Dagblaðið - 30.06.1979, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 30.06.1979, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 1979. Um atvinnuleysi í Bakkagerði: Sögusagnir um „lánaða” vinnutíma eru f ráleitar —segir úthlutunar- nefnd atvinnu- leysisbóta Magnús Þorstcinsson skrifar f.h. út- hlutunamefndar atvinnuleysisbóta í Borgarfirði eystra: Að undanförnu hefur Dagblaðið gert sér tíðrætt um atvinnuleysis- bætur í Borgarfirði eystra og út- hlutun þeirra. Umræða þessi snýr nokkuð að út- hlutunarnefnd atvinnuleysisbóta í Borgarfirði og þykir því nefndinni hlýða að leggja hér nokkur orð í belg. Um árabil hefur atvinnuleysi yfir vctrarmánuðina verið árvisst á Borg- arfirði og veldur þar mestu um slæm hafnaraðstaða sem útilokar sjósókn yfir hjáveturinn. v Að sjálfsögðu er þetta vandræða- ástand, en erfiðlega hefur gengið að ráða þar bót á. Yfir sumartímann og fram eftir hausti hefur hins vegar verið næg atvinna undanfarin ár. Þessi áukna atvinna yfir sumar- mánuðina hefur orðið til þess að at- vin'nuleysi vetrarmánaðanna hefur orðið meira áberandi því fleiri hafa unnið sér rétt til atvinnuleysisbóta og því látið skrá sig en það gerir at- vinnulaust fólk ekki almennt hér nema það eigi rétt til atvinnuleysis- bóta. í Borgarfjarðarhreppi öllum eru ibúar 249 þar af 149 í þorpinu Bakka- gerði. Sveitarfélagið er eitt vinnusvæði og stundar fólk úr sveitinni vinnu í þorpinu þegar vinnu er þar að fá. í baksíðugrein í Dagblaðinu 14. júní sl. var atvinnuleysi í Bakkagerði í maí-mánuði sl. gert að sérstöku umtalsefni. Þá voru á atvinnuleysisskrá 25 manns og atvinnuleysisdagar í mánuðinum samtals 389. í maí-mánuði 1978 voru 12 manns á atvinnuleysisskrá og atvinnuleysis- dagar187. FuIIyrða má að þetta aukna at- vinnuleysi i maí i ár samanborið við maí 1978 orsakast að mestu af hafis og vorharðindum en sjósókn hófst ekki hér fyrr en í lok mánaðarins vegna hafiss og illviðra. I fyrrnefndri Dagblaðsgrein er ýmislegt athugavert. Gefið er í skyn að inntaka nýrra lelaga í Verkalýðsfélag Borgarfjarðar sé með annarlegum hætti. Sannleikurinn i því máli er sá að sökum þess að fádæma erfiðlega hefur gengið að koma á löglegum fundum í félaginu var sá háttur tekinn upp fyrir nokkrum árum að skrifleg umsókn til stjórnarinnar um inntöku í félagið var talin veita fullnægjandi félagsrétt og skyldur. Síðan voru þessar umsóknir bomar upp til samþykktar næst þegar tókst að ná saman löglegum fundi. Sanii háttur mun vera hafður á í feiri verkalýðsfélögum. Sögusagnir um að menn fái „lánaðan” vinnutíma hjá öðrum, sem eru aflögufærir, eru fráleitar og sama máli gegnir um réttindatíma bændasonar fenginn með vinnu hjá feðrum þeirra, einfaldlega vegnaþess að vinna við landbúnaðarstörf gefur ekki rétt til atvinnuleysisbóta þar sem bændur greiða ekki gjöld af þeirri vinnu til Atvinnuleysis- tryggingasjóðs. Bændur fá ekki atvinnuleysis- bætur vegna vinnu við slátrun i smá- tíma að haustinu. Til þess að öðlast bótarétt verða þeir, eins og aðrir, að hafa unnið Atvinnuleysisskráning i Bakkagerði hefur valdið miklum deilum. DB-mynd tryggingaskyld störf í 6 mánuði á næstliðnum 12 mánuðum, en hafa eins og að líkum lætur flestir öðru að sinna. Margir Borgfirðingar fara á hverjum vetri í atvinnu annars staðar, ýmist yfir vetrarvertíðar- timann, eða jafnvel allan veturinn. Það er aðallega yngra fólkið, sem kemur þá heim undir vorið og fer þá sumt beint inn á atvinnuleysisskrá þegar atvinnulíf fer seint á stað eins og á þessu vori. Svo mun hafa verið um nokkra af þeim sem á atvinnuleysisskrá voru í maí sl. og veldur þar nokkru um að vetrarvertið lauk nú um mánaðamót apríl-maí. í úthlutunarnefnd atvinnuleysis- bóta í Borgarfirði eru nú: Sigmar lngvarsson tilnefndur af Vinnu- veitendasambandi íslands, Arngrím- ur Magnússon tilnefndur af Vinnu- málasambandi samvinnufélaganna og Guðlaugur Björgvinsson, Jón Björnsson og Magnús Þorsteinsson tilnefndir af Verkalýðsfélagi Borgar- fjarðar. 1 hcppnaöar. OLVMPUS Bravó fyrir verðlækkun reiðhjóla en... TRYGGJA VERDUR ÖRYGGIHJÓLREKJA MANNA Á GÖTUM REYKJAVÍKUR Hjólreiðamaður hringdi: Það kom að því að þessi ríkis- stjórn gerði eitthvað af viti. Niður- felling tolla af reiðhjólum er að mínu mati eitthvert mesta framfaraspor í samgöngumálum sem stigið hefur verið árum saman. Allir sem einhver kynni hafa haft af reiðhjólum vita að fátt cr heilsusamlegra en einmitt hjólreiðar. Þær styrkja likamann, auðga andann og menga ekki út frá sér. Ég er þess fullviss að l.ækkun reiðhjólaverðs er fagnaðar- efni, en líka þarf að tryggja öryggi hjólreiðamanna. • - Þáð þarf ekki lengur kunnáttumann til þess að taka fallegar fjölskylduniyndir. Tækn- inni hefur fleygt fram og með litilli eða störri Olympus-myndavél er nánast barna- l/iilr uk nA fi» nlliir mt/nrlír rln'rrAn . . .,1 40.590 ! kr. má fá gcunaj-l. Éyfcln- aðeiíis J _ _ fyrsta flokks myndávél með ihnbyggdum t , ; a ; v” t . Jjósmæli ög 35 mm tilmu. Ferðamyndjrnar í ^ ár munu ekki bregðast ef fjölskyldan fær sér OlyTnpus. usturstrœti 6 \ ■í, hjólreiðamönnum mun fjölga nú þegar verð reiðhjóla hefur verið stór- lækkað. En samt er margt ógert, er varðar hagsmuni okkar hjólreiða- manna. Það er t.d. nánast lífs- hættulegt að hjóla á nokkrum götum Reykjavíkur. Bilstjórar sýna okkur litla tillitssemi og oft kcmur fyrir að okkur er þröngvað út af vegum með flauti og öðrum ógnunum. Mér þætti forvitnilegt að heyra af- stöðu umferðaryfirvalda í Reykjavík til þessa máls. Ætla þau að beita sér fyrir þvi að hjólreiðamenn geti hjólað um götur borgarinnar án þes að eiga á hættu að stórslasast? Lækkun á verði reiðhjóla þjónar ekki fyllilega tilgangi sínum nema í ^ kjölfarið fylgi uppstokkun á öryggis- málum hjólreiðamanna. Þar eiga umferðaryfirvöld að mínu mati fyrsta leikinn. >/**?£ v 2;' Kynþátta- hatarar ofsækja fólk Kristín Jóhannesdóttir hringdi: Ég bý með manni frá Filippseyj og á með honum eitt litið barn. höfum reynslu af alveg við styggilegu kynþáttahatri hér Reykjavík. Það bitnar á okkui margvíslegan hátt. Við fáum hve inni, eigum erfitt með að fá atvin: barnið okkar sætir ofsóknum og s verðum við fyrir margs konar ónæ Af þessum ástæðum mundi vorkenna Víetnömunum ef j kæmu hingað. Þeir fengju ekki gó< viðtökur. Fordómarnir eru gífurlegir og vanþekkingin mikil. held að það væri þeim sjálfum f; beztu að koma ekki hingað. 1 mundi bara valda þeim óhamingju sorg. Torfan er alltaf mikið deilumál. Bréf- ritari stingur upp á þvi að atkvæða- greiðsla fari fram og deilan verði þannig útkljáö i eitt skipti fvrir öll. DB-mynd Hörður Atkvæða- greiðslu um Torfuna Bolli Ágústsson hringdi: Ég er eindregið andvigur friðun Bernhöftstorfunnar. Og ég er ekki einn um þá skoðun — ég hef heyrt fjölda manns segja hið sama. Tillaga mín er sú að atkvæða- greiðsla verði látin skera úr um fram- tíð Torfunnar. Vilji meirihlutans verði látinn ráða. Sjálfur vil ég að þarna á lóðinni verði reist nýtt hús fyrir stjórnar- ráðið. Ég hef ekki heyrt nein fram- bærileg rök fyrir friðun Torfunnar. Hún er alltof kostnaðarsöm og eru þessi hús ekki bara fúaspýtur? (Ég undanskil gamla landl'æknishúsið). ✓

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.