggja sérleyfishöfum skyldur á herðar og þeir því að vera ábyrgir fyrir vanefndum á þeim.” Húsmóðirin keypti tvo farseðla með Vængjum til Siglufjarðar fyrir börn sín. Rétt áður en gengið var til flugvélar var tilkynnt að vélin myndi lenda á Sauðárkróki og ekki fara til Siglufjarðar og sagt að ástæðan væri óveður á Siglufirði. Farþegum var skipað í bíl á Sauðárkróki og aka átti til Siglu- fjarðar. Reyndist bíllinn ekki hæfur til snjóaksturs og varð stopp í Siglu- fjarðarskriðum. >ar urðu farþegar að húka og biða þar.til aðstandendur þeirra komu tii að sækja þá. Far- angur komst ekki með i bílinn og varð eftir á Króknum. Er til Siglufjarðar kom var þar blíðskaparveður og hafði verið allan daginn, svo helber ósannindi voru að ekki hefði .verið hægt að fljúga þangað vegna veðurs. Húsmóðirin hringdi í forstjóra Vængja og þá kom önnur skýring á flugáætlunarbreytingunni. Sagði hann að vélin hefði ekki eldsneyti til Siglufjarðarflugs og til baka, en á Siglufirði fengist ekki eldsneyti. ,,Er það rétt að ekki sé til flug- vélareldsneyti á Siglufirði? Af hverju eru tvær skýringar mjög ólíkar gefnar hjá sama fyrirtæki á- flug- áætlunarbreytingu? Hverjar eru skyldur sérleyfishafa i svona tilvikum?” DB fékk það staöfest hjá Ellert Kárasyni hjá Olíufélaginu Skeljungi á Akureyri að tankur Vængja á Siglu- firði hefði verið tómur umrædda helgi, 7. og 8. apríl. Skeljungur á Akureyri sér um að fylla þann tank samkvæmt beiðni frá Vængjum. Sú beiðni barst ekki fyrr en mánudag 9. april. Spurning dagsins Hvernig finnst þér sýningin? (Spurt á ljósmyndasýningu fréttaljós- myndara í Norræna húsinu). Jóhanna Carlsen: Mér finnst hún gcð. Myndin af eplinu 'eftir Friðþjóf Helga son er til dæmis alveg þrælgóð og marg- ar aðrar mjög góðar. Höskuldur Gylfasun nemi: Eg held að hún sé bara nokkuð góð. Til dæmis er myndin Horft út um glugga eftir Friðþjóf Helgason mjög góð. Hver annar en staður hinna vandlátu býður upp á tvö FLOORSHOW á sama kvöldi í FYRSTA SINN Á ÍSLANDl| Opið frá kl. 7— 01.00 Lúdó&Stefán og diskótek The Bulgarian Brothers Ekki karfi eingöngu — heldur stór og fallegur þorskur líka Austfirzkur togarasjómaður hringdi: ,,Mig langar að taka fram vegna síendurtekinna frétta í útvarpinu af karfaveiðum Þjóðverja í Rósagarðin- um fyrir Suðausturlandi að við togarasjómenn á Austurlandi höfum ekki orðið varir við allan þennan karfa. Uppistaðan í þessum veiðum Þjóðverja er stór og fallegur þorskur. Karfi og einnig grálúða eru mjög lítið brot af veiðum þeirra þar. Við höf- um verið á þessum slóðum meira og minna í allan vetur og höfum ekki fengið mikinn karfa á þessum slóð- um.” Karfi mun lítiö notaður hér til mann- eldis. Mest mun hann vera fluttur út. DB-mynd Cecil Bæringsson. ÞÓRS|CAFE STAÐUR HINNA VANDLÁTU /ndíánastú/kurnar Kim og Carmel /eika listir sínar Fjölbreyttur matseðill Borðpantanir í sítna 23333. Raddir lesenda Hringið ísíma 27022 milli kl. 13 og 15, eða skrifið Hreinn Magnússon: Mér lizt yfirleitt vel á sýninguna og margar myndannr eru mjög skemmtilcgar. Myndin af Meg- asi er til dæmis mjög góð og myndin frá Slippnum í Reykjavik eftir Ragnar Axelsson. Unnur Sigurðardóttir: Mér lizt mjög vcl á þetta. Myndin af eplinu eftir Friðþjóf er svolitið sniðug og margar eru góðar ogerfitt aðgera uppá milli þeirra Róbert Guðfinnsson: Mér lizt mjög vcl á hana og ég er mjög hrifinn af þessu framtaki Ijósmyndaranna. Ég held að hún komi mjög vel út i heildina. Guðrún Jónsdóttir: Mér lizt ágætlega á sýninguna og það er bara gaman að henni. Margar myndanna eru mjög skemmtilegar og það er gaman að endur- lifa fréttaatburði á þennan hátt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.