Dagblaðið - 21.04.1979, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1979.
13
Em
Woody
við
af þeim bestu
Allen tekur fyrirá hvíta tjaldinu samband sitt
Diane Keaton
Þótt Woody Allen
sé hér alvarlegur á
svip hefur hann
sannarlega ástæðu
til að vera ánægð-
ur með móttök-
urnar á Annie
Hall.
BaWurWattason
Woody Allen) og sambúð hans við
Annie Hall (leikin af Diane Keaton,
en hún heitir réttu nafni Diane Hall),
þá fer varla milli mála að hér tekur
Woody Allen fyrir sambúð sína við
Diane Keaton, en þau bjuggu saman
um tíma. Hér er því um nokkurs
konar ævisögu að ræða þótt erfitt sé
að átta sig á hve raunveruleikanum er
vel fylgt eftir. En Woody AUen og
Alvy Singer eiga margt sameiginlegt.
Báðir þjást af öryggisleysi, eiga erfitt
með að umgangast fólk, þó sérlega
kvenfólk, og hugleiða dauðann
mikið. Einnig hefur Woody Allen
eins og Singer gengið lengi til sál-
fræðings til að fá lausn á sálrænum
vanda sínum. Þannig eru ótal atriði
sem tengja saman þá Singer og Allen.
Annie Hall virkar sem endurspegl-
un á lifi Woddy Allen og sýnir lífs-
viðhorf hans í hnotskurn. Að festa
þannig sjálft líf sitt á filmu er mikið
þrekvirki er krefst gagnrýnjns hugar-
fars ásamt djúpstæðum skilningi á
eigin vanda. Þetta hefur Woody
Allen tekist þótt ótrúlegt megi virðast
og skapað þannig stórbrotna mynd.
Að vísu tekur sinn tima að melta allt
það efni sem kemur fram í myndinni,
sem er oft sett fram í mjög smellnum
setningum. En eftir að sýningu er
lokið heldur maður áfram að sjá
nýjar og nýjar hliðar á Alvy Singer.
Ástæðan gæti verið sú að hver og
einn finnur eitthvað úr sjálfum sér
hjá Alvy Singer og á þannig við sömu
vandamál að etja og hann þótt þau
séu oftast af annarri stærðargráðu.
Frábær leikur
Diane Keaton
Það sem gerir myndina ekki síst trú
verðuga er leikur þeirra Woody
Allen og ekki síst Diane Keaton.
Enda telja margir að þau hafi ekki
þurft að leika, þvi þetta hafi verið
þeim svoeðlilegt. Sum atriði myndar-
innar eru óborganleg eins og þegar
þau hittust í fyrsta skipti sem var á
tennisvelli. Fyrir utan að vera bráð-
fyndið atriði og vel leikið, sýndi það
hvernig tveir óöruggir persónuleikar
reyna að ná sambandi hvor við
annan. Þetta atriði skiptir töluverðu
máli því upp frá þessu sést hvernig
Annie Hall yfirvinnur þetta öryggis-
leysi og verður smátt og smátt sjálf-
stæðari meðan Alvy Singer nær ekki
Diane Keaton tekur við Oskarsverðlaununuml978 fyrir bestan leik en það \ ar
einmitt i Annie Hall. Það er Janet Gaynor sem afhendir verðlaunin.
tökum á vandanum. Á undan
kynnum Alvy Singer af Annie Hall
höfðu áhorfendur séð hann ganga í
gegnum tvö hjónabönd (eins og
Woody Allen) og kynnst ýmsum
erfiðleikum sem hann átti við að
stríða í æsku þannig að þetta kom ef
til vill ekki á óvart.
Ingmar Bergman
og Woody Allen
Kvikmyndir koma töluvert við
sögu í Annie Hall. Fljótlega í mynd-
inni sjáum við þau Annie Hall og
Alvy Singer hittast fyrir utan kvik-
myndahús þar sem verið var að sýna
Bergman myndina Face to Face (sem
gerð var úr sjónvarpsþáttunum
Ansikte mot Ansikte). Er þetta engin
tilviljun því Woody Allen hefur
alltaf verið mikill aðdáandi
Bergmans og nýjasta mynd hans,
Interior, er talin undir sterkum
áhrifum hans. Einnig kemur mikið
við sögu myndin The Sorrow And
The Pity, sem er umdeild heimildar-
mynd og fjallar um hersetu nasista i
París í síðari heimsstyrjöldinni. Þá
má ekki gleyma atriðinu i biðröðinni
fyrir framan kvikmyndahúsið þar
sem einn úr röðinni þusar heilmikið
um Fellini og Marshall McLuha
þangað til Alvy Singer tekur til sinna
ráða. Öll þessi atriði eru hlutar að
púsluspili sem myndar persónuleik-
ann Alvy Singer.
Þannig væri endalaust hægt að
telja upp gullkorn sem koma fram í
Annie Hall en hér verður numið
staðar. Þess í stað ætla ég að ljúka
þessari grein með tilvitnun frá
Groucho Marx, sem Woody Allen
notaði í upphafi myndarinnar og lýsir
nokkuð vel lífsviðhorfi hans. En
setn'ingin hljóðar á þessa leið: ,,Ég
vildi ekki verða þátttakandi i þeim
klúbbi sem hefði mig sem meðlim.”
Haiti: Annie Hall.
Leikstjón: Woody Allen.
Handrit: Woody ANen og MarshaH Brickman.
Kvikmyndun: Gordon WHIis.
Klipping: Wendy Greene Bricmont.
Tónlist: Carmen Lombardo.
Gerð í Bandarikjunum 1977.
Sýningarstaðun Tónabfó.
Aðalhlutverk: Woody AHen, Diane Keaton,
Tony Roberts.
Þegar rætt er um gamanmyndir
síðari ára eru nöfnin Woody Allen og
Mel Brooks einna fyrst nefnd. Báðir
byggja þeir myndir sínar upp á
fyndnum en oft öfgafullum tiltækj-
um ásamt hnitmiðuðum samtölum.
Frá mínum bæjardyrum séð hefur
þó verið einn stór galli á myndum
þeirra. Þær vilja verða leiðigjarnar
þegar fer að síga á seinni hluta þeirra.
Þetta átti sérlega við myndir Woody
Allen — þangað til kom að Annie
Hall. Þar breytir hann um takt og
sleppir að mestu öfgunum án þess þó
að týna fyndninni, sem þess í stað
verður hnitmiðaðri. Einnig notar
hann samtölin óspart til að koma til-
finningum sínum og skoðunum á
framfæri í stað þess að láta verkin
tala eins og svo oft áður. En það sem
gerir gæfumuninn er í mínum augum
hreinskilni hans og einlægni gagnvart
áhorfendum í framsetningu efnisins.
Þannig nær hann að gera áhorfendur
opnari og næmari gagnvart inn-
takinu.
Misheppnuð
sambúð
Þótt myndin fjalli um gaman-
leikarann Alvy Singer (leikinn af
G R Æ N U
E F I N
HVERJU FORELDRAR EIGA
RÉTT Á AF BÖRNUM SÍNUM
— OG HVERJU EKKI
Ann Landers
Texti og
myndir eftir
William
Wiesner
SAGA
HANDA
BÖRNUM
Á ÖLLUM
ALDRI
0NHEIM
sr
Minningarnar streymdu fram. Einu sinni var eitthvað til\
sem var hinn öruggi og formfasti heimur bernskunnar.
Svo, þegar hann var aðeins tíu ára, neyddu kringum-
stceðurnar hann til að snúa baki við bernskunni.
I þessari stuttu skáldsögu segir höfundurinn áhrifa-
mikla sögu um dreng og afa hans, um gagnkvœma ást
þeirra og trúnað.
pp- /VPRIL JdolííU CÁg I'TUTIUU,
Urval BÓK t BLAÐFORMI