Dagblaðið - 18.04.1979, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1979.
Verzlunarskóli íslands
Umsóknir um skólavist
Umsóknareyðublöð um skólavist í Verzlunar-
skóla íslands fyrir næsta skólaár verða afhent
á skrifstofu skólans frá og með 23. apríl. Um-
sækjendum utan Reykjavíkur, sem þess óska,
verða send umsóknareyðublöð. Á það skal
bent, að Verzlunarskóli íslands er sérskóli,
sem tekur inn nemendur úr öllum hverfum
Reykjavíkur og af öllu landinu án tillits til bú-
setu. Með umsókn skal senda ljósrit af árangri
á grunnskólaprófi. Umsóknarfrestur er til 1.
júní 1979.
Skóianefnd Verzlunarskóla íslands
Aukaaðalfundur
Vélstjórafélags íslands
Vélstjórar. Vegna áskorana félagsmanna
meðal nemenda Vélstjóraskólans og fleiri
verður aukaaðalfundur haldinn í Vélstjóra-
félagi íslands miðvikudaginn 25. apríl kl. 20 í
Kristalsal Hótel Loftleiða. Dagskrá fundarins:
1. Réttarstaða fullmenntaðra véistjóra.
2. Lögverndun atvinnuheitis og atvinnuréttinda.
3. önnur mál.
Stjómin.
LAUSARSTÖÐUR
Ráðgert er að veita á árinu 1979 eftirtaldar rannsóknastöður til 1—3 ára við Raun-
vísindastofnun Háskólans:
Tvær stöður sérfræðinga viö eðlisfræðistofu. Stööu sérfræðings við efnafræðistofu. Stöðu
sérfræðings við jarðvísindastofu — jarðvisindadeild. Tvær stöður sérfræðinga við
reiknifræðistofu. Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna.
Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófum eða tilsvarandi háskólanámi og starfaö
minnsteitt ár við rannsóknir.
Starfsmennirnir verða ráðnir til rannsóknarstarfa en kennsla þeirra við Háskóla íslands er
háð samkomulagi deildarráðs Verkfræði- og raunvísindadeildar og stjórnar stofnunarinnar,
og skal þá m.a. ákveðið hvort kennsla skuli teljast hluti af starfsskyldu viðkomandi starfs-
manns.
Umsóknir ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkjum um menntun og visindastörf skulu hafa
borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, fyrir 20. maí nk.
Æskilegt er að umsókn fylgi umsagnir frá 1—3 dómbærum mönnum á vísindasviöi umsækj-
anda um menntun hans og vísindaleg störf. Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu umslagi sem
trúnaðarmál og má senda þær beint til menntamálaráðuneytisins.
Menntamálaráðuneytið
11. epdl 1979.
Félagsfundur
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
heldur félagsfund að Hótel Loftleiðum í
kvöld, 18. apríl 1979, kl. 20.30.
Fundarefni: Nýir kjarasamningar.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Náttfata-
markaður
Ingólfsstrætí 6
Náttkjólar frá kr. 2000.-
Sólsloppar frá kr. 3000.-
Sokkabuxur á kr. 400.-
Peysur og barnafatnaður brjóstahaldarar, yfir-
stærðir í undirfötum og margt margt fleira.
Látið ekki happ úr hendi sleppa.
Túlípaninn
Ingólfsstræti 6.
Noregur:
Eigum enga
olíu fyrir ísrael
Norðmenn eiga engar umfram-
birgðir af olíu til að selja ísraels-
mönnum, að því er Odvar Nordli,
forsaetisráðherra landsins, sagði í
gær. Allri þeirri olíu sem daelt verður
af botni Norðursjávar á naestu árum
og Norðmenn ráða yfir hefur verið
ráðstafað að sögn Nordlis. Verða
þeir því ekki við beiðni Bandaríkja-
manna um að selja ísraelum olíu.
Sams konar beiðni frá ísraels-
mönnum sjálfum var hafnað í desem-
ber síðastliðnum en Norðmenn féll-
ust á að endurskoða afstöðu sina eftir
að friðarsamningar ísraels og
Egyptalands voru undirritaðir í
Washington. Að sögn norskra blaða
lögðu Bandaríkjamenn allmikla
áherzlu á þetta mál. Þeir hafa ábyrgzt
ísraelsmönnum olíu næstu fimmtán
árin en við friðarsamningana missa
hinir síðarnefndu olíustöðvar sínar á
Sínaískaga og auk þess hafa olíu-
flutningar til þeirra frá fran verið
stöðvaðir eftir byltinguna þar.
Walter Mondale, varaforseti.
Bandaríkjanna, sem nú er staddur í
Noregi, sagði í gær að stjórn hans
mundi ekki leggja hart að Norð-
mönnum í þessu máli og hefði raunar
ekki mjög miklar áhyggjur af lausn
olíuvanda ísraels.
í norskum blöðum hefur komið
fram að þeir óttast viðskiptalegar
hefndaraðgerðir arabaríkjanna ef úr
olíusölu til ísraels yrði.
Kemst hún ístólinn?
w f
1
Hún verður næsti forsætisráðherra
Bretlands ef spár um kosningaúrslit
reynast réttar. Bretar ganga að kjör-
borðinu hinn 3. maí og þá koma
úrslitin í ljós. Margaret Thatcher
hinn 53 ára formaður f haldsflokksins
hefur tekið beinan þátt í stjórnmálum
um langa hríð og setið á þingi síðan
árið 1959. Flokksmenn hennar völdu
hana i formannsembættið í stað
Edward Heath, þegar þeim þótti
hann hafa leitt of oft til ósigurs í al-
mennum þingkosningum. Margaret
er kaupmannsdóttir en hefur þótt
heldur um of hefðarkonuleg í fram-
komu til að skapa sér almennar
vinsældir. Hefur hún gert mikið til að
koma út meðal fjöldans og ræða við
fólk á fömum vegi. Vill hún þá
gjarnan láta líta á sig sem hina venju-
legu húsmóðir en hefur þótt takast
misjafnlega í því hlutverki. Segja
margir og þá sérstaklega þeir sem
ekki eru um of hlynntir frúnni að
framkoman sé stíf og formleg eins og
hjá drottningunni.
Margaret Thatcher hefur verið gift
síðan árið 1951. Eftir kosningasigur
íhaldsflokksins árið 1970 varð hún
menntamálaráðherra. Þótti hún
skelegg í starfi. Mesta athygli vakti
þegar frú Thatcher ákvað að hækka
verð á skólamáltíðum og hætta
ókeypis mjólkurgjöfum til þeirra
barna sem náð höfðu sjö ára aldri.
Á myndinni sést Margaret ræða
við kjötkaupmanninn sinn á heima-
slóðum í London.
Óskað er eftir tilboðum í endurbyggingu á
þilfarshúsi með ábyggðu stjórnhúsi fyrir
dýpkunarskipið Hák.
Um er að ræða alla smíði, flutninga, upp-
setningu, innréttingar og frágang.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn
kr. 25.000 skilatryggingu. Tilboð verða opnuð
á sama stað þriðjudaginn 15. maí nk. kl. 11.00
f.h.
INNKAUFASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Skákmótið í Montreal:
Portisch
iforustu
Portisch frá Ungverjalandi er efstur
á skákmótinu í Montreal í Kanada efdr
fimm umferðir. Hefur hann fjóra vinn-
inga.
í öðru til þriðja sæti eru þeir Anatoly
Karpov heimsmeistari og Ljubojevic
með þrjá og. hálfan vinning. Hinn
síðarnefndi sigraði Lubos Kavalek frá
Bandaríkjunum í fimmtíu og níu leikj-
um. Sú skák var í fjórðu umferð en var
frestað. Tal frá Sovétríkjunum mun
vera í fjórða sæti.
I fimmtu umferðinni gerði Hort frá
Tékkóslóvakíu jafntefli við Jan
Timman frá Hollandi.
Robert Huebner frá Vestur-Þýzka-
landi er í fimmta sæti á mótinu i
Montreal með þrjá vinninga. Síðan
koma þeir Boris Spassky Sovétríkjun-
um, Timman og Hort með tvo vinn-
ninga hver. Bent Larsen, Danmörku
mun reka lestina með hálfan vinning.