Dagblaðið - 28.07.1979, Side 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1979.
5
Ólafsvakan íFæreyjum um helgina:
„Nú verur stuttligt í Fóroyum”
Nú um helgina er líf og fjör í Fær-
eyjum, eða eins og Færeyingar orða
það: „Nú verur stuttligt i Föroyum”.
Ólafsvakan er haldin hátíðleg í Þórs-
höfn og þangað flykkjast landsmenn
til gleðskapar. 29. júlí er hinn eini og
sanni Ólafsvökudagur, þjóðhátíðar-
dagur Færeyja og kenndur við Ólaf
helga Noregskonung, sem féll í bar-
daga á Stiklastöðum í Noregi árið
1030. Lengi vel var Ólafsvakan alvar-
leg minningarhátíð, en nú er hún
skemmti- og gleðihátíð.
„Mörgum Færeyingum finnst
Ólafsvakan orðin hálfgerð túrista-
hátíð, enda streyma erlendir ferða-
menn til eyjanna til að taka þátt í
vökunni,” segir Anfinn Jensen, Fær-
eyingur sem búsettur er í Kópavogi.
„Það má líkja Ólafsvökunni á
margan hátt við þjóðhátíð Vest-
mannaeyinga. Þetta er aðalvið-
burður ársins í þjóðlifinu, sérstak-
lega er vel séð ef 28. og 29. júlí ber
upp á virka daga öðru hvoru megin
við helgi. Þá lengist glensið og gam-
anið mikið!
í dag er hátíðin sett á torginu í
Þórshöfn, síðan eru ræðuhöld,
söngur og hljóðfærasláttur. Einnig
eru íþróttir stundaðar, og þá helzt
þjóðariþróttin, kappróðurinn. Og
svo er dansað baki brotnu fram á
morgun. f Sjónleikarahúsinu dansa
menn færeyskan hringdans og eftir
að því lýkur dansa menn á götum og
torgum.
Á Ólafsvökudag, 29. júlí, kemur
Lögþingið saman og lögmaðurinn
flytur ræðu. Annars er dagskráin lík
og fyrri daginn, íþróttir, leikir og
tíans.”
‘Menn gera sér væntanlega daga-
mun í mat og drykk?
„Já, já.hvortþeirgera! f húsumer
standandi borðhald 24 tíma á sólar-
hring á meðan Ólafsvaka varir. Fólk
fer í heimsóknir og gleðskapurinn er
almennur. Allir taka þátt í Ólafsvöku
— hver á sinn hátt. Trúflokkarnir
reyna að bjarga sökkvandi sálum frá
glötun og standa fyrir prédikunum á
hverju götuhomi í miðbænum!
Það eru alltaf margir fslendingar
sem taka þátt í Ólafsvökugleðskapn-
um, sumir koma gagngert til Færeyja
á vökuna. Mér finnst þeim tekið á
annan hátt en öðrum útlendingum,
það er síður litið á þá sem túrista.”
- ARH
»
Við linntum ekki látum fyrr en An-
finn snaraðist með börnin sin, Ás-
laugu og Þorvald, út i garð til að taka
fyrir okkur nokkur hringdanssþor i
tilefni af Ólafsvökunni!
DB-mynd Árni Páll
Skattskráin skoðuð:
Guðjóni hrakar aftur
Við höldum áfram að fletta skatt-
skránni. í dag bemm við saman skatta
nokkurra einstaklinga sem við höfum
einnig kannað á undanförnum ámm.
Mikla athygli vakti fyrir tveimur ámm
er Guðjón Styrkársson hæstaréttarlög-
maður fékk endurgreiddar 30.250 kr. í
stað þess að greiða opinber gjöld. Síð-
ustu tvö ár hresstíst Guðjón verulega
og í fyrra greiddi hann rúmar fjórar
milljónir í opinber gjöld. í ár hefur
Guðjóni hins vegar hrakað verulega á
nýjan Ieik og greiðir nú lítið meira en
Aðalheiður Bjarnadóttir, 75 ára ver'ca-
kona.
Auk þess að kanna skatta Guðjóns
og Aðalheiðar könnúm við skatta
þeirra aðila sem fylgt hafa þeim á töflu
okkar undanfarin þrjú ár.
-GAJ
Guðjón er að hressast
Guðjón spjarar
| ■ — Gjöld nokkurra
|Sfg einstaklinga nú og í fyrra
Guðjón enn á uppleið
— samanburiur á sköttum nokkurra einstaklinga í þrju ár
ii^ndnr allt til bóu hjá honum þvi nú hciktormjdOggmggJjJ
Úrklippur úr DB frá árunum f fyrra og hittifyrra, þar sem greint er frá útkomu
Guðjóns Styrkárssonar og fleiri.
Tekjusk. Eignarsk. Útsvar Samtals jt fyrra:
Guðjón Styrkársson hrl. 0 320.040 177.900 489.773 4.108.731
Aðalheiður Bjarnad., verkakona, 75 ára. 192.960 0 175.800 393.903 248.377
Bergur Guðnason, hrl. 411.201 65.048 882.300 1.315.370 1.474.573
Kristinn Finnbogason, 2.234.079 1.208.600 1.028.600 4.424.587 3.069.573
framkvæmdastjóri
Baldvin Jónsson, hrl. 595.657 262.216 540.200 2.179.656 869.750
Sig. Pálsson, bygg.meist. 1.623.888 303.787 810.000 3.241.377 876.117
Halldór Sigfússon, fyrrv. skattst. 1.100.092 436.295 265.000 1.870.282 971.353
Þórarinn Sigþórsson, tannlæknir 2.383.953 14.507 821.400 3.771.349 1.954.163
Prestastefna Norðurlanda í Reykjavík:
250 eriendir gestir
sækja stefnuna
Um næstu mánaðamót kemur
hingað til lands stór hópur presta og
maka þeirra frá Norðurlöndunum
öllum, tU að sækja prestastefnu
Norðurlanda, sem að þessu sinni er
haidin á íslandi.
Prestastefnur fyrir Norðurlöndin öll
eru haldnar á þriggja ára frestí. Þó
hefur aðeins einu sinni verið efnt til
slíks fundar á íslandi, árið 1957. Þótti
hann takast frábærlega vel og var
íslenzkum prestum tíl mikils sóma. !
þeim hópi sem hingað kemur nú eru
Danir langfjölmennastír. Alls eru þátt-
takendur erlendis frá um 250. Er það
miklu meiri fjöldi en búizt hafði verið
við, og varð því að breyta nokkuð
áformaðri tilhögum mótsins.
Séra Ólafur Skúlason dómpró-
fastur, formaður Prestafélags
Suðurlands mun setja hina norrænu
prestastefnu í Dómkirkjunni í Reykja-
vík kl. 10 árd. þriðjudaginn 31. júlí.
Við guðsþjónustuna sem fylgir mun dr.
Chr. Thodberg frá Danmörku prédika.
Aðalviðfangsefni stefnunnar er boðun
kirkjunnar, og eru fyrirlesarar dr.
Martin Lönnebo, dómprófastur frá
Svíþjóð og dr. Þórir Kr. Þórðarson
prófessor.
Miðvikudaginn 1. ágúst verður
haldið að Skálholti og við messu þar
mun herra Sigurbjörn Einarsson,
biskup prédika. Kirkjumálaráðherra
hefur móttöku fyrir þátttakendur og
hinum erlendu gestum er boðið til
presta og safnaða í Reykjavík og ná-
grenni til kvöldverðar. Er það liður í
því að auka kynnin og skapa ný, en sá
er einn höfuðtilgangur slíkra móta.
Prestastefnunni lýkur síðan með
norrænu kvöldi í Bústaðakirkju
fimmtudaginn 2. ágúst, en fyrirlestrar
verða í Neskirkju og umræðuhópar
starfa í húsakynnum Háskóla fslands.
Mót þetta er opið öllum guð-
fræðingum og ber að tilkynna þátt-
töku hjá dómprófastí. -GAJ-
Jóhannes Rcykdal afhcndir Jóni Snorrasyni mótorinn, cn við hlió þeirra stendur Asgeir Long, umboðs*
maður Mariner mótoranna. DB-myndir Arni Páll
„Égbýðykkur
í bátsferð”
—verðlaunabáturinn og mótorinn í
verðíaunagetraun Sjóralls 79 af hentir
„Ég býð ykkur kannski í bátsferð,
ef mér tekst ekki að selja hann,”
sagði Felix Sigurðsson eftir að hafa
tekið við 1. verðlaununum í verð-
launagetraun Dagblaðsins í sam-
bandi við Sjórall ’79. Verðlaunin,
sem voru 14 feta skemmtibátur að
verðmæti um 680 þúsund krónur frá
Gísla Jónssyni og Co, voru afhent í
gær. Felix hafði áhuga á að selja bát-
inn og nota peningana í annað. Hann
fer í Menntaskólann á ísafírði í haust
og svo er Kanaríeyjaferð á dag-
skránni um jólin.
önnur verðlaun í getrauninni voru
3,5 hestafla Mariner utanborðsmótor
að verðmæti um 200 þúsund krónur
frá Barco báta- og vélaverzlun Lyng-
ási 6 í Garðabæ. Þau hlaut Jón
Snorrason, Brekkutanga 13, Mos-
fellssveit og tók hann við mótornum í
gær.
Hér óskar Jóhannes Reykdal, skrifstofustjóri ritstjórnar DB, Felix til hamingju meö bátinn, en einnig eru
á myndinni Þorsteinn Baldursson framkvæmdastjóri hjá Gisla Jónssyni og módir vinningshafans, Soffia
Felixdóttir.