Dagblaðið - 30.06.1979, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ1979.
hluta landsins er verið að leggja nýja
járnbraut um hæstu hásléttu í heimi,
Qinghæ-Xizang (Tsinghæ-Tíbet). há-
sléttuna, sem að meðaltali er í meira
en 4.000 metra hæð. Fyrsti áfangi
þessa verks, brautin milli Hærgí og
Gólmúd í Qinghæ-fylki, var þegar
fullgerður einum mánuði á undan
áætlun. Önnur ný járnbraut, sem
verið er að leggja í Norðvestur-Kína,
liggur suður frá Túrpan til Kórala við
jaðar Takla Makan eyðimerkurinnar
í sjálfstjórnarhéraðinu Xinjíang
Úygúr. í fyrra lauk lagningu braut-
arteina á 310 kílómetra vegalengd af
hinni fyrirhuguðu heildarlengd, 476.
km.
1978 var lokið lagningu annarra
aðal- og hliðarbrauta og endurnýjun
níu brauta sem fyrir voru, eins og
áætlað hafði verið, svo og enda-
stöðvar fyrir viðgerðir og birgðir.
Vinnu miðar hratt áfram við að gera
tvíspora nokkrar línur, þar á meðal
hina 2.300 kílómetra löngu Beijing-
Gúangzhú járnbraut og línuna frá
Tíanjín (Tíentsín) í Norður-Kína til
Púkú á norðurbakka Tsangjíang-
fljóts(Jangtze).
Raf- og disilknúnir dráttarvagnar
verða í ríkum mæli notaðir á hinum
nýju og endurnýjuðu brautum.
Frá stofnun Kínverksa alþýðu-
lýðveldisins 1949 hafa alls verið
lagðar nýja járnbrautir að lengd allt
að 30.000 kílómetrum, auk þess sem
nokkrar línur hafa verið gerðar tví-
spora og lagðir margir hliðarspottar
til iðnaðarþarfaog skógtirbrautir. Sú
Nýja viðbótin er meira en helmingi
lengri en það sem lagt var á 73 árum,
frá 1876, þegar fyrst var lögð
járnbraut í Kína, til 1949. Nú hafa öll
fylki, allar sýslur og sjálfstjórnar-
héruð járnbrautasamband nema
sjálfstjórnarhéraðið Xízang (Tíbet)
en þangað er nú verið að leggja
járnbraut. Áður voru járnbrautir
aðallega í strandfylkjunum og norð-
austurfylkjunum.
Járnbrautir eru aðalsam-
göngutæki í Kína nú. Árið 1977
fluttu þær 59.1 prósent af öllum
vörum og 65.8 prósent af farþegum.
1978 var heildarflutningamarkinu
náð 33 dögum fyrir áætlaðan tíma.
Beijing-járnbrautastjórnin, sem
hefur með höndum einn sjötta af
vöruflutningum landsins, er nú að
vinna að endurbyggingu margra aðal-
járnbrauta í hennar umsjá. Síðast-
liðið ár varð það mesta aukning í
vöruflutningum síðan 1949, vegna
þess að beitt var vísindalegum
flutningaaðferðum.
Nýjar stórar járnbrautarstöðvar
hafa verið byggðar á nokkrum
stöðum til að auðvelda iðnaðarfram-
leiðslu, utanríkisverzlun og ferða-
mannaþjónustu, þar á meðal ein í
iðnaðarborginni Qiqíhar í Norðaust-
ur-Kina, ein í Tæan, fögrum stað í
Sjandong-fylki, og ein við Kæfeng,
forna borg i Mið-Kína.
11
TVOPERSONU-
LEGDÆMI
Kjallarinn
í grein, sem ég skrifaði í Dagblaðið
sagði ég frá þvi að margt fólk kæmi
að máli við mig og vildi rabba um eitt
og annað, sem ég hafði drepið á í
blaðinu.
Þetta er fólk sem stendur utan
flokkakjarna eða í jaðri þeirra og
þetta fólk veit að veruleikinn er ekki
svart-hvítur heldur samsettur úr
mörgum mismunandi þáttum. Þetta
fólk vill rökræða.
En það kemur líka annað fólk til
að tala við mig. Þetta fólk bendir mér
á að það sé óheiðarlegt að taka mál-
stað lítilmagnans í orði en nota svo
aðstöðu sína í mjög útbreiddu blaði
til þess að gagnrýna þær stofnanir
sem eru vist að berjast fyrir þennan
lítilmagna.
Þetta er að því leyti til rétt að ég
hef oft gagnrýnt verkalýðshreyfing-
una og þá flokka sem kallast verka-
lýðsflokkar. Þessir aðilaf hafa ekki
verið gagnrýndir opinberlega undan-
farin ár af öðrum en pólitiskum and-
stæðingum. Sú gagnrýni hefur ekki
byggst á öðru en skítkasti og rógi sem
kallað hefur á skynlaus viðbrögð.
Slíkt leiðir ekki til annars en einangr-
unar.
Verkalýðshreyfingin og flokkar
hennar eiga að vera undir heilbrigðu
og opnu aðhaldi almennings en ekki
'að vera einkafyrirtæki flokkseigénda
og fylgifiska þeirra sem reynslan
sýnir að hafa oftast þröng og stöðnuð
sjónarmið, sérstaklega þegar sömu
aðilar eru búnir að vera við stýrið um
áratuga skeið. Heiðarleg umræða
verður að mínu mati alltaf að vera í
gangi ef eðlileg þróun á að halda
áfram.
En þó að ég hafi gagnrýnt þessar
stofnanir þá hef ég að mestu látið
vera að gagnrýna blöð og önnur mál-
gögn þessara aðila og hef meira að
segja skrifað töluvert í þau með það
fyrir augum að reyna að vekja athygli
á augljósustu veilunum og benda á
"ýmsar hættur sem lítilmagninn
stendur frammi fyrir, ekki aðeins
hvað varðar kaup og ytri kjör, heldur
einnig og ekki síður um tilveruréttinn
sjálfan. Það mál er mun alvarlegra en
forustumennirnir virðast gera sér
grein fyrir.
Undanhald
án áætlunar
Þessi gagnrýni sem minnst var á
hefur verið á afar breiðum grunni og
ópersónuleg. Hún hefur nánast fjall-
að um það ástand fjölmennustu sam-
taka launafólks að geta verið í gangi
skipulagslega séð án þess að vera
raunverulega í tengslum við þá at-
burðarás sem orðið hefur á undan-
förnum árum.
Á meðan þeir sem ráða fjármagn-
inu hafa tæknivæðst í baráttunni og
hafa allt sitt á þurru á hverju sem
gengur, hefur verkalýðshreyfingin og
málgögn hennar hjakkað á gamalli
trúarjátningu sem samin var í upp-
hafi og ekkert hefur breyst síðan í
samræmi við síbreytilegar aðstæður.
Nú ætla ég að nefna tvö dæmi um
þetta og svolítið persónuleg.
Fyrra dæmið er um auglýsinguna.
Vinnuveitendasamband íslands hafði
um tíma fallið í þá gryfju að dragast
aftur úr í þeirri tæknivæðingu sem ég
minntist á. Þeir sátu uppi með fólk
sem hafði sömu eiginleika og verka-
lýðshreyfingin þekkir svo vel. Þetta
fólk var farið að standa starfseminni
fyrir þrifum. Það kunni einfaldlega
ekki að vinna í nútímaþjóðfélagi og
við núverandi aðstæður.
En atvinnurekendur vöknuðu i
tima og dældu nýju blóði í maskín-
una. Árangur þess hefur blasað við
undanfarið. Þeir aðilar sem nú
stjórna hjá Vinnuveitendasamband-
inu vita nákvæmlega hvað þeir eru að
gera og meta ástandið og aðstæð-
urnar af ísköldu raunsæi.
Þetta kom einkar vel í ljós þegar
tvær heilsíðu auglýsingar birtust frá
Vinnuveitendasambandinu. Þessar
auglýsingar voru meistarastykki frá
ýmsum sjónarhólum séð. Þær inni-
héldu ýmsar staðreyndir sem almenn-
ingur þarf að glíma við dag hvern. í
þeim var hins vegar ekki getið margra
þeirra orsaka sem þessar staðreyndir
byggjast á. Þarna var háður skæru-
hernaður í hæsta gæðaflokki.
En hvernig tók nú verkalýðs-
hreyfingin og málgögn hennar þess-
um nýju tiðindum úr herbúðum
Vinnuveitendasambandsins.
í stað þess að taka nú þessar marg-
nefndu auglýsingar og leysa þær upp
lið fyrir lið og tengja hvert atriði við
þróunina í peningamálum atvinnu-
rekenda undanfarin ár, þá stóðu
málgögn verkalýðshreyfingarinnar
þegjandi með opinn munninn þangað
til einhver húmoristi tók sér fyrir
hendur að snúa út úr auglýsingunum
og lagði þannig líkn með þraut i tap-
aðri orustu. Þessi skilyrðislausa upp-
gjöf segit afar stóra sögu.
Maður að nafni...
Hitt dæmið sem ég ætla að minn-
ast á er afdrif laga sem búið var að
semja, en döguðu uppi á alþingi í
lokahrinunni í vor.
Þó að þessi lög væru ekki mjög
stór i sniðunum, þá voru þau líklega
það merkilegasta sem fyrir síðasta
þingi lá. Mikilvægi þeirra lá þó ekki í
þeim breytingum sem þau hefðu haft
í þjóðfélaginu í bili, heldur í því að
þessi lög áttu að vera undanfari
stærri tíðinda sem meira en flest ann-
að myndu hafa áhrif á stöðu lítil-
magnans í þjóðfélaginu.
Þessi lög fjölluðu um það að þeir
sem eru nú réttindalausir hvað líf-
eyrisgreiðslur snertir, fengju rétt á
móts við þá aðra sem hafa einfaldan
rétt í lífeyrissjóðum landsins. Þetta
munu vera um 3—4 þúsund manns
og hvað þeim viðvikur er hér um að
ræða þá einföldu frumþörf að fá
mat.
Mikilvægi þessara laga fólst þó
ekki siður í því að þau voru fyrsta
skrefið til þess að leysa mesta vanda
hins almenna manns i þessu landi.
Þessi lög voru skref í átt til þess að
lífeyrissjóðavitleysan yrði lögð niður
og verðtryggður lífeyrissjóður kæmi
fyrir alla landsmenn gegn þvi að hús-
næðismál almennings yrðu leyst á
félagslegan og eðlilegan hátt í eitt
skipti fyrir öll.
Þetta litla lagafrumvarp dagaði
uppi á alþingi vegna tímaskorts. Það
var að minnsta kosti sú skýring sem
égfékk.
En hvernig stóð nú verkalýðshreyf-
ingin og málgögn hennar að því að
berja þetta mikla réttlætismál áfram.
Satt best að segja hefur ekki komið
fyrir augu mín eða eyru neitt sem
bendir til þess að þessir aðilar hafi
vitað um að þetta frumvarp væri yfir-
leitt i gangi. Þó birtist einu sinni ein-
dálka frétt i Þjóðviljanum en hún var
skrifuð á stofnanamáli og illskiljan-
leg.
Á meðan endalaus fíflalæti voru á.
dagskrá og utan dagskrár niður á Al-
þingi fram á síðasta dag þá var þetta
frumvarp jarðað í kyrrþey. Á meðan
þetta mál var látið gleymast hafði
Þjóðviljinn, málgagn launafólks,
áðallega tvö áhugamál sem tóku
stærsta hluta af pólitisku rúmi blaðs-
ins. Þessi brýnu pólitísku málefni
voru annars vegar klofningurinn í
Sjálfstæðisflokknum og svo maður
að nafni Hannes Hólmsteinn Giss-
Hrafn Sæmundsson
urarson, en þessi persóna virðist ein
þeirra sem fest hafa í ritvélum blaðs-
ins.
Þessar staðreyndir eru þyngri en
tárum taki.
Fornminjar
Þannig standa nú málin i hinni
eilífu glímu um skiptingu lifsgæð-
anna.
Hvorki verkalýðshreyfingin né
málgögn hennar virðast skilja það að
heimurinn hefur breyst.Að fjármago-
ið rennur nú eftir öðrum farvegi en
áður.
Hins vegar veit hver einasti með-
limur i Vinnuveitendasambandinu að
það eru yfirráðin yfir fjármagninu
sem skapa gróðann og ráða allri til-
færslunni en ekki eign þess. Okkar
ríkiskapítalismi er þannig öðruvísi en
viðast annars staðar.
Sú krónutölupólitik sem er svo
mikið trúaratriði hjá verkalýðshreyf-
ingunni tilheyrir ekki öðru en forn-
minjum á sögusafni hennar. Þetta
vita þeir sem vinna andlausustu og
óþrifalegustu skitverkin í þjóðfélag-
inu, átta klukkustundir á dag, fyrir
laun sem nema um 40 þúsund
krónumá iku.Nokkurn _>ginn sömu
upphæö og þaö kosiai að reka bif-
reið af ráðherragerð. Þetta vita þeir
einnig sem svelta áfram, vegna þess
að hluti alþingismanna setti upp
sirkus niður við Austurvöll í stað þess
að samþykkja lítil lög sem áttu að
gefa þeim brauð.
Hugmyndafræði er kannski góð,
en reynsla almennings núna er ekki
sú, að hægt sé að borða hana.
Fíflalæti alþingismanna eru kann-
ski skemmtileg, en sú skemmtun er
ekki niðurgreidd og kostar meira en
almenningur hefur efni á.
Hrafn Sæmundsson
prentari
aðstöðu sína í ríkisstjórn hverju sinni
til að efla kaupmáttinn sem mest og
vinna að öðru leyti með félagslegum
aðgerðum að stórfelldum umbótum á
hag vinnandi fólks. Þannig hefur
víða náðst afbragðs árangur, t.d. í
Vestur-Þýzkalandi.
Djúphugsuð stef na
Einars og Brynjólfs
Hérlendis er þessu á annan veg
farið, og er von til þess, að menn
hugleiði, hvað valda muni. Það er
fljótgert að gefa þá skýringu, að hér
hafi Alþýðuflokkurinn, allt frá því
að hann klofnaði 1938, ekki haft
styrk til að framkvæma þá ábyrgu
stefnu kaupmáttaraukningar í kjara-
málum sem bræðraflokkar hans í ná-
grannalöndunum hafa gert. En það
er aðeins hluti sögunnar. Meginskýr-
ingin er sú, að enn þann dag í dag er
allsráðandi í Alþýðubandalaginu, og
þar með innan öflugasta hluta laun-
þegasamtakanna, sú stefná, sem
Brynjólfur Bjarnason og Einar OI-
geirsson hugsuðu upp og ráku ásamt
verkalýðsforingjum sínum alla tíð.
Þar er ekki um að ræða stefnu kaup-
máttaraukningar (sem þeir félagar
nefndu raunar gjarnan ,,svik við
verkalýðinn”), heldur þvert á móti
stefnu hins verðlitla krónufjölda. Á
árum Einars og Brynjólfs háðu jafn-
aðarmenn og kommúnistar grimmi-
lega baráttu um fylgi launþega og
gera það auðvitað enn. Mikilvægt
vopn kommúnista í peirri baráttu
voru „yfirboðin” svokölluðu. í
kaupgjaldsbaráttunni reyndu þeir
jafnan að ganga a.m.k. einu eða
tveim skrefum lengra en jafnaðar-
menn og létu sig vitaskuld einu gilda,
þótt slík stefna leiddi alls ekki til
kaupmáttaraukningar. Hún hafði að
þeirra mati margs konar flokkslegan
ávinning í för með sér. Þeir gátu bent
á jafnaðarmenn sem „svikara”, sem
væru linir í baráttunni og mætti ekki
treysta. Þeir gátu barið sér á brjóst og
staðhæft, að þeir væru fremstu og
mestu baráttumenn launþega og ættu
þess vegna að njóta trausts þeirra. Og
síðast en ekki sízt á þennan veg var
unnt að kippa rekstrargrundvellinum
undan atvinnuvegunum og setja
þjóðfélagið á hvolf einu sinni eða
tvisvar á ári. Smám saman hlaut slíkt
að leiða til þeirra vandræða og upp-
lausnar, að ekki yrði við neitt ráðið,
samtímis þvi, sem veldi kommúnista
yrði þá meira en nokkru sinni fyrr.
Og þá gæti tími valdatökunnar verið
kominn. Eftir það yrði verkalýðs-
félögunum breytt i íþróttafélög að
austantjaldssið.
Kunnara er en frá þurfi að segja,
að í gullæði stríðs- og eftirstriðsár-
anna hlaut stefna kommúnista mik-
inn stuðning, langt út fyrir þeirra
raðir, meðal annars hjá miklum
fjölda ábyrgðarlítilla eignamanna,
sem með margvíslegum hætti studdu
hina kommúnísku verðþenslustefnu,
sjálfum sér i hag. Því þegjandi
bandalagi hefur verið veitt miklu
minni athygli en verðugt hefði verið.
Stefna hins verðlitla
krónufjölda hefur
ráðið ferðinni
Þegar nú er litazt um í þjóðfélag-
inu verður ekki annað sagt en hin
kommúníska stefna verðlítils krónu-
fjölda hafi borið mikinn flokkslegan
ávöxt. Að sama skapi hefur hin
ábyrga stefna jafnaðarmanna um
raunhæfa kaupináttaraukningu og
félagslegar umbætur borið of lítinn
ávöxt, þótt stundum hafi nokkuð
áunnizt, t.d. á viðreisnarárunum.
Sennielga hefur hún fengið vaxandi
viðurkenningu og aukinn hljóm-
grunn, þegar yfir lengri tíma er litið.
Samt hefur hún löngum orðið að láta
í minni pokann, m.a. þegar laun-
þegaforingjar kommúnista og sjálf-
stæðismanna hafa snúið bökum
Kjallarinn
Sigurður E.
Guðmundsson
saman eða þegar verkalýðsfélög
undir stjórn sjálfstæðismanna hafa á
vinstristjórnarárum tekið upp hina
óábyrgu stefnu verðlitils krónu-
fjölda.
Það fylgir svo að sjálfsögðu þess-
ari sögu, að þótt kostir hinnar
kommúnísku stefnu um verðlítinn
krónufjölda séu yfirgnæfandi,
flokkslega séð að mati Alþýðubanda-
lagsins, hlutu nokkrir ókostir vita-
skuld að fylgja. Þeir eru helztir, að
þegar flokkurinn er aðili að ríkis-
stjórn, lendir hann í þvi að þurfa að
snúast gegn þeirri þróun, sem hann
hefur sjálfur upp vakið og haldið
gangandi. En foringjarnir hafa ætíð
gert sér grein fyrir því, að hvort-
tveggja er, að það er ekki oft sem
flokkurinn er í ríkisstjórn, og eins
hitt, að umsamda baráttu gegn verð-
og launakapphlaupi er þá hægt að
reka með hangandi hendi eða jafnvcl
snúast gegn henni I reynd, eins og
menn hafa raunar séð undanfarið.
Svo má lika alltaf kenna öðrum um.
Eitt er að vilja og
annað að vera
A undanförnum árum hafa komm-
únistar margsinnis reynt að koma því
inn hjá almenningi, að i rauninni
væru þeir jafnaðarmenn, aðeins tals-
vert harðari og róttækari en Alþýðu-
flokkurinn. Ekki er að efa, að margir
flokksmenn Alþýðubandalagsins
hafa talið sér trú um þetta, og senni-
lega er þetta viðhorf ríkt meðal al-
mennings. En eitt er að vilja og ann-
að að vera. Hvað sem lögum og
stefnuskrá flokksins líður, eru margir
þættir i starfsemi hans svo kommún-
ískir og rætur hans og þeirra enn svo
djúpar í liðnu starfi Kommúnista-
flokks íslands og Sósíalistaflokksins
sáluga, að því miður verður hann enn
ekki talinn annað en kommúnista-
flokkur.
Hér hefur verið reynt að skýra
grunninn í einum mikilvægasta þætti
starfsemi hans, en með sama hætti
mætti greina marga fleiri.
Sigurður E. Guðmundsson
framkvæmdastjóri
Stefna Brynjólfs og Einars ræöur enn
feröinni í Alþýðubandalaginu.