Dagblaðið - 18.04.1979, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1979.
9
Skírdagsbylurinn:
Komu tilbúnir
undir sprautun úr
sandfokinu
,,Ég veit ekki til þess að hér hafi
orðið skemmdir á húsum, en hér kom
bíll sem misst hafði fjórar rúður í heilu
lagi,” sagði Margrét ísleifsdóttir,
matselja á gistiheimilinu Bæ á Kirkju-
bæjarklaustri, í samtali við fréttamann
DB um óveðrið mikla sem gekk þar yfír
áskírdag.
„Margir bílar voru mjög illa farnir
vegna sandfoks og ferðafólk tafðist
vegna þessa. Hér gistu um 30 manns og
það var meira en nóg fyrir okkur. Um
fimmtíu manns biðu í Vík og um 40
manns voru með Úlfari Jacobsen í
rútu. Fyrir utan það voru svo margir á
ferð í einkabílum og biðu margir þeirra
hér á Klaustri,” sagði Margrét enn-
fremur.
Óveðrið gekk niður á föstudags-
morgun en þá höfðu margir lent í
hrakningum enda orðið leiðir á því að
bíða og lagt af stað. Einn rútubílstjóri
greip til þess ráðs að aka rútunni hálfri
út af veginum til þess að geta hallað
henni upp í vindinn og sögur eru sagðar
af bílum sem komu út úr sandfokinu
„tilbúnir undir sprautun”, eins og einn
komst að orði.
- HP
Vorboðinn Ijúfi
„Vorboðinn Ijúfi”. Svo segir í hátið-
legu kvæði eftir eitt af ástsælustu
skáldum þjóðarinnar. Þau orð eiga
einnig ágætlega við hér þótt tilefnið sé
ef til vill ekki mjög hátiðlegt. Borgar-
starfsmenn eru teknir að bera hrossa-
tað á túnin og verður það að teljast ör-
uggur og nokkuð óbrígðull vorboði.
Hrossataðið er fengið úr hesthúsum
Fáks en þar sjá hrossin nú væntanlega
fram á aukna útivist samfara betri tíð
með blóm í haga.
GAJ / DB-mynd Sv. Þorm.
Sumrí fagnað
í Kópavogi
Kópavogsbúar fagna sumri með fjöl-
breyttri dagskrá á sumardaginn fyrsta.
Dagskráin hefst kl. 10 í fyrramálið með
víðavangshlaupi frá félagsheimilinu
Fagrahvammi.
Kl. 13.30 hefst skrúðganga frá
Digranesskóla að Kópavogsskóla með
skátum og skólahljómsveit Kópavogs í
fararbroddi, undir stjórn Bjöms Guð-
jónssonar.
önnur dagskráratriði verða: Ávarp
— séra Árni Pálsson, kórsöngur, leik-
þættir, diskódanssýning og vérðlauna-
afhending fyrir viðavangshlaupið.
Kynnir verður Guðrún Stephensen
leikari. Framkvæmd hátíðahaldanna
annast Kvenfélag Kópavogs.
Hann sver sig i ættina, sá stutti, sonur Önnu og Gunnars V. Andréssonar, Ijós-
myndara á Vísi, þótt tílburðirnir séu kannski ekki mjög fagmannlegir. Mynda-
röðin á bak við stráksa er eftir pabba hans og er af fæðingu þess litla.
DB-mynd Bjarnleifur.
Kippir íkynið...
— f jölmenni á Ijósmyndasýningu Samtaka
fréttaljósmyndara
Ljósmyndasýning Samtaka frétta-
ljósmyndara var opnuð á laugardaginn
og hefur aðsókn síðan verið góð. Þar
sýna nítján fréttaljósmyndarar um 230
ljósmyndir af ýmsum atburðum hér-
lendis og erlendis. Flestar hafa áður
birzt í blöðum og tímaritum hér, en eru
á sýningunni í Norræna húsinu sýndar
verulega mikið stærri.
Sýningin verður opin daglega til 25.
apríl, virka daga kl. 16—22 en helgi-
daga kl. 14—22. Aðgangseyrir er kr.
500.
-ÓV
Einn merkasti trommu-
leikari heimsins heldur
hl jómleika hér á landi
Heimsfrægur jazzleikari, Art
Blakey, er væntanlegur hingað til lands
á vegum tónlistarfélagsins Jazzvakn-
ingar. Hann kemur með sextett sinn,
Jazz Messengers, og heldur hljómleika
í Austurbæjarbíói næsta mánudag.
Art Blakey er að sögn Jazzvakn-
ingarmanna einn merkasti jazz-
trommuleikari heims. Hann stofnaði
hljómsveit sína árið 1955 og hafa síðan
leikið með honum margir þekktir
hljóðfæraleikarar, þeirra á meðal
píanóleikarinn Horace Silver. Allt frá
stofnun hefur liðsskipan Jazz
Messengers tekið örum breytingum og
haft er á orði að hljómsveitin sé stökk-
pallur fyrir unga og óreynda jazzleik-
ara upp á frægðarbrautina. Sem dæmi
um slíka menn má nefna Freddie
Hubbard, Chuck Mangione, Keith
Jarrett og Woody Shaw, sem allir eru í
yngri flokki jazzsnillinga heimsins.
Forsala aðgöngumiða að hljómleik-
um Art Blakeys og sextetts hans er
þegar hafin.
- ÁT
SRM 240 SD
Lengd 7,5 m.
Breidd 2,5 m.
Vél 170 ha. Mercury
Verð ca 7.900.000.
Við veitum með
ánægju allar
frekari upplýsingar
Innifalið i verði er meðal
annars: Blæjur, mælaborð,
teppi, harðviðarinnrétting,
þurrkur o. fl.
Sportbátar
Getum afgreittmeð stuttum fyrírvara eftirtaida
báta frá Sun Runner í Bandaríkjunum:
SRM 17 V
Lengd 5,2 m.
Breidd 2,3 m.
Verð ca 2.100.000.
Verktækni sf. Akureyri
Sími96-22756.
SRM 210 SD
Lengd 6,15 m.
Breidd 2,43 m.
Vél 140 hö.
Verðca 5.752.000.