Dagblaðið - 28.04.1979, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979.
Þessi bíll er til sölu
Til sölu Volvo F 86 B árgerð 1972 með Ii rculeskrana, 3,5 tonn, ekinn
aðeins 1500 km á nýupptekinni vél. N' r pallur og nvr búkkamótor, öll
dekk ný nema á búkka. Gírkassi, drif og búkkitekin upp og yfirfarin
veturinn 1977. Upplýsingar um verð og greiðsluskilmála i sima 91—
41561.
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
að reisa 120 staurastæður í 66 kV háspennu-
línu milli Lagarfossvirkjunar og Vopnafjarðar.
Útboðsgögn fást á skrifstofu Rafmagnsveitn-
anna Laugavegi 118 Reykjavík gegn 5.000 kr.
óafturkræfri greiðslu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað föstudaginn
1. júní nk. kl. 14:00 e.h.
Rafmagnsveitur ríkisins
VAL h/f auglýsir:
Höfum á söluskrá fjölda vörubíla og vinnu-
tækja, m.a.:
hjólaskóflur, Leyland árg. 1970, Massey Ferguson 70
árg. ’74, Terlx 7251 árg. 1973 og 1974, Michigan 75B
árg. 1972, nýinnflutt og yfirfarin af framleiðanda. Enn-
fremur seljum við Benz 306, 18 manna. Mjög góður
bíll.
Okkur vantar á söluskrá jarðýtur og vörubíla.
Vinsamlega hafið samband við okkur sem
fyrst og látið skrá tækin.
(VAþ
VINNUVÉLA- & VÖRUBIFREIÐASALA.
F4 VAGNHOFÐA 3 REYKJAVIK
SÍMI 85265.
JOSCfÍTlU Ingólfsstrœti 8, sími 15920.
Dagsbrún og Eimskip
herða öryggiseftirlit
við höf nina
Sameiginlegt átak gegn slysahættu
Samkvæmt fyrirmælum Óttars
Möller, forstjóra Eimskipafélagsins,
er nú nákvæmlega skoðaður allur
öryggisbúnaður á skipum félagsins.
Þá ber þegar í stað að lagfæra það
sem bilað kann að vera. Loks skal
skila skýrslu til forstjórans um þessar
aðgerðir strax og skipin koma næst
til heimahafnar.
Að sögn Guðmundar J.
Guðmundssonar, varaformanns
Dagsbrúnar, kom þetta fram á fundi
sem haldinn var með Dagsbrúnar-
mönnum og forstjóra og deildarstjór-
um Eimskipafélagsins.
„Þetta eru meðal fyrstu viðbragða
af hálfu stjórnenda Eimskips eftir hið
hörmulega slys um borð í Tungufossv
á dögunum,” sagði Guðmundur J.
„Þetta þyrftu allir íslenzkir skipaeig-
enduraðgera.”
Þá hefur Eimskip ákveðið að ráða
mann sem eingöngu hefur það starf
að fylgjast með öryggisbúnaði í
öllum tækjum við hafnarvinnuna,
bæði í skipum og í landi.
Meðal annarra aðgerða má nefna
stofnun nefndar til að kanna orsakir
slysa og rannsaka þær ítarlega. í
henni eiga sæti Guðmundur J.
Guðmundsson og Jóhann Geirharðs-
son frá Dagsbrún, 2 menn frá
Eimskipi og einn maður frá hafnar-
stjóm. Fyrirhugað er að önnur skipa-
félög tilnefni menn í hliðstæða
nefnd.
-BS.
Raufarhöfn:
Neyzluvatnið ódrykkj-
arhæft fram á haust
Framleiðsla röranna sem eiga að hafin á Reykjalundi. Um er að ræða
færa ibúum á Raufarhöfn það átta tommu plaströr sem leiða á nær 8
neyzluvatn sem skort hefur þar er nú km leið frá lindunum við Hólsá niður i
Raufarhöfn í vetrarham: þar var ekki alltaf auðvelt i vetur að afla vatns til heimilis-
nota. DB-mynd: Jónas Friðrik.
Grundartangi:
Kynda ofninn sinn
á ísals kaupi
„Það lítur út fyrir að þetta takist i
dag,” sagði Jón Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Jámblendiverk-
smiðjunnar á Grundartanga, í gær.
„Straumi mun verða hleypt á
bræðsluofninn kl. tvö í dag ef allt
gengur að óskum. Þeir eru að bera
saman bækur sínar hér tækni-
mennirnir og enn hefur ekkert komið
fram sem breytt gæti því að við
gangsetjum ofninn.”
Jón sagði að rafmagninu yrði
hleypt á í áföngum en í ofninn hefur
verið látið svolítið af koksi og járni.
„Það tekur um tíu daga að hita
ofninn, þurrka hann og á þeim tíma
bakast rafskautin. Það er því enn
heldur lítið að sjá og engin viðhöfn
hér þrátt fyrir þennan merka áfanga,
sem við höfum unnið að í nánast
einni samfellu síðan bygging ofnsins
hófst.”
Fyrir nokkrum dögum tókst sam-
komulag við verkalýðsfélögin á
staðnum um kaup og kjör verk-
smiðjufólksins á Grundartanga og
sagði Jón að þeir samningar væru að
mörgu leyti sniðnir eftir því sem
gerist hjá ísal.
-HP.
Eldur í mannlausu húsi
íKeflavík — tjónið mikið
Eldur kom upp i
húsi sem er í byggingu
við Heiðarbraut 9 i
Keflavík i fyrrinótt.
Er þarna um parhús
að ræða, íbúð á
tveimur hæðum, og
kom eldurinn upp á
efri hæðinni. Til-
kynning um eldinn
barst kl. 4.46 og 50
mínútum síðar var
slökkvistarfi lokið.
Miklar skemmdir
urðu á húsinu,
pússning er illa
sprungin og ónýt og
sperrur brunnu mikið
þó eldurinn kæmist
ekki upp úr þakinu.
Húsið var tilbúið und-
ir tréverk og eigandi
þess búinn að koma á
staðinn viðarþiljum
og fleiru sem allt
brann.
Helzt er gizkað á
að kviknað hafi í út
frá rafmagni en málið
er í rannsókn. -ASt.
kauptúnið. Sveitarstjórnarmenn á
Raufarhöfn gera sér vonir um að
neyzluvatnsmálin verði komin í lag
fyrir haustið.
Eins og fram hefur komið í DB
hefur nánast ríkt neyðarástand í
neyzluvatnsmálum á Raufarhöfn í
vetur. Tvær af þremur vatnsholum þar
eru ónýtar — úr þeim kemur
óneyzluhæft vatn. Hafa heimamenn
orðið að bera vatn í koppum og kirnum
úr einu nothæfu vatnsholunni utarlega
í plássinu.
Sveitarfélagið hefur nú fengið
loforð um nauðsynlega fyrirgreiðslu,
m.a. vænt peningalán frá Lánasjóði
íslenzkra sveitarfélaga. Að vonum
hlakka íbúar á Raufarhöfn mjög til þess
að úr vanda þeirra leysist.
-ÓV.
150 KR.
MEÐ SVR
— fóru fram á
60% hækkun
„Áætlaður rekstrarhalli eykst því
um nálega 220 milljónir króna í ár,
þrátt fyrir 25% meðaltalshækkun far-
gjaldanna frá 28. apríl. Frá þeim tíma
hefði þurft að hækka fargjöld SVR um
60% að meðaltali til þess að áætlað
framlag borgarsjóðs héldist óbreytt á
þessu ári, og var það sú hækkun, sem
sótt var um til verðlagsyfirvalda,”
segir í greinargerð frá Strætisvögnum
Reykjavíkur sem fylgir tilkynningu um
25% hækkun á fargjöldum með
vögnunum frá og með deginum í dag.
Rikisstjórnin heimilaði hækkun
þéssa á fundi sínum i fyrradag en eins
og segir í greinargerðinni sóttu forráða-
menn fyrirtækisins um 60% hækkun.
Að afgreiðslu rikisstjórnarinnar
lokinni hækka einstök fargjöld úr 120
kr. í 150 kr., stór farmiðaspjöld úr
3000/32 miðar í 4000 kr./34 miðar,
lítil farmiðaspjöld úr kr. 1000/9 miðar
í 1000/7 miðar og farmiðaspjöld
aldraðra úr 1500/32 miðar í kr.
2000/34 miðar.
Fargjöld barna verða óbreytt, 35
kr„ og farmiðaspjöld 500 kr. 30 miðar.
-HP.