Dagblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979. 7 Enn deilt um kristinfræðikennslu í Kennaraháskólanum: Nemendur íhuga að skila auðu á prófi „Héreraðallegaumaðraeðaand- nemendur frekar en andstöðu við stöðu við hvernig að kennslunni er kennslugreinina sem slíka,” sagði ktaðið og framkomu kennarans við Stefán Jóhannsson, nemandi í 3. Ingólfur Guðmundsson, lektor: "Fer hiklaustíhart” — ef eitthvert „vesen” verður ,,Ég verð ekkert „billegur” ef eitthvert „vesen” verður. Þá fer ég hiklaust í hart,” sagði Ingólfur Guðmundsson lektor í samtali við Dagblaðið. „Eg lít svo á, að lágmarks- einkunninn eigi að vera 4,0 bæði í trúarbragðafræðinni og kristin- fræðinni. Það var hins vegar aldrei 'gengið í að kanna lagalegu hliðina á þessu í fyrra. Niðurstöður ráðu- neytisins eru komnar og þær breyta engu um að kristinfræðin er sérstök grein með lágmarkseinkunninni 4,0. Annars er mín skýring sú, að nemendurnir hafi hreinlega ekki þorað í próf. Við létum nemendur hafa meiri almenna trúarbragða- fræði í fyrra og trúarbragðafræðin var ekki deiluatriði. Engu að síður varð útkoman hörmuleg. En þetta hefur gengið betur siðan og nemendur hafa áttað sig á að þessa grein þarf að lesa ekki síður en aðrar,” sagði Ingólfur. -GAJ- Ingólfur Guðmundsson lektor. bekk Kennaraháskóla íslands, en þar eru nú skiptar skoðanir meðal nemenda um hvort þeir skuli skila auðu í kristinfræðiprófi, eins og margir nemendur gerðu í fyrra og mikla athygli vakti. „Eins og hann kennir trúar- bragðafræðina þá týnast raunverulega öll önnur trúarbrögð, kristinfræðin gleypir allan tímann. Þá er einnig óánægja með að kenn- arinn lagði aldrei fram kennsluáætlun. Nú í vetur gerðist það hins vegar í fyrsta sinn að hann lagði fram kennsluáætlun án þess að ráðgast við nemendur og leyfði ekki heldur neinar umræður um greinina. Samkvæmt reglugerð eiga nemendur hins vegar að vera með í ráðum um gerð reglugerðarinnar,” sagði Stefán. Aðspurður hvort hann teldi að nemendur mundu skila auðu sagði Stefán að í því máli væri raunverulega hálfgerð biðstaða. „Það er búið að leggja fyrir ráðuneytið, hvernig túlka eigi viss at- riði í reglugerðinni. Það var túlkað þannig í fyrra þegar nemendurnir neituðu að fara í prófið að nóg væri að fá vissa meðaltalseinkunn yfir öll árin og menn gætu þannig leyft sér að fá núll í einni grein. Nú er Ingólfur hins vegar orðinn hræddur um að þetta endurtaki sig og krefst þess að þessi túlkun verði á þann veg að ekki megi fá núll. Við teljum það hins vegar alveg nýja túlkun,” sagði Stefán. -GAJ- Sænska hljómsveitin Samuelssons. Samuelssons íFfladelfíu: „SVAR GUDS VIÐ ABBA” Sænska hljómsveitin Samuelssons er væntanleg til Reykjavíkur 2. maí á leið sinni til hljómleikaferðar í Kanada. Samuelssons flytja létta tónlist við texta með trúarlegu innihaldi. Þeir hafa skapað persónulegan stU, sem einkennist af margrödduðum söng og sterkum áhrifum frá bandarískri „country” tónlist. Samuelssons þykja ná góðu sambandi við áheyrendur sína, hvort heldur þeir koma fram í hljóm- leikahöll, kirkju eða undir berum himni. Það segir meira en mörg orð að í heimalandi sínu hafa Samuelssons. fengið auknefnið: Svar Guðs við Abba. Þeir hafa gefið út 15 stórar hljóm- plötur, flestar gerðar í Nashville í Bandaríkjunum. Samuelssons eru vinsælir í Bandaríkjunum og hafa komið fram í vinsælustu sjónvarpsþáttum þar í landi. Þeir hafa ferðast mikið um Evrópu og er þetta raunar þriðja heimsókn hljómsveit- arinnar hingað til lands. Samuelssons er þekktasta og vinsælasta hljómsveit Svía, sem eingöngu fæst við trúarlega tónlist. halda eina hljómleika hér að þessu sinni og verða þeir í Fíladelfíu, Hátúni 2, Reykjavík, miðvikudagskvöld 2. maí kl. 21.00. Aðgangur er ókeypis, en samskot verða tekin fyrir kostnaði og ef ágóði verður þá mun hann renna til barna frá brostnum heimilum. -GAJ- Kven- og bamaUippingar Permanent — Litanir Lagningar — Blástur HALLA MAGNÚSDÓTTIR Frumvarpið um topp- tekjuskatt komið Fimm þingmenn Alþýðuflokksins standa að frumvarpi um topptekjuskatt, sem DB hefur greinl frá og fram kom í gær. Þingmennirnir eru Árni Gunnarsson, Vilmundur Gylfason, Bjarni Guðnason, Gunnlaugur Stefánsson og Jóhanna Sigurðardóttir. „Fari launatekjur einstaklings yfir 12 milljónir á ársgrundvelli skal innheimta sérstakan hátekjuskatt, sém nemur 85 af hundraði af þeim tekjum, sem eru umfram 1 milljón króna á mánuði,” segir i fyrstu grein frumvarpsins. „Þennan sérstaka hátekjuskatt skal innheimta mánaðarlega, þannig að ef tekjur fara yfir 1 milljón kr. á mánuði skal vinnuveitanda skylt að halda eftir 85 af hundraði af því sem er umfram 1 milljón kr. og leggja það inn á sér- stakan reikning ríkissjóðs. Nái tekjur launþega, sem áður hefur greitt þennan skatt, ekki einni milljón króna á mánuði síðar á tímabilinu, skal endurgreiða honum af sama reikningi,” segir í frumvarpinu. Flutningsmenn segja að óbreytt standi stefna Alþýðuflokksins um af- nám tekjuskatts af almennum launa- tekjum, sem eru skilgreindar svo að þær séu tvöfaldar meðaltekjur verka- manna, sjómanna og iðnaðarmanna. Þess sé að vænta að þingsályktunar- tillaga um þetta verði samþykkt nú fyrir þinglok. Öðru máli gegni þegar laun séu orðin „óheyrilega há”. -HH. ALLAR BIRGÐIR GÚM- BÁTSINS EYÐILAGÐAR Furðuleg og enn óútskýrð skemmd- arverk hafa verið unnin á aðalgúm- björgunarbát hins nýlega skips, Eld- borgar, í Hafnarfjarðarhöfn. Upp- götvuðust skemmdarverkin skömmu áður en skipið átti að halda til kol- munnaveiða, en það hefur legið í höfn frá lokum loðnuvertíðar. „Það var nánast fyrir tilviljun að tegltjald þessa uppblásna 22ja manna björgunarbáts var opnað en báturinn stendur tilbúinn til notkunar niður- tjóðraður á bátaþilfari,” sagði rannsóknarlögreglumaður í Hafnar- firði DB. „Þar gat þá að líta ófagra sjón. Allar matarbirgðir í bátnum höfðu verið eyðilagðar með því að rífa og tæta umbúðir þeirra. Hellt hafði verið niður öllum vatnsbirgðum bátsins og neyðarrakettur lágu í vatnselg ónýtar. Yfir allt hafði svo verið hellt úr grútar- brúsa sem í bátnum var hafður í þeim tilgangi að lægja öldur í neyðar-- tilvikum.” Tjald bátsins á bátadekkinu er vendilega reimað aftur og hafa skemmdarvargarnir gengið svo vel frá því að unnu verki að ekki varð eftir tekið. Tjaldið er hins vegar svo hátt, er upp í bátinn er komið, að næstum manngengt er. Talið er nokkuð líklegt að þarna hafi leit að deyfilyljum átt sér stað. Nú til dags er hins vegar aldrei að finna slik lyf igúmbjörgunarbátum. -ASt. PlastiM liF PLASTPOKAR Einfold ákvörðun Gullfaltegar og gagnlegar lopa- og ullarvörur, s.s. teppi, værðarvoðir, peysur, húfur, vettlingar, sokkar, treflar, breeze-fatnaður o.m.fl. Gjafavörur og skrautmunir úr kopar, keramik, kristal hornum o.fl. Sann- kölluð meistaraverk og augnayndi. Fjölbreytt úrval - allir finna eitthvað við sitt hæfi. Heimsókn í Álafossbúðina er einföld ákvörðun og örugg lausn vanti þig þjóðlegar eða fallegar gjafavörur. VESTURGÖTU 2 - SÍM113404

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.