Dagblaðið - 28.07.1979, Side 4
4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1979.
GJALDÞROTINTER NESCO
—skuldimar skildar eftir í Noregi og starfsemin flutttll Svíþjóðar
Eigendur hljómtækjaverzlunar-
innar Nesco eru nú að reka endahnút-
inn á að opna fyrirtæki í Svíþjóð þar
sem seld verða Marantz hljómtæki
yfir til Noregs.
Fyrir rúmum tveimur árum opn-
uðu Nescomenn fyrirtæki í Noregi
sem hét Inter Nesco. Þeir fluttu inn
hijómtæki frá Formósu, en þar sem
ekkert stjórnmálasamband er á milli
Noregs og Formósu taldist innflutn-
ingurinn ólöglegur. Inter Nesco var
gefinn kostur á að endursenda tækin
sem þeir gerðu.
Tækin komu síðan aftur með
bandarisku framleiðslumerki. Fyrir-
tækið hafði hlaðið upp skuldum
og bar sig ekki lengur. Var því fyrir-
tækinu lokað fyrir nokkrum mánuð-
um þar sem það var gjaldþrota.Varð
það úr að Nescomenn fluttu sig yfir
til Svíþjóðar, en létu skuldirnar eiga'
sig í Noregi. Eftir því sem DB veit
bezt skrifuðu norsk blöð um þetta
mál og kölluðu þaðglæpamál.
DB hafði samband við forstjóra
Nesco, Óla Anton Bieltvedt, og
spurðist fyrir um málið. Óli sagði að
þetta væri langt og umfangsmikið
mál og þar sem hann væri nýkominn
að utan og væri að fara aftur, mætti
hann ekki vera að því að tala um
málið núna, en lofaði öllum upplýs-
ingum í september.
Óli sagði jafnframt að hann væri
að fara utan til að ganga frá málum
varðandi fyrirtækið í Svíþjóð og
hefði jafnvel komið til greina að
stofna fyrirtæki í Finnlandi og Dan-
mörku.
Jafnframt hefur það heyrzt að
Nesco hafi hug á því að stofnsetja
fyrirtæki hér þar sem framleidd yrðu
Marantztæki. Er þar væntanlega um
samsetningu á tækjunum að ræða.
Óli vildi ekki tjá sig um það mál en
sagði að ákveðið væri að því yrði
haldiðleyndu fyrst um sinn.
Varðandi Inter Nesco i Noregi
sagði Óli að þegar fyrirtækið hafi
verið stofnað fyrir tveimur árum hafi
verið miklir rekstrarerfiðleikar hjá
norska fyrirtækinu Tandberg, sem er
að því er Óli sagði þjóðarstolt
Noregs. Hafi allur innflutningur
verið stöðvaður á erlendum hljóm-
tækjum vegna þessa og því hafi Inter
Nesco ekkiborið sig.
Hjá öðrum fyrirtækjum hér á
landi sem flytja inn hljómtæki var
alls staðar sama svarið, innfiutningur
hefur aldrei verið stöðvaður á erlend-
um hljómtækjum í Noregi.
- ELA
Eyrarbakki:
Merkja fótbolta-
völlinn með salti
úr frystihúsinu
„Við eigum að keppa við fótbolta-
félagið Baldur í Hraungerðishreppi í
kvöld og við erum að fara að merkja
fótboltavöllinn,” sögðu þeir Júlíus
Emilsson, 10 ára, og Guðmundúr
Grétarsson, 9 ára, er DB-mennhiUu þá
á aðalgötunni á Eyrarbakka í sól og
blíðskaparveðri sl. föstudag.
Knattspyrnuvöllurinn uppfyllir
kannski ekki ströngustu skilyrði sem
gerð eru til knattspyrnuvalla enda ein-
ungis um að ræða nokkuð sléttan gras-
bala sem nýttur hefur verið á þennan
hátt. En strákarnir á Eyrarbakka setja
það ekki fyrir sig og æfa knattspyrnuna
af kappi.
„Við fengum þetta salt í frystihúsinu
og við notum það til að merkja völlinn.
Leikurinn í kvöld er í Skarphéðinsmót-
inu. Við erum búnir að spila tvo leiki.
Fyrst gerðum við jafntefli við Þorláks-
höfn, 1-1, og síðan unnum við Hvera-
gerði 3-1 og við ætlum að vinna leikinn
í kvöld,” sögðu þeir Júlíus og Guð-
mundur.
-GAJ
LARSEN
ÓÁKVEDINN
Hinn góðkunni danski stórmeistari
Bent Larsen hefur tjáð Skáksambandi
Íslands, að hann vilji bíða fram yfir
millisvæðamótið í sept./okt. með að
svara boði þess og Taflfélags Reykja-
víkur um að tefla í Reykjavíkurskák-
mótinu næsta vetur. Vill hann engar
akvarðanir taka um þátttöku í mótum
á næsta ári, fyrr en séð er, hvort hann
kemst áfram í áskorendaeinvíginu. Þó
kveðst hann ætíð með ánægju munu
tefla á íslandi þegar hann geti komið
því við.
Á millisvæðamótinu i Jurmala,
Sovétríkjunum, mun Larsen m.a. eiga í
höggi við fjóra stórmeistara, sem
kepptu hér á landi í fyrra eða þá Hort,
Miles, Polugajevski og Kuzmin, en auk
þeirra Tal, Ljubojevic, Kavalek, Ribli
o.fl. Mótið hefst 4. sept. og lýkur 4.
okt.
-GAJ
Sr. Þórsteinn kosinn íMiklabæ
Prestskosning fór fram í Mikla-
bæjarprestakalli í Skagafirði 22. júní
síðastliðinn.
Umsækjandi vareinn, séra Þórsteinn
Ragnarsson settur prestur þar. At-
kvæði voru talin á skrifstofu biskups í
gærmorgun.
Á kjörskrá voru 212. Atkvæði
greiddi 151 og hlaut umsækjandi 146
atkvæði. Auðir seðlar voru 5. Kosning-
in var lögmæt.
-GAJ
Hitaveitustríðið íSmálöndum:
Annar undirskrifta
listi til borgarráðs
Ibúar I Smálöndum sýndu DB-mönnum umrótið og hitaveituskurðina f hverfinu á dögunum. Heita vatnið á að renna fram hjá
húsveggjum án þess að fbúar hverfisins fái að njóta þess.
DB-mynd Árni Páll
íbúar í Smálandahverfi í Reykjavík
hafa lengi staðið í stríði við borgaryfir-
völd um hitaveituréttindi, eins og skýrt
var frá í blaðinu 10. júlí sl. Engin hita-
veita liggur í húsin í Smálöndum og er
því borið við að hverfið sé utan skipu-
lagðra svæða borgarinnar. Smálend-
ingum finnst að vonum súrt i brotið að
þurfa að búa við olíukyndingu á síð-
ustu og verstu tímum olíukreppunnar.
Að auki er verið að leggja hitaveitu-
æðar á milli húsa hjá þeim til Reykja-
víkur. Smálendingar verða því að
hoppa yfir opna hitaveituskurði til að
komast á milli olíukyntra húsa sinna!
í haust sendu Smálendingar borgar-
ráði undirskrifaða kröfu um að fá hita-
veitu í húsin og stóð í bréfaskrjftum og
viðtölum um múlið í vetur. Nú nýverið
sendu þeir annan undirskriftalista til
borgaryfirvalda til að leggja áherzlu á
kröfur sínar. Verður erindið lagt fyrir
borgarráðsfund á þriðjudaginn.
- ARH
Nýi sparisjóðurinn:
Þátttaka öllum heimil
— félagsmálaf löturinn snar þáttur í stof nun
Stuðningur við baráttuna gegn
áfengisbölinu er eitt þeirra mark-
miða, sem væntanlegur nýr spari-
sjóður hyggst vinna að. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu, sem undir-
búningsnefnd að stofnun sparisjóðs-
ins sendi fjölmiðlum í gær.
Þátttaka í stofnun sparisjóðsins er
öllum heimil, enda skuldbindi stofn-
félagar sig til að greiða kr. 100 þús-
und sem stofnframlag. Er gert ráð
fyrir að það framlag verði greitt inn-
an þriggja mánaða frá því að banka-
málaráðherra veitir leyfi til stofnunar'
sparisjóðsins.
Þá er gert ráð fyrir því, að stofn-
félagar stofni auk þess vaxtaauka-
reikning, þegar hann tekur til starfa
en þó með jöfnum greiðslum þess
fjár fyrsta starfsárið.
Aðstoðin við þá sem takast á við
áfengisbölið er meðal annars hugsuð
þannig, að þeim verði veitt lán.
Reynslan hefur sýnt, að erfiður fjár-
hagur er nær alltaf fastur fylgifiskur
áfengisvandamála einstaklinga.
Þá er gert ráð fyrir námslánum sem
verði veitt eftir því sem þau sam-
ræmast tilgangi sparisjóðsins.
Loks er þess getið, að lánafyrir-
greiðsla verði veitt í því skyni að
fjölga atvinnutækifærum fyrir alkó-
hólista, sem eru orðnir frambærilegt
vinnuafl.
Samkvæmt drögum að samþykkt-
um sparisjóðsins skal þessi starfsemi
fara fram á grundvelli góðra við-
skiptahátta, þannig að afkomu spari-
sjóðsins verði ekki stofnað í hættu.
Geta hans til að sinna almennri þjón-
ustu við aðra viðskiptavini verði ekki
skert af þeim sökum.
Eins og fram kom i frétt DB í gær
er gert ráð fyrir því, að sparisjóður-
inn starfræki sérstaka upplýsinga-
miðlun og ráðgjöf fyrir þá fjöl-
mörgu, sem erfiðlega gengur að ná
áttum í fjármálakerfi nútímaþjóð-
félags. Þarna eru ekki hvað sízt
hafðir í huga aldraðir og sjúkir.
Starfsemi sparisjóðsins er fyrst og
fremst miðuð við allt höfuðborgar-
svæðið. Er söfnun stofnfélaga nú að
hefjast. Verður fljótlega auglýst hvar
listar liggja frammi fyrir þá, sem vilja
gerast stofnfélagar. Auk þess er hægt
að skrá sig hjá þeim, sem í undirbún-
ingsnefndinni eru. Þeir eru: Albert
Guðmundsson alþingismaður, Árni
Gunnarsson alþingismaður, Baldur
Guðlaugsson hdl., Björgólfur Guð-
mundssón forstjóri, Ewald Bernd-
sen forstöðumaður, Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður Verka-
mannasambands íslands, Guðmund-
ur G. Þórarinsson verkfræðingur,
Hilmar Helgason stórkaupmaður,
Jóhanrta Sigurðardóttir alþingis-
maður, Lúðvíg Hjálmtýsson fram-
kvæmdastjóri, Pétur Sigurðsson,
formaður Sjómannadagsráðs,
Ragnar Júlíusson skólastjóri, Sveinn
Grétar Jónsson verzlunarmaður og
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fram-
kvæmdastjóri.
Stefnt er að því, að stofnfundur
sparisjóðsins verði haldinn fyrir lok
ágústmánaðar. . jjg