Dagblaðið - 30.06.1979, Blaðsíða 24
Hæf ileikakeppni DB og hl jómsveitar Birgis Gunnlaugssonar:
BIRGIR ÍSLEIFUR RÆÐUR
TÓNLISHNNIANNAÐ KVÖLD
Birgir ísleifur Gunnarsson borgar-
fulltrúi og jassaðdáandi fær heið-
urinn af því að velja hálftíma
prógramm fyrir hljómsveit Birgis
Gunnlaugssonar á hæfileika-
Kolbrún Sveinbjörnsdútllr og Evelyn Adolfs-
dóttir frá Grlndavík komu, sáu og sigruðu I fyrstu
atrennu hœfileikakeppui Dagblaösins og hljóm-
sveilar Birgis Gunniaugssonar. Sérstaklcga gerði
bragur þeirra um „íshússmellumar" í Gríndavík
mikla lukku. Hér eru þær ásamt Birgi Gunnlaugs-
syni hljómsveitarstjóra sem átli hugmyndina að
hæfileikakeppninni og hefur allan veg og vanda
afhcnni. DB-mynd Hörður Vilhjáímsson.
keppninni að Hótel Sögu á sunnu-
dagskvöldið. Auk þess leika
keppendurnir þrír listir sínar og
Dansflokkur JSB kemur í heimsókn.
— Það er annar riðill hæfileika-
keppninnar sem fer fram á
sunnudagskvöldið.
Þeir sem reyna með sér á
hæfileikasviðinu að þessu sinni bjóða
upp á fjölbreytilegar kúnstir. Laga-
höfundurinn, Geir Björnsson frá
Höfn í Hornafirði, syngur eigin lög
og leikur með á gítar. Grétar Hjalta-
son, eftirherma frá Reykjavík, fær
nokkra kunna menn til að segja vel
valin orð og Bragi Henningsson
ætlar að sýna listir s'mar á hjóli, ekki
þó þríhjóli eða tvíhjóli, heldur
einhjóli.
Nokkrir byrjunarörðugleikar
urðu á fyrsta keppniskvöldinu síðasta
sunnudag. Því hefur nú væntanlega
verið kippt í lag. Um það bil tvö
hundruð áhorfendur komu til að
fylgjast með keppninni. Þar komu
fram þrjú atriði sem áhorfendur
dæma um. Sigurvegarar urðu
þær Evelyn Adolfsdóttir og Kolbrún
Sveinbjörnsdóttir frá Grindavík. Þær
áttu greinilega hug og hjörtu áhorf-
enda því að þær hlutu hvorki meira
né minna en þrjá fjórðu hluta
greiddra atkvæða. Sérstaklega gerði
bragur þeirra um „íshúss-
meliurnar” í Grindavík góða lukku.
Að sögn Birgis Gunnlaugssonar
hljómsveitarstjóra má búast við því
að jasstónlist skipi nokkurn sess á
hæfileikakeppninni annað kvöld.
Fyrst og fremst er Birgir ísleifur
Gunnarsson mikill jassáhugamaður
og lætur áreiðanlega ekki uppáhalds-
tónlistina sína vanta á lagalistann.
í hljómsveit Birgis Gunnlaugsson-
ar eru nokkrir af kunnustu jassleikur
um landsins sem alltaf eru til í að láta
gamminn geisa. Meðal laga sem
heyrast annað kvöld verðaTake Five,
sem Dave Brubeck kvartettinn gerði
ódauðlegt með flutningi sínum, og
einnig ædar hljómsveitin að endur-
taka Sverðdansinn frá síðasta
sunnudagskvöldi vegna fjölda á-
skorana.
Fjöldi einstaklinga og hópa hefur
látið skrá sig í hæfUeikakeppni Dag-
blaðsins og hljómsveitar Birgis
Gunnlaugssonar. Þó er enn hægt að
bæta við atriðum á nokkur kvöld.
Skráning keppenda fer fram í síma
77616 í dag, á morguii og næstu
kvöld þar á eftir. Þar eru einnig veitt-
. ar allar nánari upplýsingar um
keppnina.
Sigurvegari hvers sunnudags-
kvölds fær að launum máltíð fyrir
tvo í Grillinu á Hótel Sögu. Sigurveg-
arar sumarsins koma síðan allir
saman á lokakvöldinu í september og
keppa til úrslita. Sá sem hlut-
skarpastur verður hlýtur að launum
hálfs mánaðar sólarlandaferð að
verðmæti um 240 þúsund krónur.
Auk þess hlýtur hann 100 þúsund
krónur í vasapeninga. — Mikið skal
til mikils vinna.
-ÁT-
HÚSBRUNIVIÐ
LANGAVATN
Sumarbústaður við Langavatn
brann um miðjan dag i gær. Stóðu log-
arnir út úr þakinu er DB-menn bar að
og skömmu seinna féll þakið. Eigandi
hússins, Sigurður Bjarnason, áttatíu og
tveggja ára gamall, horfði á húsið
brenna úr fjarska. Kvaðst hann hafa
kveikt upp í arninum og síðan farið út á
tún að laga til. Varð honum síðan litið
heim að húsinu og sá þá reyk leggja frá
þvi. Reyndi hann að slökkva eldinn
sjálfur en án árangurs og sviðnaði hár
hans talsvert við það. Sigurður flutti
hús þetta úr Blesugrófmni fyrir tuttugu
og fimm árum og hefur dvalið þar í
tómstundum undanfarin ár, m.a. haft
þar hesta í útihúsi. -BH.
Slökkviliðsmanninum var orðið illilega heitt í baráttunni við eldinn við Langavatn í gær og brá á það ráð að beina vænni gusu undir hjálmbarðið og kæla sig þannig i
framan. A minni myndinni má sjá eiganda hússins, Sigurð Bjarnason, horfa á slökkvi starfið. DB-myndir Ragnar Th.
Ferðaskrif stof ukóngamir bítast:
INGOLFIÞYKIR HART
AB FJÁRMAGNA SAM-
KEPPNIFRÁ GUBNA
—Talið að Sunna skuldi Útsýn 10 milljónir kr.—„Sunna hefur staðið við
greiðslur til Útsýnar”—segir Guðni Þórðarson
Ferðaskrifstofurnar Sunna og Út-
sýn hafa að undanförnu haft með sér
nokkra samvinnu í leiguflugi til út-
landa. Sjá ferðaskrifstofurnar hvor
annarri fyrir ákveðnum sætafjölda í
leiguflugi sín á hvorn staðinn, sem þá
aðeins önnur hvor þeirra flýgurá.
Eftir heimildum sem Dagblaðið
telur áreiðanlegar mun ferðaskrif-
stofunni Sunnu hins vegar hafa geng-
ið erfiðlega að inna af hendi greiðslur
til ferðaskrifstofunnar Útsýnar fyrir
sæti sem Sunna hefur keypt af þeim.
í samtali við DB í gær sagði Guðni
Þórðarson, forstjóri ferðaskrif-
stofunnar Sunnu hins vegar að Sunna
hafi staðið við allar sínar skuld-
bindingar og að Sunna hafi staðið við
þær greiðslur er henni bar að inna af
hendi við Útsýn að því er hann vissi
bezt.
Upphæðir þær er DB hefur hlerað
að Sunna eigi óuppgerðar við Útsýn
eru 10 milljónir og muni ferðaskrif-
stofukóngarnir Ingólfur og Guðni
hittast á mánudag til að gera upp
reikning Sunnu hjá Útsýn, því Ingólfi
mun þykja hart að þurfa að fjár-
magna samkeppnina við sjálfan sig.
-BH.
frjálst, nháð dagblað
LAUGARDAGUR 30. JÚNt 1979.
Keflavíkurflugvöllur:
Nýrflug-
tum tekinn
í notkun
— Bandaríkjamenn
borga brúsann
— útgjöld þeirra
talin nema um
hálfum milljarði
Nýr flugturn verður tekinn formlega
í notkun á Keflavíkurflugvelli á
mánudag. Athöfnin hefst kl. 14 og
verða viðstaddir Benedikt Gröndal
utanríkisráðherra og Richard A.
Erikson sendiherra Bandaríkjanna á
íslandi.
í viðtali við Hannes Guðmundsson
fulltrúa í varnarmáladeild kom fram að
Bandaríkjamenn hafa kostaðgerð flug-
turnsins að mestu leyti. Ekki gat
,Hanne.s þó upplýst hve kostnaður við
flugturnsgerðina er mikill.
Samkvæmt upplýsingum sem Dag-
blaðið hefur aflað sér nemur útlagður
kostnaður Bandaríkjamanna vegna
smíði flugturnsins 1.5 milljón Banda-
ríkjadollara eða rúmlega hálfum
milljarði íslenzkra króna. -JH.
Vandi Flugleiða:
Allt sölukerf ið
í endurskoðun
Hvað kostar að selja hvern far-
miða með vélum Flugleiða? Þetta er
ein þeirra spurninga sem stjórnendur
fyrirtækisins velta fyrir sér þessa dag-
ana. Er rétt að vera með allar þessar
söluskrifstofur í Evrópu? Helsinki,
Kaupmannahöfn, tveir staðir í Sví-
þjóð, Osló, Glasgow, Brússel,
Amsterdam, Frankfurt, Hamborg,
Luxemburg, Dússeldorf, London,
Vín, tveir staðir í Frakklandi, Ítalía
og Sviss.
Allir þessir staðir eru i athugun og
stjórnendur Flugleiða vinna nú að því,
að kanna kostnað við að selja far-
miða félagsins. í því sambandi hefur
vaknað sú spurning hvort kannski sé
ódýrara að selja miðana hjá almenn-
um ferðaskrifstofum heldur en í sölu-
skrifstofum Flugleiða víðs vegar um
ísland og heiminn. Þetta munu
meðal annars vera þau mál sem
stjórnendur Flugleiða hyggjast skoða
niður í kjölinn á næstu vikum.
- ÓG
Skemmdimará
Kröfluvirkjun:
Tjónið enn
ekki metið
,,Það hafa ekki verið áætlaðar
neinar tölur varðandi kostnað vegna
skemmdanna á túrbínunni í
Kröfluvirkjun,”sagði Páll Fjygenring
ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðúneytinu.
„Ráðuneytið bíður nú eftir frekari
fréttum af málinu frá Einari Tjörva
Elíassyni yfirverkfræðingi við
Kröfluvirkjun og á meðan er ekkert
hægt að segja um kostnaðinn.”
-JH.