Dagblaðið - 21.04.1979, Page 1
5. ÁRG. — LAUGARDAGUR 21. APRÍL1979 — 90. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI27022.
„Já, ég heyrí mjög veV’
,,Já, ég heyri vel,” sagði Gunnar litli
Þór og ljómaði allur þegar hann reyndi
nýju heyrnartækin í fyrsta sinn í gær.
Gunnar Þór Pétursson, sex ára
drengur, fékk í gær langþráð heyrnar-
tæki og reyndi þau í fyrsta sinn í
skólanum. Hann er nemandi í sex ára
bekk Árbæjarskóla og hefur stundað
nám þar í almennum bekk, þrátt fyrir
það að hann sé heyrnarskertur.
Dagblaðið fjallaði mjög um mál
Gunnars Þórs Péturssonar sl. haust þar
sem greint var frá því að drengurinn
þyrfti sérstök heyrnartæki, til þess að
geta stundað nám í almennum skóla,
þar sem hann er vel staddur á vegi varð-
andi mál og orðaforða og þarf því ekki
að stunda nám í heyrnleysingjaskólan-
um.
Heyrnartæki þessi voru aftur á, móti
tolluð sem lúxusvarningur og hækkuð í
tolli frá 15% í 35%, auk þess sem á
þau var lagt 30% vörugjald og síðan
20% söluskattur ofan á. Þetta gerði
það að verkum að foreldrar drengsins
höfðu ekki ráð á að kaupa tækin sem
þá áttu að kosta með öllum gjöldum
725 þúsund krónur.
Eftir mikil skrif um málið og baráttu
gegn „kerfinu” gekkst félagsmálaráð-
herra, Magnús H. Magnússon, fyrir því
að átta slík tæki voru pöntuð og greiðir
Tryggingastofnun ríkisins tækin.
Gunnar Þór fær nú eitt tækjanna og
Heyrnar- og talmeinastöð íslands deilir
út hinum tækjunum til þeirra sem þau
þurfa.
„Ég var farin að hafa áhyggjur af
Gunnari,” sagði Guðrún Kristín
Antonsdóttir, kennari Gunnars. ,,Það
var heyrnarskerðingin sem háði honum
en ekki skilnings- eða áhugaleysi. Hann
missti ákveðna stafi við lestur en nú
ætti það allt að ganga betur. Þessi
heyrnartæki eru möguleiki hans til þess
að vera eins og önnur börn.
Það er yndislegt að fá þetta. Nú get
ég náð sambandi við hann hvar sem er í
kennslustofunni en áður varð hann að
miklu leyti að lesa af vörum mínum.
Þetta skilar áreiðanlega fljótt miklum
árangri.”
—JH.
M
Gunnar/Þór Ijómaði í gær enda ástæða
til. Nú heyrir hann vel i kennaranum
sínum og getur fylgzt vel með eins og
önnur börn.
DB-mynd Hörður.
Fólk vill
hafa
tímann
frjalsan
— sjá 35. skoðana-
könnun DB um
lokunartíma
vínveitingahúsa
— bls. 6
Sjórall 79:
FR-menn mynda
fjarskiptanet
umhverfis
landið — bis. 5
>
*
- langþráð heyrnartæki
komin til 6 ára drengs
- sameinuð barátta við
Mkerfið” ber árangur
Vauðsynleghjíli
IPflriÁ
.,iibak>Bu
.Þettaer I
miögsorg-
legtslys 1
.hjggstkegaröerta
.UrirwWtf
JRYGGINGARÁÐK)
þæfirenn máuð
"SSUISÉASKRinjlM
engITheÍmÍld í lögum ps=
AÐ FELIJV NIÐUR TOLLINN
Ó* kerfiðað leyu
rf jTRYGGINGARÁÐ HUNDSAR
|BeiðnirAðherrans_
•SSTíTTÁ HÉÝRNÁR
=£ TIEKIPÖNTUÐ tj
-btynuröwWHeihu»«n»d*rstöó»»n«iMrroun^ :
B^yggfngaráT
jTeiði tækín
’^MWiyöldai
geðbiluð?” —
iséndát sftur
á meðan kerfið
tumnialio
Þjóðverjar f hrakningum á Ströndum
Hjálparsveitir á ísafirði voru kall-
aðar út í gærmorgun vegna tveggja
Þjóðverja sem höfðu daginn áður
farið frá Látravík og ætluöu að vera
við Lónsfjörö um kl. 18 en þar beið
bátur eftir þeim. Þega/ þeir voru ekki
komnir fram á miðnætti var haft
samband við Jóhann Pétursson vita-
vörð í Hornbjargsvita en Þjóðverj-
arnir höfðu dvalið hjá honum. Hann
hafði engar spurnir haft af þeim frá
því að þeir fóru frá honum. Morgun-
inn eftir voru hjálparsveitirnar kall-
aðar út. En skömmu eftir að sveitirn-
ar höfðu lagt upp á gúmbátum frá
ísafirði barst tilkynning um að Þjóð-
verjarnir hefðu komið aftur niöur að
Látravik eftir að hafa lent í hrakning-
um á heiðinni. Ætla þeir að halda til
hjá Jóhanni vitaverði þar til léttir til á
heiðinni og mun hann þá fylgja þeim
áleiðis. Þjóðverjar þessir höfðu fyrir
páska haldið í Veiðileysufjörð og
þaðan til Látravikur og höfðu lent i
,hinum mestu hrakningum á þeirri
leið og var annar þeirra orðinn tölu-
vert illa haldinn er þeir komu aö
Hornbjargsvita. Þaðan höfðu þeir
síðan haldið án þess að láta Jóhann
vita, aðeins skilið eftir boð til hans
um að hann sæi til þess að bátur biði
þeirra í Lónsfirði. - GAJ
✓