Dagblaðið - 21.04.1979, Page 4
4 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. APRÍL Í979.
Vörukynningá þriðjudögum hjá MS
Þeytirjóminn nýtur vinsælda
Mjólkursamsalan hefur verið með
kynningar á ýmsum réttum sem búnir
eru til m.a. úr mjólkurafurðum í
hinni nýju verzlun sinni að Laugavegi
162. Er þaö Guðríður Halldórsdóttir
húsmæðrakennari sem sér um þessa
vörukynningu, en hún hefur til um-
ráða fullkomið eldhús í húsakynnum
samsölunnar þar sem hún prófar
uppskriftirnar um leið og hún
„hannar” þær. Kynningarnar eru í
verzluninni á hverjum þriðjudegi kl.
2—6.
Bent Bryde mjólkurfræðingur og
verzlunarstjóri samsölunnar á Lauga-
vegi 162 sagði í samtali við Neytenda-
síðuna að hann hygðist koma fyrir
töflu yfir þá rétti sem kynntir yrðu
fjórar vikur fram í tímann. Það eru
mismunandi réttir sem fólk hefur
áhuga á. Hann sagði að mikill áhugi
væri á vörukynningunum, en fjölrit-
aðar uppskriftir eru afhentar þeim
sem vilja.
í páskavikunni kom á markaðinn
þeytirjómi sem er rjómi með 36%
Aðalheiður Benediktsdóttir úr söludeildinni hljóp í skarðið fyrir Guðriði
Halldórsdóttur uppskriftahönnuð samsölunnar á þriðjudaginn var og gaf fólki
að smakka á gómsætu rauðrófusalati með kryddsíld.
DB-mynd Bjarnleifur.
fituinnihald. Á hann að þeytast mun
betur en sá sem hefur 33% fituinni-
hald og verða meiri að magni eftir að
hann hefur verið þeyttur. Er nýi
rjóminn aðeins dýrari en hinn venju-
legi eða um 100 kr. lítrinn. Þeyti-
rjóminn kostar 1106 kr. litrinn og 283
kr. pelinn. Venjulegur rjómi kostar
1007 kr. lítrinn og 258 kr. pelinn.
Gefinn hefur verið út leiðbein-
ingar- og uppskriftabæklingur með
þeytirjómanum. Þar segir m.a. að til
þess að ná sem beztum árangri við
þeytingu sé bezt að geyma rjómann í
Sl. þriðjudag var boðið upp á síld
með rauðrófum úr eldhúsi Mjólkur-
samsölunnar. Fengum við leyfi til að'
birta uppskriftina sem er eftir Guð-
riði Haildórsdóttur. Hún var hins
vegar ekki viðlátin i þessari kynningu
en Aðalheiður Benediktsdóttir hljóp í
skarðið fyrir hana og gaf viðskipta-
vinunum að smakka brauð með þessu
gómsæta salati:
3 marineruð síldarflök
1 dós sýrður rjómi
1 epli
2—3 daga í kæliskáp og mikilvægt sé
að hitastig hans sé sem lægst eða um
0—4°C. Einnig er mikilvægt að kæla
bæði skál og þeytara áður en rjóminn
er þeyttur. Afgang af þeyttum rjóma
skal geyma í loftþéttu fláti í kæliskáp.
Þeytirjóma sem geymdur hefur verið
þeyttur er mjög auðvelt að þeyta upp
aftur þannig að hann verði stífur.
Þeytirjómann má einnig frysta
með góðum árangri. í leiöbeiningun-
um segir að aðeins skuli frysta nýjan
rjóma. Ef á að þeyta hann, er nauð-
3 sneiðar rauðrófur
1 msk. sítrónusafi
1 msk. sykur
Þerrið síldarflökin og rauðrófurn-
ar, skerið flökin í bita, eplið og rauð-
rófurnar í teninga og blandið í sýrða
rjómanum ásamt sykri og sítrónusaf-
anum. Berið fram vel kælt.
Hráefnið í þessa uppskrift reiknast
okkur til að kosti nálægt 650 kr.
Þetta er tilvalinn réttur á kalt borð og
bezt að borða smurt rúgbrauð með.
- A.Bj.
synlegt að frostið sé ekki alveg farið
úr honum.
Það er ótrúlega mikill „litamis-
munur” á 33% rjómanum og þessum
nýja 36%. Sá fyrmefndi virðist eins
hvítur og mjólk viö hliðina á þeim
síðarnefnda.
Hins vegar era umbúðir utan um
nýja rjómann ekki komnar til
landsins þannig að hann er seldur í
gamalkunnu rjómaumbúðunum.
- A.Bj.
Raddir
neytenda
Hversu mikið
fyrir þrjá?
5996—9560 hringdi:
Mig langar til að fá upplýsingar um
hve háa peningaupphæð 3ja manna
fjölskylda þarf í mat á mánuði. Við
borðum góðan og næringarríkan
morgunverð, síðan borða tvö okkar
snarl í hádeginu og öll þrjú borðum
við heita máltíð á kvöldin. Einnig
væri gaman að fá uppskrift að
einhverjum góðum og hollum
morgunverði.
Úr eldhúsi
Mjólkur-
samsölunnar
G/æsi/egt úrva/ af
SVEFNPOKUM
íslenzkir diolinpokar frá
Magna kr. 12.600.-
NORSKIR POKAR
FRÁ HELSPORT
Helsport Heia, verð kr. 22.900.-
Fylltur með dacronfiber, 90 cm rennilás að
framan
Lengd 215 cm, þyngd 1.5 kg, lægsta hitastig: + 5C~
Siesta Super, verö kr. 22.600.-
280 cm opinn rennilás, hœgt er að renna tveimur
saman. Fylltur með dacron HOLLOFIL, nýja
fibernum sem líkist dún.
Lengd 200 cm, þyngd 1.8 kg, lœgsta hitastig: 0°C.
SAVALEN, verð kr. 26.500.-
200 cm hiiðar-rennilás. Fylltur m/dacronftber
Lengd 225 cm, þyngd 1.7 kg. lœgsta hitast.: 0°C
VANDRERN, verö kr. 30.700.-
Fylltur m/dacron HOLLOFIL, 90 cm hliðarrennilás
Lengd 225 cm, þyngd 1,75 kg, lægsta hitast.:
—10°C.
BJÖRNOYA, verð kr. 43.500.-
Fylltur að ofan með andadún. Neðan m/dacron-
ftber.
Þyngd 1.5 kg, lægsta hitastig: —12C.
TIRICH MIR, verð kr. 78.300,-
Fylling: ca 600 gr hviturgæsadúnn.
Lengd 230 cm, þyngd 1.35 kg, lægsta hitast.:
—25°C.
PÓSTSENDUM
TROLLHEIMEN, verð kr. 58.900,-
Fylling-.ca 600gr grár gœsadúnn.
Lengd 230 cm, þyngd 1.2 kg, lægsta hitast.:
—5°C.
DUNLERRET, verð kr. 76.500,-
Fylling:ca 700 gr andadúnn.
Lengd 230 cm, þyngd 1.8 kg, lægsta hitast.:
—20°C
GLÆSIBÆ -
SÍMI30350
Hollur
morgun-
matur
æski-
legur
Svar:
Það getur líklega enginn svarað
spurningunni sem varpað er fram i
bréfkorninu hér að framan, hve háa
peningaupphæð þriggja manna fjöl-
skylda þurfi í mat á mánuði. Það
hlýtur alltaf að vera einstaklingS-
bundið hve mikið hver fjölskylda
þarf. Hins vegar getum við upplýst
að meöaltalskostnaður þeirra þriggja
manna fjölskyldna sem sendu okkur
upplýsingaseðla fyrir febrúarmánuð
reyndist vera 61.134 kr. eða 20.378
kr. á mann.
Uppskrift að hollum og góðum
morgunverði gæti t.d. verið eftirfar-
andi: Súrmjólkurglas eða ávaxtasafi,
soðið egg, 2 grófar brauðsneiðar með
osti og einhver ávöxtur. — Til eru'
margar tegundir af „heilsukorni”
sem margir kjósa að snæða í morgun-
mat. Gallinn er aðeins sá að þetta
heilsusamlega fæði er yfirleitt nokk-
uð dýrt í innkaupi ef þess er neytt ein-
göngu. Hins vegar er það ekki dýrt ef
það er notað t.d. út í súrmjólk eða
ými.
í öllum skrifum um mataræði og
venjur er lögð rík áherzla á að fólk
borði einmitt hollan og staðgóðan
morgunverð og ættu sem flestir að