Dagblaðið - 28.07.1979, Side 3

Dagblaðið - 28.07.1979, Side 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ1979. 3 Simtöl til og frá Islandi þykja óeðlilega dýr. p ^ OPINBERA RANNSOKN Á NY- LENDUSTEFNU STÓRA NOR- RÆNA RITSÍMAFÉLAGSINS ÓÓ hringdi: Þær upplýsingar, sem fram hafa komið í fréttaaukum útvarpsins um nýlendustefnu Stóra norræna rit- símafélagsins á íslandi, hljóta að verða til þess að samgöngumála- ráðherra, Ragnar Arnalds, láti fara fram ítarlega rannsókn og kynni niðurstöðurnar íslenzkum al- menningi. Það kom fram í útvarpinu að þriggja mínútna samtal frá New York til Reykjavíkur kostar 3504 krónur, en jafnlangt samtai frá Reykjavík til New York kostar um tvö þúsund krónum meira eða 5400 krónur. Það kom líka fram í útvarpinu að það kostar nærri þrisvar sinnum meira að hringja til Reykjavíkur frá New York en til Lundúna, helmingi meira en að hringja til Kaupmannahafnar og þriðjungi nteira að hringja frá New York til Reykjavíkur en frá New York til Moskvu. Það sér auðvitað hver heilvita maður að þetta nær ekki nokkurri átt. Við skattborgarar viljum fá skýringar. Eru hér einhverjir maðkar i mysunni? Til að fá úr þessu skorið hlýtur opinber rannsókn að fara fram. Hver þátturinn öðrum betri Útvarpið í dag og kvöld: Haldið verði áf ram á þessari braut JPskrifar: Misjafnt er álit manna á útvaips- dagskránni. Ég er í hópi þeirra sem tel að hún hafi farið batnandi að und- anförnu. Þó finnst mér of mikið um þunga tónlist og tel ég það undarlegt þegar haft er i huga að hlustenda- könnun útvarpsins leiddi í Ijós að nær ekkert er hlustað á slíkt efni. Fólk vill fremur hlusta á sinfóniur og þess kyns tónlist í góðum stereó- hljómflutningstækjum. En það var reyndar ætlunin að hrósa dagskrá útvarpsins fyrir laug- ardaginn 28. júlí. Þann dag virðist meiri hluti dagskrárinnar vera svo vandaður að ég á bókstaflega eftir að sitja fyrir framan útvarpstækið. Fyrst vil ég nefna Óskalög sjúklinga kl. hálftiu sem Ása Finnsdóttir stjórnar afbragðs vel. Á eftir þættinum er lesin saga sem mér virðist spennandi og ég ætla að hlusta á. Eftir hádegi er svo þátturinn í vikulokin, sem ég sleppi aldrei. Er hann að mínum dómi eitthvert bezta efni útvarpsins. Klukkan tæplega hálf fimm er Vignir Sveinsson með Vinsælustu popplögin og þar á eftir er Tónhorn Guðrúnar Birnu Hannes- dóttur. Ekki læt ég þá þætti fara fram hjá mér, né heldur söngva i létt- Ása Finnsdóttir stjórnar Óskalögum sjúklinga afbragös vel, segir bréf- ritari. um dúr kl. 17.50. Eftir kvöldmat hlustar maður á söguna um góða dátann Svejk og ef maður er ekki í stuði til að bregða séi á ball eða út úr húsi þá liggur næst við að hlusta á Kvöldljóð Ásgeirs Tómassonar og Helga Péturssonar. Og Ristum þeirra Hróbjarts og Há- vars vil ég ekki missa af, né heldur Hlöðuballi Jónatans Garðarssonar. Ég hef líka nokkrum sinnum hlustað á kvöldsöguna, Grand Babylon hótelið, í fínum lestri Þor- steins Hannessonar og þykir hún góð. Hafi útvarpið þökk fyrir og haldi áfram á þessari braut. KV ARTMjyij Fyrri dagur: KEPPNI Miðsumarkeppni Kvart- míluklúbbsins verður haldin á braut klúbbsins v/Straumsvik laugardag- inn 28. júli og sunnu- daginn 29. júlí. Forkeppni hefst kl. 4. Seinni dagur: Aðalkeppni hefst kl. 2. Meðal keppenda verða: Biggi bjalla ó Grænu pöddunni Leifur Rosenbergs ú 350 Vegunni Páll V-áttundi á Pústmann Pintónum Kristinn Ólafsson á Grœna hraðsuðukatlinum örvar Sigurðsson á 454 Camaronum Olafur Grétarsson, á Kawasaki S1000 Harry Hólmgeirsson á 307 Camarónum aukallahinna Þá munu kvartmílingar bregöa á leik og m.a. mun Pálmi Helgason reyna að reykspóla upp einu setti af breiðum dekkjum. stjómin. Spurning dagsins Hlustar þú á klassíska tónlist í útvarpi? Margrét Reynisdóttir húsmóðir: Nei, frekar lítið, ég hef bara engan áhuga fyrir henni. Ásta Þórhallsdóttir húsmóðir Hvammstanga: Mjög lítið, kannski helzt þegar ég er á ferðalögum. I.aufey Sigurðardóttir húsmóðir: Nci ég hef engan áhuga fyrir klassískri tónlist. Birgir Þorvaldsson erindrcki: Nei, það geri ég aldrei. Kristín Valdimarsdóttir kennari og hús- móðir: Stundum þegar hún er fyrir hendi, þá hlusta ég oftast. Jóhann Gunnar Sigurðsson járn- smiður: Já, yfirleitt. Ég hlusta nær eingöngu á klassiska tónlist.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.