Dagblaðið - 18.04.1979, Side 7

Dagblaðið - 18.04.1979, Side 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. APRlL 1979. 7 Erlendar Harrisburg: fréttir REUTER Júgóslavía: Aðeins teppi og regnhlífar til hlífðar Þó brugðið hafi verið skjótt við til bjargar fórnardýrum jarðskjálftanna miklu í Júgóslavíu urðu margir þeirra þó að hírast undir teppum eða regn- hlífum einum saman þriðju nóttina í röð. Ekki bætti úr skák að regnið helltist yfir og olli vandræðum auk stöðugra minni skjálfta sem valda fólki hugarangri. Vitað er nú að minnsta kosti tvö hundruð og tíu manns fórust í fyrstu skjálftahrinunni á páskadag. GQSLAEITUR ENN í ANDRÚMSLOFTH) Enn hefur ekki tekizt að stöðva út- rás geislavirkra efna frá kjarnorku- verinu í nágrenni Harrisburg í Pennsylvaniafylki í Bandaríkjunum, sem bilaði hinn 27. marz síðasdiðinn. Tilkynnt var í gærkvöldi að síðan á laugardaginn hefði þrisvar sinnum mælzt meiri geislavirkni í andrúms- loftinu nærri orkuverinu en talin væri hættulaus af reglum, sem giltu vestra. Stöðugt er unnið að því að reyna að komast fyrir bilunina, sem varð í öryggisbúnaði orkuversins, þannig að um ofhitnun varð að ræða. Að sögn sérfræðinga sem að viðgerðinni vinna er of snemmt að segja til um hvenær viðgerð lýkur eða hvort tak- ast muni á næstunni að tryggja að geislavirkt efni haldist innan þeirra marka sem hættulaust má teljast heilsu mannaog umhverfis. Mælingar á geislavirkni, sem gerðar voru í gær, sýndu ýmist of mikil skaðleg efni í andrúmslofti eða þá að svo virtist að allt væri með felldu. Voru þær mælingar gerðar af sérfræðingum Metropolitan Edison Company, sem rekur kjarnorkustöð- ina. Hafa forráðamenn fyrirtækisins legið undir þungum ásökunum fyrir að tilkynna ekki um bilunina á kjarn- orkuverinu fyrr en löngu eftir að hún var komin í ljós. Meira að segja hefur komið í ljós að hleypt var geislavirku vatni út í fljót, sem rennur við orku- verið og síðan um landsvæði þar sem mikil byggð er. Hið geislavirka efni sem sloppið hefur út frá kjarnorkuverinu við Harrisburg getur valdið miklum sjúk- leika eða jafnvel dauða ef of miklu af þvíerandaðaðsér. í dagkl. 17.00 heldur Urs Göbel fyrirlestur á sænsku um virkni nemenda og á- byrgð í námi. Allir velkomnir. Félag dönskukennara Norræna húsiö. Verið velkomin ' (j J", NORRÆNA HUSIÐ Fimmti hver búinn að kjósa Að sögn yfirvalda í Ródesíu tóku 20% kjósenda þátt i almennum þing- kosningum þar í landi á fyrsta degi þeirra í gær. Alls munu þær standa í fimm daga. Kosningaþátttaka hefur komið á óvart því þeir sem taldir eru öflugustu forustumenn svartra í land- inu hafa lýst megnri andstöðu við þær. Þetta eru fyrstu kosningarnar í Ródesíu þar sem svartir, meirihlutinn, hefur jafnan kosningarétt og hvítir, sem eru aðeins um það bil fimm af hundraði heildarfjölda íbúanna. Tenniskúlan kæfði hann Hann dró andann að sér í stað þess að anda rösklega frá sér og við það týndi Adolph Daxboeck lífinu. Adolph sem var tuttugu og þriggja ára gamall tók þátt í keppni í Vancouver í Kanada. Var hún í því fólgin að reyna að blása borðtenniskúlu eins langt út úr sér og unnt var. Allir keppendur voru í skot- stöðu og dómarinn átti aðeins eftir að segja mönnum að hleypa af. Þá dró Adolph skyndilega að sér andann — kúlan fór ofan í háls honum og tókst ekki að losa hana fyrr en hann var kafnaður. íran gerir olíusamning við Vesturlönd Hollenzka Shell olíufélagið hefur til- kynnt að það hafi orðið fyrst vestr- ænna olíufélaga að undirrita samning um olíusölu við nýju stjómina í íran. Hljóðar hann upp á 235 þúsund föt á dag fyrir verð sem er á milli 16.04 til 16.57 dollara fatið. Samningurinn gildir i níu mánuði. Brezka blaðið The Financial Times sagði í gær að brezka olíufélagið BP hefði einnig samið um kaup á 450 þúsund fötum af olíu á dag við íransstjórn en það hefur ekki verið opinberlega staðfest. Sovétríkin lofa að aðstoða Jamacia Jamaica hefur gert samning við Sovétríkin um kaup hinna síðarnefndu á álhráefni í framtiðinni. Sovétríkin hafa einnig lofað að aðstoða Jamaica við uppbyggingu fiskiðnaðar. Auk þess ætla þeir að annast rannsóknir á því hvort ráðlegt er að reisa þar nýja sementsverksmiðju. Samkomulag um þetta náðist í heim- sókn forsætisráðherra Jamacia til Moskvu á dögunum. Hefur ríkið átt við mikla efnahagserfiðleika að etja í nokkurár. 9. apríl 39 ámm síðar Kaupmannahafnarbúar minntust innrásar Þjóðverja í land sitt með tveggja mínútna þögn. Hinn 9. apríl árið 1940 lögðu þeir Danmörku undir sig án nokkurs fyrirvara. Öll um- ferðarljós á Ráðhústorginu sýndu rautt, bæði fyrir bifreiðir og fótgang- andi. I ráðhúsinu voru félagar úr samtökum fyrrverandi fanga Gesta- po, hinnar illræmdu lögreglu nasist- anna. Lögðu þeir krans á leiði þeirra sem féllu í baráttunni við þá. Víða í Danmörku voru fánar i hálfa stöng fram til hádegis. pau pyKju avuiii merK iiinuniui i k-vi hverrar frægrar manneskju, þegar vaxmyndasafn Madame Tussauds í London ákveður að heiðra viðkom- andi með því að setja upp vaxmynd af henni. Nú er komið að Sophiu Loren og á myndinni sést hún sjálf usumi vuxmynu ai nuiui nennur. nin raunverulega Sophia er fyrir ofan og sjálf sagði hún að kannski væri eftir- myndin heldur mjóslegin yfir kinn- arnar en að öðru leyti lýsti hún ánægju sinni yfir handverkinu.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.