Dagblaðið - 28.04.1979, Qupperneq 13
Inga Huld
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979.
„BIANI - ÞAÐ HEITIR
Tveir ungir spekingar sátu á
gólfinu á Kjarvalsstöðum, og veltu
fyrir sér listaverki. Það var andlits-
mynd, skorin út í tré og heldur
ófrýnileg.
Munnurinn var tannlaus sprunga.
Þeir góndu lengi á þetta ótútlega fés,
unz annar sagði:
„Ætlar þú að fá þér franskar
tennur?”
„Bjáni”, sagði hinn. „Það heitir
fralskar tennur.”
Allt í kringum þá var fólk að
hamast. Sumir voru að rogast með
fangið fullt af listaverkum inn í
húsið, aðrir að koma þeim fyrir.
Voru verkin bæði fjölbreytt og lit-
hvert skipti. Svo verða sýndar kvik-
myndir sem börn hafa gert. Enn-
fremur verður sýnivinna nemenda,
bæði í vefnaði og heimilisfræðum.
Þúsundir barna eiga þarna þátt
og eru þau á aldrinum 2ja til 16 ára.
í dagbókinni okkar hérna í DB
verður skýrt nákvæmlega frá því
hvað verður á boðstólum klukkan
hvað á hverjum degi en við viljum
aðeins benda á að virka daga hefjast
skemmtiatriðin ekki fyrr en hálfsex.
Er það gert til að foreldrarnir missi
ekki af neinu.
Þetta verður greinilega hin
skemmtilegasta hátíð. Fyrir utan
húsið hefur verið gert glæsilegt tafl-
F.v. Guðrún, Jóhanna, Kristján og Stefán, í 7. bekk. Þau eiga sér margar óskir en verða þær nokkurn tima uppfylltar?
skrúðug og víða mátti sjá hvernig
ómerkilegur efniviður eins og strigi
og pappírsdrasl var hafinn í æðra
veldi og hafði ummyndazt í furðudýr
eða kostulegar mannsmyndir.
Það var verið að undirbúa listahá-
tíð barnanna sem opnuð verður í dag.
Og þar verður líf í tuskunum!
Drunginn sem hvílt hefur yfir þessu
umdeildaólánshúsi, Kjarvalsstöðum,
er rokinn á bak og burt.
borð úr gangstéttarhellum, en
nemendur úr Hvassaleitisskóla
smiðuðu taflmenn. Geta þeir gripið í
það sem vilja. Svo mega allir
krakkar koma með myndir og hengja
þær upp einn dag. Og þarna verða
vef stólar sem gestir mega æfa sig á.
Síðasta daginn, 6. mat, mega allir
krakkar koma með flugdreka, sem
þau hafa búið til sjálf. Og guð gefi að
þá verði sæmilegt veður!
Guð gefi að
viðri vel fyrir
flugdrekana
Það er Fræðsluráð Reykjavíkur
og mörg sérkennarafélög sem að
sýningunni standa. Ekki þarf að taka
sérstaklega fram í tilefni af hvaða ári.
Markmiðið er að örva sköpunar-
gleði barna í skólanum og gefa þeim
tækifæri til að sýna hvað þau geta.
Og það er svei mér ekki litið.
Alla daga til og með 6. maí verður
húsið opið frá 14—22. Aðgangur er
ókeypis. Auk fjölda mynd- og
smíðisgripa, sem prýða salina, verður
tvisvar á dag flutt tónlist eða
leikþættir eða dansar. Eitthvað nýtt í
Ofsafjör
Tiu manna nemendahópar úr
ýmsum skólum munu skiptast á að
vera með sýnivinnu í heimilisfræði.
Þau ætla að brýna fyrir hátíðar-
gestum að næra sig á hollustufæði
áður en þau fara í skólann og þegar
þau koma heim — en forCast
sjoppurnar. Þau ætla að sýna
meðferð á síld og grænmeti og baka
gerbollur, strekkja dúka og fægja
mataráhöld þangað til þau verða eins
og silfur.
Fjórir krakkar úr 7. bekk Ár-
bæjarskóla voru að undirbúa þessa
vinnu, þau Kristján, Stefán, Guðrún
og Jóhanna (æ, það er svo hátíðlegt,
skrifaðu bara Jóka).
7
mundum við óska þess að fá
hundrað þúsund óskir í viðbót!”
Þvi miður höfum við ekki pláss til
að birta 100 þúsund óskir í blaðinu en
hérna koma þrjár og virðast réttlætis-
mál. ’
1. Samastað fyrir 14—15 ára krakka í
Reykjavík. „Vantar ofsalega —
verðum að hanga á sjoppunum,”
sagði Guðrún.
2. Okkur vantar sumarvinnu. „Nú er
alveg búið að leggja niður unglinga-
vinnuna, og svo var hún bæði of létt
og illa borguð,” sagði Jóka
3. Betri skólabækur og fle.ri
valgreinar. „Bækumar em miiiiuí
þær sömu og mamma mín n> taði,”
sagði Stefán, „svo dæmi sé tekið úr
landafræðinni þá eru sum þorpin sem
þá voru 50 manna nú komin upp í
700.”
Krakkarnir fjórir voru fremur
svartsýnir á skjótar úrbætur. „Æ,
þetta er allt svo klikkað,” sögðu
þeir um leið og þeir kvöddu.
En eftir að hafa séð hvernig
börnin hafa með hugarflugi sínu —
og stuðningi góðra kennara — blásið
lífi í Kjarvalsstaði þá verður að játast
að Reykjavík yrði miklu, miklu
skemmtilegri borg ef börnin fengju
þar meiru að ráða.
-IHH.
Við spurðum hvernig strákunum
fyndist heimilisfræðin en hún er
skylda í 7. og 8. bekk, valgrein í 9.
Þau sögðu að strákarnir mót-
mæltu gjarna fyrst, segðust ekki vera
kellingar, en svo væri ofsafjör þegar
þeir væru byrjaðir. Kristján sagði sér
þætti leiðinlegt að vaska upp en
ágætt að búa til matinn.
— Hvað finnst þér um að strekkja
dúkana?
— O, maður lætur sig hafa það!
— Ætlarðu að hjálpa konunni þinni
við hússtörfin þegar þar að kemur?
Býst við því — það er að segja ef
ég nenni því.
Einangrun
0i
Plasieinangrun, sieinull, gleruíl tn/eða án ál-
pappírs, álpappírsrúllur, glerullarhólkar, plast-
einangrunarhólkar.
Allt til einangrunar - og verðið hefur náðst ótrúlega
langt niður vegna magninnkaupa.
Byggingavörudeild
J|i
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
Simi 10600
öskupokakerling breiðir faðminn móti gestum. Milli blómanna gægist Sif, 6
ára. Um skólann sinn segir hún: „Það er mest gaman i friminútunum. Þá eru
strákarnir alltaf að stríða okkur. Það cr svo skemmtilegt.”
DB-myndir Bjarnleifur.
Æ, þetta erallt
svo klikkað
Þetta voru greindir krakkar og
þegar við fórum að spyrja þá, hvaða
ósk þeir ættu sér heitasta úr hendi
stjórnmálamanna og borgar-
skipuleggjara sagði Kristján: „Þá
—Listahátíð barnanna hefst í dag á Kjarvalsstöðum þar sem
ímyndunarafl og sköpunargáfa hinna yngri ræður ríkjum
FRALSKAR TENNUR