Dagblaðið - 21.04.1979, Síða 2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1979.
2
r
Oryggishjálmur-
inn brotnaði
Björgvin Kagnarsson kom á ritstjórn
Dagblaðsins með öryggishjálm fyrir
mótorhjólaökumenn af gerðinni
Boeri Indy er hann hafði keypt hjá
verzluninni Sportval.
,,Ég keypti þennan hjálm fyrir
u.þ.b. 4 mánuðum. Geymdi ég hann
uppi á u.þ.b. tveggja metra háum
skáp. Svo illa vildi til að hjálmurinn
við tveggja metra fall
niður á gólf
datt i gólfið og brotnaði. Fór hlífin
fyrir hökuna alveg í sundur og stór
sprunga er i hnakkanum. Vildi ég fá
hjálminn endurgreiddan þar sem ég
tel að slíkur hjálmur eigi ekki að geta
brotnað við svona lítið fall. Ekki
vildu þeir hjá Sportvali gera neitt
fyrir mig og töldu það ekki sitt mál
þótt svona hefði farið. Sit ég því
uppi með brotinn 12.000 króna
öryggishjálm.”
DB hafði samband við Svein Grét-
ar Jónsson hjá verzluninni Sportval:
„Engin ábyrgð er á hjálmum
þessum og er þvi verzlunin ekki
skaðabótaskyld. Hvort hér er um
verksmiðjugalla að ræða getur verk-
smiðjan ein dæmt um og þarf að
Föt í yf irvíddum
—auglýst í smáauglýsingum DB
Lesandi hringdi:
„Ég las grein i lesendadálk Dag-
blaðsins þriðjudaginn 17. apríl, en i
henni kvartar feit kona yfir því að fá
skki föt á sig. Ég vil benda þessari
konu svo og öðrum sem í erfiðleikum
eiga með að fá á sig passleg föt, á að
undir dálknum fatnaður í smáaug-
lýsingum Dagblaðsins eru oft auglýst
föt i yfirviddum. Vona ég því hér
með að fólk lesi þessar smáauglýsing-
ar ef það vantar föt I yfirvíddum.”
Litiö í smáauglýsingar Dagblaösins.
Þarermargt aöfinna.
Endursýnið söng-
lagakeppnina
—fyrir f ermingarbörnin
Sigríöur Guöiniiiidsdóltir hringdi:
,,Mig langar til þess að fara fram
á .if songlagakeppnin sem sýnd var i
sjonvarpinu 2. páskadag verði endur-
sýnd. Þann dag var nefnilega fermt
hjá mér eins og mörgum öðrum og
þess vegna misstum við af þessum
þætti. Sonur minn, sem verið var að
ferma, sagði t.d. að þessi sönglaga-
keppni væri það eina sem sig hefði
langað til að sjá i sjónvarpinu í lengri
tíma. Ég veit að ég mæli fyrir munn
margra þeirra sem létu ferma hjá sér
þennan dag eða voru í ferminear-
veizlum, svo ég tali nú ekki um ferm-
ingarbörnin sjálf þvi þau hafa örugg-
lega langmest gaman af svona
þáttum."
ÞÓRSftCAFE
STAÐUR HINNA VANDLÁTU
Hver annar en staður hinna
vandlátu býður upp á tvö
FLOOR SHOW
á sama kvöldi
í FYRSTA SINN Á ÍSLANDl|
Opiðfrákl 7—02.00
Lúdó&Stefán ogdiskótek
Indíánastúlkurnar
Kim og Carmel
leika listir sínar
Fjölbreyttur
matseðill
Borðpantanir
í síma 23333.
Ef vel er að gáð má sjá hvernig hjálmurinn hefur brotnað að framan.
senda hjálminn út til þess að fá úr
því skorið. Það er sjálfsagt að gera
það, en slíkt er gert á kostnað
kaupanda og er kostnaðurinn við það
gífurlegur. Það má benda á að
hjálmur sem þessi er ætlaður til skjóls
fyrir höfuðið og þegar ökumaður ber
hann er augljóst að annað átak
myndast við högg heldur en ef hann
er tómur og skoppar niður á gólf.
lnnan í þessum hjálmum er viður-
kenningarstimpill frá fjölda landa.
Við höfum selt mikið af þessum
hjálmum og ekki fengið neinar
kvartanir,” sagði Sveinn Grétar að
lokum.
Opinberir
starfsmenn
— höldum fast í umsamdar kauphækkanir
Þrir opinberir starfsmenn skrifa:
Nú stendur yfir mikil herferð
flestra forystumanna okkar (ekki
allra þó) fyrir þvi að við, sem nú
verðum fyrir því að missa af áður
samningsbundnum launahækkunum,
gefum þessa hækkuneftir.
Forystumenn okkar láta þau boð
út ganga að aðildarfélögin skuli sam-
þykkja það sem þeir hafa um samið
við ríkisstjórnina. Þótt við vitum að
við getum ekki talað fyrir munn allra
opinberra starfsmanna, þá höfum
við hugboð um að flestir i okkar
röðum hafi verið á móti því að
forystumennirnir (Kristján & Co.)
léðu máls á því að ganga svo á
samninga okkar sem nú verður
raunin, ef ekki verður á móti spyrnt.
Við opinberir starfsmenn eigum
ekki að vera sérstakur stuðnings-
hópur fyrir eina rikisstjórn frekar en
aðra. Þegar fyrri rikisstjórn sat var
forystulið okkar ekkert að víla fyrir
sér mótmæli gegn kjaraskerðingu
hennar — og svo á að vera nú, og
ekki síður, þar sem þessi ríkisstjórn
þykist auk þess vera hlynnt laun-
þegasamtökum almennt talað.
Og það er ekkert sérstakt kjara-
bótaratriði að fá einhvern verkfalls-
rétt viðurkenndan í staðinn fyrir að
sleppa þeim umsömdu kauphækkun-
um, sem nú áttu að gilda.
Forysta Félags ísl. símamanna
hefur ein staðið gegn þessari endemis
tilraun til þess að hnoða opinberum
starfsmönnum saman í höndum
„stórklikunnar” og mættu fleiri
fylgja á eftir.
Við skorum eindregið á starfs-
bræður okkar og systur um allt land
að ljá í engu máls á þvi að gefa
umsamdar launahækkanir eftir. Við
erum ekki í stakk búnir til slíks.
Launahæstu stétt landsins, flpg-
mönnum, er rétt á silfurfati
kauphækkun sem nemur frá90—270
þúsund krónum, rétt fyrir páska-
hátíð, til þess að ekki þurfi að stöðva
flutning annarrar launahæstu stéttar-
innar i landinu, loðnuskipstjóranna,
til útlanda, meðan stórhriðin og
hafisinn þjarmar að sauðunum sem
eftireru í landinu.
Annað en hrein og bein afneitun
um eftirgjöf á launum okkar nú við
atkvæðagreiðslu væri fráhvarf langt
aftur í tímann, þvi það yrði aðeins
fyrsta skref forystunnar með að
afnema rétt okkar. Stöndum saman
og fellum beiðni forystunnar i at-
kvæðagreiðslunni. Auðvitað væri
æskilegast að fleiri létu heyra frá sér
um málið.
Getraunirnar
— innsigli og teningakast
1825—0918 skrifar:
Mig langar til að hripa niður
nokkrar Iinur um getraunirnar hér
því mér finnst vægast sagt hneyksli
hvernig að þeim er staðið.
Til að byrja með þá er það oft
þannig yfir vetrartímann að ekki er
hægt að fljúga á ýmsa staði úti á
landi. Ef seðlarnir komast ekki á rétt-
um tíma til Reykjavíkur eru þeir
einfaldlega ekki teknir með. Ekki er
heldur hægt að fara með seðlana til
sýslumanns til að innsigla þá og er þá
að minu áliti verið að lýsa vantrausti
á þá embættismenn. Þetta er nátt-
úrlega fyrir neöan allar hellur.
Því næst vil ég víkja að frestun
leikja. Hér tiðkast það að kasta upp
teningi ef leikjum er frestað. í
Englandi eru aftur á móti kvaddir til
sérfræðingar til þess að spá um hver
úrslitin hefðu getað orðið. Hvers
vegna er ekki hægt að nota niður-
stöðurensku sérfræðinganna hér? Ég
er líka sannfærður um að sala get-
raunamiðanna dytti ekki svona niður
ef niðurstöður þessara sérfræðinga
væru notaðar.
DB hafði samband við Sigurgcir
Guðmannsson hjá getraununum:
„Dómsmálaráðuneytið hefur tekið
fyrir þann möguleika að fá seðlana
innsiglaða hjá sýslumönnum vegna
leiðindamála er upp hafa komið i
slíkum tilfellum. Einnig er útilokað
að styðjast við niðurstöður enskra
sérfræðinga vegna þess að 55 leikir
eru á getraunaseðlum í Englandi og
þessir sérfræðingar gera ekkert í
málunum fyrr en 25 leikjum hefur
verið frestað. Það er því augljóst að
slíkt á engan veginn heima hjá okkur.
Við notum hins vegar sama kerfi og
Danir og Norðmenn, að því undan-
skyldu að þeir kasta upp teningi ef
einum leik er frestað, er hér er honum
kastað ef þremur eða fleiri leikjum er
frestað.”