Dagblaðið - 18.04.1979, Blaðsíða 19

Dagblaðið - 18.04.1979, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1979. 19 Tillögur Parísarbúa í Grjótaþorpi: Heitan hver á Hallærisplanid —og Umferðarmiðstöðina afturá Lækjatorg Frönsk stemmning! Allabaddarí, fransí! Hvað dettur manni í hug þegar París er nefnd? Léttúðugar vændis- konur og can-can-dansar, skáld að drekka sig brjáluð í grænu absinti, kaffihúsin þar sem svo mörg heim- spekileg vandamál hafa verið rædd. Og stöku sinnum leyst. Varla er hægt að hugsa sér nokkuð ólíkara en París og Reykjavík að kvöld- lagi. Það er eins og Reykjavík sé þá steindauð — og fer versnandi því fyrir nokkrum árum voru þar 15 kaffihús opin á kvöldin en nú Úfir Mokka eitt. Jú, og Hótel Borg. (Reyndar var eitt splunkunýttaðopna, Nessý). Og samt fundum við innfæddan Parísarbúa, Gérard Lemarquis, sem hefur setzt að í þessu líflausa plássi. Það var ástin sem teygði hann út í þessa firru. Hann féll fyrir Kristinu Unnsteinsdóttur skólabókaverði og síðan var ekki að sökum að spyrja. Þau settu upp heimili í Grjóta- þorpinu. Því timburhjallarnir, sem margir vilja helst rifa, voru þeim menjar um horfinn UfsstU, tengsl við fortíðina og það fólk sem þá lifði. Fólk að labba Gérard kemur til dyra útklindur í málningu því hann var að mála bláar öldur á alla veggina í baðherberginu. En ríkjandi lykt er af jólakökubakstri. Það er Kristín sem stendur fyrir því: „Aldrei þessu vant,” segir hún. „Venjulega er það Gérard sem býr til matinn, góðan og franskan. Ég þvæ upp. Barnið pössum við til skiptis. Svo á ég að laga til en sem betur fer tekur hann aldrei eftir þvi hvort ég geri það eða ekki.” Auk jólakökunnar er boðið upp á expressó-kaffi, þrælsterkt og rauðvíns- glas. Þóþaðnúværi! Ég kemst fljótt að því að þótt þau hjón séu bæði starfandi við bókasöfn og kennslu þá er ómögulegt að ræöa við þau bæði í einu. Hann talar með svo miklu handapati og suðrænum hita um hugmyndir sínar (mjög skemmtileg- ar) um það hvemig mætti skapa rammíslenzkt borgarlíf á Hallæris- planinu, sem er beint fyrir neðan glugg- ann hjá þeim (unglingarnir pissa allt i kringum húsið), að Kristín kemst ekkert að. En hún er að fást við spennandi hluti, rekur, með öðrum, barnabókaútgáfu í kjallaranum. Við á- kveðum að tala um hana seinna og gef- um Frakkanum orðið. „Líf i borg er ekki stórhýsi sem bilar keyra á milli. Líf í borg er fólk að labba úti á götu. Maður sem fer með bréf á Pósthúsið og labbar síðan yfir á Hressó að fá sér kaffi skapar meira líf í borginni en tvö þúsund manns að dansa í sama kassanum, eins og Sigtúni eða Tónabæ.” Franskt-islenzkt heimili við Bröttugötu. Gérard, Tómas og Kristin. DB-mynd Bjarnleifur. Sundlaugarnar beztar „Það er engin lausn fyrir unglingana að loka þá inni i upphituðu stórhýsi. Ekki fyrir þá fullorðnu heldur. Spurningin er: hvernig er hægt að gera íslendingum bærilegt að vera úti þrátt fyrir rokið og rigninguna? Hvemig er hægt að skapa skjól? Fólk sem alltaf situr inni í upphit- uðum bílum eða húsum verður fram- andi í sinu eigin loftslagi. Eins og hvítu mennirnir í hitabeltislöndunum sem hniga í yfirlið þegar þeir koma út úr loftkældum hýbýlum sínum. Þröngu göturnar í borgum Suðurlanda eru hugsaðar sem vernd gegn brennandi sólarhitanum. Þannig er alls staðar byggt í samræmi við ríkjandi veðráttu. Jafnvel gos- brunnarnir em fremur hugsaðir til að veita svala en til skrauts. Vatnsúðinn er kælandi en þó er kannski táknræn þýðing gosbrunnanna enn meiri. í hita- mollunni er gott að horfa á iskalt vatnið gusastupp. Á íslandi eru það sundlaugarnar, sem mest eru sniðnar eftir aðstæðum. Þar skríður fólk ofan í heita pollana þegar því er orðið kalt. í miðbænum Umferðarmiðstöðin að flytjast aftur. í öllum borgum,” heldui hann á- fram, „er líf og fjör kringum járn- brautarstöðvarnar. Þar fallast borgin og sveitin í faðma. Og þar er upphafs- stöðdraumanna. Þeir sem koma til borgarinnar eru með hugann fullan af draumum fé og frama i nýju umhverfi. Og þeir sem fara út í heiminn til að leita ævintýra leggja héðan upp. Umferðarmiðstöðin er hallærisplan fullorðna fólksins. Hún á að vera í miðbænum en ekki ein- angruð úti í mýri.” Lýðræði götunnar „Götulífið,” segir hann ennfremur, ,,er andstæða við formlegt félagslíf. Þar ríkir engin stéttaskipting. Þar mæt- ættu að vera svona „hitapoUar”, smá- skýli til að ylja sér við stutta stund. Og gosbrunnarnir ættu að sjálf- sögðu að vera heitir! Þið hafið nú hverina! Fólki mundi hlýna við að horfa á þá! Ástfangin ungmenni að stara í hrifningu á gufubólstrana, hugs- ið ykkur! Upphafsstöð draumanna Jafnvel þótt ungUngarnir pissi um helgar allt í kringum húsið hjá þeim Kristínu þá er Gérard ekkert hneykslaðuráþeim. „Þau skapa líf! Þau koma hérna upp í Grjótaþorpið til að pissa, labba út í Pósthússtræti, koma aftur að pissa. En mér finnst þetta bara svo niður- lægjandi fyrir þau. Það þyrfti að vera opið hérna klósett á kvöldin. Og margir litlir staðir til að hreyfa sig á milli. En það þyrfti að banna bílana. Þvi þegar maður hefur gengið um stund úti í kuldanum, þá er svo gott að setjast einhvers staöar inn og fá sér heitt kaffi. Þá mundu kaffihúsin lifna við.” Hann hefur talað sig heitan: „Til að mynda straum af einhverju þarf tvo póla. Nú höfum við Hallærisplanið en Lækjartorg er dautt. Þangað ætti ast gamUr og ungir, ríkir og fátækir. sorgbimir og glaðir, fuUir og ófúDir. En farirðu á fund í félagi þá er fólkið i þvi mest af sama tagi. Það er úr sömu þjóðfélagsstétt og jafnvel annaðhvort eintómt kvenfólk eða eintómir karlar. Formlegt félag er alltaf einhvers konar hálflokaður klúbbur. En á iðandi lifi götunnar eiga allir sama rétt. Það er það sem gerir götulífiðsvo heillandi.” -IHH. Þótt Hallærisplanið sé nöturlegt þá er það að minnsta kosti lifandi um helgar. Þarna standa fætur út um bflglugga. Eigandinn virðist fremur á leiðinni inn en út. DB-mynd Ragnar Th. LUXO leslampar RONSON rakvélar ■ ■ Wm BRAUN hárburstar RONSON hárþurrkur KALDRIK hárliðunarjárn PHILIPS rakvélar í Austurveri, Háaleitisbraut 68, sími 84445 og 86035

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.