Dagblaðið - 28.04.1979, Page 4

Dagblaðið - 28.04.1979, Page 4
4 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979. Tilsölu: Renault 4 Van F4 árg. '78 Renault 4 Van F6 árg. '77 Renault 4 Van árg. '75 Renault 4TL árg. '75 Renault 4TL árg. '71 Renault 5TL árg. '74 Renault 12TL árg. '77 Renault 12TL árg. '75 Renault 12 station árg. '75 Renault 12TL árg. '71 BMW 318 árg. '78 BMW 320 árg. '77 Opið laugardaga kl. 2-6. Kristinn Guðnason Suðurlandsbraut 20 - Sími 86633. Matvælafræðingur — efnafræðingur Óskum að ráða til starfa nú þegar matvæla- eða efnafræðing, helzt með sérþekkingu á fisk- iðnaðarsviði, til eftirlits-, rannsókna- og til- raunastarfa. Umsóknir þurfa að berast sem fyrst og eigi síðar en 7. maí nk. 0,,. ,. » . Sildarutvegsnefnd, Garðastræti 37. Frá Mýrarhúsaskóla Seltjarnarnesi Innritun nýrra nemenda í allar deildir skólans fer fram mánudaginn 30. apríl næstkomandi kl. 09.00 til 15.00. Sími 17585. Skólastjóri Um bættan hag þeirra sem eiga við geðræn og sálræn vandamál að stríða halda stofnfund sinn föstudagskvöldið 4. maí kl. 21.00 í Safnaðarheimili Langholtskirkju. Á fundinn mæta: aðstandendur — læknar — sálfræð- ingar — félagsráðgjafar — hjúkrunarfólk — fulltrúar þingflokkanna og annað áhugafólk um heilbrigðismál. Við hvetjum alla þá sem áhuga hafa á málefninu til að mæta, ekki sízt aðstandendur þeirra manna sem eiga við geðræn og sálræn vandamál að stríða og þá sem sjálfa hafa átt eða eiga við þau að etja. NEFNDIN DB á neytendamarkaði Hvetja til öflugra átaka á sviði neytendamála — Frá aðalfundi Neytendasamtakanna Eftirfarandi ályktun var gerð einróma á aöalfundi Neytendasam- takanna, sem haldinn var á miðviku- dagskvöldið: „Stjómvöld geri nú þegar öflugt átak á sviði neytendamála til að tryggja hagsmuni neytenda í landinu. Aðalfundurinn vill benda á, að ennþá hefur ekki náð fram aö ganga löggjöf til tryggingar á stöðu neytenda í viðskipta- og neytendamálum og gildistöku löggjafar þar að iútandi hefur verið slegið á frest. Þá vill aðal- fundurinn benda á þá staðreynd, að íslenzkir neytendur búa í dag við mun lakari aöstæöur varðandi neytenda- vernd en gerist hjá nágrannaþjóðum okkar og við slíkt verður ekki lengur unað. Skýringar á þessu er m.a. að finna í þvi, að hérlendis rikir sem jcunnugt er óðaverðbólga, sem slævir verðskyn neytenda og gerir neytenda- eftirlit næsta erfitt. Vöru- og þjónustuframboð er hér á margan hátt jafn margbreytilegt og gerist í stórum þjóðfélögum, sem hafa öfluga neytendastarfsemi og búa við reglulega útkomu neytendarita. Af þessari ástæðu þarf að veita þessum málum mun meiri gaum en gert hefur verið.” Lambakótelettur með ostamaukl í dag skulum við snæða okkar góða og fræga lambakjöt, lamba- kótelettur steiktar í ostamauki. Uppskriftin er úr Sérréttum eftir Ib Wessman. Reiknað er með þremur kótelettum á mann. Þær eru hreins- Deild NS stofnuð norðan heiða Akureyrardeild Neytendasamtak- anna var stofnuð 17. marz sl. For- maður deildarinnar er Steinar Þorsteinsson. Eru heimamenn í höfuðstað Noröurlands ánægðir með þessa nýstofnuðu deild. í ráði er að skrifstofa fyrir neytendur verði opnuðá Akureyri 8. maí næstk. aöar og þeim difið ofan í ostamaukið og steiktar í frekar miklu smjörlíki (við vildum mæla með smjöri) á pönnu, en gætiö þess að pannan má ekki verða of heit. Framreitt meö smjörsteiktum kartöflum, brúnkáli og feitinni sem steikt var upp úr. Einnig má bera fram brúna sósu ef vill. Brúnkál 1/2 hvítkálshaus 4 matsk. sykur salt Skerið hvítkálið gróft, brúnið sykurinn í potti og látið kálið út í á- samt 2—3 msk. af vatni og svolitlu .salti. Ekki skaðar að láta beikonsneið út i pottinn. Kálið er siöan látið sjóða þar til það er orðið vel meyrt. Ostamauk 2egg 100 gr rifinn ostur salt, pipar 3 msk. hveiti Þeytið eggin vel og bætið hinum hlutunum út i. Veltið kótelettunum upp úr maukinu áður en þær eru steiktar, eins og áður sagði. Ef við gerum ráð fyrir að þessi réttur sé fyrir fjóra (12 stk. kótelett- ur, eða um 1,2 kg) reiknast okkur að hráefnið í réttinn kosti um 2.375 kr. eða rétt tæplega 600 kr. á mann.A.Bj. Iþróttablaðið bikar í úrslitum Við fjölmennum á úrslitaleik bikarkeppninnar í Laugardalshöll. Þar verður barist um nýjan stórglæsilegan bikar sem Iþróttablaðið hefur gefið til keppninnar. íþróttablaðið fjallar um íþróttir á vandaðan og ábyrgan hátt. Þar eru íþróttir á prenti. Áskriftarsímar 82300 og 82302

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.