Dagblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 24
Halldór Pálsson saxófónleikari. Ljósm: Tíminn. Halldór spilar með ABBA Halldór Pálsson, saxófónleikarinn góðkunni, leikur á hljóðfæri sitt í einu lagi á nýjustu plötu hljómsveitarinnar ABBA, sjálfu titillaginu, Voulez-Vous. ABBA er með vinsælustu hljóm- sveitum heims, svo að það telst töiuverð upphefð að fá að láta ijós sitt skína með slíkri hljómsveit. Halldór hefur um nokkurra ára skeið starfað í Sviþjóð. Hann er i hópi færustu saxófónleikara íslenzkra og hefur leikið á nokkrum hérlendum hljómplötum. Þykir ávallt fengur að fá hann til að spila með í nokkrum lögum, þegar hann kemur hingað til lands i sumar- eða jólafrí. Nýja ABBA-platan, Voulez-Vous, kemur á markaðinn hér á landi í lok næstu viku. Hún kom út i Svíþjóð og Danmörku á mánudaginn. -ÁT- Blíða á daginn en kalt á nóttinni Stuðlafoss lestaði 3631 kassa af freðftski frá hraðfrystihúsinu á Eski- firði á siðasta degi fyrir verkfall far- manna. Hólmatindur landaði á Eskifirði á þriðjudag 88 tonnum af fiski. 15—20 tonn af aflanum var karfi og ufsi en hitt góður þorskur. Skipið fer aftur á veiðar á miðvikudagskvöld. Sama blíðan er á Eskifirði dag eftir dag allt frá sumarmálum. En þegar sól, kveður á kvöldin er ískuldi enda ísinn stutt fráokkur. -ASt/Regína, Eskifirði. Davíð Oddsson á móti dr. Gunnari — í varaf ormannskjörinu á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins z' Ðavíð Oddsson borgarfulltrúi er sá maður sem sennilegast er að teflt verði fram á móti dr. Gunnari Thoroddsen í kosningu varafor- manns Sjálfstæðisflokksins á lands- fundinum, sem hefst næstkomandi fimmtudag. Sem kunnugt er hefur verið talað um það manna á meðal að mótfram- boð verði á landsfundinum í embætti formanns og varaformanns. Flestir hafa talið að Albert Guð- mundsson fari fram á móti Geir Hall- grimssyni i formanninn. Fari svo,' muni manni einnig verða teflt fram á ii Davfð Oddson. Dr. Gunnar Thoroddsen. mód dr. Gunnari í varaformanninn. Einkum hafa verið nefnd Matthí- as Bjarnason, Ragnhildur Helga- dóttir og Matthías Á. Mathiesen. Margt veldur þvi að þau muni ekki gefa kost á sér, þótt eftir yrði leitað. Andstæðingum þess að kosið sé um formann og varafbrmann, eins og skipulagsreglur flokksins mæla þó fyrir um, telja að styrkur þessara þingmanna muni nýtast betur með stuðningi þeirra við framboð Davíðs. Hann er eindreginn stuðningsmaður Geirs og and- stæðingur Alberts í formanns- stöðuna. Óvíst er enn að mótframboð komi á landsfundinum, sem byrjar á fimmtudagskvöld með hátiðlegri setningu í Háskólabíói. -BS. Innbrot í heimavist Hjúkrunarskólans: „Leit út eins og versti glæpamaður” — óboðinn deli skreið inn í herbergi nema — málið ekki kært fyrr en kl. 17 ígær ,,Ég rumskaði við það að einhver skreið eftir gólfinu í herberginu mínu ot svo virtist sem hann ætlaði upp í rúm til mín. Ég hrópaði upp en sló um leið til mannsins, sem þá forðaði sér á hlaupum.” Það var óskemmtíleg lífsreynsla fyrir unga stúlku, nemanda í Hjúkrunarskóla íslands, að fá í fyrrinótt heimsökn óboðins dela beint inn á herbergi heimavistar Hjúkrunar- skólans. Kauði forðaði sér og hefur ekki náðst. „Hann var með nælonsokk yfir hausnum,” sagði stúlkan, „og leit út eins og versti glæpamaður. Hann var í gallabuxum, og hvitri peysu, með Gangur heimavistarinnar, þar sem delinn reyndi við hverja hurð, þar til ein reyndist ólæst. DB-myndir Ragnar Th. Eldhúsglugginn á fyrstu svalirnar við hliðina. hæð Greina mátti fótspor i glugga eldhúss á fyrstu hæð, þar sem gluggajárn hafði verið brotið upp. svarta hanska og í strigaskóm. Hann var þrekinn og ógeðslegur. Hann komst inn í herbergið mitt því ég hafði gleymt að læsa hurðinni. önnur stelpa hér á vistinni heyrði í honum en hann reyndi að opna allar herbergisdyr á þessari hæð, áður en hannkomst innhér.” í eldhúsglugga á fyrstu hæð skóla- hússins mátti sjá fótspor á gluggasyllu. Þar hafði verið rifið upp gluggajárn og bendir flest til þess að þar hafi kauði laumað sér inn. Svalir eru við hlið gluggans og má komast þar á milli. Arnar Guðmundsson, deildarstjóri i Rannsóknarlögreglu ríkisins, sagði í samtali við fréttamann blaðsins í gær- kvöld að RLR hefðí ekki borizt tilkynning um atburðinn fyrr en kl. 17:10 í gær. Skólastjóra var fyrst kunnugt um það sem gerzt hafði laust fyrir hádegi, eftir að blaðamenn DB höfðu verið á staðnum. og Arnar sagði málið vera í rannsókn-. -JH/ÓV. Heimabruggið skal stöðvað: RIKID TAPAR 3 MILUORDUM — vegna stórminnkaðra áf engiskaupa Tekjur ríkissjóðs af áfengissölu á sl. ári voru u.þ.b. 1.5 milljarði kr. lægri á sl. ári en gert var ráð fyrir á fjárlögum ársins 1978. Þá eru tekjur ÁTVR af áfengissölu á fyrsta árs- fjórðungi þessa árs um 20% lægri en gert hafði verið ráð fyrir. Þetta eru meginástæður þess að lagt verður fram stjórnarfrumvarp á Alþingi um einkasölu á öl- og vín- gerðarefnum, auk gerla. DB greindi frá frumvarpinu í gær. Verði ekkert aðhafst til þess að hamla gegn heimabrugginu hefur það í för með sér að tekjur ÁTVR verða a.m.k. 3 milljörðum lægri í ár en gert var ráð fyrir að þær yrðu samkvæmt fjárlögum. Nýlega var að tilhlutan fjármála- ráðuneytisins athugað fræðilega hve mikið áfengi mætti framleiða úr þvi magni bruggunarefna sem stærsti innflutningsaðili þessara efna, þ.e. Hafplast eða Áman, flutti inn á árinu 1978. Niðurstöður athugunar þessarar, sem unnin var af ölgerðarverkfræð- ingi, leiddu í ljós að úr ofangreindum efnum, sem aðeins umræddur aðili flutti inn, mátti framleiða áfengi sem samsvarar u.þ.b. 250 þúsund 0.7 lítra flöskur af brennivíni með 40% rúmmálsprósentu styrkleika. -JH. frjálst, úhád dagblað LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979. 18áraíþað heilaga án leyfis Aldurstakmarkið um stofnun hjúskapar án foreldraleyfis lækkar úr 20 í 18 ár samkvæmt stjórnar- frumvarpi, sem kom fram í gær. Stjórnarfrumvarp um lækkun lög- ræðisaldurs úr 20 árum í 18 ár liggur fyrir Alþingi. Því þykir rétt, að laga- ákvæðum, þar sem áskilið er um sam- þykki foreldra við hjúskaparstofnun barns þeirra innan við 20 ára aldur, verði einnig breytt ásamaveg. -HH. Akureyri: 700 stunda yfirvinnuþak r r ■ | ■ r a ari nja járnsmiðum Járnsmiðir á Akureyri ætla að tak- marka yfirvinnu sína umfram dagvinnu við sjö hundruð stundir frá og með 1. maí til aðalfundar ársins 1980 eða í um það bil eitt ár. Ekki hefur verið óalgengt að járnsmiðir á Akureyri hafi unnið á milli eitt þúsund til fimmtán hundruð stundir í yfirvinnuáári. Sveinafélag járniðnaðarmanna á Akureyri telur þetta ekki æskilegt á- stand til frambúðar með tilliti til vinnuálags og fjölskyldulífs félags- manna sinna. í samþykkt félagsins frá 17. apríl síðastliðnum kemur fram að endur- skoða á yfirvinnutakmörkunina að ári i ljósi þeirrar reynslu sem þá hefur fengizt. -ÓG. Flunkunýjum hraðbát stolið Flunkunýjum 22 feta plastbáti með aflmikilli utanborðsvél og tilheyrandi áhöldum var stolið í fyrrinótt frá bryggju í vesturhöfninni í Reykjavik. Eigendur urðu ránsins varir á níunda tímanum og gerðu lögreglu viðvart. Kom þá í ljós að menn höfðu sézt losa bátinn og koma honum á frían sjó upp úr kl. 4 i fyrrinótt. Báturinn fannst fyrir hádegi. í gær við Bátanaust í Elliðaárvogi. Úr honum hafði verið stolið talstöð og var báturinn eitthvað skemmdur. -ASt. Eyrarbakkahöfn: Skjótar úrbætur Ekki voru starfsmenn Hafnamála- stofnunar ríkisins lengi að taka við sér eftir strand þriggja báta í Eyrarbakka- höfn í síðustu viku, sem DB greindi frá. Strax á fimmtudag var dýpkunar- prammi kominn á bryggjuna og farinn að moka sandinum upp úr höfninni og standa nú vonir til þess að Bakka- bátarnir þurfi ekki framar að standa fastirrétt utan við bryggjuna. GAJ/MKH, Eyrarbakka.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.