Dagblaðið - 30.06.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ1979.
5
Rockville svæðið:
Bandaríkjamenn ráða
utan girðingarínnar
—ekki veríð talin ástæða til þess að giiða af ðll bannsvæði, segir Hannes
Guðmundsson í vamarmáladeikl
—Ný reglugerð í smíðum sem afmarkar sérstök bannsvæði
„Bandaríkjamönnum var afhent
ákveðið land , til umráða, en þeir
munu ekki hafa girt alveg að
mörkum þess,” sagði Hannes
Guðmundsson fulltrúi í varnarmála-
deild utanríkisráðuneytisins. í Dag-
blaðinu í gær sagði blaðafulltrúi
varnarliðsins að yfirráðasvæði
Rockville radarstöðvarinnar næði út
fyrir girðingu stöðvarinnar,
ótilgreint þó.
„Það fer ekki hægt aðsegjatil um
hve viðfeðmt þetta svæði er utan
girðingar, nema bera saman
uppdrætti,” sagði Hannes.
„Það hefur ekki verið talin á-
stæða til þess að girða af öll
bannsvæði hersins.”
Það hefur komið fyrir nokkrum
sinnum að hermenn hafa grennslast
fyrir um mannaferðir. í því tilfelli,
sem komið hefur þessum umræðum
af stað, þ.e. er tveir íslendingar voru
teknir utan girðingar Rockville
gerðust þeir ekki brotlegir gagnvart
varnarliðinu.
Allt þetta svæði er eign íslenzka
ríkisins, þrátt fyrir það að það hafi
verið afhent varnarliðinu til afnota.
íslenzka ríkið á einnig svæðið í
kringum herstöðvarnar, en varnar-
máladeild hefur það svæði til
umsýslu.
Það hefur fram að þessu ekki
þótt ástæða til þess að fylgjast sér-
Radarkúla innan Rockville radarstöðvarinnar á Miðnesheiði. DB-mynd Ragnar Th.
staklega með mannaferðum þarna af
hálfu ráðuneytisins.
Nú er hins vegar í smíðum ný
reglugerð. í þeirri reglugerð verða
bannsvæði afmörkuð og auglýst sér-
staklega. Sú reglugerð ætti því að
verða bót á því ástandi, sem nú ríkir.
Auglýst verður leyfileg umferð á
þessu svæði en sumt er í umsjón
varnarliðsins en annað undir stjórn
íslenzkra flugmálayfirvalda.
Þess verður væntanlega ekki
langt að bíða að þessi reglugerð sjái
^dagsins ljós,” sagði Hannes.
-JH.
ðvænt hlið á sjórallinu:
Dansleikurí
Akraborginni
íkvöld
í tilefni af sjóralli DB og Snarfara
verður haldinn dansleikur í Akra-
borginni í kvöld á vegum veitinga-
hússins Óðals. En fyrr um daginn
verður farið með rútubilum (mætt á
Austurvelli kl. 14 í dag) og ferðast
dálítið um Skagann. Komið verður i
bæinn kl. 21 og þá fara allir heim og
skipta um föt og gera sig klára fyrir
dansleikinn. Kl. 22.30 leggur svo Akra-
borgin frá bryggju með allt dansliðið
innanborðs. Siglt verður út á Sundin og
slegið upp stórdansleik. Dansað verður
fram eftir nóttu þar til Akraborgin
skilar mannskapnum í land á nýjan
leik.
Aðgöngumiðar afgreiddir i Óðali.
-GM.
Hríseyingarþreyttir
ábiðeftirferjunni
Hríseyingar eru nú oðnir þreyttir á
að bíða eftir ferju þeirri sem
Seyðfirðingar eru að smiða handa þeim
og leysa á samgönguvanda eyjar-
skeggja.
Upphaflega var um það samið að
ferian yrði tilbúin' til afhendingar um
mánaðamótin maí-júní, en við það var
ekki staðið. Forráðamenn Hríseyinga
fóru austur á Seyðisfjörð og féllust þar
á að ferjan yrði afhent í miðjum júlí
nk.
Nú er hins vegar komið á daginn að
ekki mun ferjan koma þá. Hefur fyrir-
tækið sem smíðar hana m.a. farið fram
á frest vegna sumarleyfa starfsfólks, en
Hríseyingar vilja ekki una því. Telja
þeir sig illa svikna af þessum
viðskiptum. Hafa sumir á orði að útlit
sé fyrir að ferjan komi ekki fyrr en um
næstu jól en það mundi valda eyjar-
skeggjum miklum samgöngu-
erfiðleikum.
-ASt/VS, Hrísey.
Auglýsing
frá Heilbrigðiseftirliti ríkisins til fram-
leiðenda og innflytjenda niðurlagðs lag-
metis.
Af marggefnu tilefni vill Heilbrigðiseftirlit ríkisins benda fram-
leiðendum og innflytjendum niðurlagðs lagmetis um allt land á, að
þeir gæti þess að gæði, pökkun og merking umbúða niðurlagðs
innlends og innflutts lagmetis, sem boðið er til sölu,sé í samræmi við
ákvæði reglugerðar nr. 250/1976 um tilbúning og dreifingu matvæla
og annarra neyslu- og nauðsynjavara ásamt áorðnum breytingum.
Samkvæmt ákvæðum reglugerðar 250/1976 gerir Heilbrigðiseftirlit
rikisins eftirfarandi kröfur um pökkun, geymslu og merkingu umbúða
niðurlagðs lagmetis:
1. Nafn og heimilisfang framleiðanda eða pökkunarfyrirtækis skal
vera skráð á umbúðirnar.
2. Á umbúðunum skal koma fram, að um niðurlagt lagmeti sé að
ræða.
3. Á pökkunarstað skal skráð á umbúðirnar dagsetningu pökkunar-
dags og siðasta söludags, þannig að kaupendur sjái nefndar dag-
setningar greinilega.
4. Umbúðirnar skulu eingöngu myndskreyttar i samræmi við
innihald.
5. Á umbúðunum skal geta nettóþyngdar vörunnar og að auki fisk-
þyngdar, þar sem það á við.
6. Nafnsog ákveðins eiginleika vörunnarskal getið með greinilegum
bókstöfum svo auðvelt sé fyrir kaupendur að taka eftir þeim, þeg-
ar sala fer fram.
7. Á umbúðirnar skal skráð innihald vörunnar (innihaldslýsing). Þar
skulu koma fram aðalefni hennar svo sem fita, prótein, kolvetni,
vitamín og steinefni, upp talin i minnkandi magni. Auk þess skal
næringargildi vörunnar gefið upp miðað við 100 gr. Magn
leyfilegra aukefna skal getið á umbúðum.
8. Á umbúðum niðurlagðs lagmetis skal standa: „Geymist í kæli
(undir 4° C)”, þar sem litið er á niðurlagt lagmeti sem viðkvæm
matvæli.
Almennt er talið að niðurlagt lagmeti hafi um það bil 6 mánaða
geymsluþol sé það geymt í kæli (undir 4° C), þó vill Heilbrigðiseftirlit
ríkisins vekja athygli þeirra sem hlut eiga að máli á þvi að ákvörðun á
timalengd milli pökkunardags og síðasta söludags verður að byggjast
á geymsluþolsrannsóknum framkvæmdum af viðurkenndum opin-
berum rannsóknaaðilum.
Heilbrigðiseftiriit ríkisins beinir þeim tilmælum til allra heilbrigðis-
nefnda að fylgjast náið með að ofangreindum kröfum sé framfylgt.
Geymið auglýsinguna.
Heilbrigðiseftirlit ríkisins.
Ef þú vissir það ekki
þá veiztu það núna að við höfum
58 uppstillt hjónarúm í verzlun okkar.
nPllpÉliÉÍI
■
Komduog skoðaðu þau
Bíldshöfða 20 - S.,81410-81199
Sýningahöllin - Ártúnshöfða