Dagblaðið - 28.04.1979, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979.
Bragi Halldórsson í
framboð gegn Einari $
„Eitt helzta baráttumál mitt yrði
að greiða eitthvað fyrir því að sam-
band FIDE og Skáksambands íslands
yrði með öðrum hætti en nú er og
verið hefur,” sagði Bragi Halldórs-
son skákmaður en hann verður í
framboði gegn Einari S. Einarssyni,
forseta Skáksambands íslands, á
aðalfundi Skáksambandsins i dag.
„Auk þess mun ég að sjálfsögðu
reyna að vinna að eflingu skákar-
innar í landinu. Jú, það má segja að
sambandið milli S.í. og FIDE ráði
nokkru um framboð mitt. Ég tel mig
njóta stuðnings meðal skákmanna,
jafnvel betri skákmanna þjóðarinnar
sem sumir hafa verið mjög óhressir
með það ástand sem verið hefur og
því viljum við breyta,” sagði Bragi.
Bragi Halldórsson er íslenzkufræð-
ingur að mennt og kennir íslenzku og
sögu i Fjölbrautaskóla Suðurnesja og
hefur einnig kennt við Menntaskól-
ann í Hamrahlíð.
Undanfarin ár hefur Bragi verið
einn af sterkari skákmönnum þjóðar-
innar og á nýafstöðnu Skákþingi
íslands hreppti hann fjórða sætið.
Hann varð hraðskákmeistari Norður-
lands 1971. Bragi hefur annazt skák-
kennslu og þýtt nokkrar skákbækur.
Hann var gjaldkeri S.I. á árunum
1972—74.
Aðalfundurinn hefst kl. 13.30 i dag
— telursignjóta
stuðnings
„betri
skákmanna
þjóðarinnar”
í kaffiteríunni í Glæsibæ og eiga um
80 fulltrúar rétt til fundarsetu.
-GAJ-
4C
Bragi Halldórsson að tafli á nýaf-
stöðnu Skákþingi íslands. Þar
hreppti hann fjórða sætið.
DB-mynd Ragnar Th.
„Andóf 79”:
— Átta félög hafa sent BSRB mótmæli
„Þetta verður örugglega fellt,” sagði Pétur Pétursson þulur er hann talaði til félaga
sinna i mötuneytinu að Borgartúni 7 i gær.
DB-mynd Ragnar Th.
„Okkur hefur verið tekið skínandi
vel. Því hefur verið haldið ranglega
fram að við værum einhverjir útsendar-
ar Sjálfstæðisflokksins en það er
auðvitað tóm vitleysa. Barátta okkar
er fyrst og fremst stéttarleg hagsmuna-
barátta og æ fleiri hafa snúizt á sveif
með okkur enda fylgir fjöldinn okkur í
þessu máli,” sagði Pétur Pétursson út-
varpsþulur í viðtali við DB, en hann
hefur haft forgöngu um „Andóf’79”.
„Andóf ’79” eru samtök and-
stæðinga 3ja% samkomulags ríkis-
stjórnarinnar og stjórnar BSRB og
hafa þau kynnt málstað sinn víða und-
anfarið.
„Við höfum farið i mötuneyti og
kynnt viðhorf okkar,” sagði Pétur.
„Við höfum þegar heimsótt mötuneyti
Pósts- og síma, Skattstofunnar, Toll-
stofunnar, Veðurstofunnar, mötuneyti
borgarstarfsmanna, mötuneytið í
Hafnarhúsinu og í sjálfu musteri ótt-
ans, Arnarhvoli, þar sem okkur var
tekið fagnandi,” sagði Pétur
ennfremur.
Þá hafa félagar í „AndóFi ’79”
heimsótt fundi i Keflavík, Hafnarfirði
og á Akranesi.
Átta félög innan BSRB hafa þegar
sent stjórn BSRB mótmæli sin við sam-
komulaginu og hvernig að þvi hafi
verið staðið: Félagsráð félags íslenzkra
símamanna, Stéttarfélag íslenzkra
félagsráðgjafa, Félag gagnfræðaskóla-
kennara í Reykjavik, Starfsfélag Ríkis-
útvarpsins, Starfsmannafélag Sjón-
varpsins, Starfsmannafélag Reykjavík-
urborgar og kennarar af Suðurnesjum.
Á laugardag verður opinn fundur í
Félagsstofnun stúdenta þar sem
baráttumál „Andófs ’79” verða kynnt
og flutt dagskrá helguð þeim.
-HP.
KYNNINGARFUNDIR
í MÖTUNEYTUM
BYGGING S/F
Bygging S/F hefur flutt starfsemi sína
að Skeifunni 3,1. Athugið breytt síma-
númer, 39030—39035.
Bygging S/F
Grindavík
Dagblaðið vantar umboðsmann í Grindavík.
Uppl. gefur Guðrún Gunnarsdóttir í síma 92-
8294 og afgr. í Reykjavík sími 27022.
MMBIABIÐ
Hóp- og parareið unglinga, indíánar
og Lína langsokkur
Skreyttir indíánar og Lína lang-
sokkur munu m.a. skemmta á
fjölbreyttri barna- og unglingahátíð
Hestamannafélagsins Fáks á morgun,
sunnudag. Keppni í hestaíþróttum og
alls kyns sýningaratriði með hestum
verða aðalþáttur hátíðarinnar og
tækifæri mun svo gefast til að komast á
hestbak og fá tekna af sér litmynd á
hestbaki.
Unglingahátiðin hefst með keppni
unglingadeildar Fáks kl. 10 á velli Fáks
við Elliðaár. Úrslitum keppninnar
verður siðan lýst á aðalskemmtihá-
tíðinni sem hefst klukkan þrjú á
morgun. Þá sýnir unglingadeildin
glæsilega tölthesta og indíánarnir og
Lína langsokkur riða fram völlinn. Þá
verða til taks hestarnir sem hægt er að
komast á bak á og prófa lítillega og
ljósmyndarar til að taka myndir. Sýnd
verður einnig parareið með alls konar
skiptingum og uppstillingum. Þá
verður og hópreið unglinga í Fáki.
— á f jölbreyttri hátíð Fáks á
morgun í tilefni bamaárs
Enginn aðgangseyrir er að
sýningunni en eitthvert gjald verður
tekið fyrir að fá að skreppa á hestbak
og einnig fyrir Ijósmyndirnar. Fé, sem
inn kemur rennur til stuðnings
unglingastarfi innan Fáks.
Til skemmtunarinnar er efnt í tilefni
barnaárs og vill Fákur sýna svart á
hvitu hve vel hestamennska er fallin til
samvinnu mismunandi aldurshópa. 1
henni þekkist ekkert kynslóðabil.
Fjölskyldur hestamanna skortir aldrei
sameiginlegt umræðu- eða áhugaefni.
-ASt.
Brayttur
OPÍD
KL. 9—9
i Allar skreytingar unnar af fag-
, mönnum.____
Ncag bllaitcaBI a.oi.k. á kvöldla
niOMÍAMXHH
HAFNARSTRÆTI Slmi 12717
Síldverkunarmaður
Óskum að ráða til starfa vanan síld-
verkunarmann.
Umsóknir ásamt upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf þurfa að
berast sem fyrst og eigi síðar en 7. maí
nk.
Síldarútvegsnefnd,
Garðastræti 37.
Mánudag 30. apríl kl. 20:30.
OLOF RUIN
prófessor frá Stokkhólmi: „Sverige, frán
regeringsstabilitet till instabilitet.”
Fyrirlestur.
Allir velkomnir.
NORRÆNA
HÚSIÐ