Dagblaðið - 18.04.1979, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 18.04.1979, Blaðsíða 28
frýálst, óháð daghlað MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1979. Suðureyri: Hnúfubakur íheimsókn Hvalir gera víðreist um þessar mundir og er þess skemmst að minnast er andarnefja gaf upp öndina í fjörunni og DB greindi frá í gær. Hnúfuþakur gerði sér dælt við íbúa Suðureyrar i gær og dólaði í allan gær- dag fyrir utan plássið, mönnum til augnayndis. Eitthvað virtist skepnan vera dösuð og engir sprettir voru í hvalnum, þótt siglt væri á mótorbát nær alveg upp að honum. Hann bara bylti sér. Hann tók þó aðeins á er hann strandaði og losaði sig með bægsla- gangi og skvettum. Hnúfubakurinn kom inn með aðfall- inu í gærmorgun og virtist svo sem hann væri villtur og synti hann í hringi. Þegar aftur fór að falla út barst hvalur- inn einnig út með sterkum straumun- um. Þegar hann var kominn á dýpra vatn var eins og hann áttaði sig og synti til hafs. Hvalurinn var um 12—15 metra langur og var það börnum á Suðureyri mikið ævintýri að fylgjast með. SS/JH. Spila plötur f ram á vor „Þrír sólarhringar eru takmarkið að vaka og spila hljómplötur,” sagði Elvar Gottskálksson, er við hittum hann að máli i Skátaheimilinu í Kefla- vík þar sem hann sat við plötuspilar- ann ásamt Guðjóni Axelssyni, en þeir félagarnir leggja þessar vökur á sig í fjáröflunarskyni fyrir Heiðarbúa í Keflavík. „Áheitalisti liggur hérna frammi og hafa nú þegar allmargir ritað sig á listann, þar sem menn skuldbinda sig til að greiða 50 krónur fyrir hverja klukkustund sem við höldum augunum opnum.” Skrautrituð gestabók liggur einnig frammi og í heimilinu eru seldir gos- drykkir og sælgæti. Elvar og Guðjón hófu maraþonspilið klukkan eitt á annan í páskum og hyggjast ljúka því. að morgni sumardagsins fyrsta, sem sagt spila fram á vor. Um tölu hljóm- platna vissu þeir ekki en fólki er vel- komið að koma með eða senda þeim plötur til að spila. Báðir voru hressir í gærkvöld er við litum inn hjá þeim, að minnsta kosti heyrðust engar hrotur. -emm Hafþóríreynslu- ferðálaugardag Ætlunin er að rannsóknarskipið Hafþór fari í reynslusiglingu næstkom- andi laugardag. Þessi skuttogari, sem fyrrum hét Baldur EA og var síðan notaður við Iandhelgisgæzlu í síðasta þorskastríði, hefur nú verið tólf mánuðum lengur í viðgerð heldur en upphaflegavarráðgert. -ÓG. .....- - .— --'v. - SmyglíMúlafossi: Falið í leynihólfum og sérbún- um olíubrúsum Rúmlega 180 flöskur af vodka fundust við leit tollvarða um borð.í Múlafossi í Reykjavíkurhöfn í gær- morgun. Auk vodkans fannst rtokkurt magn af sígarettum og 55 kíló af skinku. Tveir vélstjórar skipsins hafa viðurkennt að eiga varninginn, en hann var falinn að mestu leyti í leyni- hólfi fyrir aftan viðgerðarborð í vélarrúmi. Tólf flöskur af áfengi voru faldar í olíubrúsa sem hafði verið opnaður, tæmdur og fylltur af flöskum, Hafði olíubrúsanum síðan verið lokað á ný og það mjög haganlega. Er blm. DB kom um borð í Múla- foss í gær hitti hann fyrir 1. stýri- mann, en hann hafði ekki hugmynd um málið, hvað mikið hefði fundizt, né hvar. Þá náði blm tali af yfirvél- stjóra og hann kom af fjöllum um málið. Þó vildi hann alls ekki hleypa ljósmyndara niður í vélarúm. Fyrir páskahelgina fundust rúmlega hundrað flöskur af áfengi í Hofsjökli. Hluti af smyglvarningnum var 95% vínandi. -HP. Flöskurnar í miðhillunni og kjötdós- irnar á gólfinu eru hiuti af smygl- varningnum, sem fannst í Múlafossi í gær. A litlu innfelldu myndinni má sjá oliubrúsa, sem tólf Vodkaflösk- um hafði verið komið fyrir í. Síðan var botninn skrúfaður í á ný og málað yfir skrúfuhausana. DB-myndir: Ragnar Th. Krafla: Landrisið aldreimeira „Það heldur áfram landris hér á Kröflusvæðinu og skjálftum fjölgar hægt og hægt,” sagði dr. Páll Einars- soná skjálftavaktinni í Mývatnssveit. „Landhæðin er komin talsvert hátt yfir það sem hún var hæst áður. Land hefur nú risið í einn mánuð fram yfir það sem hæst var áður. Landið í kringum Leirhnúk er nú 12 sm hærra en þegar síðasta kvikuhlaup byrjaði. Það er ekkert hægt að segja um, hvenær eða hvar næsta umbrotahrina verður. Það getur orðið hvenær sem er og við bara bíðum,” sagði Páll. -GAJ- Nýtt launa- þak? — rætt í ríkisstjóminni — tillaga á þingi um launalækkun hjá f lugmönnum? Rikisstjórnin hefur rætt möguleika á að setja nýtt þak á laun, að sögn Magnúsar H. Magnússonar félags- málaráðherra í niorgun. Magnús sagði, að slíkt launaþak yrði að setja i nýju formi, þannig að for- sendur kjaradóms féllu. Það yrði að leggja á brúttólaun og ná meðal annars til uppmælingamanna og loðnusjó- manna, svo að dæmi væru nefnd. Ella yrði þaðekki að gagni. Ekki treysti ráðherra sér til að segja við hvaða tekjumörk slikt þak gæti orðið sett, en mörkin yrðu hærri en. voru á fyrri þökum, enda um brúttó- laun að ræða. Kauphækkun flugmanna hefur valdið óróa víða í stéttum. Magnús sagði, að Flugleiðir hefðu ákveðið að lyfta þakinu á launum flugmanna, sem hefði alls ekki verið í samræmi við neina sáttatillögu. Flugleiðir hefðu litið svo á, að ella fæy.u flugmenn í mál fyrir félagsdómi og fengju þakinu lyft frá síðustu áramótum. Ef strax yrði samið, slyppi fyrirtækið við málaferli og að borga aftur í timann. Ekki er ómögulegt, að fram komi frá einhverjum þingmönnum tillaga um, að launahækkunin verði tekin af flug- mönnum eða henni að minnsta kosti frestað. Magnús H. Magnússon sagði, að slíkt gæti verið vafasamt, því að vera mætti, að flugmenn gætu þá jafn- óðum fengið hækkunina aftur fyrir dómi. - HH Lömb, kiðlingar og kengúrubarn — heilsa sumrinu glaðlega í Sædýrasaf ninu Þó víða megi nú sjá merki vors og jafnvel sumars eftir langan og harðan vetur eru vorkomumerkin hvergi augljósari en í Sædýrasafninu. Dýrin hlýða kalli náttúrunnar og hafa bein- línis hrakið veturinn á brott. Nýfædd lömb hlaupa þar um í hlýnandi veðri og kiðlingar taka sín fyrstu spor. Úr poka kengúrunnar er lítið afkvæmi einnig farið að gægjast á íslenzka vorið. Vetur konungur er þegar kvaddur í Sædýra- safninu og dýrin heilsa sumrinuhressi- lega. -ASt-DB-myndir R. Th.Sig. TEKINN FYRIR OLVUN Á ALMANNAFÆRI — þegar hann kærði óþrif af hundi „Vesalings hundurinn er hér tjóðr- aður að húsabaki alla daga. Þegar vindátt stendur hérna á eldhúsglugg- ann, berst hinn versti fnykur inn um alla íbúð, svo að hér er bókstaflega ólfft,” sagði maður nokkur í Reykja- vík, sem kærði út af þessum óþrifum, en sagði sínar farir ekki sléttar af samskiptum við lögregluna. „Mér hefur oft dottið ,í hug að kæra þennan óþrifnað til lögreglunn- ar,” sagði maðurinn, „en mér þykir vænt um dýr og hefi þess vegna veigrað mér við að láta verða af því, ” bættihann við. „Það var ekki fyrr en ég var orðinn hreifur af víni um helgina og lyktin var mig lifandi að drepa, sem ég lét slag standa og hringdi í lögregluna,” sagði hann. „Tveir stæðilegir nýliðar í lögregl-, unni komu fljótlega,” sagði kærand- inn, ,,og skýrði ég mitt mál.” Skemmst er af þvi að segja, að lög- reglumennirnir knúðu dyra á efri hæð hússins. Fór kærandinn út á skyrtunni og gægðist fyrir húshornið til þess að heyra orðaskipti lögreglu og hundseiganda. „Það skipti engum togum að þegar annar lögregluþjónninn varð mín var, kom hann niður af tröppunum og sagði að að ég væri handtekinn fyrir ölvun á almannafæri,” sagði kærandinn. „Ég mótmælti þessu. Bæði sagðist ég ekki vera ölvaður og auk þess væri ég nánast heima hjá mér en ekki á al- mannafæri. Ég komst ekki upp með neitt múður og var farið með mig á lögreglustöð. Þar var það fljótlega mat varðstjóra, að handtakan væri óréttmæt og ástæðulaus,” sagði sá sem kærði hundinn. Hann lauk máli sínu á þessa leið: „Ég var frelsinu feginn og fór heim í ólyktina aftur. Þar lék hundurinn við hvern sinn fingur en eigandinn var þungur á brún. Ég fór að velta því fyrir mér, hvar það gæti endað, ef maður kærði lögregluna, þegar maður lenti í þessum fjanda fyrir að kæra lykt af hundi.” - BS Móttaka smá- auglýsinga Móttöku smáauglýsinga lýkur kl. 18 í dag, síðasta vetrardag. Móttaka fyrir smáauglýsingar, sem eiga að birtast í næsta blaði — á föstudag — verður opin á morgun, sumardaginn fyrsta, kl. 18—22.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.