Dagblaðið - 30.06.1979, Side 8
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 1979.
Krossgáta
% GLbÐl e>NÍmmR HLÝTT kuED/ FlSk SÚG 5PILD- UR r ^ 1
'/ , 5 KOQJ
NúkKuD 'fíGDNá
úlFr tr'e! 6RRP- AR FRRmn ATt^ eyddur fíúófffí Ö6NI/V
'fíTT ViRDl FRúiN Sfl _ VONl>! -
6 fíN ENfí. <0 ÍO .
'fíR'fí 5 ÉoRSK. KRLVUR f
) /W' KHUPfl- TflSKflK 5 Æ/?^>
f t 2 EINS i J • ! s KflPP- NoúuR
ÖLVffO^ sbPflR SrtbR'D'Ð URlNN V
M'm Sfl/ri/v/ /Vöfl <— RPflLL PUKóflR FÉLfíá KE/nST FLVT,R UV/V
VinNUR SKÁk VE/D/R
TftLfí TÓN/U iLmfl
U/Y)HV£ RF/5 KflFF/ LfET/fí HRumft
HVfl 2> HftLL! ■ U > 5 TOR v£LD/
5 Pll< 1)OflNN 'fíVÖxT UR
l 7)U6- LEÚUR PúK/ . VfíRLfí :
KRopp RE/P/ ■ /fíflSfí F/RR
r) j
£/<K! PESSP Rflft ÚTT. 5 V/K fírr Qrk HLUTfí
HLUTfí HÆL- BEiH SunD FfíR!
A LPÐINN ÚP ELD FjfíLL1
KYTPU Kmif) LÆSfí IB'HS fJTHU&fl SKVETTfl *
» . HRÖWR STopp RR
A f K L EFSTuR FORfl OP
VDLfí tJqkh 5KÓLJ FERDfí MflioR &ORT ftR SKRIF fW/
VEHV 1 SKST. ÚTLl/i1
1 B'OLSTRfi h/VL>- HljoP
missfí A6fí
» SvflRRR TÓNN
TÍN- SLfl For- moÐ/R ->■ ATT
SftmrE. 1E/NS
r) TjÓN/d
HöFVfí FLÝT / R 5 Nj'o JiLoTfí
Kínverskir
skákmenn
V
sækjai
sig veðríð
— Larsen og Gligoric meðal
fórnarlamba á mótinu í Júgóslavíu
Um tilvist kínverskra skákmanna
vissi enginn hvítur maður fyrr en á
Ólympíumótinu í Buenos Aires í
fyrra. Þá slógu þeir ærlega í gegn,
eins og íslendingum er sjálfsagt enn í
fersku minni. íslenska sveitin átti því
,,óláni” að fagna að lenda gegn
þessari óþekktu stærð þegar í I.
umferð og fór hinar mestu hrakfarir
— tapaði 1—3. Reyndar lofuðu
stöður íslendinganna góðu lengi vel,
en með „kínverskum drottningar-
fórnum” og ýmsum öðrum töfra-
brögðum tókst þeim kinversku
að snúa töflunum sér í vil. Mesta
athygli vakti ósigur Guðmundar
Sigurjónssonar á 1. borði gegn Chi
Ching Hsuan, sem fróðir menn sögðu
fyrsta tap vestræns stórmeistara gegn
Kínverja. Hollenski stórmeistarinn
Donner gerði mikið grin að Guð-
mundi fyrir vikið. Hann iðraðist hins
vegar orða sinna, er hann nokkrum
dögum seinna lá kylliflatur fyrir
öðrum Kínverja og það i örfáum
teikjum!
Kappinn sem sigraði Guðmund var
meðal þátttakenda í hinu árlega
minningarmóti um Vidmar, en hann
varð fyrsti stórmeistari Júgóslava.
Mótið fór fram í tveimur borgum i
Júgóslavíu, Bled og Portoroz og af
16 þátttakendum voru 12 stórmeist-
arar. Góðkunningjar okkar íslend-
inga, Bent Larsen og Jan Timman
börðust um efsta sætið. — Útslita-
skákin var viðureign þeirra i síðustu
umferð. Larsen þurfti að vinna til að
hljóta hnossið, en honum brást boga-
listin. Skákinni lauk meðjafntefli og
Timman varð því efstur. Staða efstu
manna varð annars þessi:
1. Timman (Holland) 11 v. af 15
mögulegum. 2.—3. Larsen
(Danmörk) og Ribli (Ungverjaland)
10 v. 4. Tsjeskovsky (Sovétríkin) 9
1/2 v. 5. Marjanovic (Júgóslavía) 9 v.
Hinn kínverski vinur okkar fékk
aðeins 3 1/2 v. af 15 mögulegum, en
vann þó það afrek að leggja bæði
Larsen og Gligoric að velli. Skákstíll
Kínverja er mjög undarlegur. Haft er
eftir júgóslavneskum skákmeisturum
að taktískum hæfileikum þeirra sé
við brugðið. Hins vegar er þeirra
veikasta hlið að meta stöður rétt og
það kemur þeim ósjaldan í koll.
Það var einmitt á taktískan hátt,
sem Chi Ching Hsuan Iagði þá
Larsen og Gligoric að velli. Eins og
alkunna er birtir Larsen mjög sjaldan
tapskákir sinar, en hann gerði þó
undantekningu frá reglunni og birti
skák sína við Chi. Reyndar var gerð
stafsetningarbreyting í Kína ekki alls
fyrir löngu eins og komið hefur fram
í fréttum. Larsen skrifar því nú nafn
Kínverjans Qi Jinguan eða Ji
Jingxuan eftir atvikum. Ég kýs að
stafa þetta með gamla laginu, a.m.k.
á meðan Larsen er að ákveða sig!
En þá eru það skákir dagsins. Ég
get ekki stillt mig um að birta báðar
sigurskákirKínverjans.
Hvítt: Chi Ching Hsuan
Svart: Gligoric
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0—0 Be7 6. Bxc6
Einhverjum kemur þetta eflaust
Sýslunefnd A-Skaftafellssýslu:
Útlendingar sæti
eftirliti
„Útlendingar sæti eftirliti
löggæzlumanna þannig að þeir geti
ekki flutt jarðefni og aðra
náttúrugripi úr landi án sérstaks
leyfis.” Þannig segir meðal annars í
fréttatilkynningu er DB hefur borizt
frá sýslunefnd A-Skaftafellssýslu.
í fréttatilkynningunni er vakin
athygli á þeim stóraukna ferða-
mannastraumi, sem sé meðal annars
tilkominn vegna siglinga ferjunnar
Smyrils til íslands. Þá segir að
erlendir ferðamenn valdi náttúru-
spjöllum vegna þekkingarskorts
þeirra á íslenzkri náttúru. „Þess
vegna er því beint til Náttúruverndar-
ráðs og Rannsóknaráðs ríkisins, að
t.d. þeir aðilar sem fá rannsóknar-
leyfí fái i þeim nákvæm fyrirmæli um
hvernig þeir skuli haga störfum
sínum þannig að ekki komi til á-
troðnings og skemmda.” í lok til-
kynningarinnar segir svo:
„Rannsóknaráðsendi ljósrit af öllum
leyfum til löggæzluyfirvalda í
viðkomandi umdæmi. Náttúru-
verndarráðgefi út leiðbeiningarit sem
allir ferðamenn fái við komu sína til
landsins. Hópum útlendinga sé
óheimilt að ferðast *um landið án
leiðsagnar íslenzkra fararstjóra.”
-GAJ/VV, Hornafirði.
Hjálparstofnun kirkjunnar:
SKREK) TIL ZAIRE
„Þetta sýnir að íslendingar leggja
þó eitthvað af mörkum í sambandi
við flóttamannavandann i
heiminum,” sagði Guðmundur
Einarsson, framkvæmdastjóri
Hjálparstofnunar kirkjunnar, í
samtali við Dagblaðið en í gær var
verið að skipa út 10 tonnum af skreið
sem Lagarfoss átti að fara með til
Rotterdam. Þaðan átti skreiðin að
fara til Zaire. Utanríkisráðuneytinu
barst ekki alls fyrir löngu beiðni frá
Sameinuðu þjóðunum, þar sem
óskað var eftir aðstoð íslendinga
vegna 25 þúsund flóttamanna í Zaire.
Var óskað eftir að framlag íslendinga
yrði í formi mjólkurdufts.Utanríkis
ráðuneytið varpaði síðan boltanum
til Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Guðmundur Einarsson sagði að þar
sem ekki hefði reynzt hagkvæmt að
kaupa mjólkurduft hér á landi hefði
Hjálparstofnunin spurzt fyrir um
hvort skreið kæmi ekki að sömu
notum og reyndist svo vera. „Það
má segja að þetta sé nokkurt innlegg
í umræðuna um flóttamanna-
vandann,” sagði Guðmundur. -GAJ-